Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 18. apríl 1989 fþróttir Ársþing KKÍ: Kanar leyfðir á ný - í íslenska körfuboltann A ársþingi Körfuknattleikssam- bands íslands, sem haldið var í Reykjavík, um síðustu helgi, var samþykkt með meirihluta at- kvæða að leyfa erlendum leik- mönnum að leika hér á landi að nýju. A þinginu var einnig sam- þykkt að jafna dómarakostnaði á milli félaga, og eru það tíðindi sem forráðamenn Þórs og Tinda- stóls geta glaðst yfir. Á ársþingi KKÍ var úrvalsdeild skipt í riðla fyrir næsta keppnistíma- bil og lentu Þór og Tindastóll saman í a-riðli ásamt bikarmeisturum Njarðvíkinga, KR-ingum og Hauk- um. í b-riðli leika Keflavík, Grinda- vík, Valur, ÍR og Reynir Sandgerði. Forráðamenn körfuknattleiks- Frjálsar íþróttir: Ágætur árangur UMSE - á meistaramótinu íslandsmót í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram fyrir skömmu. Þangað fóru m.a. átta keppendur frá UMSE og stóðu sig vel. Best- um árangri náðu þær stöllur Þóra Einarsdóttir og Snjólaug Vilhelms- dóttir og sigruðu þær í nokkrum greinum á mótinu. Þóra setti þrjú Eyjafjarðarmet á mótinu; hún stökk 1,68 í hástökki, hún stökk 8,0 í þrístökki án atrennu. og stökk 2,72 í langstökki án atrennu. Hún hljóp 50 m sprett á 6,9 sekúndum og lenti þar í 4.sæti. Snjólaug Vilhelmsdóttir stökk 2,57 í langstökki án atrennu og stökk 7,48 í þrístökki án atrennu. Hreinn Karlsson stóð sig einnig vel á mótinu og lenti í 2. sæti í þremur greinum; í 50 m hlaupi á 6,3 sekúnd- um, íþrístökki meðatrennu 12,80 og í langstökki án atrennu og stökk 6,30 m. deilda Pórs og Tindastóls sögðust í samtali við Dag fagna sérlega þeirri samþykkt að jafna dómarakostnaði niður á félögin. Um það að leyfa erlenda leikmenn sagði Jón Már Héðinsson í körfuknattleiksdeild Þórs: „Við greiddum þeirri tillögu alkvæði í trausti þess að félögin hafi skynsemi til að standa almennilega að því að fá hingað erlenda leik- menn, hafi lært örlítið af fyrri reynslu og hafi þá skynsemi að leita til ábyrgra aðila þegar þ;iu eru aö verða sér út um erlenda lejkmenn. Ef þetta mistekst og fer allt til fjandans, þá er það vegna þess að stjórnir félaganna halda ekki um málið. Ef vel tekst til, þá er engin spurning að þetta verður lyftistöng fyrir íslenskan körfubolta.“ Ragnar Kárason hjá körfuknatt- leiksdeild Tindastóls sagði að allir fulltrúar þeirra, nema einn, hafi greitt tillögunni atkvæði. „í raun skiptir það ekki svo miklu máli fyrir okkur að fá hingað erlenda leik- menn. Við erum í annarri stöðu en mörg önnur félög, t.d. Þór, þar sem mikil samkeppni stendur unt áhorf- endur. Það er líka verið að sant- þykkja þetta til að fá fleiri áhorfend- ur á leikina, og um það höfum við ekki þurft að kvarta. Hins vegar vilj- unt við ekki standa í vegi fyrir að fá hingað erlenda leikmenn og við munum, eins og önnur félög, íhuga að fá hingað erlendan leikmann,“ sagði Ragnar. -bjb Fá Björn Sveinsson og félagar í Þórslið- inu bandarískan leikmann í liðið? Knattspyrna: Völsungur vann - einn leik og gerði eitt jafntefli Völsungur iék sína fyrstu æfinga- leiki í knattspyrnu á þessu keppn- Karfa/Tindastóll: Sauðkrækingar fagna Uppskeruhátíð körfuknattleiks- deildar Tindastóls fyrir keppnis- tímabilið 1988-1989 fór fram fyrir skömmu í félagsaðstöðu Gagn- fræðaskólans á Sauðárkróki. Körfuknattleiksmenn úr öllum flokkum félagsins voru mættir á staöinn, um 100 talsins. Fjöldi verðlauna voru afhent og fengu gestir að gæða sér á dýrindis pizz- um og með því. Með uppskeru- hátíðinni er endi bundinn á gott keppnistímabil hjá Tindastóli í körfuboltanum, líklega það besta fram að þessu. Alls var Tindastóll með 7 flokka í vetur á æfingum. Öll vitum við árangur meistaraflokks í úrvalsdeild undir stjórn Vals Ingimundarsonar, og það komust tveir yngri flokkar í úrslit, bæði 6. og 9. flokkur. Á uppskeruhátíðinni var kjörinn yngri flokkur keppnistímabilsins og var það 6. flokkur, undir stjórn Guð- mundar Jenssonar, sem hlaut þann titill. Fyrirliði liðsins, ÓmarSigmars- son, veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd sinna manna. Framfara- bikar yngri flokka hlaut Atli Freyr Sveinsson. Körfuknattleiksmaður Tindastóls var kjörinn Valur Ingi- mundarson, og kemur það val ekki á óvart. Honum var afhentur minning- arbikar um Helga Rafn Traustason kaupfélagsstjóra. Valur Ingimundarson gaf 4 Nike- bolta til 4ra leikmanna minniboltans, þeirra Ragnars Magnússonar, Björg- vins Benediktssonar, Guðjóns Gunnarssonar og Árna Guðmunds- sonar. Af öðrunt aukaverðlaununt má nefna verðlaun til lcikmanna meistaraflokks, eða réttara sagt til Vals og Eyjólfs Sverrissonar. Valur fékk verðlaun fyrir flest skoruð stig, flest fráköst og flestar 3ja stiga körfur. Eyjólfur fékk verðlaun fyrir bestu vítahittnina og fyrir að hafa oftast „stoliö" bolta. En lítum á aðal- verðlaun, til handa þrem leikmönn- um í hverjum flokki: Minnibolti: Besti leikmaður: Þráinn Björnsson Mestar framfarir: Óli Barðdal Reynisson Besta ástundun: Jón Brynjar Sigmundsson 6. flokkur: Besti leikmaður: Halldór Halldórsson Mestar framfarir: Kristín Magnúsdóttir Besta ástundun: Hilmar Hilmarsson 8. flokkur: Besti leikmaður: Jóhannes Levý Mestar framfarir: Smári Björnsson Bestaástundun: Halldór Björnsson 9. flokkur: Besti leikmaður: Pétur V. Sigurðsson Mestarframfarir: Kristinn Kristjánsson Bestaástundun: Stefán Friðriksson Drengjaflokkur: Besti leikmaður: Örn Sölvi Halldórsson Mestar framfarir: Ragnar Pálsson Besta ástundun: Sigurður Levý Yngri flokkur kvenna: Besti leikmaður: Selma Barðdal Reynisdóttir Mestar framfarir: Berglind Pálsdóttir Besta ástundun: Elísabet Sigurðardóttir Meistaraflokkur karla: Besti leikmaður: Eyjólfur Sverrisson Mestar framfarir: Sverrir Sverrisson og Haraldur Leifsson Bestaástundun: Kári Marísson Það var Valur Ingimundarson sem afhenti öll verðlaun til yngri flokk- anna, en til meistaraflokks var það Pétur Ólafsson formaður körfuknatt- leiksdeildar sem sá um það, ásamt Matthíasi Viktorssyni. Allt gos á uppskeruhátíðinni gaf Magnús Svav- afsson og hráefni í pizzurnar gaf Kjötvinnsla K.S. Það voru stúlkur í 9. bekk. undir stjórn Önnu Rósu Skarphéðinsdóttur, kennara þeirra í heimilisfræði, sem síðan sáu um að „malla" veitingarnar. -bjb Verðlaunahafar á uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildar Tindastóls fyrir keppnistimabilið 1988-1989. istímabili um helgina. Húsvíking- arnir fóru suður og spiluðu við Leikni og Hauka í Hafnarfirði. Þeir unnu Leikni 3:2 og gerðu síð- an jafntefli við Hauka 1:1. Kristján Olgeirsson virðist engu hafa gleymt þrátt fyrir að hafa lítið spilað í fyrra og skoraði hann öll mörkin gegn Leikni. Markið gegn Haukum gerði hins vegar Skúli Hall- grimsson. Af öðrum æfingaleikjum má nefna að Þór vann tvo leiki unt helgina, Magna 1:0 og Reyni 3:0. Þá vann UMSEb lið SM 5:1 og lið TBA og Reynis gerðu jafntefli 3:3. Mörk Þórs í þessum leikjum gerðu Kristján Kristjánsson tvö og Júlíus Tryggvason og Tanevski eitt hvor. Knattspyrna: Bjarni með fyrirlestur - í KA-heimilinu kl. 20.00 Bjarni er Skagfirðingur aðiætt o uppruna og þjálfaði síðast lið Reyni á Árskógsströnd. Hann hefur þega haldið fyrirlestra í Reykjavík og ; Akranesi og hafa þeir fyrirlestar ver ið nokkuð vel sóttir og skapas fjörugar umræður um knattspyrm og knattspyrnuþj álfun almennt. Fyrirlesturinn er ekki eingöngt ætlaður knattspyrnuþjálfurum held ur og öllum áhugamönnum un knattspyrnu. Bjarni Konráðsson knattspyrnu- þjálfari heldur fyrirlestur um knattspyrnuþjálfun í KA-heimil- inu í kvöld, þriðjudag, kl. 20.00. Bjarni útskrifaðist úr íþróttahá- skólanum í Köln um áramótin og lokaverkefni hans fjallaði um þjálfun hjá tveimur íslenskum 1. deildarliðum, Fram og ÍA. Fyrir- lesturinn er öllum knattspyrnu- áhugamönnum opinn. Knattspyrna: Æflngatímar hjá Þór innanhúss Innanhússæfingar hjá knattspyrn- udeild Þórs eru nú hafnar á fullum krafti. Þær fara flestar fram í Glerárskóla. Lítum þá á hvenær hvaða flokkar eru. Æfingarnar eru í Glerárskóla nema ef annað er tekið frant. Meistarafl. og 2. flokkur kvenna: Á þriðjudögum kl. 21.00-22.00 og fimmtudögum kl. 19.00-20.00. 3. fl. kvenna: Á miðvikudögum kl. 17.00-18.00. 2. fl. karla: Á miðvikudögum kl. 21.00-22.00 og á fimmtudögum kl. 22.00-23.00. 3. fl. karla: í Skemmunni á mánudögum kl. 17.00 og í Glerárskóla á þriðju- dögum kl. 20.00. 4. fl. karla: Á þriðjudögum kl. 17.00 í Glerár- skóla og á laugardögum kl. 10.30. Einnig á miðvikudögum kl. 17. í Skemmunni. 5. fl. karla: í Glerárskóla á þriðjudögum kl. 18.00 og á laugardögum kl. 9.30- 10.30. 6. fl. karla: Á þriðjudögunt kl. 18.00-19.00 og á sunnudögunt kl. 16.15-17.30. Þriðjudagur 18. apríl 1989 - DAGUR - 9 Enska knattspyrnan: Harmleikur í Sheffield - á leik Liverpool og Nott. For. - Everton í úrslit Á laugardaginn átti að leika undanúrslitaleikina í FA-bik- arnum á Fnglandi og þeir hóf- ust báðir á tilsettum tíma. Fn þessi knattspyrnuhátíð breytt- ist í martröð eftir 7 mín. leik í Sheffield þar sem áttust við Liverpool og Nottingham For., bestu lið enskrar knatt- spyrnu í dag. Eftir fjöruga byrjun fór allt af stað fyrir aft- an mark Liverpool á þeirri stundu er Peter Beardsley átti skot í þverslá marks Notting- ham For. Mikill fjöldi áhorf- enda hafði troðist inn í stæðin fyrir aftan markið, hliðunum hafði verið lokað, en þau voru opnuð af lögreglunni sem vildi koma í veg fyrir ólæti utan leikvangsins og mannfjöldinn tróðst inn á þá sem fyrir voru. Fjöldi manns tróðst undir, en öðrum tókst að brjótast inn á völlinn. Leiknum var aflýst, en um 100 manns lágu eftir í valnum liðin lík og fjöldi slasaðra var fluttur í sjúkrahús. Þessi atburður er gíf- urlegt áfall fyrir enska knatt- spyrnu svo ekki sé minnst á þá sem eiga um sárt að binda vegna ástvinamissis. Knattspyrnusam- band Evrópu hafði nýlega aflétt banni á ensku liðunum í Evrópu- keppnunum og beið eftir sam- þykki ríkisstjórnar Englands við þeirri ákvörðun. Óvíst er að það samþykki verði veitt eftir þennan hörmulega atburð, sem þó á ekk- ert skylt við ólæti. Það er engu líkara en einhver Staðan: 1. deild Arsenal 33 19- 9-5 65:33 66 Liverpool 32 18- 9-5 55:24 63 Norwith 32 16- 8-8 43:34 56 Nott.Forest. 32 14-12-6 49:34 54 Tottenham 35 14-11-10 53:44 51 Millwall 33 14- 9-10 44:38 51 Coventry 34 13-11-10 44:36 50 Derby 31 14- 6-11 34:28 48 Wimbledon 32 13- 7-12 43:40 46 Man.Utd. 31 11-12-8 38:26 45 Everton 32 11-11-10 43:40 44 QPR 33 10-11-12 35:33 41 Sheft.Wed. 34 9-11-14 31:45 38 Middlesbro 34 9-11-14 40:54 38 Aston Villa 32 9-11-12 39:48 37 Southampton 33 8-14-12 47:63 36 Charlton 32 7-12-13 37:48 33 Luton 33 7-10-16 34:47 31 Newcastle 32 7- 8-18 29:52 29 West Ham 31 5- 8-18 25:52 23 2 deild Chelsea 4125-11-5 86:45 86 Man.City 41 22-10-9 67:44 76 Blackburn 41 19-11-11 67:54 68 C.Palace 39 19-10-10 60:44 67 W.B.A. 41 16-17-8 60:38 65 Watford 41 18-11-12 60:47 65 Swindon 39 15-14-10 55:48 59 Leeds Utd. 41 15-14-12 52:44 59 Barnsley 40 15-14-11 55:51 59 Ipswich 40 17- 7-16 59:57 58 Stoke 40 15-13-12 52:58 58 Bournemouth 41 17- 6-1846:5257 Leicester 41 13-14-14 49:53 53 Sunderland 41 1343-15 54:57 52 Portsinouth 41 13-12-16 49:51 51 Brighton 41 14- 7-20 54:59 49 Bradford 41 11-16-14 46:52 49 Plymouth 40 13-10-17 49:58 49 Oxford 40 12-12-16 55:56 48 Oldham 41 10-17-14 68:66 47 Hull 41 11-12-18 50:61 45 Shrewsburv 41 8-1548 35:60 39 Walsall 40 4-15-21 35:66 27 Birmingham 40 5-11-24 25:66 26 álög hvíli á Liverpool, það voru áhangendur þeirra sem urðu til þess að enskum liðum var bann- að að leika í Evrópu eftir sam- bærilegan atburð í Brússel og á laugardaginn voru það þeir sent urðu fyrir hörmungunum. En í báðunt tilvikum er sökin ef til vill mest hjá skipuleggjendum og þeint sem eiga að sjá unt lög- gæslu. Á Villa Park í Birmingham léku Everton og Norwich sinn undanúrslitaleik og vissu lítið um atburðina sem áttu sér staö í Sheffield. Norwich lagði allt und- ir í þessunt leik, en Everton hafði ávailt undirtökin og reynsla leikmanna liðsins var þung á metunum. Sigurmark Everton skoraði Pat Nevin á 26. mín. Ian Crook ætlaði að hreinsa frá marki Norwich, en boltinn fór í þverslá og féll síðan fyrir fætur Nevin sent skoraði af öryggi. Vörn Everton var mjög sterk og hélt sóknarmönnum Norwich niðri til loka leiksins, en Everton verður að bíða eftir því hverjir vcrða mótherjar liðsins í úrslita- lciknunt á Wentbley. Ekki hefur veriö ákveðið hvar, hvort og þá hvenær Liverpool og Forest reyna aftur. Nýjustu fréttir herma að hald- inn verði sérstakur fundur unt hvort fella skuli niður FA-bikar- keppnina í ár og Liverpool mun fresta næstu leikjum sínum í virö- ingarskyni við hina látnu og að- standendur þeirra. Þá hefur fé- lagið safnað í sjóð til styrktar þeim scnt um sárt eiga að binda og het'ur lagt fram £100.000 í því skyni. Þ.L.A. Nú er óvíst uni áframhaldandi keppni Liverpoolliðsins í Bikarkeppninni. Það er því ekki víst að hinir snjöllu leik- menn, Aldridge, Barnes og McMahon handfjatli ncinn bikar í vor. Arsenal marði sigur Þaö var einnig leikið í deilda- keppninni á laugardag, en þeir leikir féllu í skuggann af harm- leiknum í Sheffield. Atburöur- inn fékk mjög á Bjarna Fel. sem varð vitni að honum og á sama hátt áttu enskir íþrótta- fréttamenn erfitt með að lýsa gangi annarra leikja af sömu innlifun og þeir eru vanir. Arsenal náði þriggja stiga for- skoti í 1. deild eftir sigur gegn Newcastle á heimavelli. Slakur leikur, en yfirburðir Arsenal augljósir í leiknum. Gary Kelly í marki Newcastle varði mjög vel og Kenny Samson sem lengi lék með Arsenal varði á línu skot Kevin Richardson. Það var ekki fyrr en seint í síðari hálfleik að Ársenal tókst loks að skora eina mark leiksins. David Rocastle braust þá fram, sendi á Michael Thomas sem skaut að marki Newcastle og Brian Marwood náði að reka endahnútinn á sókn- ina með hinum mikilvæga marki. Luton er í mikilli fallhættu og tókst ekki að sigra Coventry á heimavelli þrátt fyrir góð tæki- færi. John Dreyer kom Luton yfir með skalla á 55. mín., en 15 mín. síðar jafnaði Coventry er skot Cyrille Regis fór af varnarmanni Luton, Steve Foster í netið. 6 mín. síðar fékk Luton vítaspyrnu er Tony Dobson varði með hendi, Steve Ogrizovic varði vítaspyrnu Danny Wilson, en Wilson skoraði úr frákastinu. Það var síðan 10 mín. fyrir leiks- lok að Coventry náði að jafna leikinn í 2:2 er markvörður Luton og varnarmaður hlupu saman og David Smith skoraði fyrir Coventry. Rodney Wallace skoraði fyrir Southampton gegn West Ham eftir aðeins 32 sek. Liam Brady jafnaði úr víti fyrir West Ham er Brian Marwood skoraði sigurmark Arsenal á laugardaginn. dæmd var hendi á Russel Osman, en 7 mín. eftir hlé skoraði Paul Rideout sigurmark Southampton með skalla og Southampton virð- ist ætla að halda sæti sínu í 1. deild. Manchester Utd. tapaði óvænt á heimavelli 0:2 gegn Derby. Gary Micklewhite skoraði fyrir Derby strax á 3. ntín. og Paul Goddard skoraði síðara markið 62 ntín. síðar. Tottenham hefur gengið vel að undanförnu og sigraði Wimble- don á útivelli 2:1. Paul Stewart og Chris Waddle skoruðu ntörk liðsins. Eric Young skoraði eina mark Wimbledon. O-P.R. og Middlesbrough gerðu síðan markalaust jafntefli í leik sínum í London. 2. deild • Bæði Chelsea og Manchester City töpuðu leikjum sínum um helgina. Paul Reid og Nicky Cross skoruðu mörk Leicester gcgn Chelsea þar sem Dave Beasant markvöröur Chelsea varði vítaspyrnu frá Gary McAll- ister og Peter Nicholas var rekinn út af hjá Chelsea. • Blackburn burstaöi Man. City 4:0, Simon Garner skoraði þrjú af mörkum Blackburn og auk þess var tvívegis varið frá honum á línu. Andy Kennedy skoraði einnig fyrir Blackburn. • Crystal Palace sigraði Ports- mouth með mörkum þcirra Mark Bright og Ian Wright. • W.B.A. tapaði niður 2:0 for- skoti gegn Plymouth, Colin West og sjálfsmark Kenni Brown sáu um mörkin fyrir W.B.A. Brown skoraði síðan í rétt mark síðar og Sean McCarthy tryggði Plymouth stig. • Steve White kom Swindon yfir gegn Watford, en Paul Miller jafnaði fyrir Watford undir lokin. • Ipswich náði einnig að vinna upp tveggja marka forskot Bradford, Mich D’Avray og Romeo Zondervan skoruðu fyrir Ipswich, en þeir Mark Leonard og Gavin Oliver fyrir Bradford. • Stoke City sigraði Bourne- mouth á útivelli nteð marki Viver. • Andy Williams skoraði sigur- ntark Leeds Utd. gegn Brighton.f • Blackburn, W.B.A., Crystal Palace og Watford virðast nú nokkuð örugg um sæti í úrslita- keppninni, en Swindon, Leeds Utd. og Barnsley koma næst þessum liðum að stigum. • í 3. deild hefur Wolves 81 stig, Port Vale 73 og Sheffield Utd. 72 stig. Á botninum eru Gillingham með 34 og Aldershot 33 stig. • í 4. deild hafa Tranntere og Crewe 72 stig og Rotherham 71 stig, en á botninum eru Darling- ton 36 og Colchester mcð 34 stig. Þ.L.A. Pat Nevin skoraói markið sem tryggöi Everton sæti í úrslitum FA- hikarsins, en verður sá leikur leik- inn? Úrslit í vikunni: Everton-Charllon 3: Millwall-Liverpool 1: Notlinghaiu For.-Southampton 3: Tottenham-Sheffield Wed. 0; 1 West Ham-Middlesbrough 1: 2. deild: Huli City-Crystal Palce 0: Leicester-Barnsley 0: Shrewsbury-Boumeninuth 1:1 ) Walford-Stoke City 3: Um helgina: FA-bikarinn undanúrslit: Everton-Norwich 1: ) Liverpool-Nottingham For. flýs t 1. deild: Arsenal-Nevvcastle 1: ) Luton-Coventrv 2: 2 Manchester Utd.-Derhy 0: 2 Q.P.R.-Middlcshrough 0; 0 West Ham-Soulhampton 1: 2 Wimliledon-I'ottenhani 1: 2 2. deild: Barnsley-Birmiiighain 0:0 Blackhurn-Manchester City 4: 0 Bournemouth-Stoke City 0: 1 Bradford-Ipsvvich 2: 2 Crystal Palce-Porlsmouth 2: 0 Leeds Uld.-Brighton l: 0 Leicester-Chelsea 2:0 Oldham-Sunderland 2:2 Shrcwsbury-Oxford 2: 2 Swindon-VVatford 1: 1 Walsall-Hull City 1: 1 W.B.A.-Plymouth 2:2 3. deild: Aldershot-YVolves 1: 2 Brentford-Bristol Rovers 2: 1 Bristol City-Blackpool 1: 2 Burv-Cardiff City I: 0 Chesterfield-Port Vale 1: 2 Fulham-Bolton 1: i Gillingham-Mansfleld 3: 0 lluddersfield-Chester 3: 1 Northampton-Shcffield Utd. 1: 2 Preston-Notts County 3: 0 Southend-Reading 3: 0 Swansea-VVigan 1: 2 4. deild: Burnley-Darlington 0 1 Carlisle-Cambridge 1 1 Crewe-Rochdale 3 1 Doncaster-Stockport 2 2 Exeter-Rotherham 0 0 Grimsby-Hereford 1 1 Halifax-York Citv 0 0 Hartlepool-Tranmere 2 2 Leyton Orient-Torquay 3 1 Lincoln-Colchester 1 1 Peterborough-Wrexham 1 0 Scarborough-Scunthorpe 1 0

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.