Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 16
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR BifiiaOft Akureyri, þriðjudagur 18. aprfl 1989 Tunguheiði: Blárefslæða á yfír 80 km hraða - banað eftir mikinn eltingaleik á snjósleða Qk rFJARFESriNGARFÉlACID Ráðhústorgi 3, Akureyri „Hún hljóp svo skelfilega hratt skepnan, mikið hraðar en íslenski refurinn. Hún fór hiklaust í 80 og yfir það fyrstu þrjá kílómetrana, og það var ekki nokkur leið að hafa við henni á sleðanum,“ sagði Hall- dór Olgeirsson bóndi á Bjarna- stöðum í Öxarfirði, er hann lýsti eltingarlcik við blárefslæðu sem hann banaði á Tunguheiði sl. sunnudag. Halldór varð var viö læðuna er hann var á ferð á snjósleða á sunnudaginn. Hún var skammt frá hræi scm lagt hefur vcrið út til að hægt sé að liggja fyrir refum í skjólhýsi skammt frá. Halldór lenti í miklum eltirigarleik við læð- Aðalfundur Þormóðs ramma hf.: Fyrirtækið tapaði 163,7 millj. í fyrra - vilja breyta skuldum við ríkissjóð í hlutafé Aðalfundur Þormóðs ramma hf. í Siglufirði var haldinn um síðustu helgi. Stjórnar- mennirnir vilja láta brcyta skuldum fyrirtækisins við ríkis- sjóð í hlutafé. Einar Sveins- son, stjórnarformaður, segir að fyrirtækið hafi ekki getað greitt ríkissjóði neinar afborg- anir eða vexti af lánum á síð- asta ári en samkvæmt lánsfjár- lögum er fjármálaráöherra heimilað að semja við Þormóð ramma um ráöstafanir til að bæta fjárhag fyrirtækisins í samráði við fjárveitinganefnd Alþingis. Þormóður rammi hf. tapaði á síðasta ári 136,7 milljónum króna. Tapið á útgerð togaranna Stálvíkur, Sigluvíkur og Stapa- víkur nam 51,8 milljónum króna en tapið á fiskvinnslunni var 84,9 milljónir. Fjármagnskostnaður var 160 ntilljónir króna en var 26,2 milljónir 1987. Hér munar mest um áhrif lánskjaravísitölu til hækkunar á höfuðstól lána og hækkun vegna gengisntunar. Vaxtagjöld, verðbætur og gengis- munur voru samtals 261 milljón króna í fyrra en voru 111 milljón- ir 1987. Reiknaðar tekjur vegna verðlags- og gengisbreytinga voru 98 milljónir króna. Sant- bærileg tala 1987 var8() milljónir. Launakostnaður og launa- tengd gjöld árið 1988 var 215 milljónir króna, fyrir utan stjórn- unarkostnað. Starfsmenn voru 190 talsins mestallt árið. „Verulegt fjármagn hefur komið inn í fyrirtækið úr At- vinnutryggingasjóði og það hefur bætt eiginfjárstöðu þess mikið. En ég er ekki bjartsýnn á fram- tíöina því þessar ráðstafanir sem við erum að gera eru aðeins til bráðabirgða. Rekstrargrundvöll- inn vantar ennþá og því er ekkert tilefni til bjartsýni," ságði Einar. Ríkissjóður íslands á um 70% hlutafjár í Þormóði ramma, Siglufjarðarbær á 25% og aðrir aðilar 5%. EHB Kjarasamningur starfsmannafélaga bæjarstarfsmanna: Hækkanir á svipuðum nótum og hjá BSRB Undirritaö hefur verið sam- komulag um breytingar á gild- andi kjarasamningi milli launa- nefndar sveitarfélaga og starfs- mannafélaga bæjarstarfs- manna. Starfsmannafélög Akureyrarbæjar, Húsavíkur, Dalvíkur, Ölafsfjarðar og Sauðárkróks eru aðilar að samningnum sem er í megin dráttum eins og samningur BSRB og ríkisins sem gerður var á dögunum. Samningur starfsmannafélaganna gildir þó einum mánuði lengur en samn- ingur BSRB. Erlingur Aðalsteinsson for- maður viðræðunefndar starfs- mannafélaganna sagði að í raun hefði aðeins verið um endurskoð- un á launalið að ræða, þar sem fyrri samningur hefði ekki átt að renna út fyrr en 31. desember nk. Önnur ntál samningsins voru þó rædd og koma ný ákvæði nú inn í staðinn fyrir eldri sem falla út, t.d. um hækkanir og vísitöluviðmið- anir. Krónutöluhækkanirnar í apríl, september og nóvember eru þær sömu og hjá BSRB og þá fá starfsmannafélögin einnig 6500 króna orlofsuppbót 1. júní. Örlitlar breytingar voru gerðar á viðmiðunum þannig að í stað breytinga á röðun í launaflokka kemur 0,5% launahækkun I. júní. Þá hækkar persónuuppbót í desember verulega þar sem við- miðun hækkar um 7 launaflokka. Hækkaðar voru viðmiðanir tíma- kaups og vaktaálags til samræmis við ríkið. VG una og sá hvar hún smaug í byrgi sem hún hafði gert sér, gróf Hall- dór eftir læðunni og banaði henni með skóflu. Um hreinræktaða blárefslæðu er að ræða sem greinilega hefur sloppið úr búri, að sögn Halldórs. Læðan hafði verið merkt en merkið var fariö af. „Það vill enginn taka þetta á sig," sagði Halldór, aðspurður um hvaðan læðan gæti verið komin. Hann sagði að læðan hefði greini- lega lengi gengið laus og leiíar af rjúpu heföu fundist í byrgi hennar. Oddviti hefur tckið læð- una og verður hún send til rann- sóknar. Halldór sagðist hafa séð bláref tvívegis í göngum í haust, hefði það verið á svipuöum slóðum og hann vann læðuna og væri senni- lega um sama dýr að ræða. Blá- refslæðan niun hafa vcrið tekin saman við mórauðan, íslenskan ref. Mun vcra verulega slæmt að blárefir sleppi og nái að fjölga sér því þeir eru frjósamari en íslenski refurinn, stærri, fljótari að hlaupa og geta orðið hættu- legri og grimmari, að sögn Halldórs. IM Þeir voru ulls ekkert óánægðir með það þcssir ungu herranienn, að verða veðurtepptir í orlofshúsum á Illugastöðum í Fnjóskadal þar til í gær en þar dvöldu þeir mcð fjölskyldum sínuin um hclgina. Mynd: kk Norðausturland: Víða kolvitiaust veður - í áhlaupinu um helgina „Þetta er haröasta hrafnahret sem ég man eftir,“ sagði Svav- ar Jónsson hjá Vegagerð ríkis- ins á Húsavík í gær, aðspurður uni veðrið aðfaranótt sunnu- dagsins. Vegir tepptust eða urðu þungfærir víða í Suður- Þingeyjarsýslu í áhlaupinu, en í gær voru allir helstu vegir orðnir færir og mokað var austur á Vopnafjörð. Arshátíð Harmonikufélags Þingeyinga var haldin í Ljósvetn- ingabúð á laugardagskvöld og voru margir lengi á leið heim til sín eftir dansleikinn vegna veðurs og færðar. Einnig var ball á Húsavík og aðstoðaöi lögregla fólk við að komast heint. Leikritiö Fundur í hjónaballs- nefnd var frumsýnt í Skjólbrekku á laugardagskvöldið. Komst fæst af utansveitarfólki heint að lok- inni sýningunni og sneru þeir flestir við á Mývatnsheiði, sent ófær varð fólksbílum, og nutu gestrisni á bæjum í sveitinni fram á sunnudag, cr heiðin var rudd. Nokkrir ferðalangar urðu veður- tepptir á Illugastöðum í Fnjóska- dal fram á mánudag. Vegurinn í Kinninni var rudd- ur á sunnudag og á sunnudags- kvöld var Víkurskarð mokað vegna fiskflutninga að sunnan til Fiskiðjusantlags Húsavíkur. Að sögn lögreglunnar á Egils- stöðum var leiðindaveður á laug- ardag og lokuðust fjallvegir; Fjarðarheiði, Fagridalur og Breiðdalsheiði sem rétt var búið að ryðja. Hjálparsveit skáta á Egilsstöðum náði í tvo menn sem ekið höfðu bíl útaf á Vatns- skarði, mennina sakaði ekki og biðu þeir aðstoðar í bílnum. Ekki er vitað um nein óhöpp eða slys um helgina á Norðaust- urlandi, þótt talsvert margir yrðu veðurtepptir eða þyrftu að brjót- ast unt í ófærð og vitlausu veðri í nokkra tíma. IM Eigendur Sigló hf.: Voru tilbúnir með erlent íjármagn í reksturinn „Almenningur lætur sig mestu varða að þarna starfi traust og öflugt fyrirtæki sem geti staðið undir atvinnu og þjónustu- starfsemi á staðnuin. Gömlu eigendurnir voru búnir að undirbúa fjárhagslega endur- skipulagningu uin alllangt skeið og útvega fjármagn sem ennþá er til reiðu og nota má í þágu framtíðarstarfsemi,“ segir Guðmundur Arnaldsson, stjórnarformaður Sigluness hf. Guðmundur er ósáttur við umfjöllun ákveðinna fjölmiðla varðandi málefni Sigló hf og telur ásakanir á bæjarfógeta Siglu- fjarðar út í hött. Eigendur Sigló hafi gert Siglufjarðarbæ óformleg tilboð þar sem Marbakki o.l'l. myndu eiga meirihluta í fyrirtæk- inu á móti öðrum aðilum í bænum, gegn því að erlent áhættufjármagn yrði útvegað í reksturinn. Þessu hefði hvorki verið hafnað eða játað og dæmið endað með gjaldþroti Sigló, ekki síst vegna afskiptaleysis ríkisins. í máli Guðmundar kom fram að ekki væru neinar blikur á lofti varðandi „refsiaðgerðir" gagn- vart Siglunesi hf., hvorki frá hendi Siglufjarðarbæjar, Rafveitu Siglufjarðar eða annarra fyrir- tækja á staðnum. Áður hefur komið frarn í fréttum að svo mik- il ólga sé í bænum vegna gjald- þrotsins að nýja fyrirtækið, Siglu- nes, ntuni ekki fá fyrirgreiðslu eða viðskipti á staðnum. „Þetta er alveg úr lausu lofti gripið, allt slíkt hefur verið borið til baka. Miklu moldviðri hefur verið þyrlað upp til að sverta gömlu eigendurna," sagði Guðmundur. Velta félagsins 1988 var 288 milljónir kr., laun og launatengd gjöld voru 41 milljón kr., vaxta- gjöld og verðbætur 78 ntilljónir og tap vegna gengismunar 16 milljónir. Hagnaður af rekstri fyrir fjármagnskostnað, gjöld og skatta var 24,4 milljónir króna, eftir að fyrningar höfðu verið reiknaðar. Hráefniskaup voru 139 milljónir. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.