Dagur - 22.02.1989, Blaðsíða 4

Dagur - 22.02.1989, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 22. febrúar 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASfMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Eins konar landhelgisstríð Kannanir sýna að meirihluti þjóðarinnar er hlynntur hval- veiðum og styður þá stefnu sem íslensk stjórnvöld hafa fylgt í málinu. Stuðningur þjóðarinnar er þó ekki eins afdráttarlaus og áður, enda margir helst úr lestinni eftir því sem andstaða og áróður grænfriðunga gegn hvalveið- um okkar hefur aukist. Eftir að fréttir bárust af því að viðskiptaþvinganir grænfriðunga í Vestur-Þýskalandi væru farnar að bera árangur, jókst þrýstingur á íslensk stjórnvöld um kúvendingu í hvalamálinu verulega. Nokkrir fjölmiðlar hafa tekið afgerandi afstöðu gegn stefnu stjórnvalda og er Þjóðviljinn þar fremstur í flokki. Hann hefur frá upphafi hvalveiðideilunnar verið málpípa grænfriðunga og hvað eftir annað hafa Þjóðviljamenn ráðist heiftarlega að Hall- dóri Ásgrímssyni, sjávarútvegsráðherra, bæði í fréttum og forystugreinum. Málflutningur þeirra hefur einkennst af sömu öfgum og sama ofstæki og áróður grænfriðunga. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki farið offari í málflutningi sínum, þótt nokkurrar taugaveiklunar sé farið að gæta upp á síð- kastið í umfjöllun Morgunblaðsins og Stöðvar tvö. Af- staða DV til þessa máls er allsérstök, því hún er eiginlega tvöföld eða tvíátta. Það fer nefnilega eftir því hver skrifar forystugreinarnar þann og þann daginn, hvaða afstöðu blaðið tekur. Jónas Kristjánsson, annar tveggja ritstjóra DV, er greinilega mjög andsnúinn stefnu stjórnvalda í málinu. Þá virðist ritstjóranum sérlega uppsigað við sjáv- arútvegsráðherra, og segir hann bóndalegan, sem í aug- um ritstjórans er örugglega eitthvert versta skammaryrði sem til er. Hinn ritstjórinn, Ellert B. Schram, lætur tilfinn- ingarnar ekki hlaupa með sig í gönur. í forystugrein DV á mánudag bendir hann á að „áður en menn fari alveg á taugum í þessu máli“ sé rétt að vega og meta hverjar afleiðingar það hafi í för með sér ef íslendingar lýsa yfir uppgjöf í hvalamálinu. „Þá erum við að viðurkenna að vísindarannsóknir okkar séu á fölskum forsendum. Þá erum við að viðurkenna að grænfriðungar hafi rétt fyrir sér þegar þeir halda því fram að við séum að útrýma hvalastofninum. Þá erum við að viðurkenna að aðrar þjóðir hafi nánast lögsögu yfir okkar eigin lögsögu, geti stjórnað fiskveiðistefnu þjóðarinnar með einhliða og öfgafullum áróðri." Rétt er að vekja athygli á „þessari hlið" afstöðu DV í hvalveiðideilunni. Það þarf vissulega að vega það og meta í víðara samhengi hvenær við erum að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur hélt því fram fyrir skömmu að í raun stæði þjóðin í einu landhelgisstríðinu enn, þar sem baráttan stæði um það hvort við yrðum „að hlíta því að biðja misviturt fólk í fjarlægum heimshlutum að leyfa okkur náðarsamlegast að draga fram lífið. “ Japanar eru hugsanlega tilbúnir til að kaupa verulegan hluta þess lagmetis sem Þjóðverjar vilja ekki, enda eru Japanar þeirrar skoðunar að ef hvala- rannsóknir leggist af og þar með vísindaveiðar, verði næsta baráttumál umhverfisverndarsinna að minnka veiðar á fiskistofnum, til að sjávarspendýr hafi örugglega næga fæðu. Hvar stæðum við þá? Vert er að hugleiða þessi mál gaumgæfilega og rasa ekki um ráð fram. Þetta landhelgisstríð verðum við nefni- lega að vinna, engu síður en hin fyrri. BB. Myndir og texti: SS Hver er hræddur við Virgmíu Woolf Leikfélag Akureyrar frum- sýndi leikritið Hver er hræddur við Virginíu Woolf? síðastliðið föstu- dagskvöld og voru þessar myndir teknar af frumsýningargestum í sýn- ingarhléinu. Ekki var annað að heyra en að þeir skemmtu sér hið besta. Að sýningunni lokinni gengu kveðjur og blómvend- ir á víxl undir dynjandi lófa- taki áhorfenda sem færðu þannig þakkir fyrir skemmti- lega kvöldstund. Valgerður H. Bjarnadóttir, formaður leikhúsráðs, færði hjónunum Helga Skúlasyni og Helgu Bachmann sérstakar þakkir, en þau leika gestaleik með Leikfélagi Akureyrar með góðfúslegu leyfi frá Þjóð- leikhúsinu. Petta er í fyrsta sinn sem þessir ágætu leikarar taka þátt í starfi Leikfélags Akur- eyrar. Hinir leikararnir í verkinu, Ellert A. Ingi- mundarson og Ragnheiður Tryggvadóttir hafa hins veg- ar áður ljáð Leikfélaginu krafta sína. Sérkennilegur aðdragandi að sýningunni og ágreiningur í sambandi við uppfærsluna virtist ekki hafa áhrif á frum- sýninguna, enda þótt viss spenna væri í lofti eins og ávallt á frumsýningum. Þeir aðilar sem ekki vilja láta bendla sig við sýninguna hafa líklegá verið búnir að skila sínu verki og Arnór Benónýsson leikhússtjóri fylgdi því síðan eftir. An efa sýna Norðlending- ar Virginíu Woolf áhuga því leikritið er sérlega áhugavert auk þess sem það er mikið ánægjuefni að fá að njóta krafta þeirra Helgu og Helga, en þeim má líkja við Elizabeth Taylor og Richard Burton íslands.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.