Dagur - 24.02.1989, Blaðsíða 5

Dagur - 24.02.1989, Blaðsíða 5
24. febrúar 1989 - DAGUR - 5 Glaðbeittur hópur þátttakenda og leiðbeinenda að afloknu námskeiði um konur og fyrirtækjastofnun og -rekstur. Sitjandi frá vinstri: Laufey Einarsdóttir, Eva Ingólfsdóttir, Marta Jörgensen, Helga Haraldsdóttir, Guðbjörg Ringsted, Sigurlína Styrmis- dóttir og Helena Dejak. Standandi frá vinstri: Birna Hermannsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson, iðnráðgjafi hjá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar hf., Olga Ágústsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Hulda Theódórsdóttir, Svanhildúr Friðriksdóttir, Guðbjörg Pétursdótt- ir, leiðbeinandi og starfsmaður rekstrartæknideildar Iðntæknistofnunar, Bryndís Friðriksdóttir, Ellen Pálsson, Soffía Pálmadótt- ir, Halldóra Ágústsdóttir, Eva Magnúsdóttir, Anna Mary Björnsdóttir, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Margrét Pálsdóttir og Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. Mynd: kk Að afloknu námskeiði Iðntæknistofnunar og Iðnþróunarfélags Eyjaíjarðar: Eflir sjálfstraustíð og auðveldar fyrstu skref - segja tveir þátttakenda, Anna Mary Björnsdóttir og Sigríður Jónsdóttir Tvær síðustu helgar hafa 20 eyfirskar konur sótt námskeið á vegum Iðntæknistofnunar og Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. sem ber yfirskriftina „Stofnun og rekstur fyrirtækja fyrir konur.“ Leiðbeinendur á námskeiðinu voru tveir starfs- menn rekstrartæknideildar Iðntæknistofnunar, Ásgeir Páll Júlíusson og Guðbjörg Pétursdóttir. Þá lögðu Iðn- þróunarfélagsmenn hönd á plóg og einnig messuðu endur- skoðandi og lögfræðingur yfir þátttakendum. Samskonar námskeið hafa ver- ið haldin á undanförnum árum víða um land og lætur nærri að um 200 konur hafi sótt þau. Markmiðið með námskeiðunum er að gera konum kleift að kynn- ast þeim atriðum sem máli skipta í sambandi við stofnun og rekstur fyrirtækja. Þau eru ætluð konum scnr reka fyrirtæki, taka þátt í rekstri fyrirtækja, hyggjast stofna fyrirtæki eða hafa bara áhuga á og vilja fræðast um rekstur fyrir- tækja. Tengsl við aðrar konur Hver er skýringin á því að sett er upp sérstakt námskeið fyrir kon- ur í stofnun og rekstri fyrirtækja? Leiðbeinendur á námskeiðinu svara því þannig til að með sér- stökum kvennámskeiðum séu mun meiri líkur á að fá konur til að sækja kennslu í þessum fræðum. Þeir benda á að konur eigi auðveldra með að tjá sig inn- an um aðrar konur en í blönduð- um hópi og að konur leggi ríkari áherslu á eflingu sjálfstrausts og tengsl við aðrar konur með svip- uð framtíðaráform. t>á er á það bent að konur leggi aðrar áhersl- ur á fjölskyldutengsl og börn, sem aftur hafi áhrif á umræður. Eins og áður segir sóttu 20 konur af Eyjafjarðarsvæðinu námskeið Iðntæknistofnunar og Iðnþróunarfélagsins í Galtalæk helgarnar 10.-12. og 17.-18. febrúar sl. Víða var komið við og skiptist námskeiðið upp í 7 þætti. í fyrsta lagi var hugað að fyrir- tækjastofnandanum sjálfum og stjórnunarþættinum. I öðru lagi var rætt um stofnun fyrirtækisins, stofnáætlun og stefnumótun. í þriðja lagi bar markaðssetning á góma. í fjórða lagi var rætt um fjármálahliðina, kostnaðarút- reikninga, áætlanagerð og reikn- ingsskil. í fimmta lagi kom skipu- lagning til umræðu, þ.e. staðsetn- ing búnaðar, form fyrirtækisins og lög og reglugerðir. Sjötti hluti námskeiðsins var heimsókn fyrir- lesara úr atvinnulífinu og síðasti hluti þess laut að framtíðarsýn fyrirtækis. Til í slaginn Dagur hafði tal af tveimur kon- um á Akureyri, sem sóttu nám- skeiðið, Önnu Mary Björnsdóttur og Sigríði Jónsdóttur, og innti þær eftir því hvaða gagn þær teldu sig hafa haft af því. í máli þeirra beggja kom fram að þær hefðu ekki í hyggju að nýta sér námskeiðið til stofnunar fyrir- tækja, a.m.k. ekki í bráð, en þær lögðu þó áherslu á að eftir að hafa gengið í gegnum námskeiðið væru þær mun betur í stakk bún- ar en áður til að hella sér út í fyrirtækjastofnun og rekstur. Anna Mary sagðist ekki liafa komið nálægt fyrirtækjarekstri sjálf en fylgdist þó lítillega með rekstri fyrirtækis eiginmannsins. Hún sagðist að öllum líkindum nýta sér þekkingu, sem hún hefði aflað sér á námskeiðinu, til að vinna við bókhald þess fyrirtæk- is. „Ég er ekki í neinum vafa að þetta námskeið eflir sjálfstraust þeirra kvenna sem vilja hella sér út í stofnun fyrirtækja. Það auð- veldar þeim fyrstu skrefin og ekki síst gefur hugmynd um hvar leita beri eftir nauðsynlegum upplýs- ingurn," sagði Anna Mary. Sigríður starfar nú sem bókari hjá Plasteinangrun hf. og er að sögn ekki á leið í stofnun eigin fyrirtækis. „En maður veit aldrei hvað verður síðar meir,“ bætti hún við. Hún sagðist vera með próf frá Samvinnuskólanum á Bifröst og þekkti því að nokkru leyti leyndardóma fyrirtækja- reksturs og markaðsfræði. Hún sagði þó ekki hafa hugsað svo mjög út í þá hlið sem snýr að undirbúningi fyrirtækjastofnun- ar, t.d. markaðssetningu. „Þetta fannst mér mjög áhugavert og opnaði nýja sýn í þá hluti.“ Sigríður sagðist hafa skráð sig á þetta námskeið m.a. til þess að afla sér ýmissa upplýsinga varð- andi bókhald. Hún segist hafa fengið svar við flestum spurning- um og geti örugglega nýtt sér fengnar upplýsingar í starfi. óþh Nýjar yörur á hreint ótrúlegu verði. Peysur ★ Bolir ★ Undirfatnaður Gallabuxur, takmarkað magn og ekki síst barnafatnaður á algeru draumaverði. Verslunin r Wlog nn Sunnuhlíð 12, sími 22484. - Sveitahrað- keppni B.A. Sjóvá/Almennar-sveitahraðkeppni Bridgefélags Akureyrar hefst þriðjudaginn 28. febrúar. Keppnin tekur fjögur kvöld. Þátttökutilkynningar þurfa að berast stjórn B.A. fyrir kl. 16.00 sunnudaginn 26. febrúar en stjórn- in aðstoðar við myndun sveita ef óskað er. Spilafólk á Akureyri og nágrenni er hvatt til að skrá sig. Stjórn B.A. A ÍíSl '31 !9!ð i' iu# UII^S HÓTEL KEA Föstudagskvöld 24. febrúar Dansleikur Hljómsveitin KARAKTER leikur fyrir dansi Eigum örfá borö laus fyrir matargesti Laugardagskvöldið 25. febrúar Lokað vegna einkasamkvæmis . I______________ J Boröapantanir í síma 22200 — Önnumst öll verðbréfaviðskipti og veitum hvers konar ráðgjöf á sviði fjármála Tegund bréfs Vextir umfram verðtryggingu Einingabréf 1,2 og 3 10,0-13,0% Bréf stærri fyrirtækja 10,5-11,5% Bréf banka og sparisjóða 8,5- 9,0% Spariskírteini ríkissjóðs ... 7,0- 8,0% Skammtímabréf 7,0- 8,0% Hlutabréf ? Gengi Einingabréfa 24. febrúar 1989. Einingabréf 1 ... . 3.562,- Einingabréf 2 ... . 1.994,- Einingabréf 3 ... . 2.328,- Lífeyrisbréf . 1.791,- Skammtímabréf . 1,236 KAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700 Veröbréf er eign sem ber ard

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.