Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 18. -aprfM<989'»i DAGUR - 7 Vel heppnað Norðurlandamót - Finninn Pirkkio vakti mesta athygli - Haraldur bestur íslendinganna - Svíar stigahæstir Finninn Jaarli Pirkkio varrt stij>ahæsti keppandinn á niótinu og lyfti 342,5 kg í sainanlögrtu í 87,5 kg flokki. Þess niá gcta art sá árangur hefði nægt honum til art sigra í 90 kg. 100 kg og 110 kg flokki! Myndir: ai> 3. Tryggvi Heimiss.Isl '.82.5 97.5. IHtl.tl Norðurlandamótið í lyftingum var haldið í íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Bestum árangri á mótinu náði, hinn ótrúlegi lyftingamaður, Jaarli Pirkkio frá Finnlandi, en hann keppti í 82,5 kg flokki. Bestum árangri íslendinga náði Har- aldur Ólafsson frá Akureyri í sama þyngdarflokki og lenti hann þar í öðru sæti. I flokka- keppninni sigruðu Svíar nokk- uð örugglega. „Ég hef nú verið viðriðinn Norðurlandamót í næstum 50 ár og þetta er eitt best skipulagða mót sem haldið hefur verið," sagði Daninn Jörgen Moritzen, forseti Lyftingasambands Norðurlanda, eftir mótið. „Þau hafa stundum verið sterkari árangurslega séð, en fram- kvæmdin hefur sjaldan eða aldrei verið betri," bætti þessa gamla lyftingakempa við. Pessi orð forsetans eru að sjálf- sögðu rós í hnappagatið hjá Lyft- ingafclagi Akureyrar og LSÍ. Hins vegar mættu frekar fáir áhorfendur til að fylgjast með mótinu og er það synd því í mörgurn flokkum var keppnin hin skemmtilegasta. Einkum var það keppnin í 82,5 kg flokkinum með þá Harald og Pirkkio í fararbroddi sem vakti athygli. Pirkkio var reyndar í sér- flokki í þessari þyngd og var ótrúlegt að sjá þennan mann lyfta næstum þrefaldri sinni eigin lík- amsþyngd. Þess má geta aö Finn- inn hefði unnið 90 kg, 100 kg og 110 kg flokkinn með þessum árangri! Haraldur stóð vel fyrir sínu, sérstaklega þegar haft er í huga að hitinn og þunginn af fram- kvæmd mótsins var á lians herðum. Hann var ekki langt frá sínu besta og það nægði honum í annað sætið og var liann fjórði stigahæsti lyftingamaðurinn á mótinu og sá bcsti af ísiending- unum. Reyndar méiddist hann í síðustu lyftunni en þau meiðsli voru ekki eins alvarleg, eins og á horfðist. Það flísaðist úr beini og líklcgast eru einhver lið- bönd slitin. Þetta þýðir að Har- aldur verður aö taka því rólega næstu 6 vikurnar. Ungu piltarnir í hópnum, Snorri Arnaldsson og Tryggvi Heimisson, fengu dýrmæta reynslu á þessu móti og komust á pall í sínum þyngdarflokkum. Guðmundur Sigurðsson lætur ekki deigan síga þrátt fyrir að vera orðinn 43 ára gamall. Hann lyfti 295 kílóum og náði þriðja sætinu í 90 kg flokknum. Guðmundi Helgasyni mistókst ein lyfta og missti þar með af sigr- inum í sínum flokki til Danans Strömbo. Agnar Jónsson stóð fyrir sínu í 110 kg flokki og lenti þar í öðru sæti en reyndar voru einungis tveir keppendur í þeim flokki. Enginn íslendingur keppti í yfir- þungavigt cn þar var Svíinn Rick- ard Nilsson í sérflokki og vakti athygli fyrir skemmtilega tækni og keppnisskap. Þyngúarllokkur: 52.11 kg Sa-ti Nalit Land Snörun Jafnh. Samt. 1. T. Enarsson Svc 80.0 - 100,0 180.0 Þyngdarflokkur: 56,0 kg 1. EEidc Nor 70,(1 85.0 155.0 Þyngdarflokkur: 60,0 kg 1. T Rinnc Fin 105,(1 135.0 240.(1 2. T Carlscn Nor 80,(1 107.5 187.5 3. Snorri Arnaldss. Isl 57,5 72,5 130.0 Þvngdarflokkur: 67,5 kg 1. NLundquist Svc 120.(1 135.0 255,0 2. P Marstad Nor 105.0 130,0 235,0 hndarflokkur: 75,0 kg 1. K Olsen Svc 12571 155.0 280.0 2. N Jakobsen Dan 117,5, 150.0 267.5 3. BOIsen Nor 112.5', 135.0 247.5 Pyngdarllokkur: 82,5 kg 1. LPirkkio Fin 150,0 ',102.5 342.5 2. Haraldur Ólafss. Isl 135.0 172.5 307.5 3. A Rönning Nor 127.5 170.0 207.5 Þvngdarflokkur: 90,0 kg 1. P Wcndel Sve 142.5 170.0 312.5 2. RScolt Sve 132.5 167.5 3IKI.II 3. Guömundur Sig. lsl 130.0 165.0 295.0 hngdarflokkur: 100,0 kg 1. F Strömlvo Ðan 152.5 187.5 340.0 2. Guöm. Hdgas. W 145.0 187.5 332.5 3. 1! Rczaci Svc 145.0 185.(1 330.(1 Þvngdarllokkur: 110,11 kg 1. A Lindsjö Sve 150.0 180.0 3311,0 2. A Jónsson Isl 130.0 160.11 200.0 Þvngdarflnkkur: + lltl kg 1. RNilson Sve 170.0 2UI.II 370.0 2. S Örebro Nor 162.5 100,0 352.5 3. L Rinse Sve 150.0 175.0 325.0 „Ætla að snúa mér að þjáMin‘ - segir Haraldur Ólafsson Haraldur Ólafsson lyftinga- kappi stóð í ströngu á meðan á mótinu stóð, bæði í skipulagn- ingunni og svo í keppninni sjálfri. Haraldur varð fyrir meiðslum í keppninni og héldu menn í byrjun að hann hefði brotnað en sem betur fer hafði einungis ilísast úr beini og verður hann því frá æfingum næstu sex vikur. . „Það er ekki hægt annað en að vera ánægður með þetta mót,“ sagði Haraldur. „Að vísu hefðu fleiri áhorfendur mátt láta sjá sig en skipulagningin fór vel fram og ég er einnig ánægður með eigin árangur," bætti hann við. Haraldur ætlar nú að draga úr æfingum og einbeita sér að upp- byggingu lyftingaíþróttarinnar á Akureyri. „Ég var búinn að lofa sjálfum mér og fjölskyldunni að þetta yrði síðasta mótið sem ég tæki þátt í af fullri alvöru og ætla að standa við það. Nú legg ég krafta mína í það að skapa lyft- ingaíþróttinni sess hér í bænum,“ sagði þessi kraftmikli lyftinga- maður. Jaarli Pirkkio. Haraldur datt illa er liann reyndi við íslandsmct í sanianlögðu og flísaðist úr beini. Byijaði að lyfta 9 ára gamail - Finninn Jaarli Pirkkio Finninn Jaarli Pirkkio vakti mikla athygli á þcssu Norður- landamóti. Hann cr bædi ótrúlcga sterkur lyffingamað- ur, einungis 21 árs gamall, og svo vakti keppnisskapið hjá honum kátínu hjá áhorfend- um. En hver er þessi framtíð- armaður Finna í lyftingum. „Ég er frá bæ í N-Finnlandi, nánar tiltekið í Lapplandi. Ég mætti á mína fyrstu lyftingaæF ingu níu ára gamall og má það rekja til þess að faðir minn æfði lyftingar og ég fór með honum í byrjun. Síðan hélt ég áfram að æfa og nú æfi ég sjö daga vikunnar, enda er það nauðsynlegt cf maður ætl- ar sér að ná árangri á heimsmæli- kvarða," sagði þessi geðugi keppnismaður. Finninn er mjög ánægöur með allar aðstæður hér fyrir norðan og segist ekki sjá eftir því að hafa komið hingað. „Akureyri er mjög fallegur bær og það er synd aö geta ekki verið hér örlítið lengur," sagöi hann. Pirkkio hefur slegið flcst met sem hægt er að slá í unglinga- flokki og hann er nú, þrátt fyrir ungan aldur, orðinn einn allra besti lyftingamaður í Evrópu í sínum þyngdarflokki. En hvað er framundan hjá þessum naut- sterka Finna? „Það er nú fyrst og fremst að Ijúka herþjónustunni og svo fer ég í skóla í haust til að læra tré- smíði. Kcppnislega séð hef ég sett markið á Ólympíuleikana í Barcelona 1992 þar stefni ég að því að komast á pall." - Er það gullið sem þú stefnir á? Nú brosti Finninn bara hálf- feimnislega og sagði eftir nokkra umhugsun. „Stefna ekki allir á toppinn? Við verðum bara að bíða og sjá til hvað gerist á Spáni eftir þrjú ár,“ sagði Jaarli Pirk- kio, helsta von Norðurlanda á lyftingasviðinu á næstu árum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.