Dagur - 31.01.1989, Blaðsíða 16
Bílaperur
6-12 og 24 volta — Flestar tegundir
Samlokur fyrír og án peru
„Unglingavandamár í uppsiglingu á Akureyri:
Þrettán ára gömul böm
undir áhrifum áfengis
- ölvuðum unglingum vísað frá Dynheimum
- Hver tekur við þessu vandamáli?
Drykkjuskapur unglinga á
Akureyri virðist fara vaxandi
og nieira ber á yngri krökkum
en áöur, allt niöur í 13 ára, sem
eru undir áhrifum áfengis.
Þetta kemur fram í bókun
æskulýðsráðs Akureyrar og
þykja þessar staðreyndir slá-
andi, ekki síst með tilliti til
fremur jákvæðrar útkomu úr
könnun, sem gerð var á síðasta
ári, á tómstundum og áhuga-
málum unglinga í bænum.
Dansleikir í Dynheimum
tengjast þessu máli óneitanlega.
Eftir einn slíkan hafði foreldri
samband við blaðið og sagðist vart
muna eftir öðrum eins drykkju-
látum meðal unglinga í grennd
við staðinn og í þessum hópi
hefðu verið börn um og innan við
fermingaraldur.
í bókun æskulýðsráðs getur
Steindór Steindórsson forstöðu-
maður Dynheima þess, að
árgangurinn sem bættist við um
áramótin væri stór og aðsókn að
Dynheimum með meira móti.
Hins vegar virtist áfengisneysla
fara vaxandi og umgengni um
húsið verri en áður.
Fram kemur að um aðra helgi í
janúar hefði verið tekið hart á
því að enginn færi inn í húsið undir
áhrifum áfengis. Varð að vísa um
30 krökkum frá vegna þessa og
afleiðingarnar komu berlega
fram í miðbæ Akureyrar. Þar var
að sögn lögreglunnar ófriðlegra
en oft áður um kvöldið og fram á
nótt. í þessu sambandi spunnust
miklar umræður um það hver
tæki við því vandamáli, sem
áfengisneysla unglinga væri, þeg-
ar því væri úthýst úr Dynheim-
um.
Helmingi fleiri við vinnu á virkjunarsvæði
Blöndu í sumar en síðastliðið sumar:
Yfir 500 manns á svæð-
inu um mitt næsta ár
Samkvæmt áætlunum Lands-
virkjunar verða yfir 500 manns
starfandi við Blönduvirkjun
um mitt næsta ár. Fram-
kvæmdir á virkjunarsvæðinu
iiggja að mestu niðri um þessar
mundir en hefjast með vorinu
þegar hafist verður handa við
stífluhleöslu og veituvirki.
manns við vinnu á virkjunar-
svæðinu þegar mest verður en
haustið 1991 er gert ráð fyrir að
taka virkjunina í notkun. Þá lýk-
ur mestu umsvifunum á virkjun-
arsvæðinu en áætlanir gera ráð
fyrir að nokkrir tugir manna
vinni við lokafrágang allt til
haustsins 1992. JÓH
„Æskulýðsráð skorar á foreldra
að halda vöku sinni og veita ungl-
ingunum aukið aðhald hvað
varðar áfengisneyslu. Jafnframt
hvetur ráðið þá fjölmörgu aðila
sem hafa með æskulýðs- og ungl-
ingamál að gera að ræða þessi
mál á opinskáan hátt. Öðruvfsi
mun ekki takast að skapa betri og
heilbrigðari „skemmtanamenn-
ingu“ unglinga hér í bæ,“ segir
orðrétt í bókun ráðsins. SS
Loðnubræðslan í Krossanesi er að komast undir þak á nýjan leik eftir miklar
framkvæmdir. Mynd: gb
Félagar í björgunar-
sveit Slysavarna-
félagsins á Dalvík:
Aðstoðuðu öku-
mann í Ólafs-
íjarðarmúla
Félagar í björgunarsveit Slysa-
varnafélagsins á Dalvík komu
bflstjóra á Lödu Sport til
aðstoðar í Ólafsfjarðarmúla sl.
föstudagskvöld. Veður var
slæmt í Múlanum og skyggni
afleitt.
Björgunarsveitinni barst
beiðni um aðstoð seinni part
föstudags og um kl. 19 fóru fjórir
menn úr sveitinni út í Ólafsfjarð-
armúla á bifreið af gerðinni
Unimog-Benz. Þrátt fyrir að
bifreið þessi þyki fær í flestan sjó
var fyrirstaðan orðin það mikil á
Múlaveginum að brugðið var á það
ráð að kalla á snjóbíl frá Dalvík
til að halda förinni áfram. Snjó-
bíllinn hélt af stað um klukkan
19.40 með tvo menn innanborðs.
Benz-bifreiðin snéri þá við en
tveir fjórmenninganna færðu sig
yfir í snjóbílinn. Um klukkan
20.45 náði snjóbíllinn að Löd-
unni, sem var staðsett skammt
sunnan við skýli Slysavarnafélags
íslands. Bílstjóri Lödunnar beið
átekta í bílnum í eins góðu yfir-
læti og mögulegt var við þessar
aðstæður. Hann slóst í för með
þeim björgunarsveitarmönnum
og til Dalvíkur voru þeir fimm-
menningar komnir hressir og kát-
ir síðla föstudagskvölds.
Þessi leiðangur björgunarsveit-
armanna var „létt“ æfing fyrir
helgina því þeir, ásamt félögum
úr hjálparsveit skáta, voru iðnir
við að rétta ökumönnum á Dal-
vík og nágrenni hjálparhönd í
helgarófærðinni. óþh
Akureyri:
Dagvistargjöld hækki um 58% á árinu
og rekstrarkostnaður lækki um 2,5 miili.
- „misræmi sem ég sætti mig ekki við,“ segir Sigríður Stefánsdóttir bæjarfulltrui
Áætlun Landsvirkjunar gerir
ráð fyrir að um mitt næsta sumar
verði um 270 manns starfandi á
virkjunarsvæðinu en fækki nokk-
uð þegar líður fram á árið. Segja
má að lokakaflinn í virkjunar-
framkvæmdunum hefjist í apríl á
næsta ári en um það leyti hefst
jafnframt stíflugerðinni niður-
setning á vélum virkjunarinnar. í
júlí og ágúst á næsta ári er gert
ráð fyrir að um 530 manns starfi
við framkvæmdirnar eða nær
fimmfalt fleiri en unnu á virkjun-
arsvæðinu sfðastliðið sumar.
Sumarið 1991 verða um 470
Um helgina komu sjö árekstr-
ar til kasta lögreglunnar á
Akureyri og einn ökumaöur
var tekinn grunaður um
meinta ölvun við akstur. Að
öðru leyti gekk umferðin bæri-
lega en þung færð setti strik í
reikninginn hjá mörgum.
Fimm einstaklingar gistu
fangageymslur lögreglunnar á
Akureyri um helgina.
Meirihluti bæjarráðs á Akur-
eyri hefur beint þeim tilmælum
til félagsmálaráðs, að það leggi
fram tillögur um lækkun rekstr-
„Við þurftum að aðstoða öku-
menn á föstudaginn sem höfðu
fest bíla sína í sköflum hér og þar
í bænum en það var þó minna en
oft áður. Nú eru margir komnir á
kraftmikla fjórhjóladrifsbíla og
láta snjóinn ekki aftra sér,“ sagði
Matthías Einarsson varðstjóri.
Aðspurður kvaðst hann ekki
vita til þess að ökumenn hefðu
lent í hrakningum úti á þjóðveg-
um. Öxnadalsheiðin lokaðist á
arkostnaðar á dagvistum og
leikvöllum bæjarins um 2,5
miiljónir króna. „Ég tel að fé
sem veitt er til dagvistarmála
skömmum tíma og létu menn það
alveg vera að brjótast í gegnum
ófærðina.
í Ólafsjarðarmúla lenti öku-
maður hins vegar í erfiðleikum á
föstudagskvöld. Hann festi bíl
sinn og varð að skilja hann eftir
og kalla á hjálp til að komast aft-
ur til byggða. Múlinn var vitan-
lega ófær um helgina líkt og flest-
ir fjallvegir norðanlands. SS
sé of lítið, en ekki of mikið,“
lét Sigríður Stefándóttir bæjar-
ráðsmaður og fulltrúi í félags-
málaráði bóka á fundi félags-
málaráðs í síðustu viku. Sigríð-
ur gat þess einnig að hún hefði
ekki staðið að þessum tilmæl-
um bæjarráðs til félagsmála-
ráðs.
Sigríður sagði í samtali við
blaðið, að samkvæmt fjárhags-
áætlun bæjarins væri einungis
gert ráð fyrir að minnka þjónustu
á sviði dagvistarmála, vissulega
yrði aðhalds gætt á fleiri sviðum,
„en þetta er eini málaflokkurinn
þar sem beinlínis á að draga úr
þjónustunni,“ sagði Sigríður.
Dagvistarmál væru ekki í það
góðu lagi á Akureyri að við þessu
hefði mátt.
Sigríður bendir á að ætlunin sé
að hækka dagvistargjöld um 58%
á árinu, en forsendur fjárhags-
áætlunar geri ráð fyrir 14% launa-
hækkun. Þá bendir hún einnig á
að heimild til álags á fasteigna-
skatt sé ekki að fullu nýtt. „Þetta
er misræmi sem ég get ekki sætt
mig við.“
Félagsmálaráð er sammála um
að engin leið sé að lækka rekstrar-
kostnað í dagvistarmálum nema
skerða þjónustuna og segir í
fundargerð ráðsins að verði
niðurstaða fjárhagsáætlunar sú,
mun ráðið leggja til að Gerða-
völlur verði opinn hálfan daginn í
sumar og honum lokað 1. sept-
ernber. Sumarstarfsfólki verði
fækkað um 25% á gæsluvöllum
sem þýðir að þrír vellir yrðu ein-
ungis opnir hálfan daginn, en
ekki allan eins og áætlað var. Þá
leggur ráðið til að leikskólunum
Árholti, Iðavöllum og Lundarseli
verði lokað kl. 17.00 í stað 18.00
frá 1. júní. mþþ
Skóflan á lofti um helgina:
Ófærð hrelldi ökumenn