Dagur


Dagur - 24.02.1989, Qupperneq 6

Dagur - 24.02.1989, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 24. febrúar 1989 I— Jónas Viðar sýnir í Gamla Lundi Laugardaginn 25. febrúar kl. 16 opnar Jónas Viðar Sveinsson sína fyrstu málverkasýningu í Gamla Lundi. Jónas Viðar er Akureyr- ingur, fæddur 1962. Hann út- skrifaðist úr málunardeild Mynd- listaskólans á Akureyri 1987 og hefur síðan nær einvörðungu fengist við að mála. Á sýningunni verða akrylmálverk öll ný af nál- inni. Sem fyrr segir verður sýningin opnuð laugardaginn 25. febrúar kl. 16 og stendur til sunnudagsins 5. mars. Opið er alla virka daga milli kl. 16 og 22 og frá 14 til 22 um helgar. Leikfélag VMA: Bresk sumarbúðastemmnmg í Freyvangi í kvöld Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri sýnir ærslaleikinn Erpinghani búðirnar í Frey- vangi í kvöld kl. 20.30. Sýning- in er opin almenningi. Leikritið er eftir hið þekkta breska lcikritaskáld, Joe Orton og gerist það í sumarbúðum frú Erpingham. Eins og vera ber í sumarbúðum kemur margt skondið og skemmtilegt upp á og éndirinn er að sjálfsögðu óvænt- ur. Leikfélagið hefur fengið kór skólans til liðs við sig, en hann kemur fram á skemmtun sem haldin er í sumarbúðunum. Nú? Fjölmargir leikarar koma fram í sýningunni, en níu fara með textahlutverk. Leikstjóri sýning- arinnar er Pétur Eggertz íeikari hjá Leikfélagi Akureyrar. Þetta er annað leikverkið sem leikfélag VMA, „Stælt og stolið“ setur upp, en í fyrravetur setti félagið upp verk Þórarins Eldjárns, Ómunatíð. Sýningin er sem áður sagði opin almenningi og fer miðasala fram við innganginn. mþþ Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna: Aöalíundur Aðalfundur Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna verður hald- inn laugardaginn 25. febrúar kl. 13.30 á Hótel Holliday Inn. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Afmæliskaffi í Alþýðubankanum í dag eru fimm ár liðin frá því Alþýðubankinn opnaði útibú á Akureyri. Af því tilefni er öllum sem vilja boðið upp á kaffi og með því í bankanum frá kl. 9.00 til 16.00. Útibú Alþýðubankans á Akur- eyri er í Alþýðuhúsinu við Skipa- götu og sem fyrr segir eru allir velkomnir í kaffi hjá afmælis- barninu í dag. Hvað er að gerast Styrktartónleikar Ólundar í kvöld: Ham, Lost og fleiri leika í Húsi aJdraðra miðaverð er aðeins 500 krónur. Ham er öllum áhugamönnum um framsækið rokk að góðu kunn, en sveitin er einmitt að fara að gefa út litla plötu í Eng- landi. Þar er m.a. um að ræða endurútgáfu á gamla Abba slag- aranum „Wole Wo“. Lost hefur getið sér það orð að vera ein besta starfandi rokksveit á landinu. Ólund stendur nú á tímamót- um, því þann 5. mars næstkom- andi verða þrír mánuðir liðnir frá því útsendingar hófust. Útvarpið gengur vel og kannanir sýna að Akureyringar hafa tekið þessari nýju útvarpsstöð fagnandi. Fjár- hagurinn er hins vegar ekki upp á það besta, en vonir standa til að úr því rætist með tónleikunum. Fyrstu tónleikar Ólundar tókust með eindæmum vel. Þeim sem vilja styrkja Ólund er bent á gíró- reikning í Búnaðarbankanum á Akureyri nr. 24243. Góða skemmtun. í kvöld, föstudagskvöld kl. 22.00 verða haldnir aðrir tón- leikar útvarpsstöðvarinnar Olundar. Tónleikarnir verða í Húsi aldraðra, (Allanum gamla) sem er þekkt tónleika- húsnæði frá því Baraflokkur- inn var upp á sitt besta og spil- aði þar gjarnan. Húsið verður opnað kl. 21.00 og hefst dagskráin með ýmsum uppákomum. Hljómsveitirnar Ham frá Reykjavík og Lost frá Akureyri taka síðan við. Ekkert aldurstakmark er á tónleikana og Félag áhugafólks um Kammerhljómsveit Akureyrar: Framhaldsstofníundur á swinudag Framhaldsstofnfundur „Félags áhugafólks um Kammerhljóm- sveit Akureyrar“ verður haldinn sunnudaginn 26. febrúar n.k. kl. 16.00 í Verkmenntaskólanum á Akureyri á Eyrarlandsholti. Margir hafa þegar gerst stofnfé- lagar, en síðustu möguleikar til þess verða á aðalfundinum á sunnudaginn. Á fyrri stofnfundi, sem haldinn var 16. október sl. var kosin bráðabirgðastjórn, sem fékk það verkefni að gera tillögur um lög félagsins, markmið þess og hlutverk, ásamt því að starfa að undirbúningi áætlana og tónleika- halds hljómsveitarinnar vetur- inn 1988-1989. I þeim lagatillög- Aðalfundur KA í kvöld Aðalfundur KA verður haldinn í KA-heimilinu í kvöld. Á dagskrá er m.a. kjör nýs formanns, en Guðmundur Heiðreksson hefur ákveðið að láta af því embætti. Þá verða ný lög félagsins lögð fram til afgreiðslu í kvöld. Félag- ar er eindregið hvattir til að mæta og láta til sín heyra um hugsan- leg ánægju- eða óánægjuefni, aðalfundur er einmitt vettvangur til þess. Að fundi loknum verður opið hús í KA-heimilinu og geta fundargestir þá átt saman nota- lega stund. um sem lagðar verða fyrir fund- inn á sunnudaginn er m.a. eftir- farandi skilgreining á tilgangi félagsins: Að stuðla að auknu tónlist- arlífi og menningarstarfsemi á Norðurlandi. - Að efla starfsemi Kammer- hljómsveitar Akureyrar og hafa umsjón með rekstri hennar. - Að stuðla að þvi' að hljóm- sveitin geti reglulega haldið tón- leika með vönduðu og fjölbreyttu verkefnavali. - Að vekja áhuga á leik hljómsveitarinnar, málefnum hennar og félagsins. - Að stuðla að sem nánustum tengslum við stofnanir og önnur félög sem vinna að svipuðum málefnum." Kammerhljómsveitin hefur haldið tvenna tónleika það sem af er starfsárinu, þá fyrri með tónlist frá barokktímanum í nóvember og þá síðari með verk- um eftir Georg Gershwin í febrúar. Sé tekið mið af aðsókn og undirtektum þá á starf Kamm- erhljómsveitarinnar verulegan hljómgrunn. Á fundinum á sunnudaginn flytur Einar S. Bjarnason skýrslu bráðabirgða- stjórnar og Ingólfur Ármannsson mun fylgja tillögum að lögum úr hlaði. Félágar úr Kammerhljóm- sveitinni munu annast tónlistar- flutning, og einnig verður boðið upp á veitingar. Snú-snú í Gagganum Krakkarnir í 9. bekk í Gagn- fræðaskólanum á Akureyri ætla að standa fyrir maraþon snú-snú- keppni um helgina og safna um leið áheitum í ferðasjóð sinn. Markmiðið er að stunda snú-snú í 28 tíma og þar með slá heims- metið í þessari íþróttagrein. Keppnin hefst á laugardag kl. 16.00 í samkomusal skólans og taka flest allir nemendur 9. bekkjar þátt í henni. Samkoman verður opin og getur fólk komið og horft á og ef það vill heitið einhverri upphæð á krakkana. „Aldamótakonur“ í íslenskrí myndlist Laugardaginn 25. febrúar kl. 14.00 mun Hrafnhildur Schram, listfræðingur, flytja fyrirlestur um myndlist í Myndlistaskólan- um á Ákureyri, Kaupvangsstræti 16. í fyrirlestrinum mun Hrafn- hildur rekja sögu fáeinna íslenskra kvenna, sem stunduðu myndlistarnám í Kaupmanna- höfn um síðustu aldamót og sýna litskyggnur af verkum þeirra. Að fyrirlestrinum standa, Háskólinn á Akureyri, Mennta- skólinn á Akureyri, Myndlistar- skólinn á Akureyri og félags- skapurinn Delta, Kappa, Gamma. Öllum er heimill aðgangur. Aðsóknarmet í KA-húsinu Það verður kaffihlaðborð í KA- húsinu á sunnudaginn að vanda. Gestafjöldi síðasta sunnudag sló öll met þegar um 150 manns komu í heimsókn. Þau hörmulegu mistök voru færð á prent hér á sama stað í síð- ustu viku, að kræsingarnar væru eingöngu konum að þakka. Strákarnir í meistaraflokki KA í handbolta lögðu nefnilega sitt fram og komu færandi hendi á umbeðnum tíma og margir þeirra bökuðu sjálfir eins og þeim ein- um er lagið. Um leið og þeir eru beðnir velvirðingar, þakka aðstandendur kaffihlaðborðsins strákunum kærlega þeirra framlag. Tónlistarkrossgátan nr. 122 Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti 1-150 Reykjavík Merkt: Tónlistarkrossgátan.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.