Dagur - 17.02.1989, Síða 2

Dagur - 17.02.1989, Síða 2
2 - DAGUR - 17. febrúar 1989 Búið að skipa nýja samninganefnd ríkisins í launamálum: Rfldsstjómin samþykkti hugmyndalista BSRB - óskað eftir viðræðum við önnur samtök launafólks Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, hefur skipað nýja samninganefnd ríkisins í launamáium. 12 manns eiga sæti í nefndinni en aðeins fjórir þeirra áttu sæti í fráfarandi samninganefnd. Formaður nýju nefndarinnar er Indriði H. Þorláksson hagsýslustjóri. Athygli vekur að í nýju nefnd- inni eru 9 konur en voru aðein þrjár áður. Fjármálaráðherra hefur lagt fram í ríkisstjórn samþykkt BSRB sem felur í sér hugmyndir samtakanna um viðræður við ríkisvaldið. Ólafur Ragnar segir að ríkisstjórnin hafi samþykkt að $tánda skuli að málum eins og BSRB lagði til og einnig hafi rflcisstjórnin samþykkt að óska eftir viðræðum við önnur samtök launþega um viðræður á líkum í nýlegri Gallupkönnun um neyslu áfengis hér á landi kemur í Ijós aö 9 af hverjum 10 á aldrinum 20-24 ára neyta áfengis. Gallupkönnun á neyslu áfengis: Áfengisneysla algengust hjá 20-24 ára fólki 1 Gallupkönnun á neyslu áfengis hér á landi, og birt var fyrir skömmu, kom í Ijós að áfengisneysla er algengust meðal 16 ára unglinga þegar litið er á aldurshópinn 15-20 ára. Helmingur þeirra 15 ára unglinga sem tóku þátt í könnuninni sögust nota áfengi en ylir 65% 16 ára unglinga söguðust nota áfengi. Eftir því sem ofar kom í aldursstigann voru færri sem sögðust nota áfengi, fæstir í 20 ára hópnum, eða 12,5%. í ljós kom að tæplega 90% fólks á aldrinum 20-24 ára sagðist neyta áfengis, eða m.ö.o. að 9 af hverjum 10 í þessum aldursflokki neyta áfengis. Lítill munur er á neyslu áfengis hvað kynin varðar, 79% karla sögðust neyta áfengis en 74% kvenna játuðu neyslu. í könnuninni var einnig spurt um neyslu áfengis með mat. Lítill munur virtist á áfengisneyslu með mat eftir kynjum en nokk- um munur reyndist vera eftir bú- setu. Þessi siður virðist mun algengari á höfuðborgarsvæðinu en annars staðar á landinu. Þá kom einnig í ljós að körlum virð- ist tamara að neyta áfengis heima á kvöldin en konum. JÓH á líkum nótum nótum og BSRB. Þær leiðir sem BSRB vildi fara voru að í samvinnu víð önnur samtök launamanna verði teknar upp viðræður við ríkisvaldið um leiðir til að efla velferðarkerfið og skapa launafólki betri lífskjör. Rætt verður m.a. um skattamál, lækkun á tilkostnaði heimilanna, húsnæðismál, tryggingamál og dagvistarmál. í öðru lagi vildi BSRB taka upp viðræður við rík- ið um launakerfi og stigvaxandi kaupmátt kauptaxta. í þriðja lagi lagði BSRB til að aðildarfélög samtakanna leiti þegar eftir við- ræðum um sín innri mál. „Mér þykir.ánægjulegt að þær samþykktir sem komið hafa frá Verkamannasambandinu og ýmsar hugmyndir ASÍ eru mjög í sama anda eins og þær sem komu frá BSRB. Þess vegna óskum við eftir frekari viðræðum við þessi samtök," segir fjármálaráðherra. JÓH Þessar ungu og duglegu siglfírsku stúlkur héldu tombólu fyrir skömmu og söfnuðu 1060 kr., sem þær gáfu Rauðakrossdeildinni í Siglufírði. Á mynd- inni eru, í efri röð Katrín Freysdóttir og Sigrún Theódórsdóttir en í neðri röð Gunnhildur Róbertsdóttir, Sigríður M. Róbertsdóttir og Helga Fanney Salmannsdóttir. Vanskil fyrirtækja á staðgreiðslu geta valdið erfiðleikum: Launþegar gætu þurft að sanna staðgreiðslu á sköttum - engar upplýsingar fyrirliggjandi um ijölda starfsmanna hjá þeim 8000 launagreiðendum sem skulda staðgreiðslu Eins og blaðið skýrði frá í gær eru í burðarliðnum hertar aðgerðir gegn þeim launa- greiðendum sem ekki hafa skilað inn staðgreiðslu fyrir síðasta ár. Þeir sem vinna hjá slíkum launagreiðendum gætu þurft að sanna fyrir skattayfir- völdum þegar kemur að álagn- ingu síðar á þessu ári að stað- greiðsla hafi verið dregin af þeim á síðasta ári og því er mikilvægt að launaseðlum síð- asta árs verði ekki hent í ruslið fyrr en álagningu er lokið. „Það er mikilvægt að fólk sé vel vakandi fyrir því að vinnu- veitandi standi skil á launum. Ábyrgðin er hjá fyrirtækjunum þegar dæmið verður gert upp en það er Ijóst að svona tilfelli geta skapað mikil vandræði fyrir fólk, bæði sálræn og efnahagsleg," segir fjármálaráðherra. Fjármálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hversu margir launþegar eru hjá þeim ríflega Stjórn Verkalýðsfélags- ins Vöku á Siglufirði: Lýsir andstöðu við endurvakn- ingu sjóðakerfis í sjávarútvegi Á fundi stjórnar Verkalýðsfé- lagsins Vöku, Siglufirði 17. jan. sl. var eftirfarandi ályktun sam- þykkt samhljóða: „Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði lýsir fullri and- stöðu við allar hugmyndir um endurakningu sjóðakerfis í sjáv- arútvegi. Stjórnin mótmælir harðlega hugmyndum sjávarútvegsráð- herra um að selja einkaaðilum Síldarverksmiðjur ríkisins og bendir á slæma reynslu á sölu ríkisins á lagmetisiðjunni Sigló- síld. Stjórnin skorar á ráðherra að beita sér heldur fyrir því að síld- arverksmiðjum ríkisins verði gert klcift að eiga og gera út eigin skip, en sú tilhögun myndi bæta rekstrarstöðu fyrirtækisins veru- lega.“ 8000 launagreiðendum sem hald- ið hafa staðgreiðslunni eftir. Ástæður þess eru m.a. þær að fjöldi launagreiðenda hefur eng- um skýrslum skilað til ráðuneyt- isins um staðgreiðsluna, þrátt fyr- ir ítrekuð tilmæli skattayfirvalda. Starfsmenn ráðuneytisins segja að ekki sé uin að ræða að launþegar fái bakreikning fyrir þeim 1400 milljónum sem nú eru útistandandi hjá launagreiðend- um af staðgrejðslufé síðasta árs heldur geti launþegar hjá van- skila fyrirtækjum þurft að sanna að staðgreiðsía hafi farið fram. í slíkum tilfellum þurfi launþegar að grípa til launaseðlanna. JÓH Ungir framsóknarmenn álykta um hvalveiðimálið: íhaldsstýrðu fjölmiðlarnir rejtia að blása upp pólitísku moldviðri - hvalamálið snýst um grundvallarhagsmuni þjóðarinnar Á fundi sínum sl. miðvikudag fjallaði framkvæmdastjórn Sambands ungra framsókn- armanna m.a. um hvalamálið og þá miklu umræðu sem verið hefur um það að undanförnu. í lok fundar var borin upp og samþykkt ályktun um hvala- málið þar sem hvatt er til sam- stöðu þjóðarinnar um það og lýst er yfir stuðningi við með- ferð sjávarútvegsráðherra á málinu. Ályktun SUF er eftirfarandi: „Framkvæmdastjórn Sambands ungra framsóknarmanna vill í Ijósi þess ástands sem er að skap- ast vegna hvalveiðimálsins minna alla íslendinga á að þeir lifa með einum eða öðrum hætti á fiski. Af þeirri ástæðu tóku íslendingar upp fyrstir þjóða vísindalegar rannsóknar á fiskimiðum sínum og hafa reynt að samræma fisk- veiðar niðurstöðum þessara rannsókna. Hvalveiðimálið snýst um grundvallarhagsmuni íslensku þjóðarinnar. Það snýst um það hvort íslendingar geti sjálfir ráð- ið nýtingu sinna auðlinda og það er því einkar varhugavert að snúa af þeirri stefnu sem Alþingi hefur mótað með samþykkt vísinda- áætlunarinnar. Henni þarf að ljúka. Alþingismenn verða að hafa í sér manndóm til að standa vörð um íslenska hagsmuni þegar á reynir og jafnframt eru tæki- færissinnaðir stjórnmálamenn varaðir við að gera hvalveiðimál- ið að baráttuvettvangi sínum. Þeir eru best geymdir annars staðar. Þörf er samstöðu þjóðar- innar allrar í þessu máli og því til vansæmdar að íhaldsstýrðir fjöl- miðlar eins og DV, Morgunblað- ið, og Stöð 2 skuli vera að blása upp pólitískt moldviðri í kringum hvalveiðimálið greinilega með það eitt að koma höggi á sjávar- útvegsráðherra. Hans framgöngu í málinu ber að fagna og styðja. Þjóðin öll, og þá einkum og sér í Iagi skammt hugsandi stjórn- mála- og fjölmiðlamenn, verða að skilja að við lifum hér á fiski.“ Bókun Sigurðar Jóhannessonar vegna ijárhagsáætlunar Akureyrarbæjar: Breytingatillögur við töfrabrögðum meirihlutans Breytingatillögur minnihluta- flokkanna tveggja í Bæjar- stjórn Akureyrar, Framsókn- arflokks og Alþýðubandalags, við frumvarp að fjárhagsáætl- un 1989, voru felldar við loka- umræðu og atkvæðagreiðslu um frumvarpið á fundi bæjar- stjórnar á þriðjudag. Sigurður Jóhannesson, bæjarráðsmað- ur, lét bóka eftirl'arandi á fundi Bæjarráðs 9. febrúar, áður en fjárhagsáætlun var endanlega afgreidd: „Fulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarráði hefur tekið þátt í undirbúningi að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1989 og mun standa að afgreiðslu áætlunarinn- ar eins og hún hér liggur fyrir, enda er þar verið að vinna að ýmsum þeint málum sem ofarlega hafa verið á verkefnalista Fram- sóknarmanna á undanförnum árum. Þó eru nokkur atriði í þessari fjárhagsáætlun sem ég geri alvar- legar athugasemdir við og mun leitast við til lokaafgreiðslu áætl- unarinnar að knýja á um breyt- ingar. Til að ná þokkalegu yfirbragði á áætlunina og til að sýna að lán- tökur séu ekki eins háar og afborganir lána hefur meirihluti bæjarstjórnar gripið til þess ráðs að líta framhjá ýmsum kostnað- arliðum og áætla innkomnar tekjur, sem fyrirsjáanlega munu ekki berast Bæjarsjóði á yfir- standandi ári. Þær breytingatillögur, sem hér liggja fyrir, miða að því að koma í veg fyrir slík töfrabrögð og miða að því að fá réttari niður- stöðu á áætlaðri afkomu Bæjar- sjóðs í lok þessa árs.“ EHB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.