Dagur - 17.02.1989, Blaðsíða 15
17. februar 1989 +.• DAGUR - 15
fþróttir
Einar Ólafsson frá ísafirði er enn einn af fremstu skíðagöngumönnum
iandsins. Mynd: KGA
Skíðaganga:
Visa-bikarmót og
FN-boðgangan
- í HlíðarQalli um helgina
Fyrsta skíðagöngumótið á
Akureyri á þessum vetri verð-
ur haldið um helgina. Þetta er
Visa-bikarmót í skíðagöngu
sem keppt verður í á morgun
laugardag og svo fer FN-boð-
gangan fram á sunnudaginn.
Mótið hefst kl. 11.00 á laugar-
dagsmorguninn og verður þá
keppt með frjálsri aðferð. Keppt
er í flokki stúlkna 13-15 ára og
ganga þær 2,5 km. í flokki
kvenna 16 ára og eldri eru gengn-
ir 7,5 km.
Hjá karlmönnum er gengið í
flokki 13-14 ára (5,0 km), 15-16
ára (7,5 km), 17-19 ára (15,0 km)
og flokki fullorðinna og ganga
þeir 30 km.
Á sunnudag er síðan FN-gang-
an og er hún með hefðbundinni
aðferð. Keppt er í sömu aldurs-
flokkum og hefst gangan á
sunnudeginum einnig kl. 11.00.
Það er Skíðaráð Akureyrar
sem sér um mótið og göngustjóri
er Hermann Sigtryggsson. Braut-
arstjóri er Stefán Jónasson.
Fyrst við erum að tala um
skíðaíþróttina er vert að minna á
að um næstu helgi fer fram fyrsta
punktamót vetrarins í alpagrein-
urn fullorðinna á Akureyri. Þar
verða allir bestu skíðamenn
landsins samankomnir og verður
gaman að fylgjast með þeirri
keppni.
En vert er að hvetja fólk til að
mæta í Hlíðarfjall núna um helg-
ina til að fylgjast með keppninni í
skíðagöngunni.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Karl mœtir
Sveinbimi Guðmundssyni
í þessari viku eigast við Karl Davíðsson og Sveinbjörn Guð-
mundsson. Þeir áttust einnig við í síðustu viku en skildur þá
jafnir, báðir með fjóra rétta, og leiða því aftur saman hesta sína.
Vert er að geta þess að nú er Sprengivika hjá íslenskum get-
raunum og má því búast við að potturinn fari nálægt 4 miljón-
um.
Sjónvarpsleikurinn á morgun er viðureign Bournemouth
og Manchester United í 5. umferð ensku bikarkeppninnar.
Bournemouth sló einmitt Man.Utd. úr keppninni fyrir tveimur
árum og hafa því Rauðu Djöflarnir harma aö hefna. Má því
búast við hörkuviðureign. En lítum þá á spána hjá köppunum:
Karl:
Barnsléy-Evertörí 2
Blackburn-Brentford x
Bournemouth-Man.Utd. 2
Charlton-West Ham x
Hull-Liverpool 2
Luton-Middlesbro x
Q.P.R.-Arsenal 2
Sheff.Wed.-Southmpton 2
Bradford-WBA x
Leicester-Leeds 2
Plymouth-Chelsea x
Swindon-Sunderland x
Sveinbjörn:
Barnsley-Everton 2
Blackburn-Brentford x
Bournemouth-Man.Utd. 2
Charlton-West Ham 1
Hull-Liverpool 2
Luton-Middlesbro x
Q.P.R.-Arsenal 1
Sheff.Wed.-Southmpton x
Bradford-WBA 1
Leicester-Leeds 2
Plymouth-Chelsea 2
Swindon-Sunderland x
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Handknattleikur:
Rússar til Þórs
- Breiðablik og Þór berjast um Abgashev
Sovéska handknattleikssam-
bandið hefur staðfest að það
gefi leyfi til þess að þrír
sovéskir handknattleiksþjálf-
arar og tveir leikmenn komi
hingað til lands næsta vetur.
Einn af þessum þjálfurum er
Boris Abgashev sem Þórsarar
hafa reynt að fá til sín og ásamt
honum myndu Þórsarar einnig
fá einn sovéskan leikmann.
Samkvæmt heimildum Dags er
þó babb komið í bátinn því
Breiðablik vill líka fá þennan
þjálfara og nú er það víst bara
spurning um hvort félagið býður
betur.
Smári Garðarsson formaður
handknattleiksdeildar Þórs vildi
lítið segja um málið er Dagur
hafði samband við hann í gær.
Hann sagði málið vera á við-
kvæmu stigi og vildi hann ekki
gefa út neinar yfirlýsingar sem
hann gæti ekki staðið við.
Smári staðfesti þó að Þór hefði
gert Abgashev tilboð í fyrradag
og væru þeir að bíða eftir svari
frá Sovétmönnunum. „Við vilj-
um að gengið verði frá þessum
málum eins fljótt og kosturer því
þetta er mjög stórt fjárhagslegt
dæmi," sagði Smári Garðarsson
formaður handknattleiksdeildar
Þórs.
íþróttir helgarinnar:
Heilmikið um að vera
- ef veðrið setur ekki strik í reikninginn
Menn bíða nú spcnntir eftir því
hvað veðurguðirnir hyggjast
gera um helgina því margvísleg
íþróttastarfsemi -er fyrirhuguð
nú þessa tvo daga. Þar má fyrst
nefna skíðagöngumót í Hlíðar-
fjalli, Þórsarar leika bæði í 1.
deild kvenna og 2. deild karla í
handknattleik, landsliðið í
körfuknattleik og Tindastóll
leika á Sauðárkróki, unglinga-
badmintonmót á Akureyri,
KA og Skautafélagiö leika í
blakinu og á Húsavík fer fram
skíðamót.
Strákarnir í Þór leika mjög
mikilvægan leik við Sclfoss í 2.
deildinni í handboltanum á sunnu-
daginn kl. 15.30 í Iþróttahöllinni.
Þórsstrákarnir eru enn í mikilli
fallhættu og verða að sigra í
leiknum til þess að komast af
hættusvæðinu. En róðurinn verð-
ur erfiður því Selfoss-liðið er
ungt og efnilegt og hefur það
leikið vel í vetur.
Stelpurnar f Þórsliðinu leika
tvo leiki við Hauka frá Hafnar-
firði í 1. deild kvenna. Fyrri
leikurinn er í kvöld kl. 19.15 í
íþróttahöllinni en síðari leikut-
inn fer fram í Skemmunni á
rriorgun laugardag kl. 16.00.
Völsungarnir í 3. deildinni í
handknattleik eiga von á FHb í
heimsókn til Húsavíkur og er
leikurinn settur á kl. 14.00 á
sunnudaginn.
Þorramót í badminton fer fram
í íþróttahöllinni á laugardag og
er búist við rúmlega 100 þátttak-
endum á það mót, víðs vegar af
landinu. Þetta er unglingamót og
hefst á laugardagsmorguninn kl.
11.00.
Tveir leikir eru fyrirhugaðir í
Bikarkeppninni í blaki. Á Akur-
eyri leika KA og Skautafélagiö
og í kvennaflokki leika KA og
Völsungar á Húsavík. Eitthvað
er þó óljóst um báða þessa leiki
vegna keppni í I. flokki og fer
það mikið eftir veðri hver spilar
gegn hverjum.
Á Húsavík fer fram Firma-
keppni á skíðum á vegum Skíða-
ráðs Völsungs. Þegar hafa tæp-
lega 50 fyrirtæki skráð sig til
keppni og vonast Húsvíkingar til
þess að mótið veröi haldið þrátt
fyrir slæma veðurspá.
Tindastólsliðiö í körfuknatt-
leik hefur í nógu að snúast um
helgina. í kvöld leikur liðið
æfingaleik við iandsliöið og munu
þeir Sturla Örlygsson ÍR og
Siguröur Ingintundarson ÍBK
leika með Tindstólsliðinu. Á
sunnudagskvöldiö er síðan áætl-
aður leikur í Reykjavík viö KR í
Fluglciðadeildinni.
Fjölliðamót í handknattleik
yngri flokka fer fram fyrir sunnan
og keppa þar Þór, KA og Völs-
ungur í 3. flokki kvenna og karla
og 5. Ilokki karla.
Islandsmótiö í lyftingum og
Unglingameistaramótiö í sömu
grein fer fram í Laugardalshöll-
inni í Reykjavík um helgina og
fara sjö þátttakendur frá Akur-
eyri til þeirrar keppni.
Karlalandsliðið 16 ára og yngri:
Rúnar og Karl valdir
Valinn hefur verið hópur til
æfinga með karlalandsliðinu
16 ára og yngri. Tveir norð-
lendingar eru í hópnum, þeir
Karl M. Karlsson úr KA og
Rúnar Sigtryggsson úr Þór.
Ekki er þetta endanlegt lands-
lið íslands því þetta eru 23 leik-
menn sem valdir hafa verið og
eftir næsta fjölliðamót 3. flokks
verður fækkað í hópnum niður í
16 leikmenn. Sá hópur fer sem
landslið íslands til Hollands og
Lúxemborg og keppir þar við
heimamenn.
Áætlað er halda til Lúxemborg
á föstudaginn langa og verður
leikið þar á æfingamóti. Síðan
verður haldið áfram til Hollands
og leikið þar á Benelux-mótinu.
Þjálfari karlalandsliðsins 16
Staðan í 2. deild
HK 13 11-1- 1 349:261 23
ÍR 12 9-1- 2 306:231 19
Haukar 13 8-2- 3 316:265 18
Armann 13 8-1- 4 306:305 17
Njarðvík 12 6-1- 5 302:286 13
Selfoss 12 5-0- 7 304:302 10
Þór 14 4-0- 10 282:357 8
ÍBK 13 4-0- 9 286:313 8
UMFA 12 3-0- 9 276:307 6
ÍH 12 2-0- 10 229:329 4
til æfinga með liðinu
Rúnar Sigtryggsson.
ára og yngri er gamli Valsarinn
Steindór Gunnarsson.
Eftirtaldir piltar hafa verið
valdið til æfinga:
Rúnar Sigtryggson Þór
Karl M. Karlsson KA
Andri V. Sigurðsson Fram
Jason Ólafsson Fram
Ragnar Kristjánsson Fram
Sigurður Þorvaldsson Fram
Leó Hauksson Fram
Einar Páll Kjartansson Fram
Ingvar Ragnarsson Stjörnunni
Patrekur Jóhannesson Stjörnunni
Dagur Sigurðsson Val
Óskar Óskarsson Val
Sveinn Sigurfinnsson Val
Kolbeinn Sigurjónsson UMFA
Ríkharður Daðason UMFA
Gunnar Kvaran UMFA
Þór Hauksson Víkingi
Sigurður Þórsson ÍR
Páll Þórólfsson Þrótti
Björgvin Finnsson KR
Halldór Eyjólfsson KR
Stefán Jóhannsson KR
Ásgeir Baldurs Breiðabliki
íþróttamaður
Norðurlands:
Kjörinu
frestað
- um eina viku
Sakir þess hve veðurútlitið
er slæmt um helgina hefur
veríð ákveðið að fresta
afhendingu verðlauna vegna
„íþróttamanns Norðurlands
1988“ um eína viku.
Afhendingin fer sem sagt
fram laugardaginn 25. febrúar
á Hótel KEA. Það eru fimm
íþróttamenn sem koma til
greina sem íþróttamaður
Noröurlands 1988 og verða
úrslitin tilkynnt í Degi þriðju-
daginn 28. feb.