Dagur - 01.03.1989, Qupperneq 5
1. mars 1989 - DAGUR - 5
Erlingur Sigurðarson.
frumkvæði.
Frá mínum sjónarhóli séð
snýst málið ekki um skoðanir
einstaklings eða rétt hans til að
hafa þær, hversu háskalegar og
andfélagslegar sem þær kunna að
vera. Nei - málið snýst um það
hvað réttlætanlegt er að borið sé
á borð fyrir fólk í nafni „frjálsrar
fjölmiðlunar". t>ar er ábyrgð fjöl-
miðlanna mikil og því gat ég ekki
orða bundist, né heldur nú eftir
að hafa lesið svar þitt en það er
því líkast að þú hafir ekki lesið
eiginn leiðara um bjórinn 20.
janúar sem þú mátt vera stoltur
af að hafa skrifað. Hugleiddu
efni hans fremur en berja höfð-
inu lengur við steininn, því að
annað hvort verður undan að
láta.
Með þínum rökum gæti eftir-
farandi dæmi komið upp í blað-
inu: I viðtali við mann kemur
fram að hann aki oft bíl sínum
undir áhrifum áfengis. Hann lýsir
þeirri skoðun sinni að það sé
skerðing á mannréttindum að
einhverjir séu að amast við slíku
og lög séu sett til að banna það.
Sjálfur hafi hann þá reynslu að
verða miklu betri bílstjóri ölvað-
ur, hann sjái skýrar og tilfinning
hans fyrir umhverfinu sé næmari
en sé hann allsgáður. - Einhver
þröngsýnn lesandi tæki sig nú til
og amaðist við „frjálsri fjölmiðl-
un“ af þessu tagi, en þá brygðist
ritstjórinn illa við og teldi þetta
þarft innlegg í umræðuna um
áfengisvandamálið, þar sem fram
kæmi í því sú staðreynd að mað-
urinn segðist aka ölvaður. Par á
ofan teldi ritstjórinn sér það til
tekna að á hverjum degi undan-
farinn mánuð hefði birst í blaði
hans frásögn af neikvæðum áhrif-
um áfengisneyslu, þ. á m. um-
ferðarslysum, kannski banaslys-
um, og því hallaðist hér ekki á og
fyllsta jafnréttis væri gætt. Öllum
almennum siðareglum væri hins
vegar gleymt eða þær sniðgengn-
ar.
Slíkt væru ekki „grundvallar-
atriði frjálsrar fjölmiðlunar,“
Bragi. Slíkt væru hártoganir og
tilraunir til að krafsa yfir skítinn.
Að svo búnu óska ég þér meiri
velfarnaðar en í þessu máli, sem
hér með er lokið af minni hálfu.
Erlingur Sigurðarson
260648-2179
Framsóknarfélögin í Siglufirði:
Andsnúin sölu á Sfldar-
verksmiðjum rfldsins
- vilja að S.R. verði gert kleift að gera út skip
Framsóknarfélögin í Siglufirði
samþykktu á fundi þann 14.02.
1989 að lýsa andstöðu sinni við
hugmynd ríkisstjórnarinnar að
selja Síldarverksmiðjur ríkisins í
Siglufirði, og nota andvirðið til að
fjármagna úreldingarsjóð skipa
sem væru þá e.t.v. frá annari
grein fiskiskipaflotans en loðnu-
flotans, eins og kom fram í tillög-
um Halldórs Ásgrímssonar sjáv-
arútvegsráðherra.
Jafnframt gerir fundurinn þá
kröfu til þeirra sem verður falið
að endurskoða lögin um Síldar-
verksmiðjur ríkisins, að þess
verði gætt að verksmiðjunum
verði gert mögulegt að kaupa og
gera út skip til eigin hráefnis-
öflunar.
Fundurinn minnir á samþykkt
bæjarstjórnar Siglufjarðar um
nauðsyn þess að lögum um verk-
smiðjurnar frá 1938 verði breytt
þannig að S.R. geti keypt og gert
út skip.
Fundurinn tekur undir áhyggj-
ur sem felast í samþykkt starfs-
mannafélags S.R. í Siglufirði og
Verkalýðsfélagsins Vöku og
minnir á að S.R. eru annað
stærsta atvinnufyrirtæki í Siglu-
firði og af þeim sökum nauðsyn-
legt að búa því sem best rekstrar-
skilyrði.
Tónlistarfélag Akureyrar:
Ljóðadagskrá
í Davíðshúsi
I kvöld kl. 20.30 verður flutt
Ijóðadagskrá í Davíðshúsi á
vegum Tónlistarfélags Akur-
eyrar. Þessari dagskrá var
frestað sl. miðvikudag vegna
veikinda en nú er aðstandend-
um ekkert að vanbúnaði.
Skipuleggjandi dagskrárinnar
er Margrét Bóasdóttir.
Hér er um að ræða dagskrá
byggða á ljóðum Davíðs Stefáns-
sonar. Þar mun Arnór Benónýs-
son leikhússtjóri lesa upp og
Margrét Bóasdóttir og Þuríður
Baldursdóttir syngja ljóð Davíðs
við lög ýmissa höfunda. Guðrún
A. Kristinssdóttir leikur undir á
píanó.
Miðaverð er kr. 400 fyrir fé-
laga í Tónlistarfélagi Akureyrar
og kr. 800 fyrir aðra, en helm-
ingsafsláttur er fyrir skólafólk.
SS
AUGLÝSNG
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓEIS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1982-1. fl. 01.03.89-01.03.90 kr. 925,77
1983-1. fl. 01.03.89-01.03.90 kr. 537,87
1984-2. fl. 10.03.89-10.09.89 kr. 360,54
*lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, febrúar 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS
Klæðskeraþjónusta
Verslið hjá fagmanni
Opið í hádeginu alla daga.
Hafnarstræti 92 • (Bautahús suðurendi) • Sími 26708
Fyrir stúlkurnar:
Pils, blússur, jakkar,
buxur, buxnadress
og m.fl.
Fyrir drengina:
Föt, stakir jakkar, buxur.
Skyrtur, hálsbindi m/klút.
Slaufur, lindar.
AMOR
I tskuverslun Hafnarstræti 88, sími 26728
Kjólföt, smokingföt.
Frakkar, margar gerðir.
Föt, (einhneppt, tvíhneppt).
Stakir jakkar og buxur.
Peysur, skyrtur,
hálsbindi, slaufur.
Mittislindar og m.fl. í
glæsilegu úrvali.
—
Ódýrt Ódýrt!
Peysur, bolir, gallabuxur, undir-
fatnaður og fleira.
Barnafatnaður
á alveg
súper verði.
L Sunnuhlíð 12, sími 22484. ^