Dagur - 28.02.1989, Side 7
886 r 'seö'ídsí .OS •• fíUD/'O -3
28. febrúar 1989 - DAGUR - 7
Heimsmeistarakeppnin í handknattleik:
ísland sigraði í B-keppnirmi
íslendingar gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu Pólverja 29:26 í úr-
slitaleik B-heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik,
eins og meirihluti þjóðarinnar
fylgdist með í sjónvarpi í
beinni útsendingu á sunnudag-
inn.
Sigur íslendinga var fyllilega
verðskuldaður og þrátt fyrir að
leika einum leikmanni færri í
næstum tuttugu mínútur tókst
Pólverjum aldrei að ná foryst-
unni í leiknum.
íslendingar náðu strax undir-
tökunum í leiknum, en það fór
þó um flesta Frónbúa er bæði
Einar Porvarðarson og Guð-
mundur Guðmundsson þurftu að
fara af leikvelli meiddir. En
maður kemur í manns stað og
Jakob Sigurðsson og Guðmundur
Hrafnkelsson komu inn á völlinn.
Það tók Guðmund að vísu nokk-
urn tíma að komast í gang en
undir lok leiksins varði hann
nokkrum sinnum snilldarlega og
innsiglaði þar með sigur íslend-
inga.
Pað er varla hægt að hrósa
einum leikmanna liðsins öðrum
fremur. Liðið barðist eins og einn
maður og var baráttan alveg
ofboðsleg í bæði vörn og sókn.
Vert er þó að minnast á stórleik
Kristjáns Arasonar sem sýndi
þarna og sannaði að hann er einn
Alfreð Gíslason.
B-keppnin:
Alfreð
bestur
Alfreð Gíslason var kosinn
besti leikmaður B-heims-
meistarakeppninnar í hófi sem
haldið var eftir úrslitaleikinn á
sunnudaginn. Alfreð átti mjög
góða leiki í keppninni og þá
sérstaklega í leikjunum gegn
V-Þýskalandi, Rúmeníu og
Póllandi.
Mörg lið eru nú á höttunum
eftir Alfreð, m.a. hans gamla
félag Essen í V-Þýskalandi.
Alfreð hefur lýsti því yfir að hann
ætli að athuga sinn gang en það
þurfi að vera mjög gott tilboð til
þess að hann flytji út aftur.
besti handknattleiksmaður
heims. Einnig átti Alfreð Gísla-
son stórleik og er alltaf gaman að
sjá þennan sterka leikmann
keyra inn í stóra varnarmenn og
skora síðan er hann er snúinn
niður.
Fögnuður íslensku leikmann-
anna og hinna fjögur hundruð
íslensku áhorfenda var ólýsanleg-
ur og er óhætt að segja að þetta
sé besti árangur íslendinga í hóp-
íþróttum frá upphafi.
Danir unnu V-Þjóðverja mjög 1
óvænt í leik um 7.-8. sætið og það
þýðir að Þjóðverjar detta niður í
C-keppnina í handknattleik, sem
haldin verður í Finnlandi um leið
og íslendingar leika í A-keppn-
inni í Tékkóslóvakíu að ári.
Rúmenar lentu í þriðja sæti í
keppninni og unnu Spánverja í
þeim leik, Frakkar unnu Sviss-
lendinga í keppni um 5. og 6. sæt-
ið en allar þessar þjóðir komast í
A-keppnina í Tékkóslóvakíu á
næsta ári.
íslenska liðið er væntanlegt
heim aftur í dag og má búast við
þvf að múgur og margmenni
komi að taka á móti strákunum í
Keflvík. En landsliðsmennirnir
fá ekki langt frí því 1. deildar-
keppnin hefst í þessari viku.
Reyndar er fyrsti leikurinn annað
kvöld, viðureign Gróttu og
Breiðabliks, en þar er einungis
einn landsliðsmaður Guðmundur
Hrafnkelsson markvörður Blik-
anna. Fyrsti leikur KA er við
Fram næsta sunnudag.
- lagði Pólland 29:26 í úrslitaleiknum
Kristján Arason átti stórleik gegn Pólverjum.
Guðrún íþróttamaður Norðurlands 1988
- Lilja María, Erlingur, Guðlaugur og Þorvaldur næst í röðinni
Guðrún H. Kristjánsdóttir
skíðakona var útnefnd íþrótta-
maður Norðurlands 1988 í hófi
sem Dagur stóð fyrir á Hótel
KEA á laugardaginn. Þetta er
í fjórða skiptið sem blaðið
stendur fyrir þessu kjöri og er
Guðrún fyrsta konan sem
verður þessa heiðurs aðnjót-
andi.
í öðru sæti varð sundkonan
Lilja María Snorradóttir frá
Frá verðlaunaafhendingunni: Harpa Örlygsdóttir fyrir Þorvald Örlygsson, Guðrún H. Kristjánsdóttir, Valgerður
Jónsdóttir fyrir Erling Kristjánsson og Guðlaugur Halldórsson. Lilja María Snorradóttir komst ekki vegna ófærðar.
Sauðárkróki sem vann hug og
hjörtu landsmanna með glæsileg-
um árangri á Heimsleikum fatl-
aðra í Kóreu síðasta haust.
Vegna ófærðar komst hún ekki til
Akureyrar og verða henni afhent
verðlaunin fyrir annað sætið
síðar.
í þriðja sæti varð knattspyrnu-
og handknattleiksmaðurinn Erl-
ingur Kristjánsson úr KA. Hann
var í keppnisferð í Reykjavík og
tók Valgerður móðir hans við
verðlaununum fyrir hans hönd.
í fjórða sæti var Guðlaugur
Halldórsson júdómaður úr KA.
Þrátt fyrir ungan aldur er hann
þegar orðinn einn snjallasti
júdómaður landsins.
í fimmta sæti varð síðan knatt-
spyrnumaðurinn knái Þorvaldur
Örlygsson úr KA. Hann leikur
nú með V-þýska liðinu Pader-
born og tók systir hans, Harpa,
við verðlaununum fyrir hans
hönd.
Þetta eru góð úrslit fyrir KA-
menn sem áttu fjóra af fimm
efstu mönnum, en í heild fengu
um sjötíu íþróttamenn tilnefn-
ingu.