Dagur - 28.02.1989, Side 5

Dagur - 28.02.1989, Side 5
 28. febrúar 1989 - DAGUR - 5 Lífshættulegar slysa- gildrur fyrir böm - Bréf frá starfsfólki Síðuskóla I tilefni af blaðaskrifum um öryggismál í Síðuskóla viljum við koma eftirfarandi á framfæri. Við teljum að bæði snjóskriða af þaki ofan í gryfjur, þar sem börn eru oft að leik svo og ófullnægj- andi stigahandrið við stigauppgang séu lífshættulegar slysagildrur fyrir börnin. Því teljum við undirritaðir starfsmenn við skólann brýna nauðsyn á úrbótum áður en alvarleg slys hljótast af. Hjá- lagt er afrit af umræddri blaðagrein. Akureyri 22. febrúar 1989. Valdís Jónsdóttir Guðrún J>. Níelsdóttir Indíana Jóhannsdóttir Þorgerður J. Guðlaugsdóttir Hjördís Gunnarsdóttir Þorbjörg G. Sigurðardóttir Hrefna Frímann Kristín E. ívarsdóttir Arnfríður Jóhannsdóttir Hólmfríður Einarsdóttir Þuríður Óttarsdóttir Fuglavinur hringdi og vildi benda húseigendum á að fylgjast vel með því hvort smá- fuglar leituðu niður í reykháfa Vei bjómum! „Vei þeim sem hneykslunum valda! Allir þeir, sem stóðu að því að áfengur bjór verður seldur hér á landi þann 1. mars nk., mega fara að taka höndum saman og kyss- ast Júdasarkossi. Þeir eiga eftir að kynnast afleiðingum gjörða sinna. Vei þeim sem hneykslunum valda, vei þeim!“ Kona að norðan. Magnús Jónatansson Sólveig Baldursdóttir Arnhildur Valgarðsdóttir Elísabet Kristinsdóttir Sigrún Ásmundsdóíþr Valgeir Bl. Magnússon Jóhann Baldvinsson Kristín Haraldsdóttir Alma Oddgeirsdóttir Sigríður Garðarsdóttir. húsa. „í þessu tíðarfari leita blessað- ir smáfuglarnir sér skjóls, hvar sem það er að finna. I mörgum húsum hagar því þannig til að ef fuglarnir fara niður í reykháfinn, lokast þeir þar inni. Eg heyrði eitthvert tfst inni í þvottahúsi hjá mér fyrir skemmstu og þegar ég fór að kanna málið var lítill fugl fastur í strompinum. Ég hleypti greyinu út og hann var svo sann- arlega frelsinu feginn. Ég vil beina því til fólks að það fylgist vel með þessu hjá sér. Éinnig hvet ég fólk til að gefa smáfuglunum, því í þessu veðri eiga þeir mjög erfitt með að ná sér í æti eftir venjulegum leið- um.“ ÞaJkkir til krakkanna ÍVMA Mig langar til að þakka krökkun- um í Verkmenntaskólanum sem standa að sýningu Erpingham- búðanna í Freyvangi fyrir þetta framtak þeirra. Ég fór á sýningu þeirra á miðvikudagskvöld og hafði mjög gaman af. Ég hvet því alla til að koma á sýningar þeirra meðan þær standa yfir því að það er greini- legt að krakkarnir hafa lagt mikla vinnu í þetta verk. Ingvar Ragnars. Mokið fyrir blaðberana „Það gleymist stundum að hugsa um þá sem annast þjónustustörf- in hér í bænum. Það er ekkert grín að standa í því að bera út blöð eða póst eins og færðin er og afar erfitt fyrir börn að ösla snjó- inn upp undir hendur til að koma blöðunum til lesenda. Ég vil beina þeim tilmælum til húseigenda að þeir hugsi nú hlý- lega til blaðberanna og moki vel frá húsi sínu, ekki bara frá dyrun- um heldur einnig af gagnstéttinni' heim að húsinu.“ Blaðberi. Hugið að smáfuglunum Framsóknarfélaganna á Akureyri og nágrennis verður laugardaginn 4. mars að Hótel KEA. Nánar auglýst síðar. Skemmtinefnd. AÐAL- FUNDUR Aðalfundnr Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1989 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 17. mars 1989 og hefst kl. 14:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 35. gr. samþykkta bankans. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa 3. Tillaga um breytingu á samþykktum bankans vegna breytinga á skattlagningu veðdeilda 4. önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í Iðnaðarbankanum, Lækjargötu 12,2. hæð frá 10. mars nk. Reikningar bankans fyrir árið 1988, ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega í síðasta lagi 9. mars nk. Reykjavík 15. febrúar 1989 Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf. © Gleymið ekki að gefa smáfuglunum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.