Dagur - 28.02.1989, Qupperneq 15
28. febrúar 1989 - DAGUR - 15
„Vissulega kemur fyrir að einhver hikar þegar hann kemst að því að bankastjórinn er kona, en það jafnar sig um
leið,“ segir Kristín Jónsdóttir útibússtjóri Alþýðubankans. Mynd: tlv
Alþýðubankinn á Akureyri 5 ára:
- segir
Á föstudaginn voru liðin 5 ár
frá opnun útibús Alþýðubank-
ans á Akureyri og í tilefni
dagsins var gestum og gang-
andi boðið upp á kaffí og kök-
ur allan daginn. Alþýðubank-
inn er starfræktur í vistlegu
húsnæði við Skipagötu 14 og
hefur starfsemin verið þar frá
því í júlí 1985 að hann ttutti frá
Ráðhústorgi 5 þar sem hann
hóf starfsemi sína á Akureyri.
Þá voru starfsmenn fjórir, í
dag eru þeir tíu talsins.
Kristín Jónsdóttir útibústjóri
hefur unnið hjá Alþýðubankan-
um frá árinu 1977 og starfaði hún
sem afgreiðslustjóri og aðalfé-
hirðir í aðalbankanum í Reykja-
vík áður en hún kom norður.
Hún segir aðdragandann að
stofnun útibúsins á Akureyri hafa
verið erfiðan. Fyrst var sótt um
leyfi fyrir útibúinu 1974 og síðan
liðu tíu. ár þar til leyfi var veitt,
22. febrúar 1984. A þeim tíma
var veiting slíkra leyfa pólitísk
ákvörðun en það breyttist með
nýjum lögum um viðskipta-
banka.
„Það sem er skemmtilegast við
þetta allt saman er hversu vel
okkur var svo tekið hér eftir
þetta allt saman, í raun miklu
betur en við áttum von á,“ segir
Kristín. „Viðskiptin hafa aukist
jafnt og þétt þótt við séum auðvit-
að aldrei alveg ánægð og viljum
alltaf meira.“ Aðspurð um sam-
keppnina milli bankanna, sagði
Kristín að hún væri af hinu góða.
„Það varð bylting í bankakerfinu
1985 þegar vextir voru gefnir
frjálsir, en áður voru vextir
ákveðnir af Seðlabankanum. Þá
skiptu menn við bankana af hefð
eða hugsjón sem í sjálfu sér hefur
ekki breyst mikið í dag því ég
held að íslendingar séu dálítið
íhaldssamir.“
Venjulegu fólki þykir það hálf-
gerður frumskógur að fylgjast
með mismunandi tilboðum um
ávöxtun fjár í dag og flestir kann-
ast við auglýsingaflóðið frá
bönkunum. Alþýðubankinn sker
sig nokkuð úr fyrir að auglýsa lít-
ið og er í raun þekktur fyrir að
Kristín Jónsdóttir útibússtjóri
I Tíu manns vinna nú í Alþýðubankanum sem er starfræktur í vistlegu hús-
I næði VÍð Skipagötu. Mynd: TLV
Viðskiptavinum bankans var boðið upp á kaffi og með því í tilefni dagsins.
Mynd: TLV
auglýsa minnst af viðskipta-
bönkunum. „Við höfum fengið
töluverð viðskipti út á þetta því
mörgu fólki ofbýður allar auglýs-
ingarnar.“
Á Akureyri eru yfirmenn
fjögurra bankastofnanna konur,
tvær eru sparisjóðsstjórar og tvær
útibússtjórar. Við spurðum Krist-
ínu hvort hún fyndi á einhvern
hátt fyrir því að vera kona í þessu
starfi. „Nei, alls ekki. Vissulega
kemur fyrir að einhver hikar þeg-
ar hann kemst að því að banka-
stjórinn er kona, en það jafnar
sig um leið.“
- Telur þú að bjart sé fram-
undan?
„Já, ég vona bara að við höld-
um áfram að stækka, mér líður
injög vel hér á Akureyri, hef
alltaf haft mjög gott starfsfólk og
ég er ánægð með mína viðskipta-
vini.“ VG
—
Skemmtilegast hvað
okkur var vel tekið
Tölvupappir
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Tölvupappír
Dagsprent hf.
Strandgötu 31 • ‘S' 24222 • Akureyri
Eiginmaður minn og faðir,
ANTON KRISTJÁNSSON,
Brekkugötu 9, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, laugardaginn
25. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Hanna Stefánsdóttir,
Kristján Antonsson.
Sonur minn, faðir okkar og stjúpfaðir,
MAGNÚS HALLDÓRSSON,
sjómaður,
Gránufélagsgötu 16, Akureyri,
er látinn.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn
28. febrúar kl. 13.30 e.h.
Helga Ásgrímsdóttir,
Sóiey Magnúsdóttir,
Halldór Magnússon,
Ása Huldrún Magnúsdóttir,
Ottó Hörður Guðmundsson
og aðrir vandamenn.
Jarðarför föður okkar og tengdaföður,
JÓHANNS FRÍMANNSSONAR,
Oddeyrargötu 14, Akureyri,
sem lést 18. febrúar er frestað til miðvikudagsins 1. mars
vegna veðurs og ófærðar.
Börn og tengdabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞORSTEINN STEFÁNSSON
fyrrverandi bæjarritari
Munkaþverárstræti 30, Akureyri
andaðist í Kristnesspítala 11. febrúar.
Útförin hefur farið fram.
Innilegt þakklæti færum við starfsfólki Kristnesspítala fyrir
mjög góða umönnun.
Steingerður Eiðsdóttir,
Svava Þorsteinsdóttir, Eiður Þorsteinsson,
Guðmundur Þorsteinsson, Lára Þorsteinsdóttir.