Dagur - 14.02.1989, Blaðsíða 2
2 - ÐAGUR —'14. febrúar 1989
Þórshöfn:
Heilsugæslustöðin vígð
Síðastliðinn laugardag var
Heilsugæslustöðin á Þórshöfn
vígð. Húsið er 450 fermetrar
að brúttóflatarmáli en lóðin er
alls 4.860 fermetrar. Heildar-
kostnaður við bygginguna á
núvirði er 36.729.436 kr. sem
er í fullu samræmi við kostnað-
aráætlun.
Verktaki við báða áfanga
byggingarinnar var Kaupfélag
Langnesinga, en umsjón með
framkvæmdum hafði Fram-
kvæmdadeild Innkaupastofnunar
ríkisins.
Foreldrafélag
Glerárskóla:
Fundur um
skólamál
- í kvöld kl. 20.30
í kvöld mun Foreldrafélag
Glerárskóla á Akureyri gang-
ast fyrir fundi um forgangs-
verkefni í íslenskum skólamál-
um á grunnskóla- og framhalds-
skólastigi. Fundurinn fer fram
í stofu 16 í Glerárskóla og hefst
kl. 20.30.
Menntamálaráðuneytið hefur í
vinnu sinni um stefnumótun um
skólamál tekið upp það nýmæli
að leita til ýmissa aðila bæði inn-
an og utan skólakerfisins og fá
fram þeirra hugmyndir um verk-
efni á sviði skólamála sem þeir
telja að leggja þurfi áherslu á
næstu 10 árin. Á meðal þeirra eru
foreldra- og kennarafélög.
Könnun ráðuneytisins fer fram
í tveimur hlutum og í fyrri
hlutanum er þess farið á leit við
þessa aðila að þeir geri lista yfir
4-10 mikilvægustu verkefni á
sviði skólamála á næstu 10 árum.
Stjórn Foreldrafélags Glerár-
skóia telur mjög æskilegt að for-
eldrar láti álit sitt í ljós á þessum
málum og hvetur því alla til að
mæta á fundinn í kvöld.
Síðari hlutinn fer fram í maí og
þá verður sömu aðilum sendur
listi yfir þau mál sem oftast verða
nefnd í fyrstu lotu og þeir beðnir
að raða þeim í forgangsröð.
Úrvinnsla fer síðan fram í júní.
-KK
Daníel Árnason sveitarstjóri
og Kristján Baldursson umdæmis-
tæknifræðingur á Akureyri röktu
gang byggingaframkvæmda við
vígsluathöfnina en síðan opnaði
Ólafur H. Oddsson héraðslæknir
Norðurlandshéraðs eystra stöðina
formlega.
Ólafur kom til Þórshafnar í
nafni Guðmundar Bjarnasonar
heilbrigðisráðherra sem komst
ekki vegna samgönguerfiðleika
fremur en aðrir fulltrúar heil-
brigðisráðuneytisins. Heilsu-
gæslustöðin var opin á laugardag-
inn og að sögn Daníels Árnason-
ar lét fólk vel af byggingunni.
Nánar verður sagt frá Heilsu-
gæslustöðinni á Þórshöfn og for-
sögu hennar í Degi á morgun. SS
Hin nýja heilsugæslustöð Þórshafnarbúa var vígð sl. laugardag.
Norðurleiðarrúta frá Reykjavík til Akureyrar:
Lagði af stað á suimudagsmorgun og
kom til Akmeyrar 29 tunum síðar!
_4 1- ' L__4 £*_ZCL _ . C' 1 I T-_ r. .n* r - , t t-. xx
„Heim kemst þó hægt fari“.
Þetta spakmæli á svo sannar-
lega við um ferð Norðurleiðar-
rútunnar frá Reykjavík til
Akureyrar, sem lagði af stað
kl. 10 á sunnudagsmorgun og
rútan ók í hlað á Akureyri um
tvö leytið í gær, mánudag! Að
vísu var rútan ekki á ferðinni
allan þennan tíma, því hún áði
í Varmahlíð aðfararnótt mánu-
dags og hélt áfram för sinni í
gærmorgun.
„Þetta var hábölvað veður,
þarna á sunnudag, sérstaklega í
Norðurárdalnum og upp á Holta-
vörðuheiði. Síðan var ágætt eftir
það til Varmahlíðar. Núna er
alveg vitlaust veður, mikill skaf-
renningur og maður fer bara fet
fyrir fet,“ sagði Eggert Karlsson
rútubílstjóri hjá Norðurleið í
samtali við Dag í gær, er hann
var staddur í Bakkaselsbrekk-
unni um hádegisbilið. Eggert
kom til Varmahlíðar um mið-
nætti, aðfararnótt mánudags og
lagði síðan snemma af stað í
gærmorgun til Akureyrar.
Eggert sagðist vera orðinn
þreyttur á þessu tíðarfari. „Mað-
ur er vanur að fá svona dag og
dag, en ekki svona langa kafla og
stöðug slagveður," sagði Eggert.
Engar ferðir voru farnar í gær
frá Akureyri og Reykjavík á veg-
um Norðurleiðar og var rútan
hans Eggerts eitt af síðustu farar-
tækjunum sem braust yfir Öxna-
dalsheiðina í gær. -bjb
Sjónvarpsleysið á sunnudagskvöld:
Myndbandaæði greip
um sig á Akureyri
Myndbandaæði greip um sig á
Akureyri á sunnudagskvöld,
enda duttu sjónvarpsútsend-
ingar út í rafmagnsleysinu. Má
ætla að hátt á annað þúsund
spólur hafi horfið úr hillum
myndbandaleiganna fimm í
bænum og augsýnilegt hvað
Akureyringar hafa aðhafst það
kvöldið. Ekki kváðust forráða-
menn myndbandaleiga harma
þessi viðbrögð.
„Það mættu koma fleiri svona
kvöld,“ sagði starfsmaður í
Myndbandahöllinni við Skipa-
Bridds:
Anton og Pétur Akureyrar-
meistarar í tvímenningi
- Alþýðubankamót laugardaginn 18. febrúar
Anton Haraldsson og Pétur
Guðjónsson báru sigur úr být-
um í Akureyrarmóti Bridge-
félags Akureyrar í tvímenn-
ingi, sem lauk s.I. þriðjudag.
Sigur þeirra var glæsilegur, því
þegar upp var staðið höfðu
þeir rúmlega 60 stiga forskot á
næsta par.
26 pör tóku þátt í mótinu og
voru spilaðar fimm umferðir á
kvöldi, fimm spil milli para, eftir
Barometer-fyrirkomulagi. Áður
en síðasta keppniskvöldið hófst
var Ijóst að einungis þrjú pör
ættu raunhæfa möguleika á sigri í
mótinu. Anton og Pétur náðu sér
í 32 stig í síðustu fimm umferð-
unum á meðan keppinautarnir
töpuðu stigum og því varð sigur-
inn eins og fyrr segir afar örugg-
ur.
Lokastaða efstu para varð
þessi:
1. Anton Haraldsson - Stig
Pétur Guöjónsson: 205
2. Ólafur Ágústsson -
Sveinbjörn Jónsson: 141
3. Hörður Steinbergsson -
Örn Einarsson: 114
4. Reynir Helgason -
Tryggvi Gunnarsson: 108
5. Ármann Helgason -
Alfreð Pálsson: 91
6. Magnús Aðalbjörnsson -
Pétur Jósepsson: 89
7. Kristján Guðjónsson -
Stefán Ragnarsson: 87
8. Grettir Frímannsson -
Frímann Frímannsson: 71
9. Gunnlaugur Guðmundss. -
Kristinn Kristinsson: 54
10. Páll Pálsson -
Þórarinn B. Jónsson: 40
Keppnisstjóri var Albert Sig-
urðsson en tölvuútreikning ann-
aðist Margrét Þórðardóttir.
í kvöld hefst hin árlega Firma-
og Einmenningskeppni Bridge-
félags Akureyrar. Spilafólk á
Akureyri og nágrenni er hvatt til
að fjölmenna. Spilað verður í
Félagsborg að venju og hefst
spilamennskan kl. 19.30. Skrán-
ing fer fram á staðnum. Firma-
og Einmenningskeppninni lýkur
þriðjudaginn 21. febrúar.
Laugardaginn 18. febrúar
verður hið árlega Alþýðubanka-
mót Bridgefélags Akureyrar og
Alþýðubankans haldið í Álþýðu-
húsinu á Akureyri. Um er að
ræða tvímenningsmót með Mitc-
hell-fyrirkomulagi og verður spil-
að um silfurstig. Mótið hefst
kl. 10.00 árdegis og lýkur um
kl. 18.00. Tekið er á móti þátt-
tökutilkynningum í Alþýðubank-
anum á afgreiðslutíma svo og í
símum 26668 (Bragi) og 26256
(Kristín) á kvöldin. Þátttöku-
gjald er krónur 1300 á par og er
innifalið kaffi meðan á spila-
mennsku stendur.
götu. fJann vildi ekki gefa upp
hve margar spólur fóru út umrætt
kvöld en örtröðin var mikil.
„Það stútfylltist allt hér enda
eru allar hillur hálftómar. Það
Seifur enn á kafi við
bryggjuna á Bakkafirði:
Selur Skipa-
flakið?
„Við höfum ekkert getað
aðhafst. Hér hefur verið vit-
laus vestan strekkingur en svo
virðist sem eitthvað sé að
lægja, að minnsta kosti í bili,“
segir Birgir Ingvarsson, skip-
stjóri og eigandi Seifs á Bakka-
fírði, sem sökk við bryggjuna
þar um kl. 4 aðfaranótt sl.
föstudags.
Báturinn er ennþá á kafi við
bryggjuna og sér einungis í möst-
ur hans. Búist hafði verið við að
talsmenn tryggingarfélags
bátsins, Skipatryggingar Aust-
fjarða á Höfn, kæmu til Bakka-
fjarðar og skoðuðu aðstæður.
Ekki var vitað í gær hvort þeirra
væri von. Dagur reyndi árang-
urslaust í gær að ná tali af
Ásgrími Halldórssyni hjá Skipa-
tryggingu Austfjarða.
Birgir segist reikna með að
kafarar verði fengnir til að kafa
niður að bátsflakinu til að meta
skemmdir. Að öllu óbreyttu mun
tryggingarfélagið selja flakið og
kaupanda verður gert að fjar-
lægja það frá bryggjunni á
Bakkafirði.
Aðspurður um hvort ætlunin
sé að kaupa nýjan bát í stað Seifs
sagðist Birgir fastlega gera ráð
fyrir því, að því tilskildu að bát-
urinn fáist að fullu bættur úr
tryggingum. óþh
fóru töluvert ^ þriðja hundrað
myndir," sagði Marta Jörunds-
dóttir í Videolandi við Strand-
götu. Hún sagði að viðskiptin
hefðu verið mun blómlegri en
venjulega um helgar og mætti
helst líkja ástandinu við það sem
gerðist fyrir stórhátíðir.
„Geðveikt," var svarið sem
starfsstúlka í Videoveri í Kaup-
angi gaf. Hún sagði að ásóknin í
myndbönd stjórnaðist greinilega
af sjónvarpsdagskránni. Þegar
dagskrá stöðvanna væri léleg
kæmi fleira fólk á leigurnar, hvað
þá þegar dagskráin væri hrein-
lega engin, eins og lengi vel á
sunnudagskvöldið.
Rafmagnsleysið hefur þannig
haft margvísleg áhrif, bæði góð
og slæm, en viðmælendur okkar
bjuggust við mikilli örtröð í gær-
kvöld þegar spólurnar færu að
streyma inn á nýjan leik. SS
Vindhviður á Dalvík:
Þakpappi fauk á
tvær bifreiðar
Um klukkan 20.00 sl. laugar-
dagskvöld náði ein hraustleg
vindhviða að svipta drjúgri
ræmu af þakpappa af Heima-
vist Dalvíkurskóla og lenti hún
ofan á tveimur kyrrstæðum
bílum, sem stóðu við bygging-
una.
Að sögn lögreglu á Dalvík
dælduðust bílarnir nokkuð en
engin slys urðu á fólki. Lögregla
hafði ekki spurnir af frekari
skemmdum á mannvirkjum á
Dalvík og Svarfaðardal af völd-
um helgarveðursins.
Aðfaranótt laugardags var bíl
á Dalvík stolið. Hann fannst síð-
an mannlaus í bænum síðla
nætur. Ekki hefur tekist að upp-
lýsa hver eða hverjir voru þarna
að verki. óþh