Dagur - 22.02.1989, Page 9
22. febrúar 1989 - DAGUR - 9
Nýtt sjúkrakalltæki með
fjölbreytta möguleika
- innanhússkallkerfi og öryggissíma má tengja við kerfið
Ásgeir Sverrisson framkvæmdastjóri Georgs Ámundasonar og Co. og Svein
Sætlier frá norska fyrirtækinu Stentofon, við stjórnstöð sjúkrakalltækisins.
Mynd: GB
Ný gerð sjúkrakalltækja var
kynnt fyrir forráðamönnum
nokkurra sjúkrahúsa á Norð-
ur- og Austurlandi fyrir
skömmu. Það er fyrirtækið
Georg Amundason og Co í
Reykjavík sem flytur kalltækin
inn frá Stentofon í Noregi, en
norska fyrirtækið hefur sér-
hæft sig í bæði sjúkra- og
innanhússkallkerfum. Það
voru þeir Ásgeir Sverrisson
framkvæmdastjóri og Svein
Sæther frá Stentofon sem
kynntu tækin, auk þess sem
þeir leiddu menn einnig í allan
sannleik um svokallaða örygg-
issíma.
Sjúkrakalltækið er eins og
nafnið bendir til einkum ætlað
sjúkrahúsum, en hentar einnig
stofnunum af svipuðum toga.
Tækið er þannig uppbyggt að
ákveðinni stjórnstöð er komið
fyrir í t.d. vaktherbergi og hringi
sjúklingur á aðstoð kviknar ljós á
tækinu sem gefur til kynna úr
hvaða stofu hringt var og einnig
úr hvaða rúmi. Þeir Ásgeir og
Svein sögðu tæki þetta mun full-
komnara en þau sjúkrakalltæki
sem nú væru víðast hvar notuð.
Þessa útfærslu á sjúkrakalltækj-
um sögðu þeir nýja af nálinni.
„Kerfið býður einnig upp á að
hringja neyðarkalli, sem er þá
t.d. þannig að ef sjúklingur er
mikið veikur þarf sá er kemur inn
á stofuna ekki að yfirgefa hann á
meðan læknir er sóttur, heldur
getur ýtt á einn hnapp og þá kem-
ur ljós sem gefur til kynna að
aðstoð þurfi á þennan tiltekna
stað,“ sagði Ásgeir og bætt við að
einnig væri hægt að setja upp
svipaðan búnað í tengslum við
súrefnisflöskur og annað, þannig
að ljós birtist þegar flaskan væri
að tæmast.
Innanhúskallkerfið er hægt að
tengja inn á sjúkrakallkerfið og
nefndi Ásgeir sem dæmi að í
tveggja eða fleiri hæða húsum
væri möguleiki á að hafa nætur-
vakt á annarri hæðinni og tækið
gæfi ákveðið merki í stjórnstöð-
inni þegar og ef á aðstoð þyrfti að
halda. Ásgeir sagði það kost við
þessi tæki að viðbætur væri hægt
að kaupa eftir efnum og aðstæð-
um og vel væri möguleiki að nýta
það kallkerfi sem þegar væri fyrir
hendi á sjúkrahúsunum.
Öryggissíminn svokallaði er
einnig nýr af nálinni, en hefur
verið á inarkaðnum um nokkurn
tíma. „Þetta er sjálfstætt öryggis-
kerfi fyrir t.d. aldraða og það
virkar þannig að viðkomandi er
með móttakara undir síma sínum
og ber einnig lítið tæki, sendara
um háls sér. Ef eitthvað kemur
upp á heima, viðkomandi dettur
eða annað slíkt, getur hann ýtt á
hnapp á sendaranum og þá hring-
ir síminn í fyrirfram uppgefin
símanúmer, sem geta verið allt
að tólf,“ sagði Ásgeir.
Verði tækjanna sagði hann
stillt í hóf og miðað við getu kerf-
isins væru þau ekki dýr. Tækin
sagði hann einnig einföld í upp-
setningu. Viðtökur forráða-
manna sjúkrahúsanna sögðu þeir
félagar hafa verið góðar. mþþ
Sigurvegarar í Alþýðubankamóti B.A. Efri röð frá vinstri: Pétur Guðjónsson, Ólafur Ágústsson og Hörður
Blöndal. Neðri röð: Anton Haraldsson, Kristín Jónsdóttir, útibússtjóri Alþýðubankans á Akureyri, Haukur Jóns-
son og Haukur Harðarson. Mynd: bb
Alþýðubankamót Bridgefélags Akureyrar:
„Haukamir“ sigruðu
Haukur Harðarson og Haukur
Jónsson sigruðu í Alþýðu-
bankamóti Bridgefélags Ákur-
eyrar og Alþýðubankans, sem
haldið var í Alþýðuhúsinu á
Akureyri á laugardaginn. Þeir
nafnar tóku forystuna snemma
móts og létu hana ekki af
hendi eftir það.
Lokastaða efstu para varð
þessi:
1. Haukur Harðarson - Stig:
Haukur Jónsson: 417
2. Anton Haraldsson -
Pétur Guðjónsson: 408
3. Hörður Blöndal -
Ólafur Ágústsson: 385
4. Sigurður Búason -
Stefán Sveinbjörnsson: 383
5. Hermann Tómasson -
Soffía Guðmundsdóttir: 380
6. Alfreð Pálsson -
Ármann Helgason: 379
7. Jónas Róbertsson -
Sveinn Torfi Pálsson: 368
8. Gylfi Þórhallsson -
Sveinbjörn Sigurðsson: 366
9. Gunnlaugur Guðmundss. -
Magnús Aðalbjörnsson: 360
10. Reynir Helgason -
Tryggvi Gunnarsson: 355
24 pör tóku þátt í mótinu og
voru spiluð 3 spil milli para, alls
16 umferðir eftir Mitchell-fyrir-
komulagi. Keppnisstjóri var Gísli
Pálsson en reiknimeistari Mar-
grét Þórðardóttir. Alþýðubank-
inn á Akureyri gaf öll verðlaun til
mótsins, en pörin í þremur efstu
sætunum hlutu veglega eignar-
bikara að launum auk þess sem
nöfn sigurvegaranna verða skráð
á farandbikarinn, sem geymdur
er í Alþýðubankanum.
Tónlistarskólinn
á Akureyri:
Strengjadeildin
með tónleika
Strengjadeild Tónlistarskólans á
Akureyri heldur tónleika í Sal
Tónlistarskólans á morgun,
fimmtudaginn 23. febrúar 1989
kl. 20.30.
Flutt verður tónlist fyrir fiðlu,
lágfiðlu, selló og píanó.
Meðal höfunda má nefna
Bach, Eccles, Mozart, Vivaldi,
Wagner, Pepusch.
Aðgangur er ókeypis.
Aðalfundur
Ungmennafélags Vorboðans
verður haldinn í Sólgarði, sunnud. 26. febrúar kl.
13.30.
Stjórnin.
FÉLAG MÁLMIÐNAÐARMANNA
AKUREYRI
Fundarboð
Aðalfundur Féiags málmiðnaðarmanna Akureyri
verður haldinn laugardaginn 25. febrúar 1989 ki.
13.00 í Alþýðuhúsinu, Akureyri.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Atvinna óskast!
Sjálfstæður starfandi byggingaverkfræðingur
með 10 ára reynslu við verklegar framkvæmdir
og stjórnun, óskar eftir áhugaverðu framtíðar-
starfi.
Margt kemur til greina.
Frekari upplýsingar er að fá á auglýsingadeild Dags
(Frímann).
smáauglýsingum
Mú gefst tækifæri til að auglýsa
ódýrt á smáauglýsingasíðu Dags
því fram til 1. mars verður sérstakt
tilboðsverð á smáauglýsingum T
DEGI.
Ef greiðsla fylgir með auglýsingunn
er verð kr. 300,- fyrir eina birtingi
og kr. 150,- fyrir hverja endurtekn
ingu.
Mú er tilvalið tækifæri til þess ac
hreinsa til í geymslunni.
Auglýsing í DEC5I
borgar sig.
•Tf
Strandgötu 31, 600 Akureyri.