Dagur


Dagur - 17.02.1989, Qupperneq 14

Dagur - 17.02.1989, Qupperneq 14
14 -L ÖAGUR — 17. fébrúáV 1989 Styrktarfélag vangefinna Þorrablót verður laugardaginn 18. febrúar að Félagsmiðstöðinni Lundar- skóla. Boröhald hefst kl. 17.30. Allir þroskaheftir velkomnir. Stjórnin. Minning: X Jóhann Guðmundsson Fæddur 22. nóvember 1916 - dáinn 10. febrúar 1989 Iiilaliölliii er flutt að Óseyri 1, Stefiiishúsið, gengið inn að austan. + Mjöggóður sýningarsalur + Vantar nýlega og vel með fama bíla á söluskrá. HÍI.AIKJIJJN Sími 96-23151 • Óseyri 1. Það var föstudaginn 10. febrúar sl. að ég hringdi í móður konu minnar til að segja henni, að dóttir hennar væri á leiðinni til Akureyrar til að vera við sjúkra- beð föður síns, sem þá hafði ver- ið fluttur á sjúkrahús tveimur dögum áður. Þá sagði tengda- móðir mín: „Já Óli minn, þetta er nú búið hjá honum Jóa mínum, hann er dáinn, verst að Hulda skuli ekki vita þetta áður en hún kemur.“ Mig setti hijöðan við þessi yfirveguðu og tillitssömu orð tengdamóður minnar, sem voru mælt af munni þess, sem margt h'efur reynt á langri lífsleið og ávallt hugsað fyrst um aðra og seinast um sjálfan sig. Jóhann Guðlaugur Guðmunds- son, en svo hét tengdafaðir minn fullu nafni, fæddist að Glerár- bakka í Glæsibæjarhreppi. For- eldrar hans voru Guðmundur Hafliðason f. 5. maí 1873 og kona hans Stefanía Tryggvadóttir f. 10. mars 1872. Jóhann var yngstur barna þeirra, en þau voru Kristjana, Sigurlína og Hafliði, sem öll eru Iátin, og Sigríður og Tryggva, sem lifa bróður sinn. 5. apríl 1941 giftist Jóhann eftirlifandi eiginkonu sinni Ólöfu Ingimarsdóttur f. 12. júní 1918. Foreidrar Ólafar voru Ingimar Jónsson f. 18. júlí 1882 og kona Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5 Agætu viðskiptavinir! Fyrir helgina bjóðum við upp á mikið úrval af kjöti ásamt ýmsum smáréttum. T.d. Nautakjöt, kýrkjöt, lambakjöt, svínakjöt. Smáréttir: Ostabuff, baconbuff, paprikubuff, lambakjötssnúðar, nautakjötssnúðar og í desert: Perufromage og bananafromage. g Söltuð rúllupylsa ■£ á aöeins kr. 265.- kg jl ★ Þessu getiÖ þiÖ ekki sleppt ★ Kynning föstudag og laugardag. Þykkvabæjarflögur, Sana ídýfur og sósur Verið velkomJn W o VK4 Kynningarverð. Hrísalundur hans María Kristjánsdóttir f. 8. ágúst 1887 að Kerhóli í Sölvadal í Eyjafirði. Jóhann og Ólöf eignuðust þrjár dætur og einn son, er lést við fæðingu. Dæturnar eru Hulda Róselía ræstingastjóri f. 23. janúar 1941 gift Jóhannesi Óla Garðarssyni vallarstjóra í Reykja- vík og eiga þau þrjá syni, Jóhann Garðar, Brynjar og Ólaf Hrein og barnabörnin Huldu Björk Brynjarsdóttur og Arnar Ólafs- son. Guðlaug Kristjana verslun- armær á Akureyri f. 6. október 1947, fráskilin en maður hennar var Sæmundur Hrólfsson rafvéla- virki á Akureyri og áttu þau sam- an synina Ólaf Jóhann og Björn Sæberg. Stefanía Hallfríður húsfreyja f. 14. desember 1951 gift Vöggi Magnússyni fisksala í Reykjavík, börn þeirra eru Magnús Viktor er lést af slysförum aðeins 5 ára, Ólöf Huld, Zanný og Marteinn. Þegar hugað er að lífshlaupi Jóhanns Guðmundssonar þarf ekki að fara í langa upptalningu á vinnuveitendum og vinnustöð- um, hans starfsstaður var einn. Hann hóf störf hjá Ullarverk- smiðjunni Gefjunni 17 ára gamall og starfaði þar samfleytt í 52 ár, lengst af sem verkstjóri. Það eru svona menn, sem gera Akureyri að þeim iðnaðarbæ, sem hún er. Menn sem ekki láta glepjast af stundargróða, heldur una glaðir við sitt og skilja að sígandi lukka er best. Jóhann var Þórsari í húð og hár og gekk ungur til liðs við félagið. Hann lék knattspyrnu, fyrst í yngri flokkum og loks mörg ár í meistaraflokki félagsins við góðan orðstír og átti margar ánægjulegar endurminningar frá þessum árum, sem hann miðlaði mér oft af á þeim liðlega 30 árum, sem við vorum tengdir. Margar ferðirnar fórum við sam- an á völlinn, enda knattspyrnan sameiginlegt áhugamál okkar. Hann var ötull við að gefa dætra- sonum sínum góð ráð og hvatti þá óspart til dáða og fylgdist með þeim á knattspyrnuvellinum frá yngsta flokki og upp í meistara- flokk, bæði norðan og sunnan heiða, þó enginn þeirra yrði Þórsari eins og hann. Jóhann var vel liðtækur bridge- spilari og spilaði töluvert framan af ævi og var félagi í Bridgefélagi Akureyrar. Hann komst snemma í kynni við golfíþróttina og var upphaf þeirra kynna á þann veg, að hann gerðist kylfusveinn hjá eldri bróður sínum Hafliða, sem í mörg ár var í hópi bestu golfleik- ara á Akureyri. Margir góðir golf- leikarar stigu sín fyrstu spor á golfvellinum á Akureyri, sem kylfusveinar Hafliða Guðmunds- sonar og nægir að nefna þá frændur mína Viðar og Björgvin Þorsteinssyni margfalda meistara í golfi. En Jóhann lét af embætti kylfu- sveins hjá stóra bróður og aðrir tóku við. Hann hóf nú að leika golf og lék flesta daga á sumri hverju og oftast með sömu félögunum í nokkra áratugi. Hann náði góðum tökum á golf- inu og spilaði farsælt golf og hafði eignast stórt safn verðlaunagripa, sem Ólöf sá um að ekki sæist nokkur blettur á, enda oft vei pússaðir hjá henni. Þær voru margar ánægjustund- irnar, sem ég og vinur minn Ing- ólfur Gíslason í Garðabæ áttum með meistaranum eins og við nefndum Jóhannn oft þegar við vorum þrír saman á golfvellinum á árunum fyrir og í kringum 1970. Við goparnir um þrítugt ætluðum að gera allt af kröftum, en Jóhann hinn reyndi miðaldra maður með sitt sérstaka en far- sæla golf bað okkur fyrir alla muni að slaka á. Jóhann var með afbrigðum samviskusamur og húsbóndaholl- ur í störfum sínum, en hann var fyrst og fremst mikill og góður heimilisfaðir og síðar einnig dá- samlegur afi og langafi. Ég vil að leiðarlokum kveðja Jóhann tengdaföður minn og þakka honum það sem hann var mér og Huldu og þá fyrirmynd sem hann var sonum okkar, sem allir dáðu afa sinn. Elsku amma, við biðjum góð- an guð að blessa þig og við vitum að minningin um afa mun styrkja þig á sorgarstundu. Jóhannes Óli Garðarsson. Kirkjukórasamband Eyjaíjarðar- prófastsdæmis: Söngmót í Akureyrar- í suinar kirkju Aðalfundur Kirkjukórasam- bands Eyjafjarðarprófastsdæmis var haldinn þ. 26. nóv. sl. á Hótel Varðborg Akureyri. Mættir voru ellefu fulltrúar frá kirkjukórun- um, auk stjórnar, meðstjórnenda og gesta. Auk venjulegra aðalfundar- starfa, var ákveðið, að halda söngmót á vori komanda og fékk sú ákvörðun jákvæðar undirtekt- ir fundarmanna. Stjórn sambandsins sagði af sér störfum og var þá kosin ný stjórn. Kosningu hlutu: Sigríður Schiöth formaður, Þórunnar- stræti 130, sími 26480. Bryndís Friðriksdóttir ritari, Árskógs- sandi, sími 61942. Margrét Sig- urðardóttir gjaldkeri, Steinahlíð le, sími 21993. Meðstjórnendur: Baldvin Helgason og Jón Viðar Guðlaugsson. Fyrirhugað sönginót er ákveð- ið þ. 10. júní nk. og verður hald- ið í Akureyrarkirkju kl. 2 e.h.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.