Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 5

Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 5
Kirkjukór Akureyrarkirkju ásamt Birni Steinari Sólbergssyni stjórnanda. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.30. Mynd: EHB Kirkjulistavika: Kórtónleikar í Akureyrarkirkju - kirkjukórinn, einsöngvarar og einleikarar Kirkjulistavika var sett í guðs- þjónustu í Akureyrarkirkju sl. sunnudag. Þá var opnuð myndlistarsýning Kristínar G. Gunnlaugsdóttur í kapellunni og síðdegis hélt Kammer- hljómsveit Akureyrar vel heppnaða tónleika ásamt ein- leikara og einsöngvara. í kvöld kl. 20.30 verða kórtónleikar í Akurey rarkirkju. Flytjendur á kórtónleikunum verða Kirkjukór Akureyrar- kirkju, Margrét Bóasdóttir, sópran, Þuríður Baldursdóttir, alt, Dorota Manczyk, orgel, og Björn Steinar Sólbergsson sem leikur einleik á orgel og er jafn- framt stjórnandi. Björn Steinar Sólbergsson er fæddur á Akranesi árið 1961. Hann lauk stúdentsprófi af tón- listarbraut frá Fjölbrautaskólan- um á Akranesi og sama ár lauk hann 8. stigi í orgelleik frá Tón- listarskóla Þjóðkirkjunnar. Hann fór til framhaldsnáms í Róm einn vetur og var síðan fjóra vetur við Tónlistarháskólann í Rueil Malmaisson, fyrir utan París, og lauk þaðan einleikaraprófi í org- elleik í júni 1986. Hann tók við stöðu organista við Akureyrar- kirkju haustið 1986 og kennir jafnframt orgelleik við Tónlistar- skólann á Akureyri. Björn Stein- ar hefur haldið fjölda einleiks- tónleika í Frakklandi, á Ítalíu og íslandi. Auk þess hefur hann staðið fyrir öflugu tónlistarlífi við Akureyrarkirkju. Á efnisskrá kórtónleikanna í kvöld er rómantísk tónlist í önd- vegi. Flutt verða verk eftir Mcnd- elssohn, Elgar, Brams og Fauré og einnig þrjú sálmalög cftir akureyrsk tónskáld: Hve máttur Guðs er mikill - eftir Áskel Jónsson, Vertu Guö faðir, faðir minn - eftir Jakob Tryggvason og í kirkju - eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Að sögn Björns Steinars verð- ur leikið á litla orgelið niðri fyrir hlé og á stóra orgelið uppi á seinni hluta tónleikanna. SS Sauðárkrókur: Eigendur hjólaþvottastöðvarinnar tilbúnir í slaginn að hreinsa BMX-hjólið. Frá son og Örvar Jónsson. Jón Björns- Mynd: -hjh Þríi’ guttar stofna hjólaþvottastöð Fyrir skömmu tóku þrír guttar á Sauðárkróki sig til og stofn- uöu hjólaþvottastöð. Hjóla- þvottastöð er nokkuð sem ekki hefur verið til í fyrirtækja- skrám á Sauðárkróki og því er um nýmæli hér að ræða. Það voru þeir Örvar, ísak og Nonni sem stofnuðu fyrirtækið og ætla þeir sér stóra hluti í fram- tíðinni. Aðspurðir sögðu strákarnir að aðsókn í hjólaþvottinn fyrstu dagana hefði verið ágæt, en von- uðust til að hún myndi aukast með vorinu. Hjólaþvottastöðin er opin alla daga, frá kl. 16-18, í bílskúr að Fellstúni 15. Strákarn- ir bjóða upp á allsherjar þvott og eru með sérstakar græjur til að hreinsa felgur, þannig að hjólin frá þeim koma sem ný úr hreins- un. -bjb &8ÖÍ flHOB .Sí- UJDSbujÖÍTÍ Þriðjudagur 18. apríl 1989 - BUQAfl - Á - DAGUR - 5 Hunavaka 1989 hafin - Leikfélag Blönduóss frumsýnir „Svartfugl“ í kvöld Húnavaka 1989 hófst sl. laug- ardag og stendur fram á sunnu- daginn 23. apríl. Margt er til skemmtunar; dansleikir, leik- sýningar, bíósýningar, tónleik- ar, myndlistarsýning o.m.fl., og ættu Húnvetningar að finna eitthvað við sitt hæfi. Húna- vakan hófst með unglingadans- leik á laugardagskvöldið og á sunnudag voru tvær bíósýning- ar. I kvöld mun svo Leikfélag Blönduóss frumsýna leikritið „Svartfugl“, eftir Gunnar Gunnarsson í leikgerð Bríetar Héðinsdóttur. Leikstjóri er Hörður Torfason. Það er sem fyrr Ungntennasamband A.- Húnvetninga sem stendur að Húnavökunni. Þá mun í kvöld verða opnuð myndHstarsýning á Hótel Blönduósi með pastelmyndum Jóns Eiríkssonar frá Búrfelli í Miðfirði. Þetta er fyrsta einka- sýning Jóns og stcndur luin til mánudagsins 24. apríl. Annað kvöld, miövikudags- kvöld, verður Vökudraumur í Félagsheimilinu á Blönduósi, sem hefst meö borðhaldi. Veislu- stjórar vcrða Berghildur Valdi- marsdóttir og Guömundur Þór Ásmundsson, skólastjórahjón á Laugabakka. Ræöumaður kvölds- ins er hinn landskunni hagyröing- ur, Hákon Aðalsteinsson. Tón- listarkennarar frá Skagaströnd, þau Rosemary Angus og Julian Hewlett sjá um að flytja gestum ljúfa tónlist. Þá verður einnig tískusýning og síðast en ekki síst mun Jóhannes Kristjánsson eftir- herma og grínisti troða upp. Að loknum skemmtiatriðum og borðhaldi mun hljómsvcit Ingi- mars Eydal leika fyrir dansi fram eftir nóttu. Á sumardaginn fyrsta vcrður æskulýðsmessa í Blönduóskirkju kl. 11.00 og eftir hádegi, kl. 14.00, verður sumarskemmtun Grunnskóla Blönduóss. Þar verð- ur boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði. Áð þeim loknum er barnaball í boði USAH til kl. 18.00. Aö kveldi sumardagsins fyrsta verður gestaleiksýning í Félagsheimilinu, þar sem Leik- félag Sauðárkróks sýnir Sælu- vikuleikrit sitt „Allra meina bót", eftir Patrek og Pál, í leikstjórn Sigurgeirs Seheving. Á Hótel Blönduósi verða svo gömlu dans- arnir stignir síðar um kvöldið og fram á nótt við undirspil Þóris og félaga. Um miðnætti mun Drífa Kristjánsdóttir skemmta gestum með söng og gítarleik. Það er Gömludansaklúbburinn sem stendur fyrir þessari uppákomu. Á föstudag sýnir Leiktelag Blönduóss „Svartfugl" kl. 20.30 og að því loknu verður dansleik- ur, þar sem hljómsveitin Lexía leikur. Á laugardag eru fyrirhug- aðir tónleikar með Bubba Morth- ens og um kvöldið verður leik- sýning á „Svartfugli". Síðan fer fram lokadansleikur Húnavöku 1989 í Félagsheimilinu og það er hljómsveit Geirmundar Valtýs- sonar sem mun sjá til þess að Húnvetningar hreyfi sig á gólf- inu. Þá Húnavöku veröur formlega lokiö eftir ballið, verður boðið upp á tvær bíósýningar á sunnu- dag og um kvöldið verða tónleik- ar á Hótel Blönduósi með Herði Torfasyni trúbador, með meiru. Ekki verður sagt skilið við Húnavöku án þess að segja frá útkomu ritsins Húnavöku, sem nú kemur út í 29. sinn. Meðal efnis að þessu sinni eru viðtöl viö Þorbjörgu á Hæli og Höskuld Stefánsson. Einnig eru ljóð, frá- sagnir, greinar, fréttir o.m.fl. í blaðinu. -bjb Dýnur fyrír affa f öll rúm Latex dýnan er eina dýnan á markaðnum úr ekta náttúrugúmmíi. Svampdýnur - stífar og mjúkar. Eggjabakkadýnurnar vinsælu. Saumum yfir gömlu dýnurnar. Sendum í póstkröfu. VersliÖ viö fagmann. Svampur og Bólstrun Austursíða 2, sími 96-25137. 1 J Fjölmiðlanámskeið SUF Samband ungra framsóknarmanna og kjördæmis- samböndin efna til fjölmiðlanámskeiðs á Akureyri helgina 22.-23. apríl nk. ef næg þátttaka fæst. Leiðbeinandi er Helgi Pétursson frétta- maður. Efni námskeiðsins er tvíþætt: a) Áhrif fjölmiðla. b) Framkoma í sjónvarpi. Námskeiðið er öllum opið. Þátttaka tilkynnist til Sigfúsar Karlssonar (s. 96-23441), Braga V. Bergmann (s. 96-26668) eöa á skrifstofu Fram- sóknarflokksins í Reykjavík (s. 91-24480) fyrir 18. april nk. Ofangreindir aðilar veita allar nánari upplýsingar ef óskað er. SUF/KFNE.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.