Dagur - 11.04.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 11.04.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 11. apríl l989—. DA.GUR r- .7 Alþjóðlegt skíðamót í Hlíðarijalli: Valdimar góður í sviginu - sigraði á laugardag og var 1/100 úr sek. á eftir fyrsta manni á sunnudag Veðurguðirnir léku við hvurn sinn fingur á alþjóðamótinu á skíðum um helgina. Sólin skein í heiði og færið var eins gott og best verður á kosið. Mörgum keppendum varð hins vegar hált á svellinu og duttu fyrsta daginn. Það nýtti Valdi- mar Valdimarsson frá Akur- ejri sér vel og sigraði í sviginu. A sunnudag sigraði síðan Norðamaðurinn Sverre Melby. I stórsviginu gekk íslendingun- um ekki vel og röðuðu erlendu keppendurnir sér í efstu sætin. „Þetta mót hefur gengið von- um framar,“ sagði þreyttur en ánægður mótsstjóri, Þröstur Guðjónsson, í gær í samtali við Dag. „Veðrið hefur leikið við okkur og allt starfsfólk hefur staðið sig frábærlega.“ Starfsfólk hefur þurft að vera mætt upp í fjall kl. 6 á morgnana og sagði Þröstur að það væri e.t.v. of mikið að vera með fjög- ur mót í röð. Það væri ekki hægt að leggja það á fólk að mæta svona snemma dag eftir dag en það eru rúmlega 70 manns sem lagt hafa hönd á plóginn til þess að mótið gæti farið fram þessa daga. Erlendu keppendurnir hafa lýst yfir mikilli ánægju með skipulagningu og allan aðbúnað og má því fullvíst telja að mótið verði góð auglýsing fyrir okkur íslendinga í útlöndum. í sama streng taka Örnólfur Valdimars- son og Daníel Hilmarsson sem hafa mesta reynslu af keppni á FlS-mótum erlendis. „Skipulagn- ing þessa móts stenst fyllilega samanburð yið mót af svipaðri styrkleikagráðu erlendis og jafn- vel sterkari mót,“ sagði Örnólf- Hins vegar er ljóst að ef slíkt mót verður endurtekið verður að fá einn eða fleiri sterka skíða- menn til þess að draga að áhorf- endur og einnig til þess að hækka styrkleika mótsins. Þess má t.d. geta að Valdimar hlaut fáa sem enga FlS-punkta fyrir sigurinn á laugardag því bestu mennirnir, t.d Norðmaðurinn Melby, duttu og þar með lækkaði styrkleiki mótsins. Á laugardag féll tæplega helm- ingur keppenda strax í fyrri ferð og þurftu því að hætta keppni. í síðari ferðinn féllu síðan 13 aðrir keppendur m.a. bæði Örnólfur Valdimarsson og Sverre Melby sem voru meðal fremstu manna og komust einungis 20 keppend- ur klakklaust frá mótinu. Betur gekk síðari daginn og komust þá rúmlega þrjátíu kepp- endur í mark heilir á húfi. Akureyrarþætti þessa móts lýkur með stórsvigskeppninni í Hlíðarfjalli í dag kl. 10. Á föstu- daginn fara síðan tvö mót fram í Bláfjöllum og þar með lýkur þessu alþjóðlega móti hér á ís- landi. Áhorfendur voru þó nokkuð margir um helgina en, eins og gefur að skilja, færri í gær, mánu- dag. Á laugardag var margt um manninn í Hlíðarfjalli því veðrið var eins og best verður á kosið. Nokkru færri áhorfendur mættu á sunnudaginn enda var þungskýjað framan af. En upp úr hádeginu fór að létta til og þegar verðlaunaafhendingin fór fram var komið glaðasólskin og þrátt fyrir nokkurn vind var skíðafærið hið besta. Vegna verkfalls kennara gátu margir þeirra aðstoðað við mótið á mánudag og munaði mikið um þeirra aðstoð. En lítum þá á úr- slitin: Úrslit í svigi á laugardag: 1. Valdimar Valdimarsson í. 1:39.15 2. Thomas Kaufman A. 1:43.22 3. Daníel Hilmarsson í. 1:43.93 4. Arnór Gunnarsson í. 1:45.33 5. D.J. Tengdin Bandar. 1:45.81 Úrslit í svigi á sunnudag: 1. Sverre Melby N. 1:40.13 2. Valdimar Valdimarsson í. 1:40.14 3. Örnólfur Valdimarsson í. 1:40.90 4. Daníel Hilmarsson í. 1:42.01 5. Michael Lichtenegger A. 1:42.09 Úrslit í stórsvigi á mánudag: 1. Michael Lichtenegger A. 2:00.74 2. Sverre Melby N. 2:01.32 3. Patrick Wirth A. 2:01.84 4. Tateru Takehana Jap. 2:01.93 5. Gregor Stojanovic Júg. 2:01.95 6. Uros Pavlovcic Júg. 2:02.57. 7. Örnólfur Valdimarsson í. 2:02.88 Valdimar Valdimarsson ásamt einum hclsta kcppinaut sínum Örnólfi Valdi- marssyni. Mynd: ap „Bjóst varla við að ná toppnum“ - segir Valdimar Valdimarsson Valdimar Valdimarsson frá Akureyri hefur staðið sig vel á alþjóðamótinu sem nú stendur yfír í Hlíðarfjalli. Hann sigraði í svigi á laugardaginn og varð í öðru sæti á sunnudaginn, ein- ungis 1/100 úr sekúndu á eftir stigalægsta keppanda mótsins, Sverre Melby frá Noregi. Valdimar var spurður á sunnu- daginn hverju hann vildi þakka þennan góða árangur. „Það er sambland af heppni og góðum undirbúningi. Ég átti von á góðum árangri, en e.t.v. ekki fyrsta sætinu. Mér gekk ekki nógu vel á Skíðalandsmótinu á Siglufirði, þannig að þessi sigur hér er mjög sætur. Heppnin er líka til staðar, eins og á laugar- daginn þegar margir af sterkustu keppendunum duttu í brautinni. En þessir tveir keppnisdagar lofa góðum um framhaldið,“ sagði Valdimar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.