Dagur - 28.02.1989, Side 16

Dagur - 28.02.1989, Side 16
MflOK Akureyri, þriðjudagur 28. febrúar 1989 Öll þjónusta fyrir háþrýstislöngur tengi og barka í bílinn, skipið eða vinnuvélina Pressum tengin á • Vönduð vinna þÓRSNAMAR HF. Viö Tryggvabraut • Akureyri ■ Sími 22700 Helgin á Norðausturlandi: Flestir vegir ófærir - Handknattleiksfólk veðurteppt Guðrún H. Kristjánsdóttir með hinn glæsiiega verðlaunabikar. Mynd: kk Guðrún H. Kristjánsdóttir fþróttamaður Norðuriands Vonskuveður var á Norðaust- ur- og Austurlandi um helgina. Flestir vegir urðu ófærir og einnig götur í bæjum og þétt- býliskjörnum. Að sögn lög- rcglumanna var þó ekki vitað um nein óhöpp eða alvarleg vandræði í umferðinni. Lög- gæslumenn aðstoðuðu fólk víða við að komast leiðar sinnar, t.d. starfsfólk við heilsugæslu. Lögreglan á Egilsstöðum sagði að gjörófært væri um allt í gær en jeppar og vel búnir bílar kæmust eftir götum í bænum, með varúð því skyggni væri slæmt. Helgin hefði gengið mjög rólega fyrir sig, lögreglan hefði aðeins þurft að aðstoða einn bíl á sunnudags- kvöld sem lent hefði í vandræð- um í nágrenni Egilsstaða. Lög- reglan á Húsavík sagði að allt hefði gengið vandræðalítið um helgina en mikil ófærð væri á veg- um í nágrenni bæjarins. Um 70 manns gistu í Félagsheimili Húsavíkur aðfaranótt mánudags, það voru stúlkur sem kepptu á handboltamóti um helgina og urðu veðurtepptar á sunnudags- Akureyri: Innbrot og búðarhnupl kvöld. í gærmorgun lögðu um 50 þeirra af stað á tveim rútum áleiðis til Akureyrar en þegar hætt var við mokstur á leiðinni var haldið heim að Stórutjarnar- skóla þar sem hópurinn gisti í nótt. Hópur handknattleiksfólks frá Húsavík er aftur á móti veðurtepptur í Reykjavík. Þorrablóti á Kópaskeri, sem vera átti um helgina, var frestað vegna veðurs og færðar. í síðustu viku snjóaði mikið á Raufarhöfn og þurfti tvisvar að kalla út björg- unarsveitarmenn til að moka snjó af bílskúrsþökum, svo þau sliguðust ekki undan snjóþung- anum. Ekki bætti á snjóinn um helgina og var helgin róleg að sögn lögreglu. Fínasta færð var um þorpið þó gríðarlega mikið hefði snjóað, en ruðningar eru orðnir háir og erfitt að losna við snjóinn úr bænum með þeim tækjum sem tiltæk eru á staðn- um. Á föstudagskvöld landaði Albert GK 800 tonnum af loðnu til bræðslu á Raufarhöfn. Einn bátur hefur lagt þorskanet og smábátaeigendur eru að gera sig klára fyrir grásleppuveiðarnar. Lögreglan á Raufarhöfn sagði að þar væri lítið hugsað um hvað til stæði 1. mars, mannlíf væri rólegt og gott og vonandi freistuðust menn ekki til að keyra bíla sína eftir að hafa bragðað á bjórnum. IM Guðriin H. Kristjánsdóttir var valinn íþróttamaður Norður- lands 1988. Úrslitin voru til- kynnt í hófi sem Dagur hélt á Hótel KEA á laugardaginn. Fimm íþróttamenn voru heiðr- aðir og er þetta í fjórða skiptið sem blaðið stendur fyrir þessu kjöri. í öðru sæti varð sundkonan Lilja María Snorradóttir frá Sauðárkróki, í þriðja sæti hand- knattleiks- og knattspyrnumað- urinn Erlingur Kristjánsson, í fjórða sæti Guðlaugur Halldórs- son júdómaður og í fimmta sæti varð Þorvaldur Örlygsson knatt- spyrnumaður. Sjá nánar á íþróttasíðu. Vetur konungur leikur ferðalanga grátt: Um 1100 manns bíða eftir flugi „Þetta gengur stirt,“ sagði Kristinn Stefánsson, vaktstjóri á Reykjavíkurflugvelli, síðdeg- is í gær um innanlandsflug Flugleiða. Ekkert hefur verið flogið milli Akureyrar og Reykjavíkur síðan á föstudag og biðu um 350 manns í gær- kvöldi á hvorum stað eftir flugi. Svipaða sögu er að segja um Egilsstaði en í Reykjavík biðu ríflega 300 manns í gær eftir að flugfært yrði austur. Flugleiðum tókst að fljúga eina ferð til Sauðárkróks í gærmorgun og seinni partinn í gær opnaðist Aðaldalsvöllur. Kristinn var hins vegar svartsýnn á flug til Akur- eyrar og átti ekki von á að þang- að yrði fært fyrr en í dag. Hjá Arnarflugi var ekkert flog- ið á laugardaginn en á sunnudag- inn féllu niður ferðir til Blöndu- óss og Siglufjarðar. Hins vegar tókst að fljúga á þessa staði í gærmorgun. Um 200 manns biðu þess í gær- kvöldi að flug gæti hafist hjá Flugfélagi Norðurlands, flestir biðu þess að komast frá Akureyri til áætlunarstaða félagsins. Reyna átti síðdegis að fljúga til Vopnafjarðar og Egilsstaða en öðru flugi var frestað þangað til í dag. JÓH Síðastliðinn fimmtudag voru tvær konur kærðar til rann- sóknarlögreglunnar á Akur- eyri fyrir búðarþjófnað. Starfs- fólk Hagkaupa hafði tekið eftir því er önnur kvennanna stakk inn á sig fatnaði og var athæfið samstundis kært. Andvirði fatnaðarins mun vera um 10 þúsund krónur. Aðfaranótt föstudags voru tveir unglingspiltar á 16. ári gripnir glóðvolgir í Video Evu í Verslun- armiðstöðinni Sunnuhlíð. Að sögn Daníels Snorrasonar rann- sóknarlögreglumanns játuðu drengirnir við fyrstu yfirheyrslu að hafa brotist inn í myndbanda- leiguna auk þess sem þeir játuðu á sig fleiri innbrot. Drengirnir viðurkenndu að hafa framið fjögur innbrot í Sunnuhlíð fyrr í vetur, flest í brauðbúðina. SS Hugmyndir um sameiningu Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda: ,Menn eru opnir fyrir breytmgum sem gerðar verði til bóta“ - segir Hjörtur E. Pórarinsson í setningarræðu á Búnaðarþingi í gær Um 30 mál koma til umfjöllun- ar á Búnaðarþingi sem hófst í gær. Stærstu mál þingsins eru skipan leiðbeiningaþjónust- unnar, bókhaldsmál bænda, gróðurverndarmál, lausaganga búfjár og vanefndir ríkissjóðs á lögbundnum greiðslum sam- kvæmt jarðræktar- og búfjár- ræktarlögum. Á þinginu verða einnig tekin til umfjöllunar mál er varða landbúnaðinn og' Iiggja nú fyrir Alþingi. Hjörtur E. Þórarinsson, for- maður Búnaðarfélags ísland, vék í setningarræðu sinni að þeirri umræðu sem uppi hefur verið i varðandi endurskipulagningu félagskerfis landbúnaðarins, t.d. sameiningu Búnaðarfélags ís- lands og Stéttarsambands bænda. Hann sagði að að því þyrfti að hyggja hvernig hinum 200 hreppabúnaðarfélögum og 15 búnaðarsamböndum í landinu reiddi af við slíka endurskipu- lagningu. Hjörtur sagði sum bún- aðarfélögin eiga í miklum tilvist- arvandræðum um þessar mundir, sum finni ekki verkefni við hæfi og önnur vanti fjármuni til að starfseminnar. „Öll er þessi sjálfsskoðun eðli- 99 Vélsmiðja Akureyrar stofnuð af fyrrverandi starfsmönnum Atla hf.: Við erum bjartsýnir á framtíðina“ - segir Halldór Brynjarsson framkvæmdastjóri Sex fyrrverandi starfsmenn Vélsmiðjunnar Atla hf. á Akureyri stofnuðu fyrir skömmu nýtt fyrirtæki, Vél- smiðju Akureyrar hf. Fyrir- tækið er í eigu ellefu hlut- hafa; starfsmannanna sex og fimm annarra aðila, einstakl- inga og fyrirtækja á Akur- eyri. Halldór Brynjarsson, fram- kvæmdastjóri hins nýja fyrir- tækis, sagði að kveikjan að stofnun þess hefði verið sú staðreynd að takmarkað atvinnu- framboð er fyrir málmiðnaðar- menn í bænum um þessar mundir. Starfsmennirnir sex hefðu því ákveðið að stofna nýtt fyrirtæki á grunni þess gamla en Atli hf. hætti allri starfsemi 1. febrúar. Vélsmiðja Akureyrar keypti allar vélar og tæki Atla hf. og er með stóran hluta húsnæðisins á leigu. Starfsmenn Vélsmiðju Akur- eyrar eru bjartsýnir á að rekst- urinn standi undir sér, fyrirtæk- ið sé ekki of stórt en veiti fjöl- breytta þjónustu m.a. er sér- staða þess sú að eitt fullkomn- asta renniverkstæði bæjarins er þar til húsa. Þá hefur Vélsmiðja Akureyrar „erft” flesta ef ekki aila stærstu viðskipavini Atla hf. „Það er kannski ekki mjög bjart yfir málmiðnaði í bænum í augnablikinu en við erum með sérstöðu hvað renniverkstæðið snertir, þar erum við í nokkru forystuhlutverki. Við vildum nýta vélarnar og reynslu starfs- mannanna gegnum árin. Þetta lofar góðu það sem af er,” sagði Halldór Brynjarsson, en auk hans starfa þeir Stefán Karlsson, Jón Óskar Ferdinandsson, Þórð- ur Stefánsson, Hörður Guðm- undsson og Jón Gunnar Snorra- son hjá fyrirtækinu. Þegar Atli hf. hætti starfsemi misstu fimm járniðnaðarmenn vinnuna og hafa þeir verið atvinnulausir síðan. Af þeim voru tveir eldri en 67 ára. EHB leg og þakkarverð og að mestum hluta sprottin af ósk um að gera búnaðarfélagsskapinn ódýrari en þó um leið kröftugri. Menn eru opnir fyrir breytingum sem gerð- ar verði til bóta en ekki breyting- anna vegna,“ sagði Hjörtur. Steingrímur J. Sigfússon, land- búnaðarráðherra, ávarpaði þing- ið og kynnti hann fundarmönn- um nokkur þau mál sem nú eru til athugunar í ráðuneytinu og koma til með að hljóta umsögn á þinginu. Meðal þeirra er frum- varp um hagstofnun landbúnað- arins sem hafi það hlutverk að vinna úr búreikningum og talna- legum gögnum í landbúnaði þannig að útreikningar á helstu hagstærðum landbúnaðarins verði með líku sniði og það er í öðrum greinum. Steingrímur sagði niður- greiðslustigið í landbúnaði nú með því hærra sem verið hafi um árabil. Með þessari niðurgreiðslu hafi tekist að halda búvöruverði nær óbreyttu frá síðasta vori sem leitt hafi til sterkari markaðs- stöðu búvara en ella hafi orðið. Steingrímur vék að matarskattin- um og minnti á að stór hluti niðurgreiðslna sé eingöngu end- urgreiðsla á söluskatti á matvæli. JÓH

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.