Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 15

Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 15
Rafn Kjartansson: „Þetta er nú bara unglingsgrey“ Enn stcndur verkfall tólf aðildar- félaga BHMR og ekkert gengur að semja. Hvílíkt ófremdar- ástand! I dag (13. apríl) les ég í Mogganum mínum að formaður samninganefndar ríkisins líti á tillögur Bandalags háskólamanna til lausnar deilunni sem „eitt stórt undrunarefni", og er hann þó ýmsu vanur maðurinn sá. Morgunblaðið hafði í leiðara nýverið miklar áhyggjur af yfir- vofandi verkfalli kennara og hugsanlegum afleiðingum þess fyrir nemendur nú er próf fara í hönd. Óx leiðarahöfundi í augunt óbilgirni þessarar stéttar sem nú veður fram veifandi verkfalls- vopninu með saklausa nemendur að gíslum. Allt kemur þetta kunnuglega fyrir sjónir. Mér er nefnilega enn í fersku minni atgangur sá er varð á vor- dögum 1985 er meirihluti kennara í franthaldsskólum sá sig tilneyddan til að segja upp störf- um með löglegum fyrirvara vegna lélegra launakjara, en viö vinnuveitandann reyndist með engu móti unnt að semja. f>á var kennarastarfið í brenni- depli í nokkrar vikur, og margir til þess reiðubiinir að ræöa skólamál og leggja dóm á störf kennara. Mér kemur eitt slíkt samtal í hug. Var þar um að ræða móður sem hafði þungar áhvggjur itf námsferli sotiar síns í grunn- skóla. Kvað móðirin drenginn ekkert læra. enda væri aldrei friö- ur í bekknum, krakkarnir hlypu uppi á borðttm. köstuðu náms- bókunum hvert í annaö, og ekki gengi á öðru en hávaöa og skvaldri. „En hvað um kannar- ann." spurði ég, „getur hann ekki stillt til friðar?" „Það er nú varla liægt að ætlast til ttö hann ráði viö þetta," mælti blessuö konan af stillingu og raunsæi, „þetta cr nú bara unglingsgrey." Vissulega var þetta raunsætt mat móðurinnar á aðstæðum. En hvað um raunsæi þeirra ráða- manna þjóðarinnar sent hjala á tyllidögum um mikilvægi menntunar og skólastarfs, en hafa með afskiptum sínutn og ákvörðunum leitt skólana út í slíka ófæru að þeir eru að verða óstarfhæfir? Skilgreind hefur verið sú menntun sem talin er nauðsynleg til að geta sinnt kennarastarfi á viöunandi hátt. Þriðji hver kenn- ari í framhaldsskóla hefur ekki þessa lágmarksmenntun. En Kal'n Kjartansson. þetta skiptir kannski bara engu máli. Svona aðstæður bitna varla neitt á nemendum eða hvað? Það kemur varla svo mjög við nemendur hvað gerist í kennslu- stofunni á degi hverjum. Það eru að sjálfsögðu bara vcrkföll sem koma illa við nemendur. Ef ekki kæmu til þessi ástæðulausu upp- hlaup kennaranmt. þá væri allt í himnalagi í íslensku skólastarfi. Sú hlvtur að minnsta kosti aö vera skoðun þeirra mánna sem telja að gagnrýni kennara á núverandi ástand og kröfur þeirra um úrbætur séu „eitt stórt undrunarefni". Árið 1986 kom út skýrsla á vegum OECD unt skólastarf á Islandi eftir að fulltrúar þcirrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna höfðu dvaliö hér á landi um hríð, heimsótt skóla víðs vegar um land og kynnt sér þessi mál cftir föngum. Mun skýrsla þessi hafa vcrið gerð að undirlagi Mennta- málaráðuneytisins, lofsvert fram- tak að sjálfsögðu, enda hefur téö ráöuncyti lagt mikla vinnu í skýrslur um stöðu og störf kenn- arastéttarinnar. Hygg ég að skýrslustaflarnir á þeini bæ muni orðnir firnaháir, nema þeim hafi veriö brennt! Kannske meðferðin á skýrsluflóðinu sé í stíl við það sent segir í bókinni Félagi Napó- leon eftir George Orwell, þar sem lýst er búskaparháttum á Dýrabaí. Get ég ekki stillt mig um að birta orðrétta tilvitnun í þessa ágætu bók: „Það voru, eins og Skrækur þreyttist aldrei á að taka fram, svo ákaflega mörg störf sem vinna þurfti við stjórn og skipu- lagningu búskaparins. Mörg þessara starfa voru þess eölis að dýrin voru of fáfróð til að skilja þau. Til dæmis sagði Skrækur þeim, að svínin yröu að eyða geysimikilli starfsorku á hverjum degi til að semja leyndardómsfull skjöl, sem hann nefndi „skrár", „skýrslur", „athugasemdir", og „greinargerðir". Þaö væru stórar pappírsarkir, sem yrði að fylla smáu skrifletri. og þeint væri kastað í eldavélina þegar búiö væri að skrifa á þær. Skrækur sagði að þetta væri ákaflega mikilsvert fyrir viðgang búsins.” (Bls. 120.) ' Nú veit ég ekki hvað Mennta- málaráðuneytið gerir við skýrsl- urnar sínar, en ég á í fórum mín- um eintak af áðurgreindu plaggi frá OECD. Ég leyfi mér að birta stutta kafla úr úttekt höfunda á störfum íslenskra kennara: „Kennarastarfiö sent slíkt er í lægð. Okkur var tjáð að mikill meirihluti þeirra sem Ijúka kenn- araprófi, eða allt að 70% hæfu annað hvort aldrei kennslustörf eöa hyrfu fljótlega frá þeint í aðra vinnu. í flestum skólum eru stöðug mannaskipti og upp á síð- kastiö hefur umsóknum um nám viö Kennaraháskólann fækkað. Mikill meirihluti kennara virðist vinna of rnikið, bæði með því að taka að sér yfirvinnu í skólunum og vinnu utan skólans til aö auka tckjur sínar. Þetta veröur til þcss að þeir hafa lítil tækifæri eða þrek til að sinna kennslustarfinu vel og líta á það sem hvert annað brauðstrit." Höfundar fjalla svo nánar um þessi vandamál, en segja að lokum: „Höfuðvandinn er þó eflaust sá að kennarar fá litla umbun fyr- ir störf sín og önnur viðurkenn- ing er lítil, sama á hvaða skóla- stigi er kennt." (Bls. 26 og 27). En svona umsögn þarf kannske ekki að taka alvarlega. Við vitum jú að íslensk stjórnvöld eru þekkt að öðru en láta einhverja útlend- inga segja sér fyrir verkum. Enda athugun þcssara manna sjálfsagt lítt trúverðug og þeir ókunnir staðháttum. Þó er til máltæki sem lengi hefur lifað með þjóðinni, er segir og glöggt sé gests augað. Því miður hygg ég að OECD skýrslan, sem vitnað var í, fari nærri um ástand skólamála á ís- landi. Árið 1986 var samþykkt á Alþingi að kennarastarfið skyldi lögverndað. Hvernig er þeim lög- um framfylgt? Fóru þau kannske sömu leiðina og skýrslusafn Menntamálaráöuneytisins? Þegar ber á góma niðurlægingu kennarastéttarinnar scgja menn gjarna: „Þið haldið því fram að skólarnir fái ekki nógu góða og menntaða starfskrafta, en á sarna tíma eruö þið að heimta stór- hækkuð laun handa þessu fólki. Það er ckkert vit í þessu." Þegar afstaða manna er orðin með þess- um hætti, er sem sagt búið að loka vítahringnum. Hvernig á svo að fara að því að brjótast út úr honum? Það er vandséð. Engu vil ég spá um hvernig muni Ijúka þeim átökum sem nú standa yfir. Ég vona hins vegar að samningamenn kennara haldi áttum í Undralandi lndriða Þor- lákssonar og húsbænda hans, en ekki eru þeir öfundsverðir af dvölinni þar. Rafn Kjartansson. Höfiindur er kennari viö IVIenntuskólann á Akureyri. Þriðjudagur 18. apríl 1989 - DAGUR - 15 Árleg fjáröflun Kvenfélagsins Hlífar Merkjasala hefst sfðasta vetrardag Fjölskyldusamkoma á Hótel KEA sumardaginn fyrsta kl. 15. Kaffihlaðborð, skemmtiatriði og happdrætti. Allur ágóöi rennur til Barnadeildar FSA. Jörð til sölu Jörðin er 2-3 km frá Akureyri. Nýlegt íbúðarhús. Góð aðstaða fyrir hesta- og fjárbúskap. 27 ha. ræktað land. Fasteignasala - Sími 26441 Hafnarstræti 108. Sölumaður: Páll Halldórsson, heimasíml: 22697. Lögmaöur: Björn Jósef Arnviöarson. Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Fossbrún 6, Árskógshreppi, þingl. eigandi Árver hf., Árskógshreppi, föstud. 21. april '89, kl. 13.30. Uppboösbeiðandi er: Fiskveiðasjóður íslands. Glerárgötu 26, 2. 3. og 4. hæð, Akureyri, þingl. eigandi Eyri hf., föstud. 21. april '89, kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar, Iðnlána- sjóður og Gunnar Sólnes hrl. Steinahlíð 8c, þingl. eigandi Árni Gunnarsson, föstud. 21. apríl '89, kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar, Veðdeild Landsbanka islands. Sænes EA-75, þingl. eigandi Rán hf„ föstud. 21. apríl '89, kl. 15.15. Uppboðsbeiöandi er: Tryggingastofnun ríkisins. Vestursíðu 5d, Akureyri, þingl. eig- andi Hreinn Elliðason, föstud. 21. apríl '89, kl. 15.45. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóös og Veð- deild Landsbanka íslands. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaöurinn í Eyjafjarðarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Brekkugötu 33, mið-hæð, Akureyri, þingl. eigandi Svan Ingólfsson, föstud. 21. apríl '89, kl. 13.45. Uppoðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Benedikt Ólafsson hdl. Glerárgötu 32, hluti, Akureyri, þingl. eigandi Norðurfell hf. og Málning hf., föstud. 21. apríl '89, kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnlánasjóður, innheimtumaður rikissjóös, Brunabótafélag íslands, Kristján Ólafsson, hdl., Ólafur Gústafsson hrl. og Símon Ólafsson hdl. Goðabyggð 17, Akureyri, þingl. eig- andi Leifur Tómasson, föstud. 21. apríl '89, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Garðar Garðarsson hrl., Gunnar Sólnes hrl., Ólafur Gústafsson hrl. og Baldvin Hafsteinsson hdl. Grenilundi 15, Akureyri, þingl. eig- andi Haukur Adolfsson, föstud. 21. apríl '89, kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Hamarstíg 37, Akureyri, þingl. eig- andi Rósa Vilhjálmsdóttir, föstud. 21. apríl '89, kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Karlsbraut 21, Dalvík, þingl. eigandi Guðrún Benediktsdóttir, föstud. 21. apríl '89, kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er: Ólafur Sigurgeirsson hdl. Mímisvegi 17, Dalvík, þingl. eigandi Þorsteinn Aðalsteinsson, föstud. 21. apríl '89, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Sigriður Thorlacius hdl., innheimtu- maöur ríkissjóðs, Benedikt Ólafs- son hdl., Garðar Garðarsson hrl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Móasíðu 4f, Akureyri, þingl. eigandi Elspa Elísdóttir, föstud. 21. apríl '89, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Benedikt Ólafsson hdl, ÁsgeirThor- oddsen hdl. og Bæjarsjóður Akur- eyrar. Múlasíðu 1f, Akureyri, þingl. eigandi Pétur Pálmason, föstud. 21 apríl '89, kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru: Tryggingastofnun ríkisins og Bæjar- sjóður Akureyrar. Spítalavegi 1, viðb. og s-hl. aðalhl., þingl. eigandi Þórarinn Níelsson fl., föstud. 21. apríl '89, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Gunnar Sólnes hrl., Bæjarsjóður Akureyrar og Ásgeir Thoroddsen hdl. Þingvallastræti 32, þingl. eigandi Sigþrúður Siglaugsdóttir, föstud. 21. apríl '89, kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Skúli J. Pálmason hrl. og Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvik Sýslumaðurinn í Eyjafjaröarsýslu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.