Dagur - 09.02.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 09.02.1989, Blaðsíða 3
9. febrúar 1989 - DAGUR - 3 Róbert Guðfmnsson fær eina létta „gusu“ frá Sverri Leóssyni vegna ummæla í Degi í gær: Þeir sem líta niður á toemar á sér rjúka upp til handa og fóta - Róbert hreyfði ekki mótmælum á aðalfundi LÍÚ Akureyringar - nærsveitamenn Dansleiiair verður haldinn kl. 22.00. Lóni, laugardaginn 11. febrúar Harmonikufélag Þingeyinga. „Fleyg eru orðin. Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Eitt er víst að undirstaðan er það sem sjórinn gefur,“ seg- ir Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norður- lands vegna þeirra ummæla Róberts Guðfinnssonar, fram- kvæmdastjóra Þormóðs ramma á Siglufirði, í Degi í gær að hann vilji á engan hátt vita af ályktun Útvegsmanna- félagsins um stuðning við nú- gildandi hvalveiðivísindaáætl- un. „Róbert getur gagnrýnt mig sem formann Útvegs- mannafélagsins eins mikið og hann lystir en mér finnst það vera högg fyrir neðan beltis- stað að vera blanda stjórnar- formennsku minni í ÚA inn í þetta mál,“ segir Sverrir. Formaður Útvegsmannafé- lagsins segir að ályktun þess frá því á aðalfundi á liðnu hausti standi óhögguð. Hann bendir á að ályktunin hafi verið samþykkt mótatkvæðalaust. „Þá bendi ég á eftirfarandi ályktun aðalfundar LÍÚ í nóvember sl: „Aðalfundur LÍÚ lýsir yfir fullum stuðningi við þá stefnu stjórnvalda er mót- uð hefur verið í hvalamálinu.“ Þennan fund sat Róbert Guð- finnsson, framkvæmdastjóri Þormóðs Ramma og stjórnar- maður í Sölusamtökum lagmetís, og hreyfði engum mótmælum,“ segir Sverrir. „Ég hef ekki heyrt eitt einasta orð frá þessum manni um þessi mál fyrr en ég las stórar yfirlýsingar hans í Degi í dag (gær innsk.blaðam.). Þeir menn sem líta bara niður á tærnar á sér rjúka auðvitað upp til handa og fóta þegar eitthvað bjátar á. Sjálfsagt væri einfaldast að gefast bara upp í hvalveiðimálinu og setja punkt. Það er a.m.k. ekki minn stíll. Þetta mál er miklu stærra en svo að það snúist bara um dráp á 76 hvölum í vísinda- skyni. Það er ekki hægt að af- greiða málið svona einn, tveir og þrír,“ segir Sverrir. Sverrir segist vel skilja áhyggjur Sölusamtaka lagmetis, „en ef við viðurkennum ósigur nú, þó á móti blási, mun þessi þjóð er lengra líður gjalda þess á fleiri sviðum, er mun rýra lífsafkomu þegnanna," segir Sverrir Leós- son. óþh Verkstjórnar- fræðslan auglýsir Námskeið í töflureikninum MULTIPLAN veröur haldið dagana 16. og 17. febrúar í samvinnu viö Tölvufræðsluna Akureyri hf. Efni námskeiðsins: ★ Uppbygging töflureikna. ★ Helstu skipanir og valmyndir ( MP. ★ Stærðfræðiföll í MP. ★ Notkun tilbúinna líkana. Leiðbeinandi: Jóhann G. Sigurðsson. Lengd námskeiðs: 16 klst. Verkstjórnarfræðslan og Tölvufræðslan Akureyri hf. Glerárgötu 34, sími 27899. Hljómsveit Ingimars Eydal: Skemmtir í erlendum borgum næstu helgar - gátu ekki sinnt öllum beiðnum Hljómsveit Ingimars Eydal mun svo sannarlega ieggja „Iönd“ undir fót í mánuðinum því næstu þrjár helgar er ætl- unin ad skemmta Islendingum búsettum í Danmörku, Þýska- landi og Noregi. „Við vorum beðnir um að vera á mun fleiri stöðum í vetur, en gátum að- eins sinnt þessum þremur,“ sagði Ingimar en hljómsveitin hefur oft á undanförnum árum heimsótt íslendingafélög er- lendis. Tilefni ferðanna eru þorrablót íslendingafélaga á viðkomandi stöðum. Það fyrsta verður í Kaupmannahöfn á laugardaginn kemur, laugardaginn 18. febrúar verður hljómsveitin hjá íslend- ingafélaginu í Stuttgart og laug- ardaginn 25. verða þeir í Bergen, en Islendingafélagið þar er að halda upp á 30 ára afmæli jafn- framt að blóta þorra. Ekki verður um hreina útilegu að ræða hjá hljómsveitarmeðlimum, því komið verður heim milli helga. Einhverjir ætla sér að vísu að stoppa nokkra daga í Stuttgart ásamt mökum, en að sögn Ingi- mars er ákaflega góður andi meðal aðstandenda hljómsveitarinnar og meðlima sjálfra „og reglusem- in er eins og í meðal stúku." Aðspurður um hvort ekki væri mikið fyrirtæki að flytja hljóðfær- in á milli sí og æ sagði Ingimar að Hafnarstjórn Sauðárkróks: Umtalsverður tekjuafgangur - á ljárhagsáætlun 1989 Á fundi hafnarstjórnar Sauð- árkróks fyrir skömmu voru iögð fram drög að fjárhags- áætlun Hafnarsjóðs fyrir árið 1989. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að tekjur af höfn- inni verði rúmar 10 milljónir króna og gjöld tæpar 8,3 millj- ónir. Þarna er því um umtals- verðan tekjuafgang að ræða og hefur svo verið nokkur undan- farin ár með Sauðárkrókshöfn. Samkvæmt ofangreindum töl- um gerir áætlunin ráð fyrir að tæp 1,8 milljón fari til eigna- breytinga frá rekstri. Útborgan- ir eru áætlaðar samtals kr. 7.289.000. Á bæjarstjórnarfundi sl. þriðjudag lýstu bæjarfulltrúar yfir ánægju sinni með góða afkomu hafnarinnar, en bæjar- stjóri minnti menn á að þó að höfnin skili miklum tekjuafgangi þá væri nóg af skuldum til að borga. Á fyrrgreindum fundi hafnar- stjórnar mætti Ágúst Guðmunds- son framkvæmdastjóri Útgerðar- félags Skagfirðinga og gerði grein fyrir vandkvæðum ÚS hvað höfn- inni viðkæmi. Taldi hann þau vandkvæði vera tvenns konar, annars vegar hreyfing á skipun- um við höfnina í norðanátt og hinsvegar hætta á að skipin fengju í skrúfuna, ef þau kæntu hlaðin inn. Fór Ágúst fram á að höfnin yrði hreinsuð oftar en gert er. Hafnarstjórn gerði Ágústi grein fyrir helstu framkvæmda- áformum og hugmyndum um úr- bætur. -bjb ætlunin væri að geyma þau á Keflavíkurflugvelli milli helga. VG Golfklubbur Akureyrar Ágætu félagar! Almennur félagsfundur verður haldinn að Jaðri, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: Málefni klúbbsins. Félagar fjölmennið og fylgist með því sem er að gerast! Með golfkveðju, Stjórnin. Hvalveiðar, markaðir, vistfræði, sjálfstæði Opinn fundur Samband ungra sjálfstæðismanna efnir til opins fundar um hvalveiðar íslendinga laugardaginn 11. febrúar kl. 14.00-17.00 í Kaupangi við Mýrarveg. Árni Sigfússon formaður S.U.S. flytur árvarp. Erindi flytja: Jóhann Sigurjónsson, sjávarlíffræðingur: Um hvalarannsóknir Hafrann-' sóknarstofnunar. Tómas Ingi Olrich, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins: Um hvalveiðarog hafréttarsáttmálann. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Um hvalveiðar og sjálfstæði íslands. Theodór Halldórsson, framkvæmdastjóri: Um áhrif hvalveiða á erlenda markaði. Umræður veröa að erinduni loknuni. Fundarstjóri verður Davíð Stefánsson. ★ Allir velkomnir. Stjórn S.U.S.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.