Dagur - 22.02.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 22.02.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 22. febrúar 1989 Nýr öxull kominn frá Frakklandi til ístess hf.: Nýr 2ja tonna gírkassi að verða til í slaginn Stefnt er að því að hefja í dag framleiðslu að nýju hjá ístess hf. eftir um viku framleiðslu- stöðvun, en orsökin var bilun í fóðurframleiðsluvél. Aðalöx- uli vélarinnar snérist í sundur og þurfti því að fá nýjan gír- kassa, um 2 tonn á þyngd, frá verksmiðjunum í Frakklandi. Gírkassinn var fluttur frá verk- smiðjunum í nágrenni Lyon í Frakklandi til Frankfurt í V- Frumvarp til lánsQárlaga: Lánsheimild til Hrísejjar- hrepps vegna ferjukaupa Með samþykkt lánsfjárlaga, sem nú eru til umfjöllunar á Alþingi, getur Hríseyjarhrepp- ur ráðist í kaup á nýrri ferju á þessu ári. í sjöttu grein frum- varpsins segir að hreppnum verði heimiluð lántaka á þessu ári til kaupa á notuðu skipi til siglinga á Eyjafirði. Þýskalandi hvar hann var settur um borð í flugvél frá Flying Tigers, er flutti hann til Keflavík- ur. Vélin lenti þár snemma á sunnudagsmorgun en gírkassinn var þar færður yfir í flutningabíl sem flutti hann á leiðarenda til fóðurverksmiðju ístess hf. Að sögn Einars Sveins Ólafs- sonar, verksmiðjustjóra Istess hf., hefur viðgerð gengið sam- kvæmt áætlun og því ættu fram- leiðsluhjól verksmiðjunnar að byrja að snúast á nýjan leik í dag. Hann segir að gamli öxullinn verði í þessari viku sendur til verksmiðjanna í Frakklandi til greiningar, en engan veginn er Ijóst af hverju öxullinn snérist í sundur. Sérfræðingar í Frans ættu að geta skorið úr um það. óþh Það er gaman að fara á skauta en þá er líka vissara að renna sér á öruggunr svæðum. Á Akureyri er vélfryst skauta- svell og ætti enginn að þurfa að stunda þann hættulega leik sem þessi mynd sýnir. Mynd: tlv Verðlagsráð sjávarútvegsins fjallar um verð á grásleppuhrognum upp úr sjó: Grásleppusjómenn alfarið á móti ftjálsri verðlagningu og vilja lágmarksverð - Kanadamenn hafa lýst yfir vilja til að draga úr undirboðum sínum Eins og Dagur hefur skýrt frá er hugmyndin að nýja ferjan verði starfrækt samhliða Sævari sem nú siglir milli Árskógssands og Hríseyjar. Nýja ferjan sjái um alla vöruflutninga en Sævar um fóiksflutningana. Að auki er hug- myndin að nýja ferjan stundi farþega- og vöruflutninga til Grímseyjar og sveitarfélögin tvö annist því reksturinn. Kannaðir hafa verið möguleik- ar á kaupum á skipi fyrir 25-30 milljónir króna. en samkvæmt lánsfjárfrumvarpinu fær Hríseyj- arhreppur heimild til að taka allt að 35 milljónir króna að láni til þessara kaupa. JÓH „Ég áætla að hægt verði að selja 13-14 þúsund tunnur af grásleppuhrognum á þessu ári sem er 30-40% aukning frá í fyrra en samt vel undir meðal- lagi. En það er full ástæða til að brýna það fyrir grásleppu- veiðimönnum nú að hefja ekki veiðar á komandi vertíð fyrr en þeir hafa tryggt sölu á þeim hrognum sem þeir koma til með að afla,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeig- enda, um grásleppuvertíðina sem hefst á norðaustanverðu landinu 20 mars. í byrjun mán- aðarins funduðu fulltrúar grásleppuveiðimanna hér á landi með umboðsmönnum er- Iendra kaupenda, milligöngu- mönnum um sölu hrogna og innlendum kaupendum hrogna. Rætt var um verð grásleppu- hrogna á komandi vertíð. Ákveðið var að lámarksvið- miðunarverð verði 1100 þýsk mörk fyrir hverja tunnu, eða það sama og var á síðasta ári. Ákveðið var á fundinum að Verðlagsstofnun sjávarútvegsins skuli ákveða lágmarksverð á kíló af grásleppuhrognum sem landað yrði beint í verkunarstöð. Haldn- ir hafa verið tveir fundir í Verð- lagsráði um málið og segir Örn Pálsson að uppi séu tvö sjónar- mið, annars vegar sjónarmið smábátasjómanna um að ákveðið verði lágmarksverð útreiknað samkvæmt þeim grundvelli sem notaður hefur verið síðustu ár og full samstaða hefur verið um. Hins vegar eru einnig uppi sterk- ar raddir í Verðlagsráði um að gefa verðið frjálst en Örn segir að grásleppusjómenn muni leggjast alfarið gegn slíku. Næsti fundur í Verðlagsráði verður á morgun. Fulltrúar frá smábátasjómönn- um og utanríkisráðuneyti hafa fundaö með stórum verkendum grásleppuhrogna í Kanada um komandi vertíð og markaðshorf- ur. Samanlagt afla ísland og Kan- ada um 80% þeirra grásleppu- hrogna sem veidd eru í heimin- um. Á fundinum kom fram vilji hjá Kanadamönnum til að hækka verð hrogna sinna um a.m.k. 15% frá í fyrra, en eitt stærsta vandamálið við sölu á íslenskum hrognum að undanförnu hafa verið mikil undirboð Kanada- manna á markaðinum. Með 15% hækkun yrði verð þeirra um 920 þýsk mörk fyrir tunnuna. Ekki er komin staðfesting á hækkun kana- dísku hrognanna en Örn segir að tilkynningar sé að vænta á næstu dögum. JÓH Skylduræknir Siglfirðingar: Sínna sjúkraflutningum í sjálfboöavinnu Siglfirðingar hafa um tíu ára skeið sinnt sjúkraflutningum bæjarins í sjálfboðaliðsvinnu. Rauðakrossdeildin í Siglufirði auglýsti eftir mönnum sem vildu bjóða sig fram til starfs- ins þegar lögreglumönnum var bannað að flytja sjúklinga árið 1978. Þegar frumvarp til laga um breytta verkaskiptingu rík- is og sveitarfélaga tekur gildi mun þessi skipan sjúkraflutn- ingamála þó örugglega breyt- ast. Jón Sigurbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Siglu- fjarðar, sagði að allar götur frá því að lögreglan hætti að sinna sjúkraflutningum 1978 hefði ver- ið ljóst að bærinn hefði ekki ráð á að reka tveggja manna vaktþjón- ustu í þessu skyni, en slíkt myndi kosta um 3 milljónir króna á ári. Því hefði það ráð verið tekið að fá sjálfboðaliða til að gegna störf- um sjúkraflutningsmanna og hefði það gengið vel. Sjálfboðaliðakerfið virkar þannig að menn eru á bakvöktum á nokkurra vikna fresti. Þeir ganga með kalltæki, svonefnt „bíptæki,“ á sér og sinna útköll- um á kvöldin og um helgar. Starfsmenn sjúkrahússins sinna almennum sjúkraflutningum á daginn. Fimm sjálfboðaliðanna hafa sótt námskeið í sjúkraflutningum en í nóvember gengur í gildi ný reglugerð sem kveður á um að engir megi sinna slíkum störfum nema hafa áður lokið slíku nám- skeiði. Þetta mun þó ekki hafa þau áhrif að fleiri sjálfboðaliðar sæki námskeið því að þjónustan mun færast alfarið yfir á ríkið eft- ir næstu áramót. EHB Nýlega afhenti Rauðakrossdeildin á Siglutirði útbúnað í sjúkrabifreiðina á staðnum. llm var að ræða burðarteppi og 2 spelkur fyrir hendur og fætur. Á myndinni sést er Halldóra Jónsdóttir fulltrúi Rauðakrossdeildar Siglufjarðar afhendir Andrési Magnússyni sjúkrahúslækni hluta útbúnaðarins. Mynd: Ás Skátar á Akureyri: Samkoma og kvöldvaka í Glerárkirkju I dag, 22. febrúar, er Skátafé- lagið Klakkur á Akureyri tveggja ára. í tilefni afmælisins og vegna þess að skátar á Akureyri hafa tekið í notkun nýtt félagsheimili í kjallara Glerárkirkju er efnt til sam- komu í Glerárkirkju í kvöld. Nýja félagsheimilið verður til sýnis milli kl. 20.00 og 21.00. Klukkan 21.00 hefst kvöldvaka í kirkjunni. 22. febrúar er haldinn hátíð- legur af skátum um allan heim en hann er fæðingardagur stofnanda skátahreyfingarinnar. Baden Powell fæddist þann dag árið 1857. Eiginkona hans, Olave Baden Powell, var fyrsti alheims- skátaforingi kvenskáta og eru lið- in 100 ár frá fæðingu hennar í dag. Alheimssamtök skáta hafa ákveðið að helga 22. febrúar 1989 friði. í tilkynningu frá stjórn Klakks segir m.a.: „Með áðurnefndri kvöldvöku viljum við leggja okk- ar litla skerf af mörkum með dagskrá tengdri friði og bræðra- lagi. Að aflokinni kvöldvöku verður skátaheimilið aftur opnað fyrir almenning. Dagskránni lýk- ur síðan með kvöldvöku fyrir eldri skáta. Við hvetjum alla skáta, foreldra og velunnara skátahreyfingarinnar til að eiga með okkur ánægjulega kvöld- stund.“ EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.