Dagur - 17.02.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 17. febrúar 1989
f/ myndasögur dogs 1
ÁRLAND
f rr lö” vU- {L*w\L
ANDRÉS ÖNP
HERSIR
Eg er hálf niðurdreginn. Hvers
vegna ætli það sé?
BJARGVÆTTIRNIR
Eftir aö hafa hrakið árásarmennina á flótta
ákveöa Bjargvættirnir og menn Wilsons aö^
notfæra sér veðrabreytingarnar .Hvaj
# Gervihnatta-
drasl
Við verðum að framleiða
vandað sjónvarpsefni og
vona að fólk vilji frekar
horfa á það en þetta drasl
sem kemur í gegnum gervi-
hnettina. Eitthvað á þessa
leið mæltist Svavari Gests-
syni menntamálaráðherra í
Sjónvarpinu nýverið og
lagði hann óhikað áherslu á
hugtakið „drasl“ til að lýsa
því efni sem varpað er til
þjóða heimsins f gegnum
gervihnetti. Snaggaraleg
afstaða hjá ráðherra og svo
virðist sem Norðlendingar
séu á sama máli. Sam-
kvæmt frétt í Degi hafa
afskaplega fáar umsóknir
um móttökudiska fyrir
gervihnattasjónvarp borist
frá Norðurlandi til sam-
gönguráðuneytisins meðan
diskarnir hrúgast upp á
húsþök suðvestanlands.
Ótextað, óbrenglað, óguð-
legt, ómenningarlegt og
óhugnanlegt afþreyingar-
efni endurkastast frá gervi-
hnöttum í þessa diska og
beint inn í stofu hjá hinni
íslensku fjölskyldu. Sjálf-
stæð þjóð í sjálfstæðu landi
og allt það. Nei, það getur
varla talist þröngsýni að
vara við þessum óskapnaði
sem ræðst gegn tungu okk-
ar og heilbrigðri hugsun. Ef
við glötum tungunni þá er
stutt í það að við glötum
sjálfstæðinu. Nær væri að
efla Ríkisútvarpið og láta
stuttbuxna- og frelsiskjaft-
æðið sem vind um eyru
þjóta. í alvöru talað, hverju
erum við bættari með því að
geta horft á útsendingar frá
erlendum sjónvarpsstöðv-
um f tugatali allan sólar-
hringinn? íhugið málið.
# Blaðaútgáfa
á Akureyri
Ekki er hægt að tala um
grósku f blaðaútgáfu á
Akureyri undanfarið. Má
lýsa ástandinu á eftirfarandi
hátt með því að leita (
smiðju annarra:
„Enginn grætur íslending. -
Hann var eins og hver annar
verkamaður. - Nú er horfið
Norðurland. - Amen.“
Þetta þarfnast ekki nánari
skýringa og er alls ekki illa
meint.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Föstudagur 17. febrúar
18.00 Gosi (8).
18.25 Kátir krakkar (1).
Um er að ræða sjálfstæða dans og söngva-
þætti með mörgum af þekktustu dönsur-
um Kanada.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Austurbæingar (16).
19.25 Búrabyggð.
19.55 Ævintýri Tinna.
Krabbinn með gullnu klæmar (1).
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Spurningakeppni framhaldsskól-
anna.
Þriðji þáttur.
Menntaskólinn í Kópavogi gegn Flens-
borgarskóla.
21.15 Þingsjá.
21.35 Derrick.
22.35 Krossavík.
(Cross Creek.)
Myndin er byggð á endurminningum rit-
höfunarins Marjorie Kinnan Rawling.
Árið 1928 ákveður ung kona að flýja ys og
þys stórborgarinnar og flytjast til
óbyggða Florida. Hún vonar að umskiptin
verði til þess að henni takist að semja rit-
verk sem falli útgefanda hennar í geð.
00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarp Akureyri
Föstudagur 17. febrúar
15.45 Santa Barbara.
16.30 Stjörnuvíg IV.
18.25 Pepsí popp.
19.19 19.19.
20.30 Klassapíur.
21.00 Ohara.
21.50 Flóttinn frá apaplánetunni.#
(Escape from the Planet of the Apes.)
Aðalpersónur myndarinnar em þrír
mannlegir apar sem hafa ferðast fleiri
hundmð ár aftur í tímann til að sleppa
undan gereyðingu heimkynna sinna úti í
geimnum. Þeir lenda í Bandaríkjunum þar
sem þeim er vel tekið í fyrstu en óöryggi
grípur um sig meðal stjórnvalda þegar
þau uppgötva að apamir geta aukið kyn
sitt rétt eins og maðurinn. Tilgangur
apanna var upphaflega að vara mannkyn-
ið við þeim hörmungum sem bíður þess í
framtíðinni en málin þróast á annan veg
þegar jarðarbúar óttast að einhver svik
séu í tafli.
23.25 Daisy Miller.#
Hin góðkunna leikkona Cybill Shepherd
fer með hlutverk Daisy Miller, konu sem
fór sínar eigin leiðir og gerði sjaldnast
nokkmm til geðs nema sjálfri sér.
00.55 Svarta beltið.
Spennumynd sem fjallar um baráttu
svartabeltishafans Jones við glæpahring
sem gerir ítrekaðar tilraunir til þess að
leggja karateskóla í rúst.
Ekki við hæfi barna.
02.20 Dagskrárlok.
# Táknar frumsýningu á Stöð 2.
Rás 1
Föstudagur 17. febrúar
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
9.00 Fróttir.
9.03 Litli barnatíminn.
- „Kári litli og Lappi" (4).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Kviksjá - Að eiga bróður í blóðsug-
unni.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson. (Frá
ísafirði.)
11.00 Fróttir.
11.03 Samhljómur.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Skólavarðan.
13.35 Miðdegissagan: „Blóðbrúðkaup",
eftir Yann Queffeléc. (17)
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt um islenska bankakerf-
ið.
15.45 Þingfróttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - Símatíminn.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fróttir.
18.03 Þingmál.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.33 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 íslensk blásaratónlist.
21.00 Kvöldvaka.
a. Þáttur af Sveini í Firði.
Vilhjálmur Hjálmarsson flytur fyrri hluta
frásöguþáttar um Svein Ólafsson, bónda
og alþingismann í Firði í Mjóafirði.
b. Einsöngur.
Sigurveig Hjaltested syngur lög eftir
Jónatan Ólafsson; Elín Guðmundsdóttir
leikur með á píanó.
c. Þjóðsögur og þættir.
Margrét Gunnlaugsdóttir les úr safni Ein-
ars Guðmundssonar.
Umsjón: Gunnar Stefánsson.
22.00 Fróttir • Dagskrá morgundagsins.
22.07 Frá Alþjóðlega skákmótinu í Reykja-
vík.
Jón Þ. Þór segir frá gangi mála í fjórðu
umferð.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma.
Guðrún Ægisdóttir les 23. sálm.
22.30 Danslög.
23.00 í kvöldkyrru.
Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónlistarmaður vikunnar - Hróðmar
Sigurbjömsson.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Föstudagur 17. febrúar
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun, Eva
Ásrún.
11.03 Stefnumót.
Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir það sem
neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu.
Margrét Blöndal og Gestur Einar Jónas-
son leika þrautreynda gullaldartónlist.
14.05 Milli mála,
Óskar Páll á útkíkki.
16.03 Dagskrá.
19.00 Kvöldfréttir.
19.33 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Vinsældalisti Rásar 2.
Tíu vinsælustu lögin.
21.30 Fræðsluvarp - Lærum þýsku.
22.07 Snúningur.
23.45 Frá Alþjóðlega skákmótinu í Reykja-
vík.
02.05 Rokk og nýbylgja.
03.00 Vökulögin.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 17. febrúar
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Stjarnan
Föstudagur 17. febrúar
7.00 Egg og beikon.
Morgunþáttur Þorgeirs.
Fréttir kl. 8.
09.00 Níu til fimm.
Lögin við vinnuna. Gyða Dröfn og Bjami
Haukur.
Fréttir klukkan 10, 12, 14 og 16.
17.00 ís og eldur.
Þorgeir Ástvaldsson og Gísli Kristjáns-
son, tal og tónlist.
Fréttir kl. 18.
18.00 Bæjarins besta
kvöldtónlist.
21.00 í seinna lagi.
Blanda inn í draumalandið.
22.00 Næturvaktin.
03.00-10.00 Næturstjörnur.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 17. febrúar
07.00 Réttu megin framúr.
09.00 Morgungull.
Símar fyrir kveðjur og óskalög eru 27711 á
Norðurlandi og 625511 á Suðurlandi.
12.00 Ókynnt hádegistónlist.
13.00 Perlur og pastaróttir.
Snorri Sturluson sér um tónlistina þína og
lítur m.a. í dagbók og slúðurblöð.
17.00 Síðdegi í lagi.
19.00 Ókynnt kvöldmatartónlist.
20.00 Jóhann Jóhannsson
í sínu sérstaka föstudagsskapi.
24.00 Næturvakt Hljóðbylgjunnar.
04.00 Ókynnt tónlist
til laugardagsmorguns.
Bylgjan
Föstudagur 17. febrúar
07.30 Páll Þorsteinsson.
Tónlist sem gott er að byrja daginn með,
fregnir af veðri og færð.
Fréttir kl. 8. Potturinn kl. 9.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Fréttir kl. 10, 12 og 13. Potturinn kl. 11.
Bibba kemur með Halldór milh kl. 11 og
12.
14.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
18.00 Fróttir.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
20.00 íslenski listinn.
Ólöf Marín kynnir 40 vinsælustu lög vik-
unnar.
22.00 Þorsteinn Ásgeirsson
á næturvakt.
02.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Ólund
Föstudagur 17. febrúar
17.00 Um að vera um helgina.
Umsjón Hlynur Hallsson.
18.00 Handrið ykkur til handa.
Lodfáfnir og Sýmskelfir í góðu gengi.
19.00 Peysan.
Snorri Halldórsson. Tónlist af öllum toga.
Gestur kvöldsins leikur lausum hala.
20.00 Gatið.
Húmanistar á mannlegu nótunum.
Félagar í Flokki mannsins sjá um þáttinn.
21.00 Fregnir.
30 mínútna fréttaþáttur. Hvað ætlar fólk
að gera um helgina. Viðtöl.
21.30 Samræður.
Ákveðið mál tekið fyrir og því gerð skil
með samræðum við fólk sem tengist því.
Umsjón: Sigurður Magnason.
23.00 Grautarpotturinn.
Ármann Kolbeinsson og Magnús Geir
Guðmundsson blúsa og rokka.
01.00 Eftir háttatíma.
Næturvakt Ólundar.
04.00 Dagskrárlok.