Dagur - 17.02.1989, Blaðsíða 5

Dagur - 17.02.1989, Blaðsíða 5
17. febrúar 1989 - DAGUR - 5 Tónlistarfélag Akureyrar: Tónleikar og ljóðalestur í Davíðshúsi á næstunni - ljóð Davíðs og lög akureyrskra tónskálda í öndvegi Tónlistarfélag Akureyrar efnir til tónleika í Davíðshúsi á næstunni og einnig verður ljóðalestur á dagskrá. Hér eru á ferðinni dagskrár sem skipu- lagðar eru af Margréti Bóas- dóttur söngkonu og tengjast Davíð Stefánssyni, hinu ást- sæla Ijóðskáldi, og tónskáldum frá Akureyri. Fyrri dagskráin er byggð á ljóðum Davíðs Stefánssonar. Par mun Arnór Benónýsson leikhús- stjóri lesa upp og Margrét Bóas- dóttir og Þuríður Baldúrsdóttir syngja ljóð Davíðs við lög ýmissa höfunda. Guðrún A. Kristins- dóttir annast píanóundirleik. Þessi dagskrá verður flutt mið- vikudaginn 22. febrúar kl. 20.30. Ef nægar pantanir berast verður hún endurflutt miðvikudaginn 1. mars á sama tíma. Seinni dagskráin er samansett af sönglögum tónskálda frá Akureyri. Þeirra á meðal eru Björgvin Guðmundsson, Birgir Helgason, Áskell Jónsson, Áskell Snorrason og Jóhann Ó. Haraldsson. Flytjendur verða söngvararnir Margrét Bóasdóttir, Hólmfríður Benediktsdóttir, Þuríður Bald- ursdóttir og Michael J. Clarke, ásamt hljóðfæraleikurum. Þessi dagskrá verður flutt mið- vikudaginn 8. mars kl. 20.30 og endurflutt viku síðar, miðviku- daginn 15. mars á sama tíma, ef nægar pantanir berast. Sérstök athygli skal vakin á því að nauðsynlegt er að panta miða á þessar dagskrár vegna þess að húsrými í Davíðshúsi er tak- markað. Pantanir félagsmanna í X. j k, , v>- tv _ Tónlistarfélagi Akureyrar hafa forgang til og með laugardegin- um 18. febrúar fyrir fyrri dag- skrána og til og með laugardegin- um 4. mars fyrir þá seinni. Eftir það verða dagskrárnar auglýstar og miðar seldir á almennum markaði. Tekið er á móti pöntunum í síma 24234 milli kl. 14 og 18. Miðaverð er kr. 400 fyrir félags- menn og kr. 800 fyrir aðra, en skólafólk fær helmingsafslátt. SS lesendahornið 'j Gönguleiðin lengdist aðeins um 50 metra - lesendabréf og svar vegna leiðakerfisbreytinga SVA íbúi á Brekkunni hafði saniband: „Þannig er mál með vexti að hópur fólks er afar óánægður með þá breytingu sem gerð var á leiðakerfi Strætisvagna Akureyr- ar á dögunum. Ég mæli fyrir munn annarra þegar ég segi að hópur fólks sem býr á svæði sem afmarkast af Þingvallastræti, Mýrarvegi, Suðurbyggð og Þór- unnarstræti er afskipt með þjón- ustu SVA frá því sem áður var. Fyrir breytinguna á leiðakerf- inu stoppaði vagninn ávallt við biðstöðina á móts við kjörbúð Kona á Akureyri hringdi: „Ég átti leið upp á Fjórðungs- sjúkrahús um daginn og fæ ekki betur séð en að ófremdarástand ríki við bílastæði Menntaskólans. Menntaskólakrakkarnir leggja bílum sínum alveg út að horninu við Hrafnagilsstræti og það er varla bílbreidd milli raðanna í kófinu sem var þennan dag. Þetta er hrikalegt ástand, bílaröðin lá nærri því að brekkunni upp að sjúkrahúsinu. Ég á ekki oft leið þarna um en mér ofbauð ástand- ið þennan dag. Ég vil beina því til Hr. ritstjóri. í blaði yðar 14. febrúar var birt svar undirritaðs við spurningu ungs manns sem ekki skildi hvers vegna fasteignasalar á Akureyri birtu ekki verð á fasteignum þeim sem þeir auglýsa til sölu fyr- ir hönd viðskiptamanna sinna. Þar seiri svár þ'áð sem birtist í blaðinu hefur brenglast í meðför- um og hér er ég ekki að kenna blaðinu um, þá vil ég biðja blaðið um að birta eftirfarandi: Okkur þykir öllum réttast að birta í auglýsingum okkar upplýs- ingar sem eru eins almenns eðlis og unnt er. Hér á ég við að hér búum við í litlu samfélagi og ýms- um þykir óþægilegt að láta aug- lýsa húseignir sínar jafnvel þó þeir endilega vilji selja, hvað þá að birt sé hvað þær eigi að kosta. Auglýsing með verði segir ekki KEA við Hrafnagilsstræti. Þang- að kom fólk sem býr í hverfinu og var ánægt með þessa þjón- ustu. Núna verðum við að brjót- ast í ófærð niður í Þórunnarstræti á biðstöðina á móti Iþróttahöll- inni, miklu lengri leið og hættu- legri í alla staði. Það er umtals- verð slysahætta fólgin í því fyrir fullorðið fólk sem orðið er slitið á margan hátt að fara yfir stórar götur. Við setjum fram þá kröfu að biðstöðin verði aftur færð á sinn gamla stað í Hrafnagilsstræti. Afleiðingin af núverandi ástandi fólks í M. A. að lagfæra þetta sem fyrst því þarna er töluverð slysa- hætta, fólk gæri þurft að flýta sér á sjúkrahúsið ef slys bæri skyndi- lega að höndum. Ég las í Degi að einhver les- andi deildi á hjúkrunarkonurnar á slysadeild FSA. Ég vil mótmæla þessu því þetta eru mjög hæfar konur, ég hef oft þurft að leita á slysadeildina vegna barnanna eða sjálfrar mín og ætíð fengið góðar móttökur. Biðstofan er kannski ekki búin leðursófasettum en hún alla söguna og nefndi ég dæmi um tvær 3ja herb. íbúðir sem auglýstar kynnu að vera á mis- munandi verði. Hér vil ég geta útskýrt persónulega fyrir væntan- legum húsnæðiskaupanda hvers vegna umræddar íbúðir eru boðnar til sölu á mismunandi verði. Ýmsar ástæður kunna að liggja til þess. Ef verðið er aug- lýst án skýringa er meiri hætta á misskilningi. Hins vegar mætti gjarnan birta öðru hverju almennar upplýsing- ar um verðlag á húsnæði á Akur- eyri. Ef til vill er það hlutverk fjölmiðla að upplýsa fólk um ástand á húsnæðismarkaði og þá ekki síður um verðlag á fasteign- um. Með þökk fyrir birtinguna. Pétur Jósefsson, sölustj. Fasteigna- og skipasölu Norðurlands. er sú að sumir íbúarnir treysta sér ekki til að fara á nýju biðstöð- ina." Stefán Baldursson, forstöðu- maður SVA, svarar: „Þegar biðstöðin við Hrafna- gilsstræti var færð lengdist göngu- leiðin að nýju biöstöðinni aðeins um 50 metra. Stígur liggur frá kjörbúðinni þvert yfir túnið fyrir austan hana að biðstöðinni en hann er sjálfsagt ekki mokaður þessa dagana, um það skal ég ekkert segja. Það kann að vera að nokkurt óhagræði hafi orðið fyrir nokkrum árum þegar fólk þurfti að bíða í tröppum fyrir framan dyrnar. Ég get vel skilið að ekki sé fé aflögu til að koma upp móttöku fyrir hundruðir þús- unda króna eða milljónir í öllu þessu hallæri." Kærar þakkir fyrir aðstoðina! Sigríöur hringdi. Hún vildi koma á framfæri kærum þökkum til starfsfólks og nemenda Myndlistarskólans og lögreglunnar á Akureyri. „Ég lenti í smá óhappi í gær (15/2), en þaö vildi þannig til að ég var á leið niður „Gilið“ og allir bílar á upplcið voru stopp neðar- lega í því. Sumir þeirra voru farnir að taka sig út úr röðinni, þannig að ég þurfti að hægja á mér til þess aö lenda ekki á þeim með þeim afleiöingum að ég missti stjórn á bílnum og hann rann upp í skafl hjá mér í beygj- unni hjá kirkjunni. Ég þurfti að skilja bílinn eftir því ég kom hon- um ekki úr skaflinum, en fór upp í Myndlistarskóla til að biðja um aðstoð. Fyrst bað ég um að fá að hringja á lögregluna því ég bjóst við að ekki væri hægt að losa bíl- inn án þess aö draga hann. Ég vil þakka starfsfólki og nemendum skólans kærlega fyrir aðstoðina, því þau hjálpuðu mér að losa bílinn úr skaflinum. Einnig vil ég þakka lögreglunni skjót viðbrögð, en hún kom strax á staðinn og stöðvaði umferð til að koma í veg fyrir slys.“ af þessum sökum fyrir íbúa í næstu húsum við Kjörbúð KEA en hvað aðra snertir þá hefur þjónustan alls ekki verið skert; þrír vagnar ganga á hverri klukkustund um Þórunnarstræti og Mýrarveg, mestallan daginn. Það er hins vegar rétt að eng- inn vagn ekur beint gegnum hverfi það sem bréfritari vitnar til, en til að útskýra þaö verður að rekja þróunina frá upphafi. Málið hófst á því aö við feng- um ekki að hafa endastöð í mið- bænum. Skipulagsnefnd vildi ekki að við kæmurn upp aðstöðu fyrir farþega og bifreiðarstjóra í miðbænum og þykir mér og fleir- um þaö einkennilegt. Þar sem því hafði verið lýst yfir að búið væri að sækja um lóðina þar sem bið- skýliö var þurftum við að hugsa okkur til hreyfings áöur en það yrði rifið. Við þurftum því að breyta leiðakerfinu og framkvæma könnun á vilja fólks varðandi það. Til að nýta niðurstöður þeirrar könnunar var leiðakerf- inu breytt í það horf sem er í dag. Hins vegar hafði stjórn SVA aldrei hug á að breyta leiðakerf- inu því þetta kerfi er töluvert dýrara og þjónar fólkinu tiltölu- lega lítið betur en eldra kerfið. Þegar kerfinu var breytt varð að miða við að bílstjórar fengju u.þ.b. 10 mínútur á klst. til hvíldar. Ef við ökum Mýrarveg, Hrafnagilsstræti og Þórunnar- stræti og sömu leið til baka erum við búnir að stytta hvíldartímann mikiö því þessi leið er miklu sein- farnari en hin þótt hún sé lítið lengri. Ég vil að lokum segja að það er vilji SVA að þjóna fólkinu eins vel og kostur er á. Þó er ljóst að breyting á leiðakerfi þýðir alltaf að þjónusta minnkar við suma en eykst við aðra.“ FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Lausar stöður við framhaldsskóla Að Velskola íslands vantar mann til aö annast umsjón og viögeröir raftækja í skólanum. Viökomandi þarf aö hafa rafvirkja- eða rafeindamenntun. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. mars. Menntamálaráöuneytið. Lagerstjóri Óskum eftir að ráða duglegan og samvisku- saman starfsmann til að sjá um lager Vef- deildar. Góö laun í boöi fyrir réttan mann. Umsóknir sendist starfsmannastjóra, sími 21900 (220) og gefur hann nánari upplýsingar. * Alafoss hf., Akureyri Bflamir við M .A. og slysadefld FSA er hlýleg og hátíð hjá því sem var Pétur Jósefsson: Hætta á misskilningi - ef fasteignaverð er auglýst án skýringa

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.