Dagur - 28.02.1989, Qupperneq 11
hér & þar
Hvað eiga þau að gera í stöðunni? Skilja, finna sér eitthvað annað, þjást í hljóði eða vona að úr rætist?
Hvað eiga Karl
og Díana að gera?
Hvað eiga Karl og Díana að gera, þjáist þau í hjónabandinu? Jú, sögðu 37% lesenda; þau eiga
að skilja umsvifalaust. Aftur á móti tölu 16% aðspurðra að þau ættu bara að „þjást í hljóði“ rétt
eins og allir hinir. Svo voru það 9% sem töldu réttast í stöðunni að hjónin fyndu sér nýja elsk-
huga eða ástmeyjar, en fyrir sakir ætternis og hefða í konungsfjölskyldunni og allt það ættu þau
að hanga saman. Rómantíkin á sína málsvara enn; 34% sögðu konungsparinu best að taka upp
eina flösku af Chianti og vona það besta. Svo voru aftur nokkrir sem tóku ekki afstöðu til spurn-
ingarinnar, en við vörpum henni áfram til ykkar, lesendur góðir? Hvað finnst ykkur?
Hin ómótstæðilega
Cher er rétt á eftir
Meryl Streep þegar
spurt var hvaða
leikkona væri í
mestu uppáhaldi.
Gengur betur næst!
Cher næst-
vinsælasta
leikkonan
Hver er uppáhalds
kvikmyndastjarnan þín af
kvenkyni? Þannig spurði
bandaríska blaðið People les-
endur sína, en á ári hverju
leggur blaðið spurningar fyrir
lesendurna og er litið svo á að
um sé að ræða ýmsar þær
spurningar sem halda vöku
fyrir þjóðinni. En svo þjóðin
fái svefninn sinn birtir blaðið
niðurstöður könnunar sinnar
á helstu þjóðþrifamálunum.
Ein spurningin var þessi:
Hver er uppáhalds kvik-
myndastjarnan þín af kven-
kyni? Svar: Meryl Streep,
sögðu langlang flestir og ekki
í fyrsta sinn. I öðru sæti lenti
Cher hin ómótstæðilega og
munaði afar litlu að hún
hreppti þann eftirsótta titil að
vera uppáhalds kvenkvik-
myndaleikkonan í Bandaríkj-
unum. Gengur bara betur
næst, Cher! Af karlkvik-
myndaleikurum sögðust flest-
ir dá gamala brýnið Clint
Eastwood meira en aðra. Af
hverju veit enginn. Hins veg-
ar var Tom Selleck í öðru sæti
og næstur á eftir honum var
Robert Redford.
28. febrúar 1989 - DAGUR - 11
15 daga rútuferð
frá Húsavík
1.-16. júní n.k.
Færeyjar - Danmörk - Þýskaland - Noregur
Fyrirhuguð hópferð frá Húsavík til Evrópu
með rútu heiman og heim
Áhugasamir hafi samband í síma 96-42100
FERÐASKRIFSTOFA
HÚSAVÍKUR Simi 96-42100
Bjöm Sigurðsson sími 96-42200.
Styrkir
til Rannsókna
í kvennafræðum
(fjárlögum fyrir yfirstandandi ár var einnar miljón-
ar eitt hundrað og fjörutíu þúsunda króna - kr.
1.140.000 - fjárveiting færð til Háskóla íslands til
rannsókna í kvennafræðum.
Áhugahópur um íslenskar kvennarannsóknir
auglýsir hér með, í umboði Háskólans, eftir um-
sóknum um styrki til rannsókna í kvennafræðum,
en til kvennafræða teljast allar þær rannsóknir
sem á einhvern hátt varða konur, eru unnar á
forsendum kvenna og frá þeirra sjónarhóli.
Veittir verða launastyrkir fyrir rannsóknir í minnst
þrjá mánuði og skulu þeir miðast við byrjunarlaun
lektors. Þó getur nefndin veitt styrki til skemmri
tíma ef sérstaklega stendur á. Ekki verða veittir
styrkir til sama verkefnis oftar en tvisvar sinnum.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi sem
svarar til meistaraprófs eða kandidatsprófs og/
eða sýnt fram á hæfni sína til rannsóknastarfa
með öðru móti.
í umsókn skal greina ítarlega frá þeim rannsókn-
um sem sótt er um styrk til og fjáröflun til þeirra frá
öðrum. Við lok styrktímabils skal styrkþegi senda
úthlutunarnefnd framvinduskýrslu.
Áhugahópurinn vill vekja athygli á því að hægt er
fyrir fólk á ólíkum fræðasviðum að sameinast um
rannsóknarverkefni og vill hvetja til samstarfs
sem gæti orðið upphaf að röð rita um líf og stöðu
íslenskra kvenna frá sjónarhóli mismunandi
fræðigreina.
Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum,
sem fást á aðalskrifstofu Háskóla íslands.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl n. k.
Umsóknir sendist til:
Áhugahóps um íslenskar kvennarannsóknir
b.t. Guðrúnar Ólafsdóttur, dósents
Jarðfræðahús
Háskóli íslands
101 Reykjavík