Dagur - 11.04.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 11.04.1989, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 11. apríl 1989 - DAGUR - 3 Útboðið í frágang miðálmu VMA: SJS verktakar lægstir með 33,4 milljónir Tilboði verktakafyrirtækisins S.J.S.-verktaka í frágang mið- álmu Verkmenntaskólans á Akureyri, A og B hluta, hefur verið tekið þar sem þeir reynd- ust iægstir í útboði. Fyrirtækið á að skila miðálmunni í tveim- ur áföngum, B hlutanum 15. ágúst á þessu ári en A hlutan- um 1. ágúst 1990. Magnús Garðarsson, fulltrúi skólanefndar, sagði að sex tilboð hefðu borist í miðálniu VMA. Híbýli hf bauð kr. 38.866.065, Raflagnaverkstæði Tómasar kr. 36.463.274, Vör hf kr. 34.595.127, Fjölnismenn kr. 34.159.822, Aðalgeir Finnsson hf kr. 33.512.196 og S.J.S.-verktak- ar voru lægstir, tilboð þeirra hljóðaði upp á 33.439.156 kr. eða 107,2 prósent af kostnaðaráætl- un. Samkvæmt kostnaðaráætlun átti verkið að kosta 31.206.590 kr. í miðálmu VMA verða m.a. prófsalur, kaffitería og bókasafn skólans. Frá upphafi hefur verið ljóst að vegna eðlis þess hluta byggingarinnar, sem er e.k. mið- punktur skólans, verður kostnað- ur nokkuð hærri en við aðra byggingarhluta. Verkið, sem um er að ræða, er niúrverk í miðálm- unni, tréverk, inálaravinna, frá- rennslislagnir, neysluvatnslagnir, hitalagnir, loftræstilagnir og raf- lagnir. Verkkaupi leggur til hell- ur í múrverkið, lampa, og við- vörunarkerfi vegna eldsvoða. Þá er ekki reiknaður með kostnaður við málaravinnu við svonefnda blælist, en hún verður notuð á allflesta steypta veggi í miðálm- unni. Þeir, sem gerðu ofangreind tilboð, studdust við tilboð frá Netabátar í hnapp við norðausturhornið: Sá guli gerir nú vart við sig á Þistilfirði - gáfust upp á tregðunni við Grímsey Allir stærri netabátar frá Ólafsfirði, Dalvík, Húsavík, Siglufirði, Ólafsfirði, Grímsey og Arskógsströnd eru nú að veiðum á Þistilfirði. Þeir fóru í sína fyrstu veiðiferð á þetta svæði í síðustu viku og öfluðu vel þokkalega, 10-15 tonn á 3-4 dögum. I gær var hins vegar ekki eins gott hljóðið í sjó- mönnum þarna eystra og sagði Björgvin Gunnlaugsson, skip- stjóri á Otri EA-162 frá Dalvík, að það væri nákvæm- lega ekkert að hafa. „Við erum búnir að draga fjórar trossur en það er enginn fiskur. Þetta er steindautt eins og er,“ segir Björgvin. Skýringin á því að netabátarnir færðu sig austur á bóginn frá hefðbundnum miðum við Gríms- ey er einfaldlega sú að þar hefur ekkert verið að hafa. Bátarnir hafa róið á Grímseyjarmiðin frá byrjun netavertíðar án þess að sá guli hafi gert vart við sig. Þolin- mæði sjómanna var á þrotum og því reyndu þeir fyrir sér eystra. Björgvin segir að ætlunin sé að róa á Þistilfirði og við Svínalækj- artanga á meðan einhvern fisk verði þar að finna. Hann segir að ef sá guli geri vart við sig í mikl- um mæli sé vissulega til í dæminu að landa aflanum fyrir austan, á Raufarhöfn eða Þórshöfn og keyra hann þaðan til Dalvíkur. Þannig væri unnt að spara drjúg- an tíma, en frá Dalvík austur í Þistilfjörð er um 10 tíma stím. Tveir netabátar frá Dalvík, Sænes og Hafsteinn, og netabátar GBen. á L-Árskógssandi, Arn- þór og Sæþór, hafa farið nokkra túra austur að Hvalncsi og mok- að þeim gula upp. Þeir neyddust til að taka upp netin þar fyrir helgina vegna mikilla strauma og færðu sig norður á bóginn. í gær voru þessir fjórir bátar á svipuð- um slóðum og Otur, eða við Langanesið. óþh Þrátt fyrir verkfall: Allt í fullum gangi í Háskólanum á Akureyri - bókasafnið þó lokað „Hér er allt í fullum gangi,“ sagði Ólafur Búi Gunnlaugs- son, skrifstofustjóri Háskólans á Akureyri, þcgar hann var inntur eftir því hvort yfirstand- andi verkfall nokkurra aðildar- félaga BHMR hefði áhrif á starfsemi skólans. „Verkfallið hefur ekki haft áhrif á okkar starf að öðru leyti en því að bókasafnið er lokað þar sem starfandi bókasafnsfræðing- ur er í verkfalli,“ sagði Ólafur Búi. Hann kvað stéttarfélagsmál starfsmanna við skólann vera að nokkru leyti ófrágengin sem kæmi til af því hve ung stofnun Háskólinn væri. „Þess er að vænta að á næstu einu-tveimur árum komi í ljós hvernig starfs- menn hér flokkast niður í stéttar- félög,“ sagði Ólafur Búi. óþh tveimur undirverktökum varð- andi ofna og vinnu við uppsetn- ingu þeirra. Annað tilboðið var frá Ofnasmiðju Norðurlands og hljóðaði upp á röskar 1,7 milljón- ir króna. Hitt tilboðið kom frá fyrirtæki í Keflavík og hljóðaði það upp á 900 þús. kr., þar af átti vinna við uppsetningu að kosta 200 þúsund. Um er að ræða sér- staka ofna sem settir eru upp við glugga sem ná alveg að gólfi. S.J.S.-verktakar studdust við ofnatilboðið frá aðilanum í Keflavík, einnig Vör hf, Raf- lagnaverkstæði Tómasar og Hí- býli hf. EHB Halharstræti 97, Akureyri Ý . gag I lijarta bæjaiins Til sölu vcrslumir- og skrifstofuhúsnæði að Hafiiarstræti 97, Akureyri. _4 . j- r Grunnmynd I. hæðar. !L' n; n n . '~dkr Grunnmynd II. hæðar. Stórglsesilegt nýtt tiiisneedi á besta stað \ið Göngugötuna Nánari upplýsingar gefnar í símum 25778 og 21525. Byggingafélagið Iviiid li/f

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.