Dagur - 01.03.1989, Blaðsíða 2
2- DAGUR-1. mars 1989
Félagsfundur í LAUF
Landssamband áhugafólks um flogaveiki,
Norðausturlandsdeild, heldur fund að Hótel KEA
laugardaginn 4. mars n.k. kl. 14.00.
Brynjólfur Ingvarsson, læknir, flytur erindi og svalar
fyrirspurnum um kvíða og streitu tengda flogaveiki.
Félagsmálin rædd ★ Kaffiveitingar.
Nýir félagsmenn velkomnir.
Stjórnin.
Skrifstofiitækni
í takt vlð tíiiiami
Viltxi skara fram lír á
hörðuTiT viiiiiu iiiaikaði ‘?
Við bjóðum þér hagnýta kennslu í viðskipta- og
tölvugreinum, ásamt því helsta sem gerir þig að
hæfum og dugandi starfskrafti.
Að námskeiðintt loknu útskrifast þú sem
skrifstofutæknir.
Innritun og upplýsingar færðu á skrifstofu
okkar eða í síma 27899.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34 • sími 27899.
FLUGMÁLASTJÓRN
Bóklegt atvinnuflugnámskeið
Kennsla á seinni önn hefst 15. mars n.k. og lýkur
þeirri önn með bóklegu prófi fyrir 1. flokks atvinnu-
flugmannsskírteini.
Rétt til þátttöku eiga þeir sem lokið hafa prófi á fyrri
önn með fullnægandi árangri.
Þeir sem hafa atvinnuflugmannsskírteini 3. flokks
með blindflugsréttindum og fullnægja skilyrðum um
almenna menntun til að öðlast skírteini atvinnuflug-
manns 1. flokks samanber reglugerð um skírteini
gefin út af flugmálastjórn.
Skráning nemenda fer fram í Loftferðaeftirliti flug-
málastjórnar.
Þeir sem luku prófi á fyrri önn þurfa ekki að skrá sig.
Flugmálastjórn.
SlýrikerfiðMS-DOS
Námskeið í stýrikerfinu MS — DOS
hefst fimmtudaginn 2. mars.
Efiii námskeiðsins:
★ PC - tölvux og uppbygging þeirra
★ Uppbygging MS - DOS
★ Helstu skipanir
★ Skipulagning harðra diska
★ Slcipanaslcrár
★ Afritataka
RiMmisla
Námskeið í hinu geysivinsæla
ritvinnslukerfi WordPerfect hefst föstu-
daginn 3. mars.
Efiii námskeiðsins:
★ Grundvallaratriði í MS - DOS
★ Noldcur byijendaatriði í WordPerfect
★ Helstu skipanir við textavinnslu
★ Verslunarbréf og töflusetning
★ Dreiflbréf
★ íslenska orðasafhið og notlcun þess.
Töhotfræðslan Akureyri h£
Glerárgötu 34 • 4. hæð • Akureyri
Búast má við að handagangur verði í öskjunni þegar bókamarkaðurinn opnar 18. mars n.k.
Félag íslenskra bókaútgefenda:
Bókamarkaðurinn
norður 18. mars
Bókaunnendur á Norðurlandi
geta farið að setja sig í stelling-
ar, því bókamarkaður Félags
íslcnskra bókaútgefenda verður
opnaður á Akureyri 18. næsta
mánaðar.
Bókamarkaður þessi var opn-
aður í Reykjavík í síðustu viku
og lýkur á sunnudaginn. Pá verð-
ur bókunum pakkað niður í kassa
og þeir fluttir sem leið liggur
norður yfir heiðar til Akureyrar,
nánar tiltekið í Glerárgötu 36,
þar sem Byggingavörudeild KEA
var til húsa. Áætlað er að það
taki um 10 daga að pakka bókun-
um, flytja þær norður og stilla
þeim upp þar, enda er um gífur-
legt magn að ræða. Um þrjú þús-
und titlar verða á boðstólum og
er með'aiverð bókanna um 200
krónur.
Að sögn Eyjólfs Sigurðssonar,
formanns Félags íslenskra bóka-
útgefenda, verður meira af bóka-
pökkum á markaðinum en nokkru
sinni fyrr, að sjálfsögðu á hag-
stæðu verði. Hann nefndi sem
dæmi að þegar markaðurinn var
opnaður í Reykjavík, stilltu
bókaútgefendur upp tveimur
mismunandi bókapökkum til að
sýna fram á hið lága verð. í öðr-
um pakkanum voru 18 bækur fyr-
ir fullorðna og var hann á sama
verði og meðalbók á síðustu jóla-
vertíð. í .hinum voru 15 barna-
bækur og kostaði sá pakki 1400
krónur.
Það er Bókaútgáfan Skjald-
borg sem hefur umsjón með
bókamarkaðinum á Akureyri en
hann hefst sem fyrr segir laugar-
daginn 18. mars nk.
Akureyri:
Fundur um atvinnu
líf á Norðurlandi
- á Hótel KEA á föstudaginn
Föstudaginn 3. mars nk. munu
Stjórnunarfélag Norðurlands,
Norðurlandsdeild Félags við-
skipta- og hagfræðinga og Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar gangast
fyrir fundi þar sem umræðuefnið
verður atvinnulíf á Norðurlandi.
Frummælendur verða Valdi-
mar Bragason framkvæmdastjóri
sem ræðir um sjávarútveg, Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson bóndi
mun ræða um landbúnað og Jón
Sigurðarson sem mun ræða um
iðnað. Þá mun Þorleifur Þór
Jónsson ræða um þjónustugrein-
ar og Lilja Steinþórsdóttir endur-
skoðandi um stöðu fyrirtækja.
Sérstakur gestur fundarins
verður Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands, en hann
mun flytja erindi um stöðu
íslensks atvinnulífs.
Fundarstjóri verður Sigfús
Jónsson bæjarstjóri. Fundurinn
verður haldinn á Hótel KEA og
hefst klukkan 14.00. Allt áhuga-
fólk um íslenskt efnahags- og
atvinnulíf er velkomið á fundinn.
Mývatnssveit:
Vélsleðakeppni um helgina
Frá Framkvæmdanefnd Mý-
vafns 1989:
Ágæta vélsleðafólk. Þar sem
óðum styttist í íslandsmótið í
Mývatnssveit langar okkur að
minna á nokkur atriði varðandi
keppnina. Það er helst að dag-
skránni hefur verið breytt dálítið
miðað við síðustu keppnir og lít-
ur svona út:
Dagskrá fimmtudags 2. mars:
Opnuð æfingarbraut fyrir vænt-
anlega keppendur. Boðið upp á
ferðir með leiðsögn. Athugið að
skráningu er lokað kl. 20.00.
Föstudagurinn 3. mars: Æfinga-
braut verður opin og boðið upp
á ferðir með leiðsögn. Keppt
verður í fjallaralli kl. 13.30.
Spyrnukeppni verður kl. 16.00.
Mótssetning í Hótel Reynihlíð
kl. 21.00. Þar á eftir kvöldvaka.
Laugardagur 4. mars: Boðið
verður upp á ferðir með leiðsögn.
Keppni í alhliða braut hefst kl.
11.00. Lokahóf verður í Skjól-
brekku kl. 20.00 með borðhaldi.
Verðlaunaafhening verður á
lokahófinu, skemmtiatriði,
mótsslit og þar á eftir dansleikur.
Sunnudagur 5. mars: Boðið
upp á ferðir með leiðsögn kunn-
ugra kl. 11.00. Þá minnum við
keppendur sérstaklega á að
skráning þarf að hafa borist til
okkar fyrir kl. 20.00 þann 2. mars
í síma 44173 (Egill) því ekki er
hægt að taka við skráningum eftir
þann tíma vegna umfangs keppn-
innar. Þá er einnig gott að þeir
sem hringja til þess að láta skrá
sig taki fram hvort þeir ætli á
lokahófið í Skjólbrekku á laugar-
dagskvöldið. Aðrir sem hingað
koma án þess að keppa geta látið
skrá sig á lokahófið hjá Guggu í
síma 44217 eða 44225. Skráningu í
hófið þarf að vera lokið á fimmtu-
dagskvöld. Þá er rétt að fram
komi að þeir sem ætla að koma á
sleðum í sveitina geta haft sam-
band við Birki í síma 44181 á
daginn og 44188 á kvöldin til að
fá upp bestu færar leiðir í sveitina
frá Sprengisandi eða annars stað-
ar frá og láti vita um ferðir sínar
og ferðaáætlun.