Dagur - 15.03.1989, Síða 14

Dagur - 15.03.1989, Síða 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 15. mars 1989 Ólafur E. Stefánsson: Nautakjötsframleiðsla, holda- gripir og búíjárræktarlög Sívaxandi neyzla nautakjöts ber glöggt vitni um það, að vin- sældir þess hafa aukizt á undanförnum árum, enda þótt það sé með dýrari kjöttegundum. Þetta gerist þrátt fyrir ýmsar ráðstafanir stjórnvalda á stundum til að draga úr framleiðslu nautakjöts m.a. í því skyni að sporna við hraðminnkandi neyzlu á okkar annars ágæta kindakjöti, sem látið er njóta forgangs. Þessar afurðir af þeim tveimur búfjártegundum, nautgripum og sauðfé, sem eru meginstoðir búvörufram- leiðslu landsmanna, eiga það sameiginlegt að byggjast á inn- lendri fóðurframleiðslu að langmestu leyti. Holdablendingar í Ölvisholti í Flóa 12. ágúst 1987. Tveimur nautum úr hópnum var slátrað daginn eftir vegna kjötsýningar á landbúnaðarsýning- unni „BÚ ’87“. Þau voru baeði undan Hríseyjarnautum að 2. ættlið og voru því 37‘/2% Galloway. Annað var 27 mánaða og vó fallið af því 238 kg og var metið í I. flokk. Hitt var 24 mánaða og vó skrokkurinn af því 233 kg og var metinn í I. flokk með stjömu. Nautin fengu mjólk fyrstu þrjá mánuðina og kjarnfóður fyrstu 6 mánuðina og hey að vild. Var beitt bæði sumrin en fengu eingöngu vothey veturinn á milli. Ágæt stórgripavog í eigu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins; vel varð- veittur og nýttur arfur frá „stóra beitartilraununum“, sem m.a. voru gerðar með fjárframlögum frá Landgræðsluáætlun 1974 og þróunarsjóði Samein- uðu þjóðanna. Myndin var tekin fyrir utan gripahúsin á „Bú ’87“ þegar komið var með holdanaut frá Gunnarsholti á sýninguna. Gagnvart stofnkostnaöi í húsa- kosti við dilkakjötsframleiðslu og nautakjötsframleiðslu af ung- neytum er ákveðinn sparnaður í hvorri greininni fyrir sig. Lömbin fæðast á vorin, taka fóður sitt á beit og eru felld sem dilkar að haustlagi án þess, að þau hafi verið hýst í sérbyggingum. Nautakjötsframleiðsla hjá bænd- um fer fram á þann hátt, að nokkrar af mjólkurkúm á hverj- um bæ eru sæddar með holda- nautasæði og blendingar undan þeim aldir til slátrunar, einnig alíslenzkir nautkálfar, sem til falla. Með þessu móti losna menn við að halda sérstakar holdakýr og að verja fé til fjárfestingar í þeim og sérstöku fjósi yfir þær. Pað er einnig sameiginlegt með þessum tveimur búfjártegundum, nautgripum og sauðfé, að þær eru jórturdýr og því sérlega vel fallnar til að nýta beitarlönd og heyfóður til framleiðslu. Naut- gripir ganga á láglendi, nú orðið nær eingöngu á ræktuðu landi. Þar er fjársjóður, sem bæta má og auka við, hvenær sem þörf krefur. Víða eru nautgripir taldir heppilegri en aðrir grasbítir í vot- viðrasömum héruðum. Það fer þó í vöxt hér, að ungneyti til kjötframleiðslu séu fóðruð inni yfir sumarið. Veldur því einkum tvennt. Vegna hraðari vaxtar en uxar og kvígur er nú meira sett á af nautum (ógeltum), en þau mega ekki ganga úti nema í öruggri vörzlu. Hin ástæðan er sú, að eftir langa innistöðu eru geldneyti sein að taka við sér úti að vorlagi, leggja meira að segja oft af fyrstu vikurnar. Þar sem sumarið er stutt, verður því þyngdaraukningin allan beitar- tímann sennilega mun minni en á jafnri fóðrun inni. Minni orka fer í hreyfingu og vöðvarnir verða mýkri. Það á vafalítið sinn þátt í því, að hlutur nautakjöts í kjötneyzlu landsmanna hefur aukizt hin allra síðustu ár, að nú hefur loksins verið lagður niður víða sá dýri og oftast óþarfi háttur að frysta nautakjöt í stað þess að selja það ferskt. Þessi breyting krefst að sjálfsögðu skipulagningar fram- leiðslunnar eftir markaðsþörfum, en fer vel af stað þar, sem hún hefur verið tekin upp. Annað atriði og ekki áhrifaminna gagn- vart sölu er vaxandi og almennari áhugi kjötsala og kjötiðnaðar- manna á því að hafa vandaðar og fjölbreytilegar vörur á boðstól- um. Óvissa neytenda fram á síð- ustu ár um það, hvort nautakjöt, sem þeir keyptu háu verði, væri ljúffengt og mjúkt eða seigt, hlýt- ur til skamms tíma að hafa dregið verulega úr eftirspurn. Farsæl- asta leiðin fyrir kaupandann er að verzla þar, sem hann veit að treysta má að fá góða vöru. Á verðlagsárinu 1987/88 voru fram- leidd 3.047 tonn af nautgripa- kjöti, sem var 82,5% af neyzlu, þannig að gekk á birgðir frá fyrra ári. Frá 1986 hefur neyzla nauta- kjöts á íbúa aukizt úr 10,8 kg í 13,2 kg 1988. Beztu réttir úr verðmætum vöðvum verða ekki búnir til úr lélegu hráefni. í þessu máli er um að ræða erfðaeðli gripanna og fóðrun auk meðferðar allan veg frá búi til sláturhúss og dvöl þar til aflífunar. Um síðasta atriðið verður ekki rætt í þessari grein, þótt mikils sé vert, en drepið skal á hin tvö. Frá því farið var að rækta skipulega íslenzka kúakynið í byrjun þessarar aldar hefur áherzla verið lögð á að bæta mjólkureiginleika þess. Það hef- ur verið ræktað sem mjólkurkyn. Þrátt fyrir það er vaxtargeta kálfa af því talsverð, sumra mjög mikil, fyrsta árið eða Iengur. Þá er vöxtur beina mestur og þeirra vöðva, sem þurfa að fylgja þeim eftir. Kjöt af vel fóðruðum íslenzkum ungneytum er ljúffengt, en venjulegast allt of lítið, þar sem vöðvar eru grannir. Vaxtarlag er þó að batna með ströngu úrvali sæðingarnauta. Gallowaygripirnir í Hrísey og holdablendingar út af þeim í Iandi Holdagripir eru frábrugðnir hreinum mjólkurkúakynjum, þótt mörg holdakyn, einkum hin stórvöxnustu hafi áður fyrr verið notuð til dráttar og mjólkur auk kjötframleiðslu. Gallowaykynið, sem verið er að hreinrækta í Hrísey, hefur hins vegar aðeins verið notað til kjötframleiðslu. Hreinræktun þess í Hrísey hefur byggzt á endurteknum innflutn- ingi djúpfrysts nautasæðis frá Skotlandi, sem kýr í Einangrun- arstöðinni eru sæddar með. For- mæður þeirra voru kvígur úr Mýrdal, sem fluttar voru til stöðvarinnar sumarið 1975. Flest- ar kýr og kvígur á búinu nú eru að 3. og 4. ættlið, talið frá kúm, fæddum í eynni. Þær eru því 87% og 94% Galloway. Má því segja, að hreinræktunin sé komin vel á veg. Innflutt sæði úr hreinræktuð- um Gallowaynautum má ekki nota f landi, heldur eingöngu sæði úr nautum, fæddum á stöð- inni. Sæðisflutningur frá Einangrunarstöðinni hófst 1979 til allra landshluta. Síðan hafa verið aldir á búum bænda um land allt einblendingar til kjöt- framleiðslu undan Hríseyjar- nautum og íslenzkum kúm. Nú eru Hríseyjarnautin að 3. og 4. ættlið eins og kýrnar, og verður hætt að velja naut að 3. ættlið til sæðistöku. Einblendingar, sem fæðast í landi, verða því bráðlega 47% af Gallowaykyni, þ.e. nálg- ast það að vera hálfblendingar, en eru nú um 44% Galloway. Framleiðsla Hríseyjar- blendinga í landi eykst Sl. áratug hefur um 10-11% af því sæði, sem notað er fyrir mjólkurkúastofnin verið úr Gall- owaynautum, fæddum í Hrísey (11,8% árið 1988). Það er á þennan hátt, sem kjöt af gripum undan Hríseyjarnautum hefur verið framleitt um land allt frá því árið 1979. Á þetta er bent vegna þess, að oft spyr fólk um það, hvenær sé von á, að kjöt af Hríseyjargripum fari að koma á markaðinn. Ekki ættu að verða Fyrri hluti vandkvæði á því að láta allt að 35% mjólkurkúnna fá við holda- nautasæði, ef nægur markaður yrði fyrir kjöt af þeim. Hér bíða því einnig ónýttir möguleikar. Þetta verður látið nægja til að sýna, á hvaða stigi hreinræktunin í Hrísey er nú og blendingsfram- leiðslan í landi. Vanefndir stjórn- valda í áratug í því að framfylgja ákvæðum búfjárræktarlaga um hreinræktun og varðveizlu Gall- owaykynsins í landi er ærið efni í aðra hugvekju. Þar mætti einnig víkja að því, hvernig ný tækni gæti bjargað málinu fyrir horn, þótt því fylgi einnig kostnaður og ábyrgð. Framleiðsluhættir og fóðrun Þótt nautakjöts hafi verið neytt í landinu frá upphafi byggðar og það sé talið hafa vegið meira en annað kjöt í fæðu þjóðarinnar fram eftir öldum, þá hefur ekki varðveitzt eða skapazt síðar nein sérstök hefð eða hefðir í fram- leiðslu þess. Því er lítið til að byggja á og neyzluvenjur tæpast til. Hvort tveggja er efni til að takast á við. Það ætti að vera ein- hverjum ungum bændum hvatn- ing að þreifa sig áfram í því, hvaða framleiðsluhættir henta bezt í þessari grein. Á þetta ekki hvað sízt við nú, þegar aðalgrein- ar búvöruframleiðslu og fram- kvæmdir á jörðum eru að miklu leyti í viðjum og athafnaþrá þeirra, er landbúnað stunda, fær notið sín á fáum sviðum. Fyrir utan það kýrkjöt, sem til fellur í sambandi við mjólkur- framleiðslu, yrði kjöt af ungneyt- um aðaltegund nautgripakjöts- framleiðslu. Að henni þarf að standa á þann veg, að hægt sé að fylgjast vel með framför grip- anna, vaxtarhraða og þunga á hverjum tíma. Fóðurnýting verð- ur betri, vaxtarhraði jafn og með því, að hann sé ör, tekur styttri tíma að ná þeirri þyngd, sem stefnt er að, fjósin nýtast betur og þar með fjármagn. Neytendur fá betra kjöt og meira úrval. Yigtun eldisgripa væri stórt skref til bættrar framleiðslu nautakjöts Þessi atriði eru að verða brýnni nú en áður með nýrri reglugerð um slátrun, mat og meðferð slát- urafurða, sem tók gildi 1. sept. sl. og hafði verið lengi í undirbún- ingi. í reglugerðinni eru rýmkuð aldursákvæði nauta og kvígna til samræmis við aldur geldinga (uxa) gagnvart helztu matsflokk- um, ef lágmarksþyngd og gerð falla leyfir. Því skiptir fjárhags- lega miklu máli fyrir fram- leiðendur, að skrokkur af hverj- um grip nái þeirri þyngd, sem að er stefnt. Til eru bændur, sem fara nærri um þyngd ungneyta efdr holdafari þeirra og ummáli bols (brjóstmáli), en vigtun gripa með ákveðnu millibili, t.d. við um 200, 400 og 600 daga aldur, er hið eina, sem treystandi er á ásamt þjálfun í að meta failprós- entu eftir holdafari. Ólafur E. Stefánsson Höfundur er nautgriparæktarráðunautur hjá Búnaðarfélagi Islands. Hríseyjarnautið Mór 85685 að 3. ættlið, 26,5 mánaða. Var felldur skömmu síðar. Fallþungi var 325 kg og fallprósenta 55,6 (vó á fæti 585 kg). Myndina tók Guðjón Björnsson 12.11.'87. Von 44, Hrísey, að 2. ættlið, þegar hún var rösklega 7 ára. Var sérlega stór- vaxinn og mikill gripur í alla staði og frjósöm. Var því látin lifa lengi. Eign- aðist 6 kálfa. Meðal þeirra var Hnoðri 85676. Var felld í febrúar s.l. Myndina tók Guðjón Björnsson 12.11.'87.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.