Dagur - 14.02.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 14.02.1989, Blaðsíða 16
 J5ilaperurr 6-12 og 24 volta — Flestar tegundir Samlokur fyrir og án peru Föst á Öxnadalsheiði í 6 tíma án þess að beðið væri um hjálp: Horföum á rútuna fara útaf í Bakkaselsbrekkunni - „ekki fleiri ævintýri í bili takk,“ segja Veðurfar á landinu síðustu helgar hefur ekki beint gefið tilefni til ferðalaga þó margir hafí lagt land undir fót og gefið veðurguðum langt nef. Fram til þessa hafa ferðalögin gengið stórslysalaust, en litlu mátti muna um síðustu helgi að illa færi hjá hópi ungs fólks sem lenti í hrakningum á Öxna- dalsheiði. Þar voru á ferð nemendur úr Menntaskólan- um við Hamrahlíð og hand- knattleikslið í keppnisferðalagi á fjórum Iangferðarbílum sem lögðu upp frá Akureyri kl. 11.00 á sunnudagsmorguninn. Strax og komið var á heiðina festu bOarnir sig og annar bfll MH-inganna fór útaf veginum í Bakkaselsbrekkunni, á sama stað og margir aðrir bílar hafa lent útaf og m.a. hefur hlotist af dauðaslys. „Við horfðum á rútuna fara útaf þar sem var mjög bratt og við héldum að hún myndi steyp- ast niður. Það sem bjargaði var, að þarna var svo mikill snjór sem tók af fallið. Sem betur fer meiddist enginn, en það þurfti að deila þeim sem voru í bílnum á hinar rúturnar svo það varð ansi þröngt og vont loft í bílunum. Þá erum við bæði reið og hissa því við vissum ekki annað en að hjálp væri á leiðinni allan tímann, en svo fréttir enginn af þessu fyrr en í kvöldfréttum klukkan sjö,“ sagði nemandi í MH og einn af farþegunum sem bjargað var af heiðinni á sunnu- dagskvöld, en það þykir sæta furðu að ekki skyldi kallað á aðstoð fyrr en 7 tímum eftir að óhappið gerðist. MH-ingarnir tóku það rólega á Akureyri í gær og var ætlunin að leggja af stað heim í morgun um leið og heiðin hefur verið rudd. „Við viljum ekki fleiri ævintýri í Ungmennin á heiðinni: „Sérstakt að ekki fór verr“ - segja björgunarsveitarmenn „Það er eins og fólk geri sér ekki grein fyrir veðrinu og hvernig færðin getur verið, þó hér eigi að vera um vana menn að ræða,“ sagði Gunnar Gísla- son hjá Hjálparsveit skáta, en þetta er í fyrsta skipti í vetur sem óskað er eftir þeirra hjálp við slíkar kringumstæður. Gunnar segir, að það að halda af stað með hóp af fólki út í slíka ófærð hljóti að stafa af hugsunarleysi eða vankunn- áttu. „Þá fannst mér rúturnar sem um var að ræða í þetta skipti ekki of vel búnar til vetraraksturs, sérstaklega þar sem búið var að tilkynna að heiðarnar væru ófærar. Það er undarlegt að menn kynni sér ekki ástand vega áður en lagt er af stað. Mér þykir líka mjög furðulegt að ekki skuli hafa verið beðið um aðstoð fyrr en eftir kvöldmat þegar fólkið var búið að vera fast á heiðinni síð- an um hádegi.“ Það voru félagar í Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitinni á Akureyri sem beðnir voru að aðstoða á heiðinni í fyrrakvöld, en þær voru ekki ræstar út fyrr en laust fyrir kl. 19.30. Haukur ívarsson hjá Flug- björgunarsveitinni var ræstur út kl. 19.20, en hann hafði verið til- búinn til að leggja af stað nokkru áður þar sem hann átti von á útkalli mun fyrr. „Það kom hjálp- arbeiðni til lögreglunnar sem síð- an kom skilaboðum til okkar. Við fórum sex á tveimur bílum og höfðum meðferðis kerru með vélsleðum ef selflytja þyrfti fólk. Færðin reyndist hins vegar það góð að við komumst alla leið að bílunum, en veðurhæðin var ofsaleg og skyggni lélegt.“ Hauk- ur segir það aðeins tilviljun að ekkert alvarlegt slys hafi enn hlotist af ótímabærum ferðalög- um fólks í ófærðinni. „Það má telja sérstakt að ekki færi verr en aðeins það að bílarnir færu útaf. Þarna gæti hafa orðið stórslys." Tveimur bílum var snúið við og lögðu þeir af stað á undan félögunum í björgunarsveitinni. Þegar þeir ná þeim aftur síðar, móts við Engimýri, hafði fyrri rútan lent útaf og oltið á hliðina. „Við báðum aldrei um hjálp því við þurftum ekki á henni að halda,“ sagði Hallgrímur Lárusson bílstjóri hjá hóp- ferðabílum Snælands Gríms- sonar í Reykjavík sem fluttu MH-ingana. „Strax og við sáum að við kæmumst ekki upp Bakkaselsbrekkuna og vorum búnir að missa annan bflinn útaf, ákváðum við að halda kyrru fyrir og reyna ekki einu sinni að snúa við því hálk- an var svo mikil í brekkunni. Við komumst fljótt í samband við tvo 14 manna trukka sem voru þarna uppfrá og gripum til þess ráðs að hafa krakkana í upphituðum bílnum, fá bfl frá Akureyri á móti okkur og ferja á milli með trukkunum.“ Sökum veðurhæðar gekk þessi flutningur hægt, en engin hætta var á ferðum. Það voru hins veg- Að lokum tókst þó að koma öll- um niður af heiðinni heilum, en þreyttum. VG ar bílstjórar handknattleikslið- anna sem óskuðu hjálpar björgun- arsveita. Fyrstu MH-ingarnir komu til Akureyrar um kl. 19.00 og þeir síðustu um kl. 23.00. Hallgrímur mótmælti því að bifreiðarnar hafi verið illa búnar. „Við vorum á keðjum í bak og fyrir, en hálkan var bara svo mik- il og veðrið slæmt og því fór sem fór.“ Astæðurnar fyrir því hvers vegna farið var af stað þegar búið var að tilkynna ófærð sagði hann aðallega tvær. „í fyrsta lagi lögðu krakkarnir hart að okkur að fara því þau höfðu ekki frí í skólanum á mánudag. Þá vorum við búin að ákveða að verða samferða Norðurleið og nokkrum flutn- ingabifreiðum sem fóru kl. 10.00 um morguninn. Krakkarnir okk- ar voru hins vegar svo lengi að koma sér út í bílana, að við gát- um ekki lagt af stað fyrr en kl. 11.00 sem var einum tíma of seint.“ VG „Við báðum aldrei um hjálp því við þurftum ekki á henni að halda,“ sagði Hallgrímur Lárusson bflsstjóri. Mynlj: xlv Bflstjóri MH-inganna: Þurftum ekki aðstoð hjálparsveita nemendur MH bili,“ sagði viðmælandi okkar. Þeir vildu koma á framfæri sér- stöku þakklæti til starfsfólks Dynheima sem hafi tekið ein- staklega vel á móti þeim og gert allt til að létta undir með þeim. í gærmorgun lagði rúta með nemendur úr Kvennaskólanum í Reykjavík af stað frá Akureyri og var ferðinni heitið til Reykja- víkur, þrátt fyrir að margoft hafi verið tilkynnt, að Öxnadalsheið- in væri ófær. Rútunni var enda snúið fljótlega til Akureyrar aftur. VG Byggingavörudeild KÞ á Húsavík var með kynningu á heilsuræktar- og þrek- tækjum sl. föstudag og selur þau á sérstöku kynningarverði þessa viku. Það var enginn annar en Sterkasti maður heims, Jón Páll Sigmarsson sem mætt- ur var í kaupfélagið til að kynna tækin. A myndinni sjáum við Jón Pál leiðbeina ungum manni við að taka á lóðunum og áhuginn leynir sér ekki. Á fimmtudaginn fá lesendur Dags að sjá fleiri myndir af Jóni Páli í KÞ og þá verður einnig birt viðtal við kappann þar sem fram kemur hvað hann er að fást við um þessar mundir. Mynd: im Stjórastööin a Akureyri sannaði gildi sitt - Krafla og Laxá forðuðu langvinnu rafmagnsleysi Rafmagn fór af nærri öllu landinu klukkan 17.13 á sunnudag vegna bilunar í aöveitustöð Landsvirkjunar á Geithálsi og fleiri stööum á Vesturlandi. Það varð raforku- ástandinu á Norðurlandi til bjargar að hægt var að byggja kerfið upp að nýju í stjórnstöð Landsvirkjunar og Rafmagns- veitna ríkisins á Rangárvöll- um. Frá því að rafmagnið fór af til klukkan 18.10 sáu Laxá og Krafla stórum hluta Norðurlands fyrir raforku en áður höfðu verið miklar trufl- anir á Byggðalínuhringnum. Að sögn Óskars Árnasonar, tæknifræðings hjá Landsvirkjun, sýndi mikilvægi stjórnstöðvarinn- ar á Rangárvöllum best gildi sitt á sunnudaginn. Þegar rafmagnið fór af Norðurlandi brann spóla í tengivirkinu við Rangárvelli. Ef það hefði ekki gerst hefði Akur- eyrarbær aðeins verið rafmagns- laus í 10 til 15 mínútur, en ekki tæpa klukkustund. Fyrsta verk starfsmanna Lands- á Norðurlandi virkjunar var að einangra Norðurland frá öðrum hlutum Byggðalínunnar. Krafla var í gangi með 30 megavatta afköst og Laxá með u.þ.b. 19 megavött. Þá varð ljóst að ekki þurfti að ræsa diesel-varastöðvarnar á Akureyri. Kröfluvirkjun var tengd inn á kerfið til Ákureyrar og Laxá kom inn skömmu síðar. Um klukkan 18.45 var búið að byggja upp raforkuflutning um netið frá Kröflu vestur í Geira- dal. Þá var einnig búið að tengja þann hluta Byggðalínunar sem liggur frá Sigöldu, þ.e. Tungna- ár- og Þjórsársvæðinu, norður um Austfirði til Kröflu. Rafmagn komst því á um allt Norðurland, Austfirði og hluta Vestfjarða mun fyrr en á Suðurlandi og í Reykjavík. Þess má að lokum geta að í undirbúningi er uppsetning nýrr- ar stjórnstöðvar í húsi Lands- virkjunar á Akureyri, en hún er hluti af nýju heildarstjórnkerfi Landsvirkjunar fyrir alít landið og mun koma í gagnið næsta haust. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.