Dagur - 09.02.1989, Síða 12
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF
FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR
TJARFESTINGARFELAGID
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Franz Árnason hitaveitustjóri Hitaveitu Akureyrar:
Hitaveitan þarf 11 til 12
prósent gjaldskrárhækkun
- greiddi 190 milljónir króna í vexti í fyrra
Tekjur Hitaveitu Akureyrar
voru 265,3 milljónir króna í
fyrra. Vegna verðstöðvunar
voru tekjur veitunnar 17 til 18
milljónum króna undir áætlun
og eru skuldir fyrirtækisins nú
2665 milljónir kr. eftir síðustu
gengisfellingu. Vaxtagreiðslur
námu 190 milljónum kr. í fyrra
og annar rekstrarkostnaður
var rúmar 60 milljónir. Franz
Arnason, hitaveitustjóri, telur
að hækka þurfí taxta hitaveit-
unnar um 11 til 12 prósent til
að ná jöfnuði í rekstrinum.
Franz sagði að H.A. skuldaði
gamalt lán og væru greiddar tvær
afborganir árlega af því. Árin
1987 og ’88 greiddi Hitaveitan
aðra afborgunina sjálf en tók
skammtímalán fyrir hinni. Til
þess að geta tekið eitt stórt lán til
greiðslu skammtímalánanna voru
þau stíluð á 31. janúar í ár, en
þann dag var einnig síðasti gjald-
dagi upprunalega lánsins.
„Við fundum út að við gætum
greitt síðustu afborgun eldra
lánsins, hvað við og gerðum, en
áætluðum í júlí í fyrra að þurfa
Súlan EA-300 á loðnumiðunum
„sunnan við Vatnajökul“:
Erum að eltast við
stóra forustusauði
- segir Bjarni Bjarnason, skipstjóri
„Við höfum verið að eltast hér
við stóra forustusauði. Annars
er ekki nógu mikið fjör í veiði-
skapnum eins og er,“ sagði
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni, þegar Dagur hafði
samband við hann í gær, en þá
var skipið að veiðum út af
Skaftárós. „Jú, bíddu við það
er hérna sunnan við Vatnajök-
ul,“ sagði Bjarni, þegar hann
var beðinn um nánari staðar-
ákvörðun.
Súlan kom á loðnumiðin suður
af landinu í fyrrinótt og um
hádegisbil í gær höfðu 300 tonn
af stórri loðnu, „stórum forustu-
sauðum,“ eins og Bjarni orðaði
það, náðst um borð. Bjarni sagði
veiðarnar hafa gengið heldur
brösugt að undanförnu. „Pað
hefur verið grábölvuð veðrátta
og því lítið gengið með veiðarn-
ar. Við lönduðum síðast á Seyð-
isfirði og á landstíminu var alveg
foráttuveður, hrein illska. Við
höfum ekki oft lent í slíku veðri á
landstími með farm,“ sagði
Bjarni. Hann sagði veður nú gott
suður af landinu en samkvæmt
veðurspá mætti líta á það sem
lognið á undan storminum.
Ef veður leyfir mun Súlan
landa afla úr þessum túr í Krossa-
nesi. Bjarni sagði um 30 tíma
stím af miðunum í Krossanes og
ekki ljóst hvort lagt yrði í slíkt ef
ganga myndi aftur „í snarvitlaust
veður." óþh
að fá 144 milljónir króna að láni
til að greiða skammtímalánin.
Um það var send inn umsókn og
beiðni H.A. var sett inn á láns-
fjárlög. Alþingi hefur þó ekki
ennþá samþykkt nein lánsfjárlög
og við gátum ekki tekið lang-
tímalán og urðum að fá Lands-
bankann til að framlengja
skammtímalánin tvö. Við slupp-
um þokkalega fyrir horn með
þetta því Landsbankinn fram-
lengdi skuldabréfin og sleppti
okkur við að greiða stimpil- og
lántökugjöld, sem hefði verið
stórfé. Það olli okkur þó óþæg-
indum að hafa ekki nein lánsfjár-
lög að styðjast við, auk þess sem
ríkið færist undan að veita ríkis-
ábyrgðir í lengstu lög. Þetta gerir
okkur erfiðara að fá innlenda
banka til að útvega erlend lán,“
sagði Franz.
Hitaveita Akureyrar greiddi á
annan tug milljóna kr. í afborg-
anir af lánum í fyrra. Hitaveitu-
stjóri sagði að skuldir veitunnar í
erlendri mynt myndu aukast ef
komið verði í veg fyrir eðlilegar
gjaldskrárhækkanir. EHB
Hmm . . .? Snjór hengdur til þerris, eða hvað?
Mynd: TLV
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis:
Umtalsverð hækkun hefur
orðið á ýmsum matvörum
- hækkun á kornflögum allt að 40%
í verðkönnun Neytendafélags
Akureyrar og nágrennis nýlega
kemur í Ijós, að á verðstöðvun-
artímabilinu frá því í liaust,
hefur ekki ríkt alger verð-
Verðlagsstofnun undirbýr umþóttunartímabil í verðlagsmálum:
Töluverðra verðbreytínga er að
vænta að lokinni verðstöðvun
stöðvun eins og neytendur
hafa eflaust orðið varir við. í
könnuninni var tekið verð á
sömu vöru og gert var í könn-
un á vegum ASI í september
sl. Yerð nú var borið saman
við verð í fyrri könnun og
stefnt er að því að framkvæma
enn eina könnun á ný eftir tvo
mánuði, ef verðstöðvun verður
aflétt í lok þessa mánaðar.
Sem dæmi um hækkanir er tek-
ið verð á kornflögum í þremur
verslunum á Akureyri. í Hag-
kaupum hafa þær hækkað um
14%, KEA Hrísalundi 'um 8% og
Matvörumarkaðnum um 40%.
Sykur er á misjöfnu verði í
verslunum. Verð á honum er
lægst hjá KEA Hrísalundi og er
þar á sama verði og í september
1988, en hefur hækkað um 10
krónur í Hagkaupum. Sykur er
hins vegar mun dýrari í verslun-
unum Síðu og Brynju og vekur
sérstaka eftirtekt hvað þar munar
miklu á ódýrasta sykrinum og
þeim dýrasta, eða 43,40 krónum
á tveimur kílóum. VG
- útlit fyrir að leigusalar fái frjálsar hendur eftir 1. mars
Fljót:
70 sm jaMalliim snjór
- féll á aðeins 8 tímum
Georg Ólafsson, verðlags-
stjóri, segir Ijóst að töluverðar
verðbreytingar verði eftir 1.
mars þrátt fyrir að aðhald í
verðlagsmálum taki við af
verðstöðvuninni sem lýkur 28.
febrúar. Hann segir of snemmt
að segja til um hversu margar
hækkunarbeiðnir þurfl að taka
fyrir en ljóst sé að búvöruverð
verði tekið til endurskoðunar
svo og verðlagning ýmissa
orkufyrirtækja. Einnig segir
hann fyrirtæki innan sam-
göngugeirans hafa beðið með
hækkanir fram yfir verðstöðv-
unartímabilið.
Á fundi verðlagsráðs sem hald-
inn verður í dag verður fjallað um
þá stefnumörkun sem stjórnvöld
hafa ákveðið um aðhald í verð-
lagsmálum. Gera þarf lagabreyt-
ingar um verðlagningu á orku-
verði svo og herða viðurlög við
vanrækslu á tilkynningaskyldu til
Verðlagsstofnunar. Georg segir
ljóst að mun nánara samstarf
verði milli verðlagsyfirvalda í
landinu annars vegar og verka-
lýðs- og neytendafélaga hins veg-
ar um aðhald í verðlagsmálum og
þegar sé byrjað að undirbúa
framkvæmd verðlagseftirlits á
þessu sex mánaða tímabili.
Um húsaleigu segir í bráða-
birgðalögum að óheimilt sé að
hækka hana á verðstöðvunar-
tímabilinu. Viðskiptaráðuneytið
hefur séð um að framfylgja þessu
ákvæði laganna og verði þetta
ákvæði ekki framlengt lítur út
fyrir að húsaleiga verði gefin
frjáls á ný. Kjartan Gunnarsson í
viðskiptaráðuneytinu segir að
ekkert hafi verið fjallað um húsa-
leigu í tenglsum við ákvörðun um
aðhaldstímabil í verðlagsmálum.
„Ég vek athygli á að húsaleiga
hefur ekki verið háð verðlags-
ákvæðum hingað til nema í þess-
um bráðabirgðalögum. Ég veit
ekki hvað stjórnvöld ætla sér
varðandi þetta atriði en mér þyk-
ir líklegt að setja þurfi sérstakar
reglur um húsaleiguna eigi að
vera hægt að beita hækkanir á
henni aðhaldi. Þetta mál hefur
ekki komið á mitt borð,“ segir
Kjartan. J ÓH
Gífurlega snjókomu gerði í
Fljótum sl. mánudag og á mjög
stuttum tíma var kominn 60-70
sm jafnfallinn snjór. Að sögn
vegagcrðarmanna var sums
staðar um 80-100 sm jafnfallið
snjólag. Snjónum kyngdi nið-
ur frá kl.10 um morguninn
fram undir kvöldmat.
„Er ég fór í vinnuna um morg-
uninn var alveg fólksbílafæri,
ekki skaf á veginum, en ég komst
ekki heim á stórum jeppa um
kvöldið. Snjórinn var alveg upp á
miðja hurð á bílnum, hann ruddi
snjónum á undan sér alveg upp á
húdd. Þetta er ekkert einsdæmi,
nema hvað fannfergið var geysi-
legt á þetta skömmum tíma.
Annars þarf miklu meira en þetta
til að okkur Fljótamönnum
blöskri,“ sagði Símon Gestsson
frá Barði, útibússtjóri KS í
Fljótum, í samtali við Dag í gær.
Vegir í Fljótum voru ruddir sl.
þriðjudag og í gær voru þeir
orðnir þungfærir, lokuðust sumir
vegna skafrennings. -bjb