Dagur - 14.02.1989, Síða 8

Dagur - 14.02.1989, Síða 8
8 - DAGUR - 14. febrúar 1989 Heimsmeistaramótið á skíðum: Ágætur árangur Islendinganna - Valdimar 21. og Guðrún 30. Guðrún H. Kristjánsdóttir frá Akureyri lenti í 30. sæti í stórsvig- inu á Heimsmeistaramótinu í Veil í Colorado á laugardaginn. Örnólfur Valdimarsson lenti í 21. sæti i sviginu á sunnudag. íslensku keppendurnir koma heim til landsins á morgun, miðvikudag. Mjög slæm brautarskilyrði settu svip á keppnina og má til gamans geta að einungis 31 af 92 keppendum í karlaflokki í svigi lauk keppni. Hjá konunum luku 38 af 74 keppni. Notaður var gervisnjór til að fylla upp eyður á þessari mjög löngu bráut í Veil og þegar blandað er saman gervi- og alvörusnjó verður mjög hált og erfitt að „kanta“ skíðin. Einnig var brautin mjög löng og voru t.d. 75 hlið á stórsvigsbrautinni. Með þetta í huga keyrðu íslensku keppendurnir af öryggi og er árangur þeirra á þessu móti mjög frambæri- Iegur. Sigurvegari í svigi karla var Rudolf Nierlich frá Austurríki og var hann eini keppandinn sem hlaut tvenn gullverðlaun á þessu móti. í kvenna- flokki sigraði svissneska skíðadrottn- ingin Vreni Schneider í stórsviginu. B-keppnin í handknattleik: Island leikur annað kvöld - Getraunir með aukaseðil íslenska landsliðið í handknattleik er nú komið til Frakklands en þar hefst á morgun B-Heimsmeistara- keppnin í handknattleik. íslend- ingar leika sinn fyrsta leik á morg- un gegn Búlgörum og verður leikurinn sýndur í íslenska sjón- varpinu. I tengslum við keppnina verða íslenskar getraunir með tvo aukaseðla þar sem hægt verður að tippa á úrslit í leikjunum í keppn- inni. íslenska landsliðið er að mestu leyti skipað sömu leikmönnum og léku á Ólympíuleikunum í Kóreu. Þó eru þar tveir nýliðar, þeir Hrafn Margeirsson markvörður úr ÍR og línumaðurinn sterki Birgir Sigurðs- son úr Fram. Þeir sem detta úr hópn- um eru Páll Ólafsson úr KR og Atli Hilmarsson Granollas vegna meiðsla og svo Brynjar Kvaran Stjörnunni og Karl Þráinsson Víkingi sem ekki gátu einbeitt sér að æfingum sökum anna í Háskólanum. f>að er mikið í húfi hjá íslenska'lið- inu að þessu sinni því það er sæti í A- keppninni í Tékkóslóvakíu árið 1990 í húfi. Sex efstu liðin í B-keppninni komast áfram og undir venjulegum kringumstæðum ætti íslenska liðið að vera í einu af þeim sætum. Hins vegar virðist komin einhver þreyta í liðið og andstæðingum okk- ar hefur gengið betur og betur að ráða við íslensku leikkerfin. En það þýðir ekki að örvænta því liðið er leikreynt og mun sjálfsagt gefa allt í þessa keppni. íslendingar leika gegn Búlgörum á morgun og gegn Kuwait á fimmtu- daginn. Þessir tveir leikir eru á íslenska getraunaseðlinum og getur fólk farið út í búð og tippað á seðil- inn fyrir kl. 18.45 á miðvikudags- kvöldið. Eftirtaldir leikir eru á seðl- inum: 1. V.-Þýskaland-Noregur 2. Ísland-Búlgaría 3. Spánn-Austurríki 4. Pólland-Kúba 5. V.-Pýskaland-Holland 6. Kuwait-ísland 7. Ísrael-Spánn 8. Kúba-Danmörk 9. Noregur-Sviss 10. Búlgaría-Rúmenía 11. Austurríki-Frakkland 12. Egyptaland-Pólland Mikið mun mæða á Alfreð Gíslasyni í b- keppninni í Frakklandi. Jón og Bima vaJin best - á lokahófi blakara Blakmenn héldu uppskeruhátíð sína á laugardaginn og þar var til- kynnt um valið á bestu blakmönn- um þessa keppnistímabils. Blak- maður ársins hjá körlum var val- inn Jón Árnason hjá Þrótti R. og efnilegasti blakmaðurinn Vignir Hlöðversson úr HK. Hjá stelpun- um var Birna Hallsdóttir úr Vík- ingi valinn best og Jóna Harpa Viggósdóttir úr Þróttir Nes. efni- legust. Athygli vekur að enginn leikmaður deildarmeistara KA var valinn. Valið fer þannig fram að allir leik- menn 1. deildar fá atkvæðaseðil og velja sjálfir þannig að lítið er hægt að segja um þetta val. Einnig var besti dómarinn valinn og það var Þorvaldur Sigurðsson sem varð þess heiðurs-aðnjótandi að hljóta þann titil. íþróttir Guðrún H. Kristjánsdóttir stóð sig vel á Heimsbikarmótinu í Veil í Colorado í Bandaríkjunum. Hún kemur til land morgun ásamt Örnólfi Valdimarssyni sem keppti einnig í Veil. My íslandsmótið innanhúss/1. deild: ekki tókst að ljúka mótinu sökum rafmagnsleysis Veðurguðirnir settu heldur betur strik í reikninginn hjá norðanlið- unum á íslandsmótinu í knatt- spyrnu innanhúss 1. deild. Ekki komust allir leikmennirnir suður og féllu norðanliðin þrjú öll niður í 2. deild. Ekki tókst að Ijúka keppninni vegna rafmagnsleysis og fara úrslitin fram næstkomandi föstudagskvöld. Pað eru lið KR, Selfoss, ÍA, ÍK, Grindavíkur, Þróttar, ÍBK og Fylkis sem eru komin í úrslit og munu leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn næsta föstudag. Það vekur athygli að Reykjavíkurmeistararnir og íslands- meistarar tveggja síðustu ára, Fram- arar, komust ekki í úrslit, heldur komust suðurnesjaliðin ÍBK og Grindavík áfram úr þeirra riðli. Það voru hins vegar lið KA, KS, HSÞb og Haukar sem féllu niður í 2. deild og má segja að norðanliðin hafi fallið vegna veðurs. Úrslit í einstök- um leikjum norðanmanna urðu þannig: KA-Grótta 2:2 KA-ÍK 5:7 KA-KR 3:5 HSÞb-Fylkir 2:2 HSÞb-Þróttur R. 3:4 HSÞb-Víðir 3:2 KS-ÍBK 1:2 KS-Fram 3:5 KS-Grindavík 2:2 Hér sjást Siglfirðingurinn Hafþór Kolbeinsson og Keflvíkingurinn Óli Þór V son berjast um boltann í leik liðanna um helgina. m:

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.