Dagur - 28.02.1989, Blaðsíða 9
28. febrúar 1989 - DAGUR - 9
Of seint í rassinn gripið hjá Tottenham
Slæm vallarskilyrði og veður
settu nokkuð mark sitt á leiki
helgarinnar í Englandi. Eftir
mikla úrkomu að undanförnu
hafa vellirnir breyst í drullu-
svað og heppni ræður nú miklu
um úrslit leikja. Það eru þó
ýmiss lið sem hagnast á þessum
aðstæðum og því uppskerutími
þeirra að hefjast. Mörgum
leikjum varð að fresta í 3. og 4.
deild, en leik Liverpool gegn
Nottingham For. var frestað
vegna undanúrslitaleiks Forest
í Deildabikarnum á sunnudag.
Norwich lék frábæra knatt-
spyrnu í fyrri hálfleik gegn Man.
Utd. og hinir dýru leikmenn Utd.
komu varla við boltann. Allir
leikmenn Norwich léku mjög vel
og náðu forystu á 18. mín. Ian
Culverhouse tók aukaspyrnu sem
Robert Rosario skallaði til Mal-
colm Allen sem renndi út á Ian
Butterworth sem skoraði með
föstu skoti að stuttu færi. Þegar 5
mín. voru til hlés varði Jim Leigh-
ton markvörður Utd. hörkuskot
Trevor Putney, hann hélt þó ekki
boltanum og Allen skoraði annað
mark Norwich. Mörk Norwich
hefðu getað orðið fleiri í fyrri
hálfleik, en í þeim síðari slakaði
liðið á og Utd. fór að sækja.
Norwich tókst þó að verjast þar
til á 81. mín. að Paul McGrath
minnkaði muninn fyrir Utd. eftir
undirbúning Gordon Strachan.
Það munaði litlu að Lee Martin
tækist að jafna fyrir Utd. á síð-
ustu mín., en skalli hans fór hár-
fínt yfir. Sigur Norwich var þó
sanngjarn og liðið fylgir enn
Arsenal eftir, en þetta var fysta
tap Man. Utd. í langan tíma.
Það var farið að fara um leik-
menn Arsenal um miðjan síðari
hálfleik gegn Luton. Þrátt fyrir
mikla yfirburði misnotaði liðið
Úrslit
1. dcild.
Arsenal-Luton 2:0
Aston Villa-Charlton 1:2
Derby-Everton 3:2
Liverpool-Nottingham For. frestað
Millwall-Coventry 1:0
Norwich-Manchester Utd. 2:1
Southampton-Tottenham 0:2
West Ham-Q.P.R. 0:0
Wimbledon-Sheffield Wed. 1:0
Middlesbrough-Newcastle 1:1
2. deild.
Barnsley-Blackbum 0:1
Boumemouth-Portsmouth 1:0
Brighton-Watford 1:0
Chelsea-Oldham 2:2
Crystal Palace-Bradford 2:0
Leeds Utd.-Swindon 0:0
Manchester City-Plymouth 2:0
Oxford-Ipswich 1:1
Stoke City-Leicester 2:2
Sunderland-Hull City 2:0
Walsall-Shrewsbury 1:1
W.B.A.-Birmingham 0:0
Deildarbikarinn undanúrslit síðari
leikur.
Bristol City-Nottingham For. 0:1
Úrslit í vikunni:
1. deild.
Coventry-Arsenal 1:0
Millwali-Middlesbrough 2:0
Tottenham-Norwich 2:1
2. deild.
Blackburn-Oxford 3:1
Ipswich-Barnsley 2:0
FA-bikarinn 5. umferð endurt.
jafnteflisleikur.
Man. Utd.-Boumemouth 1:0
Arsenal og Norwich sigruðu - Man. City efst í 2. deild
Norðmaðurinn Erik Thorstvedt lok-
aði marki Tottenham gegn South-
ampton.
hvert tækifærið á eftir öðru. Þá
tók Brian Marwood hornspyrnu,
Alan Smith skallaði áfram til
Perry Groves sem sneri baki í
markið, en sneri sér eldsnöggt
með boltann og sendi í netið.
Smith skoraði stðara mark
Arsenal undir lokin, hans 20.
mark í vetur. Groves mátti ekki
seinni vera með markið, því Paul
Merson var að hita upp á hliðar-
línunni og átti að koma inná í
hans stað. Leikmenn Luton sem
eru vanir að leika á gervigrasi
kunnu illa við sig í svaðinu á
Highbury, en Arsenal hefur enn
4 stiga forskot í 1. deild.
Millwall komst í þriðja sæti
deildarinnar með sigri gegn
Coventry, sem hafði sigrað
Arsenal í vikunni. Aðstæður
voru mjög slæmar og leikurinn í
samræmi við það. Fátt um rnark-
tækifæri, þó varði Steve Ogriz-
ovic mjög vel skalla frá David
Thompson leikmanni Millwall. Á
85. mín. kom eina mark leiksins,
Tony Cascarino skoraði fyrir
Millwall eftir fyrirgjöf sem vörn
Coventrv mistókst að hreinsa frá.
Wimbledon er eitt þeirra liða
sem kunna vel við sig í leðjunni
og þeir léku við hvern sinn fingur
gegn Sheffield Wed. í fyrri hálf-
leik valtaði liðið hreinlega yfir
Sheffield og skoraði sigurmark
sitt. John Fashanu skoraði með
skalla eftir aukaspyrnu Dennis
Wise besta manns Wimbledon í
leiknum. Wise skaut síðan annarri
aukaspyrnu í stöng og Chris
Brian Clough framkvæmdastjóri
Nottinghani Forest mun leiða lið sitt
út á Wembley í úrslitaleik Deilda-
bikarsins.
Turner í marki Sheffield varði vel
frá Fashanu og Carlton Fairweat-
her. Nýi leikmaðurinn Carlton
Palmer sem Sheffield keypti í
vikunni frá W.B.A. átti góðan
leik fyrir liðið.
Tottenham er nú loks komið í
gang, sigraði Norwich í vikunni
og lagði síðan Southampton á
útivelli á laugardag. Chris
Waddle var frábær á þungum
vellinum fyrir Tottenham og
hann skoraði fyrra mark liðsins á
34. mín. Mark Robson renndi
boltanum til hans úr aukaspyrnu
og Waddle vippaði yfir markvörð
Southampton af um 20 metra
færi. Þegar 4 mín. voru til leiks-
loka braut Russell Osman á
Waddle eftir mikinn einleik og
Marokkobúinn Ali Amar skoraði
úr aukaspyrnunni með góðu
skoti. Southampton fékk ágæt
færi, en Erik Thorstvedt í marki
Tottenham átti mjög góðan leik
og kom í veg fyrir að liðinu tækist
að skora mark.
Lundúnaliðin West Ham og
Q.P.R. gerðu markalaust jafn-
tefli í leik sem ekki bauð upp á
marktækifæri. Vörn Q.P.R. sterk
og Phil Parkes í marki West Ham
mjög góður. Mark Dennis í
Q.P.R. bókaður og síðan skipt
útaf, en staða West Ham að
Gamla kempan Graham Roberts
skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik fyrir
Chelsea í 2. deild.
verða alvarleg.
Leik Derby og Everton var
sjónvarpað hér heima og því
hægt að fara hratt yfir sögu.
Dean Saunders skoraði fyrst fyrir
Derby, Graeme Sharp jafnaði
fyrir Everton rétt fyrir hlé. í síð-
ari hálfleik skoraði Paul Goddard
tvívegis fyrir Derby, en milli
marka hans kom eitt frá Wayne
Clark fyrir Everton og Derby
sigraði 3:2.
Charlton kom á óvart með sigri
á útivelli gegn Aston Villa 2:1.
Tommy Caton kom Charlton yf-
ir, Gordon Cowans jafnaði fyrir
Villa, en Carl Leaburn skoraði
sigurmark Charlton.
2. deild
• Man. City komst á topp 2.
deildar með sigri gegn Plymouth.
Neil McNab tók tvær vítaspyrnur
fyrir liðið í fyrri hálfleik, en tókst
aðeins að nýta aðra þeirra. Síð-
ara mark liðsins skoraði Wayne
Biggins og City hefur nú sigrað í
6 deildaleikjum í röð.
• Chelsea missti efsta sætið eftir
jafntefli heima gegn Oldham.
Graham Roberts skoraði tvö
mörk, annað úr víti í fyrri hálf-
leik fyrir Chelsea, en í þeim síð-
ari jöfnuðu þeir Andy Ritchie og
Roger Palmer fyrir Oldham.
• Baráttan um næstu 4 sæti í
deildinni sem gefa rétt til úrslita-
keppni í vor er hörð. Tvö þeirra
liða, W.B.A. og Leeds Utd. fóru
illa að ráði sínu og gerðu marka-
laus jafntefli í heimaleikjum
sínum.
• Verra var það þó hjá Watford
sem tapaði gegn Brighton á úti-
velli, Kevin Bremner skoraði
mark Brighton.
• Simon Garner skoraði mark
Blackburn gegn Barnsley og
Blackburn er komið í 3- sætið.
• Portsmouth er að falla úr bar-
áttunni, tapaði gegn Bourne-
mouth þar sem Mark Newson
skoraði markið.
• Crystal Palace vann góðan sig-
ur gegn Bradford, Mark Bright
skoraði bæði mörk Palace.
• Richard Hill kom Oxford yfir
gegn Ipswich, en David Linighan
jafnaði fyrir Ipswich í síðari hálf-
leik.
• Peter Beagrie og Dave Bamb-
er skoruðu mörk Stoke City gegn
Forest leikur á Wembley
- sigraði Bristol City í framlengingu
Á sunnudag léku 3. deildarlið
Bristol City og Nottingham
For. síðari leik sinn í undan-
úrslitum Deildabikarsins. Fyrri
leik liðanna á heimavelli For-
est lauk með jafntefli 1:1 og
það þurfti framlengingu í
leiknum á sunnudag til að fá
úrslit.
Þrátt fyrir úrhellis rigningu og
mjög slæman völl var leikurinn
vel leikinn og ekkert gefið eftir.
Leikmenn Bristol City gáfu ekk-
ert eftir, Joe Jordan fram-
kvæmdastjóri liðsins lét 5 leik-
menn leika á miðjunni og það
tókst vel. Keith Waugh í marki
City átti stórleik og á síðustu
mín. venjulegs leiktíma fékk
Alan Walsh færi á að vinna leik-
inn fyrir Bristol City, en skot
hans fór í stöng. í framlenging-
unni fór reynsla og hæfni leik-
manna Forest að segja til sín og
liðið náði tökum á leiknum. Þeg-
ar 9 mín. voru liðnar af síðari
hluta framlengingarinnar kom
eina mark leiksins. Eftir góða
sókn upp hægri kantinn skoraði
Gary Parker sigurmark Forest og
liðið mætir því í úrslitaleikinn á
Wembley í vor. Mótherji liðsins
þar verður að öllum líkindum lið
Luton sem er handhafi Deilda-
bikarsins, en liðið hefur þriggja
marka forskot yfir West Ham eft-
ir fyrri leik liðanna í undanúrslit-
um og síðari leikurinn er á
heimavelli Luton.
• Einn leikur fór fram í 1. deild á
sunnudaginn, Middlesbrough og
Newcastle gerðu jafntefli á
heimavelli Boro. Liam O’Brian
sem Newcastle keypti frá Man.
Utd. náði forystu fyrir lið sitt á
31. mín. með sínu fyrsta marki
fyrir félagið. Bernie Slaven aðal
markaskorari Middlesbrough
jafnaði fyrir lið sitt um miðjan
síðari hálfleik, hans 12. mark í
vetur. Newcastle er því enn í fall-
sæti í 1. deild, en aðeins 2 stig eru
nú í næsta lið sem er Sheffield
Wed. Þ.L.A.
Leicester þar sem Paul Reid og
Steve Walsh sáu um mörkin fyrir
Leicester.
• Wolves er efst í 3. deild með
61 stig, Port Vale 43, Bury 50 og
Sheffield Utd. 49.
• í 4. deild er Crewe efst með 55
stig, Scunthorpe 51, Scarborough
49 og Rotherham og Tranmere
48. A botninum er Colchester
með 23 stig. Þ.L.A.
Paul Goddard skoraöi tvö af mörk-
uni Derby gegn Everton.
Staðan
1. deild
Arsenal 26 16- 6- 4 52:25 54
Norwich 26 14- 8- 4 39:28 50
Millwall 25 12- 6- 7 38:30 42
Coventry 26 11- 7- 8 34:26 40
Man.Utd. 25 10- 9- 6 35:21 39
Nott. Forest 24 9-11- 4 34:26 38
Dcrby 24 11- 5- 8 29:20 38
Liverpool 23 9- 9- 5 30:20 36
Wimbledon 24 10- 5- 9 28:30 35
Everton 25 8- 9- 8 31:29 33
Tottenham 26 8- 9- 9 38:37 33
Middlesbro 26 8- 7-11 31:39 31
Aston Villa 25 7-10- 8 35:40 30
Luton 25 7- 8-10 27:3129
Southampton 26 6-11-10 37:49 28
Charlton 25 6- 9-10 28:36 27
Q.P.R. 25 6- 8-1124:24 26
Sheff. Wed. 24 5- 8-11 18:34 23
Newcastle 25 5- 7-13 22:44 22
West Ham 24 4- 6-14 20:4118
2. deild
Man. City 30 17- 8- 5 47:24 59
Chelsea 30 16-10- 4 62:31 58
Blackburn 30 16- 6- 8 50:41 54
Watford 29 14- 6- 9 42:30 48
W.B.A. 30 12-11- 7 46:29 47
Bournemouth 29 14- 4-11 32:32 46
C. Palacc 28 12- 9- 7 45:35 45
Leeds Utd. 30 11-12- 7 36:27 45
Ipswich 30 13- 5-12 45:40 44
Sunderland 30 11-10- 9 39:36 43
Barnsley 3011- 9-10 39:40 42
Stoke 2911- 9- 9 36:46 42
Swindon 29 10-11- 8 42:36 41
Portsnmuth 30 10- 9-1138:37 39
Leicester 30 9-11-10 37:42 38
Hull 29 10- 8-11 39:41 38
Plymouth 30 10- 7-13 36:43 37
Bradford 30 8-11-1130:36 35
Oxford 30 9- 7-14 44:47 34
Brighton 30 9- 6-15 41:48 33
Oldham 30 7-11-12 46:49 32
Shrewsbury 29 4-12-13 23:44 24
Birmingham 30 4- 8-18 19:53 20
Walsall 30 3-10-17 26:53 19