Dagur - 24.02.1989, Síða 8

Dagur - 24.02.1989, Síða 8
8 - DAGUR - 24. febrúar 1989 1 spurning vikunnar i Eiga Islendingar að veiða hvali eða ekki? - spurt í Verkmenntaskólanum á Akureyri Ellen Óskarsdóttir á upp- eldisbraut: Viö eigum aö hætta hvalveiö- um. Fyrst útlendingar vilja ekki lengur kaupa af okkur fisk og lagmeti. Viö megum ekki viö því aö missa þessi viðskipti. Kristján Einarsson á við- skiptabraut: Ef viðskiptasamböndum okkar er stefnt í hættu vegna veið- anna finnst mér að við ættum aö hugsa okkar gang. Tekjur af hvalveiðum eru ekki þaö miklar aö borgi sig aö fórna fiskveiðum okkar fyrir þær. Þó þykir mér ansi svekkjandi að láta öfga- hópa þvinga okkur til aö hætta veiðunum. Axel Gunnarsson á matvæla- braut: Ég hef ekki myndað mér skoö- un á því og ætla því á fund um þetta málefni sem verður hald- inn hér í skólanum. Eva Eyþórsdóttir á uppeldis- braut: Mér finnst að viö eigum aö hætta að veiða hvali, þetta er bölvuð vitleysa. Mér finnst hval- ur líka vera mjög vondur á bragðið! Haukur Grettisson í 2T: Ég veit það ekki. Jú, við eigum að hætta þessu. Við getum ekki lengur selt vörur okkar til útlanda út af þessu. Við megum ekki fórna þeim hagsmunum. Tölvufræðslan Akureyri: Fólk á öllum aldrí í skrifstofutækni - námið gefur aukna atvinnumöguleika Það er óþarfi að vera hræddur við tölvur, við stjórnum þeim en þær ekki okkur. Tölvufræðslan Akureyri hf. er ungt fyrirtæki, stofnaði í des- ember á síðasta ári. Það er í eigu nokkurra fyrirtækja og einstaklinga á Akureyri og Tölvufræðslunnar í Reykjavík. Þetta er sjálfstætt fyrirtæki og lagði Sigurgeir H. Sigurgeirs- son framkvæmdastjóri þess áherslu á það að Tölvufræðsl- an væri ekki útibú frá fyrirtæki í Reykjavík með sama nafni. Við ætlum að kynnast þessu nýja fyrirtæki á Akureyri og heyra hljóðið í nokkrum nemendum. Tölvufræðslan er til húsa að Glerárgötu 34 efstu hæð þar sem Myndlistaskólinn var áður með starfsemi sína og „það er góður andi í húsinu," eins og Sigurgeir komst að orði. Ég bað liann að fræða mig dálítið um starfsemi Tölvufræðslunnar: „Þetta er skóli sem er sniðinn að þörfum atvinnuveganna. Þótt við höfum ekki starfað nema í einn og hálfan mánuð þá hefur reynslan verið góð og aðsóknin með ágætum. Við fórum af stað 9. janúar með hópa í skrifstofu- tækni og tekur það nám 3-4 mán- uði. Námið er skipulagt þannig að fólk geti unnið með því og fer kennslan fram síðdegis og á kvöldin. Nemendur eru um 30 í tveimur hópum og stunda flestir námið samhliða vinu. í mars ætlum við að fara af stað með morgun- hóp og munu þeir nemendur út- skrifast seinna en nemendur í hinum hópunum. Þetta er gert til að koma til móts við aukna eftir- spurn og einnig til að nýta hús- næðið betur. Ahuginn er greini- lega mikill og ekkert nema gott um það að segja þegar fólk vill mennta sig.“ Nemendur hvaðanæva að úr þjóðfélaginu - Hvað læra þeir sem ætla að verða skrifstofutæknar? „Námið samanstendur af tölvu- fögum annars vegar og bóklegum fögum hins vegar, s.s. bókfærslu, ís+ensku, viðskiptaensku, stjómun og mannlegum samskiptum, svo eitthvað sé nefnt. f tölvufögunum er byrjað á grunnnámi í tölvu- fræðum og byggt ofan á það með notendaforritum þegar ofar dregur. Síðan eru tekin próf að loknum hverjum áfanga nám- skeiðsins og ný fög taka við. Sama fagið er þannig ekki kennt út allan námstímann heldur tekur hvert fag 2-5 vikur af námskeið- inu. Áætlað er að fyrstu nemend- ur útskrifist sem skrifstofutæknar 12. maí. Þetta nám er nýjung hér í bæ að því leyti að námstíminn er stuttur og námið mjög hnitmið- að. Reynslan í Reykjavík hefur sýnt að námið er markvisst fyrir atvinnuvegina." - Eru nemendur í skrifstofu- tækni yfirleitt fólk sem vinnur við skrifstofustörf? „Nei, nemendur koma hvaðan- æva að úr atvinnulífinu. Þetta er fólk sem hefur unnið við skrif- stofustörf áður og vill afla sér meiri þekkingar, sérstaklega í tölvugreinum. Hér er líka fólk sem hefur enga reynslu eða þekk- ingu í skrifstofustörfum og vill breyta til og opna fleiri mögu- leika. Það er gert ráð fyrir því að fólk geti komið hingað án þess að hafa nokkra grunnþekkingu. Hana öðlast nemendur hér og síðan er byggt ofan á.“ - Þannig að húsmæður og framkvæmdastjórar sitja hér saman á skólabekk, svo dæmi sé tekið. „Já, það er einmitt mjög skemmtilegt að sjá þessa blöndun Tölvufræðsla í fullum gangi. Á myndinni eru Hákon Hákonarson, Bjarni Áskelsson, Magnús Antonsson, Sigríður Sigurðardóttir og Ásdís Steinarsdóttir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.