Dagur


Dagur - 24.02.1989, Qupperneq 9

Dagur - 24.02.1989, Qupperneq 9
24. febrúar 1989 - DAGUR - 9 Sigurgeir H. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Tölvufræðslunnar, þurfti oft að svara fyrirspurnum meðan á viðtal- inu stóð, enda áhugi fólks mikill. Myndir: ss Elísabet Gunnarsdóttir, Magnús Antonsson og Sigurlína Kristjánsdóttir spjalla saman í kaffistofunni. Bóklegar greinar skipa líka veglegan sess í skrifstofutækni. á nemendum. Hér eru jafnt hús- mæður sem framkvæmdastjórar, unglingar og eldra fólk og nemendum semur afskaplega vel. Hér er ekki hægt að tala um neitt kynslóðabil.“ „Tölvur eru bara verkfæri mannanna“ Sigurgeir sagði að áhersla hefði verið lögð á að fá hæfa kennara við Tölvufræðsluna. Kennararnir eru ýmist úr kennarastéttinni eða atvinnulífinu og miðla þeir nemendum af reynslu sinni og þekkingu. „Með þessu reynum við að gera námið eins praktískt og hægt er. Nemendur eru í tengsl- um við fólk úr atvinnulífinu sem vinnur við viðlíka störf dags dag- lega og námið nýtist því betur en ella. Við njótum góðs af reynslu Tölvufræðslunnar í Reykjavík, en það fyrirtæki hefur þróað þetta nám í gegnum árin og gefið út mjög góðar kennslubækur á íslensku, sem ekki eru bara not- aðar hjá okkur heldur víða í framhaldsskólum. “ - Er Tölvufræðslan með fleiri námskeið en skrifstofutæknina? „Já, við erum líka með smærri námskeið, 12-16 klukkustunda kvöldnámskeið sem standa yfir í viku til hálfan mánuð. Þau nám- skeið eru í einstökum tölvufög- um og það er sama sagan þar, fólk kemur hvaðanæva að úr þjóðfélaginu. Þessi námskeið hafa gefist mjög vel.“ - Er fólk ennþá hrætt við tölv- ur og nýja tækni? „Tölvuhræðslan virðist enn vera til staðar, ekki síst hjá eldra fólki. Þegar fólk er hins vegar komið á námskeið hjá okkur sér það fljótt að tölvur eru bara verk- færi mannanna. Það má líkja þessu við að læra á bíl. Langflest- ir geta lært að aka bíl og lang- flestir geta einnig lært að stjórna tölvum og hagnýta sér möguleika þeirra í atvinnulífinu. Víða virðist það vera svo að fólk vill komast í skrifstofustörf eða störf hjá þjónustufyrirtækj- um en oft er sá hængur á að menn koma að lokuðum dyrum því þá vantar tölvuþekkingu. Með auknu námi í skrifstofustörfum aukast þar af leiðandi möguleikar á atvinnu.“ „Námið nýtist mér vel í starfi“ Nemendur Tölvufræðslunnar virtust á sama máli og Sigurgeir hvað aukna atvinnumöguleika varðar. Elísabet Gunnarsdóttir vinnur í banka en hún fór á nám- skeiðið í skrifstofutækni til að læra á tölvur og til þess að vera gjaldgengari á hinum almenna skrifstofumarkaði. Magnús Antonsson hyggst einnig afla sér menntunar með betri atvinnu- möguleika í huga. „Til þess að komast úr frysti- húsinu,“ svaraði Sigurlíná~'Krist- jánsdóttir er hún var spurð um ástæðuna fyrir þessu námi. „Eitthvað verður maður að læra til þess að verða gjaldgeng á vinnumarkaðinum. Þetta er mjög skemmtilegt og kennararnir góðir,“ sagði hún. Gunnar Berg er einnig að nema skrifstofutækni og lét hann vel að náminu. „Þetta er rosalega gaman,“ sagði hann og í sama streng tók skólabróðir hans úr gagnfræðaskóla, Jón Árnason, en þeir munu vera aldursforset- arnir í hópnum. Bjarni Áskelsson er hins vegar í yngri kantinum og hann hefur lokið námi á viðskiptabraut við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hvað segir hann um skrifstofu- tæknina: „Ég hef not fyrir þetta nám, enda margt gleymt síðan í skólanum og ég hef ekki unnið við tölvur. Nú vinn ég við tölvur hjá Vör hf. og þarf stundum að gera bréf, fara inn í Multiplan o.fl. þannig að námið nýtist mér vel í starfi. Hér kynnist maður öllu sem maður þarf að nota og ég tel námið því mjög hentugt, enda fara ntenn ekki beint inn í skrifstofustörf án þess að hafa kynnst tölvum og skrifstofu- tækni. Það er líka mjög gaman hérna, góður andi í hópnum, en auðvitað er þetta mikið nám. Þótt ég hafi tekið ýmsa þætti þess í skólanum þá læri ég margt nýtt sem þegar er farið að nýtast mér í starfinu,“ sagði Bjarni. Nemendur fóru nú að streyma inn í kennslustofurnar og látum við þessari stuttu heimsókn lokið. Þess má að lokum geta að Tölvufræðslan verður með opið hús á morgun, laugardaginn 25. febrúar, frá kl. 14. Þar getur fólk kynnt sér starfsemina og gætt sér á kaffi og kökum. SS Loðdýrabændur og aðrir áhugamenn Skinnasýning verður á Hótel KEA sunnudaginn 26. febrúar kl. 14.00-17.00. Allir velkomnir. Loðdýraræktarfélag Eyjafjarðar. Vélsleðamenn! Mikiö úrval af vélsleóabunaði svo sem: Gallar, hjálmar, reimar, yfirbreiðslur og margt fleira. VébdeiU Oseyri 2 • Sími 22997 og 21400. Akureyringar! Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráð- herra verður til viðtals í Hafnarstræti 90, laugardaginn 25. febrúar n.k. milli kl. 10.00 og 12.00. Allir velkomnir. Húsvíkingar! Guðmundar Bjarnason heilbrigðisráð- herra verðurtil viðtals í Garðari, Húsavík, sunnudaginn 26. febrúar n.k. milli kl. 10.00 og 12.00. Allir velkomnir. Framsóknarfélögin. Sala getraunaseðla með ensku knattspyrnunni iokar á laugardögum kl. 14:45. 8. LEIKVIKA- 25, FEBRUAR 1989 111 m m Leikur 1 Aston Villa - Charlton Leikur 2 Derby - Everton Leikur 3 Millwalt - Coventry Leikur 4 Norwich • Man. Utd. Leikur 5 Southampton - Tottenham Leikur 6 Wimbledon - Shefí. Wed. Leikur 7 Bournemouth - Portsmouth Leikur 8 Barnsley - Blackburn Leikur 9 Brighton - Watford, Leikur 10 Oxford - Ipswich Leikur 11 Stoke - Leicester Leikur 12 Sunderland - Hull Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir kl. 17:15 er 91-84590 og -84464. Sprengipotturinn aekk ekki út, svo nú er pofturinn : -ekki bara tvöfaldur!

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.