Dagur - 17.02.1989, Blaðsíða 3
it. fébíöar 1989 - DÁÖUR - 3
Dreifibréf v-þýskra grænfriðunga:
„ísland - land fiski-
manna og hvalaslátrara“
Aðalfundur
Leikklúbbsins Sögu
verður haldinn í Dynheimum laugardaginn
18. febrúar kl. 15.00.
Kosin verður ný stjórn og fleira.
Nýir félagar velkomnir.
L.s.
- verðum að herða róðurinn og sniðganga íslenska fiskinn
„ísland - land fiskimanna og
hvalaslátrara,“ er fyrirsögn í
dreifibréfi sem Greenpeace-
samtökin í V.-Þýskalandi
dreifa þessa dagana til fólks í
fjölmörgum borgum þar í
landi. I dreifibréfinu er fólk
eindregiö hvatt til að sniö-
ganga sjávarafurðir frá Islandi.
Einkum er spjótum beint að
framleiðslu íslenskra lagmetis-
fyrirtækja.
Sigurður Arnórsson var nýver-
ið staddur í Köln í V.-Þýskalandi
og segir hann að áróður grænfrið-
unga þar sé mjög beittur og að
því er virðist árangursríkur. „Ég
varð var við að almenningur tók
eftir orðum grænfriðunga og las
áróðursbréf þeirra í þaula,“ segir
Sigurður.
í nefndu dreifibréfi er mynd af
einum hvalbáta Hvals hf. og
sömuleiðis af umbúðum þeirra
íslensku vara sem fólk er einkum
hvatt til að sniðganga. Orðrétt
segir í dreifibréfinu: „Þess er ósk-
að að þú kaupir ekki íslenskan
fisk. Til þess að forðast íslenska
framleiðslu er þér bent á að leita
upplýsinga um þjóðerni hennar
hjá viðkomandi verslunar-
manni." Þá er greint frá því í
dreifibréfinu að fyrirtækið
Tengelmann hafi hætt kaupum á
íslensku lagmeti vegna þrýstings
frá grænfriðungum. Síðan segir:
„í slíkum þrýstingi eru möguleikar
okkar til að hjálpa hvölunum
fólgnir. Við verðum að herða
okkar baráttu og gera íslending-
um það ljóst í eitt skipti fyrir öll
að á meðan þeir drepa hvalina
kaupum við ekki íslenskan fisk.“
óþh
tsland — Land der Fischer und Walschlachter.
Skýrsla LÍÚ um aflaverðmæti togara 1988:
Meðalskiptaverðmæti frysti-
togaraima 85,8 prósentum
hærra en landsmeðaltalið
jVýjung
á Akureyri
Xilboð
Nú veljið þið sjálf á samlokuna ykkar!
Langloka og Mix kr. 215.-
Samloka og Coke kr. 185.-
Tilvalið í hádeginu eða á kvöldin.
Opið frá kl. 09.00-23.30.
ístmðiti
Kaupvangsstraetl 3.
Fatamarkaður
(Glerárgötu 34,)
heldur áfram
Opið föstudag, laugardag, smmudag,
mánudag, þriðjudag írá kl. 12.00-20.30.
Skýrsla LÍÚ um afla og afla-
verðmæti togaranna á síðasta
ári er komin út. Af frystiskip-
um varð Akureyrin EA eins og
kunnugt er með mesta afla-
verðmæti yfir landið, alls 411,6
milljónir króna og 6134 tonn.
Af stærri skuttogurum á
Norðurlandi varð Kaldbakur
EA 301 aflahæstur með 4529
tonn, aflaverðmæti 109,2 millj-
ónir króna. Arnar HU varð
aflahæstur minni skuttogara á
Norðurlandi með 4060 tonn,
aflaverðmæti 138,9 milljónir
króna.
Áður en nánar er greint frá
einstökum skipum og afla þeirra
skal bent á að kvóti togaranna er
misjafnlega mikill og sum skip
Mánaberg ÓF 42 frá Ólafsfiröi.
veiða mikinn hluta afla síns sem
aðkeyptan eða tilfærðan kvóta.
í skýrslunni koma eftirfarandi
upplýsingar fram um frystitogara
á Norðurlandi, - til einföldunar er
aflaverðmæti í milljónum króna í
svigum aftan við tölur yfir afla-
magn skipanna í tonnum: Mar-
grét EA 710 4105 t (298,8 m.),
Mánaberg ÓF 42 4198 t (245 m.),
Oddeyrin EA 210 1528 t (146,6
m.), Siglfirðingur SI 150 3353 t
(215,2 m.), Sigurbjörg ÓF 1 4002
t, (250 m.), Sléttbakur EA 304
4148 t (236,9 m.), Snæfell EA
740 2331 t (83,1 m.), Stakfell ÞH
360 3386 t (210,3 m.), Örvar HU
21 6015 t (401,6 m.).
Aflahæstir minni togara á
Norðurlandi urðu: Arnar HU
4060 t (138,9 m.), Hegranes SK 2
3562 t (130,2 m.), Kolbeinsey ÞH
10 3521 t (121,8 m.), Sólberg ÓF
2 3385 t (135,8 m.), Björgúlfur
EA 312 3454 t (128,8 m.),
Hrímbakur EA 306 3213 t (87,5
m.), Skafti SK 3 3125 (118,5 m.),
Rauðinúpur ÞH 160 3067 t (98,2
m.), Stálvík SI 1 3013 t (90 m.),
Drangey SK 1 2921 t (121,3 m.),
Sigluvík SI 2 2757 t (85,8 m.).
Áður hefur verið greint frá afla
Ú.A. togaranna en tölurnar eru
endurbirtar hér til samanburðar:
Harðbakur EA 303 4235 t (104,9
m.), Kaldbakur, sjá tölur hér að
ofan, Sólbakur EA 305 2997 t
(81,1 m.), Svalbakur EA 302
3981 t (99,4 m.).
Tölur um skiptaverðmæti:
Meðaltal yfir allt landið kr. 24,37
pr. kíló, meðaltal rninni togara
kr. 24,19 pr. kg, stærri togara kr.
25,57 pr. kg og frystiskipa kr.
45,35 pr. kg. Meðalskiptaverð-
mæti pr. úthaldsdag: Allt landið
kr. 318.189, minni togara kr.
317.208, allra stærri togara kr.
324.682, frystiskipa kr. 591.310.
EHB
Fullt af iiýjum vörum
Dýrasta peysan á kr. 1.800,-
Dýrustu buxurnar á kr. 1.200,-
Dýrasta skyrtan á kr. 1.100,-
og svo frv. og svo frv.
Önnumst öll verðbréfaviðskipti og veitum
hvers konar ráðgjöf á sviði fjármála
Vextir umfram
Tegund bréfs verðtryggingu
Einingabréf 1,2 og 3 ............ 10,0-13,0%
Bréf stærri fyrirtækja .......... 10,5-11,5%
Bréf banka og sparisjóða ........ 8,5- 9,0%
Spariskírteini ríkissjóðs ....... 7,0- 8,0%
Skammtímabréf ................... 7,0- 8,0%
Hlutabréf ........................... ?
éálKAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700
Gengi Einingabréfa 1 7. febrúar 1989.
Einingabréf 1 3.550,-
Einingabréf 2 1.989,-
Einingabréf 3 2.320,-
Lífeyrisbréf 1.785,-
Skammtímabréf .. 1,232
Verðbréf er eign
sem ber arð