Dagur - 22.02.1989, Qupperneq 1
72. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 22. febrúar 1989
37. tölublað
AUt fyrír
errabodin
HAFNARSTRÆTI 92 . 602 AKUREYRI SfMI 96 26708 . BOX 397
Fjárhagsörðugleikar fiskeldisfyrirtækja koma illa við ístess hf.:
Við verðum að fá peninga, annars
gctuni við ekki framleitt fóður
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri fóðurvöruverk-
smiðjunnar Istess hf., segir að
fjárhagserfiðleikar margra
fiskeldisfyrirtækja komi vita-
skuld mjög illa við ístess hf.
Fyrirtækin hafa átt í miklum
erfiðleikum með greiðslur fyrir
fóður og því er svo komið að
ístess hf. á nú inni hjá þeim
háar fjárhæðir. Guðmundur
vill ekki nefna neinar upphæð-
- segir Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Istess hf.
ir í þessu sambandi en segir:
„Við erum ekki komnir í þrot,
en höfum lánað það sem við
getum iánað og kannski vel
það. Við getum einfaldlega
ekki lánað meira. Nú verðum
við að fá peninga, að öðrum
kosti getum við ekki framleitt
fóður.“
Guðmundur G. Þórarinsson,
formaður Landssambands fisk-
Landsins forni ijandi þokast nær landi:
Varasamar ísrastir 25
mflur norður af Grímsey
- ísinn sést illa í radar
Ríkjandi vestan- og norðvest-
anátt á miðunum úti fyrir
Norðurlandi gerir það að verk-
um að landsins forni fjandi,
hatísinn, þokast nú óðfluga
nær landi. Kolbeinsey er nú
nánast horfin í ís, að sögn
Kristjáns Jónssonar hjá Land-
helgisgæslunni, sem fór í
ískönnunarflug út af Vest-
fjörðum og Norðurlandi í gær.
Nær landi eru ísrastir sem
Kristján sagði geta verið
hættulegar skipum ef menn
héldu ekki vöku sinni.
Kristján sagði að ískönnunar-
flugið hafi gengið brösugt út af
Norðurlandi, enda strekkings-
vindur af vestri og norðvestri
með snjókomu. Skyggni var því
af skornum skammti.
Samfelldur ísjaðar markast af
eftirfarandi tölum (rétt er þó að
taka fram að vegna lítils skyggnis
ber að taka tölur fyrir Norður-
land með nokkrum fyrirvara):
ísjaðarinn byrjar í vestri á
Dohrnbanka og er 115 mílur
vestur af Bjargtöngum, 50 mílur
ísland kemst
í A-keppnina
ísland sigraði Sviss í gær í B-
heimsmeistarakeppninni í
handknattlcik með 19 mörkum
gegn 18 í æsispennandi leik.
Leikurinn var mjög jafn og
munaði aldrei meiru en tveim-
ur mörkum milli liðanna.
íslendingar leiddu allan síðari
hálfleik en tókst aldrei að hrista
Svisslendinga alveg af sér. Valdi-
mar Grímsson var markahæstur
með sex mörk, Einar Þorvarðar-
son varði tvö víti og Guðmundur
Hrafnkelsson kom inn á í síðari
hálfleik og varði mjög vel. ísland
kemst því áfram í A- keppnina.
AP
norðv. af Barða, 40 mílur norðv.
af Straumnesi, 45 mílur norður af
Kögri, 47 norður af Horni, 80
mílur norður af Skagatá, 88 míl-
ur norður af Siglunesi og 93 mílur
norður af Rauðanúp. Par byrjar
ísjaðarinn síðan að sveigja í
norðurátt.
Kristján segir að auk ísjaðarins
séu dreifðar ísspangir mun nær
landi, „kannski á stærð við skip,
4-5 jakar saman.“ Mörkin á þess-
um ísspöngum eru eftirfarandi:
Pær liggja í vestri norðan við
Gildruna svokölluðu, 15 mílur
norður af Kögri, 15 mílur norður
af Horni, 18 mílur norða. af
Geirólfsgnúp, 23 mílur norðnv.
af Skaga, 30 mílur norðnv. af
Sauðanesi og 22 mílur norðv. af
Grímsey, 25 mílur norður af
Grímsey og 58 mílur norður af
Rauðanúp.
„Kolbeinsey er horfin í ís og ég
heyrði af tveimur skipum sem
voru að toga á þessum slóðum og
ætluðu að forða sér fyrir
myrkur," sagði Kristján. Hann
sagði ísinn hafa færst mjög nær
landi frá því síðast var flogið yfir
svæðið seinnipart síðustu viku.
„Ég myndi segja að þyrfti ekki
mikla norðvestan eða vestanátt
til að skella ísnum að landi,“
sagði Kristján.
Hann sagði ísjaðarinn vera
samfellda slétta breiðu, að megn-
inu til frá því í vetur, sem sæist
mjög illa í radar. óþh
eldis- og hafbeitarstöðva, sagði í
Degi f gær að fiskeldismenn væru
orðnir rnjög langeygir eftir fyrir-
greiðslu Tryggingasjóðs fiskeld-
islána, en búist er við að hann
byrji afgreiðslu að hálfunt öðrum
mánuði liðnunt. Nafni hans Stef-
ánsson hjá ístess hf. tekur undir
þetta og segir seinagang við
stofnsetningu sjóðsins hreint
háskalegan. Hann bendir á að
forráðamenn fiskeldisstöðva hafi
ekki átt aðgang að afurðlánum til
jafns við t.d. aðrar greinar land-
búnaðar og sjávarútveg. „Þeir
hafa ekki aðgang að neinu nema
lánsfjármagni hér heima og þeir
hafa rekið sig á veggi í leit eftir
lánsfé erlendis frá.“ Guðmundur
segir það alveg ljóst að fiskeldis-
fyrirtæki mörg hver geti ekki
beðið öllu lengur eftir úrlausn
og ístess hf. geti að sama skapi
ekki beðið öllu lengur. Hann seg-
ir að til marks um það sé fyrir-
tækið hætt að lána þeim fiskeldis-
fyrirtækjum sem ekkert geta
borgað. „Þetta ástand kemur
auðvitað illa við okkur og skapar
vissa örðugleika, sem fara vax-
andi eftir því sem dregst að grípa
til aðgerða. Hver vika sem líður
gerir hlutina erfiðari og getur fyr-
ir suma gert þá ómögulega," seg-
ir Guðmundur.
Hann segir aðspurður að um
fjórðungur framleiðslu ístess hf.
fari á markað hér innanlands.
Fjárhagsstaða fiskeldisfyrir-
tækja er mjög mismunandi. Sum
þeirra hafa sterka bakhjarla en
önnur ekki. Nokkur fyrirtæki í
þessari grein hafa nú þegar lent í
rekstrarstöðvun og gjaldþroti en
enn sem kontið er er of snemmt
að spá fyrir um hvort fleiri fisk-
eldisfyrirtæki lenda í þeirri
aðstöðu, þ.e.a.s. ef þau fá ekki
fyrirgreiðslu úr Tryggingasjóði
fiskeldislána. Guðmundur Stefáns-
son segist á þessari stundu ekki
vilja spá um hvort þeir fjármunir
sem ístess hf. hefur lánað til fisk-
eldisfyrirtækja í formi fóðurs
verði glatað fé ef til gjaldþrots
þeirra kentur. Hann telur það þó
hugsanlegt. óþh
Krakkar úr 1. bekk Glerárskóla fóru á sýninguna „Börn noröursins“ í Dynheimum í gær og tóku
við að mála og teikna.
óspart til hcndinni
Myild: TLV
Heilsufar á svæðinu:
Kafnaði flensan í fæðingu?
Heilsufar á svæði Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri virðist
hafa verið með þokkalegasta
- ekkert tilfelli greint enn
móti í janúar ef marka ma
skýrslu stöðvarinnar um smit-
sjúkdóma. Enn eimir eftir af
Siglufjörður:
Snjóflóðahættan að líða hjá
„Hættan fer minnkandi eftir
því sem tíminn Iíður,“ sagði
Þráinn Sigurðsson, formaður
Almannavarnanefndar Siglu-
fjarðar, en á mánudagskvöld
urðu íbúar tíu húsa syðst við
Suðurgötu og Fossveg að yfir-
gefa heimili sín vegna snjó-
flóðahættu.
Þegar ljóst var að mesta hættan
var liðin hjá í gær snéru íbúar
umræddra húsa aftur til heimila
sinna. Þráinn sagði að hengjur
hefðu myndast í Hafnarfjalli í
snjókomu á mánudag en þá var
vestanátt. Sú vindátt er einmitt
varasömust á þessum stað með
tilliti til snjóflóðahættu.
Það má heita árlegur atburður
í Siglufirði að íbúar syðstu hús-
anna í bænum þurfi að yfirgefa
þau um stundarsakir vegna
snjóflóðahættu og dvelja þeir hjá
vinum og vandamönnum meðan
beðið er eftir að hættan líði hjá.
EHB
magapest sem hefur verið á
ferðinni síðan í haust og segir
Ingvar Þóroddsson yfirlæknir
að hér sé ekki bara miklu áti
um jól og áramót um að
kenna. Það vekur athygli að
ekki eitt einasta inflúensutil-
felli hefur verið greint á svæð-
inu enn.
Samkvæmt fréttum úr Reykja-
vík virðist flensan sem svo margir
óttuðust ætla að kafna í fæðingu;
a.m.k. verður hún líklega ekki að
faraldri.
All margir þjáðust af kvefi og
hálsbólgu í mánuðinum, en slík
tilfelli eru skráð 284 talsins. Þá
fengu 6 lungnabólgu, 16 streptó-
kokka-hálsbólgu og enn eru 3
með eitlafár. VG