Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 18.04.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 18. apríl 1989 Kaupfélag Skagfirðinga 100 ára Kaupfélag Skagfirðinga er 100 ára á þessu ári og verður afmælisins minnst nk. sunnu- dag, 23. apríl, sem er stofndag- ur félagsins. Sérstök hátíðar- dagskrá fer fram í íþróttahús- inu á Sauðárkróki og er búist við a.m.k. 500 gestum, en sér- Norðurland: Vegir tepptust í norðanáhlaupi - mokstur hófst strax á sunnudag Aðfaranótt sunnudags teppt- ust þjóðvegir víða á Norður- landi vegna snjókomu og skafrennings. Ekki er vitað til þess að áhlaupið hafi valdið teljandi vandræðum og þegar á sunnudag hófust vegagerðar- menn handa við snjóruðning. Gárungarnir sögðu að Holta- vörðuheiðin liefði verið rudd á sunnudaginn vegna þess að sam- gönguráðherra hefði þurlt að komast leiðar sinnar en hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri fengust þær upplýsingar að heim- ilt væri að flýta snjömokstri um einn dag ef sýnilegt væri að hann skilaði árangri daginn eftir. Á sunnudag var einnig rutt milli Akureyrar og Húsavíkur og frá Siglufirði til Akureyrar. I gærmorgun var vegurinn í Óiafs- fjarðarmúla enn ófær en vonir stöðu til að hann yröi opnaöur í gær. Þá var unnið viö snjómokst- ur á vegum austan Húsavíkur og allt til Vopnafjarðar. Þótt sumardagurinn fyrsti sc á næstu grösum sagðist vegact'tir- litsmaður sem Dagur hafði sam- band við í gær telja að full not yrðu fyrir snjóruðningstæki út þcnnan mánuð að minnsta kosti, enda allra veðra von á fjallveg- um. SS stakir boðsgestir eru 60. Afmælisnefnd, sem tók til starfa fyrir nær þrem árum, hefur undirbúið afmælið, ásamt fram- kvæmdastjóra hennar, Magnúsi Sigurjónssyni. í kringum afmælið verður mikil útgáfustarfsemi, jafnt á prenti sem filmu, og tíma- mótanna minnst á margan hátt. Magnús Sigurjónsson sagði, í samtali við Dag, að undirbúning- ur hefði gcngið mjög vel, en í mörg horn verið að líta. Það verður unnið fram á síðustu stundu, við að undirbúa hátíðina á sunnudag, og verður sérstökum palli komið upp í íþróttahúsinu vegna hennar. Nær allur laugar- dagurinn mun fara í þá vinnu. Nánar er sagt frá undirbúningi afmælisins og dagskráratriðum á hátíðinni á bls. 6 í blaðinu í dag. -bjb Slökkvilið Akureyrar við Sútunarverksmiöju Sainbandsins á sunnudags- kvöld. Sjön scni þessi vekur öhug hjá þeini seni muna stórbruna hjá Sam- bandsverksmiöjunum á sjöunda áratugnum. Mym.1: l.HB Skinnaverksmiðja Sambandsins á Akureyri: Bilun í brunaboða orsakaði slökkvibðsútkall Slökkvilið Akurcyrar var kall- að út á níunda tímanuin á sunnudagsvöld að Skinnaiðn- aði Sambandsins á Akureyri. Brunaboði í clsta hluta verk- smiðjunnar gal' til kynna að eldur væri laus en svo reyndist þó ekki vera. Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri. sagöi að útköll af þcssu tagi væru því iniöur of algeng, en í þessu tilviki hefði brunaboöinn bilað cða gefið falska viðvörun af einhverjum ástæðum. Sjálfvirki' brunaboðar væru viðkvæm tæki og þyrftu töluvert viöhald og eftirlit. Slökkviliðsstjóri benti á að hvert Þjóðhagsstofnun svarar vinnuveitendum: Launaútgjöld fara 450 millj. fram úr fjárlögum - komi hliðstæð hækkun og hjá BSRB á öll launaútgjöld ríkissjóðs Þjóðhagsstofnun segir að heildarlaunaútgjöld ríkissjóðs inuni hækka um 450 milljónir króna umfram það sem gert er ráð fyrir í fjárlögum 1989 ef hliðstæð hækkun og hjá BSRB gengur á öll launaútgjöld ríkis- sjóðs. Fjárlög 1989 gera ráð fyrir að heildarlaun verði 23,8 milljarðar króna sem er um 7% hækkun á launaútgjöldum frá síðasta ári. Þjóöhagsstofn- un segir að með hliðsjón af BSRB samningunum megi ætla að hækkunin verði um 9% milli ára og hcildar- launaútgjöld verði því 24,3 milljarðar króna, þrátt fyrir að tekið sé tillit til áforma um aðhald í launamálum. Framangreindar upplýsingar koma fram i svörum stofnunar- innar við spurningum vinnuveit- enda sem lagðar voru fram í framhaldi af kjarasamningum BSRB og ríkisins. Vinnuveitendur óskuðu eftir að Þjóðhagsstofnun legði mat á hversu mikið afuröaverð þyrfti aö hækka erlendis til að jafnvægi næðist í rekstri fiskvinnslu við óbreytt gengi krónunnar og hækkanir launa og tengdra liða skv. samningi BSRB. I svarinu kemur fram aö afar erfitt sé að tilgreina ákveðna hækkun fisk- verðs erlendis eða breytingu á gengi krónunnar sem leiddi til jafnvægis í rekstri fiskvinnslunn- ar. Það sé cinnig álitamál hvernig skilgreina eigi jafnvægi í rckstri fiskvinnslu. Þó bendir Þjóðhags- stofnun á að hækkun markaðs- verða botnfiskafurða um 1% leiði til afkomubata um tæpt prósentustig í frystingu og um hálft prósentustig í söltun, sem stafi af því aö hækkun saltfisk- verðs dregur úr greiðslum verð- bóta úr Verðjöfnunarsjóði fisk- iönaðarins. í þessu felist að 1% hækkun á markaðsverði leiði til þess að afkoma botnfiskvinnslu batni um 0,7% auk þess sem hægar gangi á eignir Verðjöfnun- arsjóðs. Þeirri spurningu hve rnikið fella þurfi gengið ef ekki komi til afuröaveröshækkana er- lendis svarar stofnunin á þann veg að 1% gengislækkun leiði til bata fiskvinnslunnar um tæplega þrjá fjórðu hluta úr prósenti og þá sé reiknað með hækkun erlendra aðfanga vegna gengis- lækkunar. í svörum Þjóðhagsstofnunar segir að veiöar og vinnsla séu nú reknar með 3% halla þrátt fyrir verðbætur á freðfisk og endur- greiöslur uppsafnaðs söluskatts. Án þessara greiðslna væri tapið nú 5'/:%. Sé litið framhjá þess- um grciðslum veröi tap veiða og vinnslu orðið 10% í lok nóvem- bermánaðar. miðaö við 9'/:% hækkun launa. JOH falskt útkall væri óneitanlega dýrt, en þó væri vitanlega dýrara að missa cignir í eldsvoða. - En eru fölsk útköll það algeng að réttlætanlegt væri aö senda t.d. einn eða tvo ntenn á litlum bíl til að kanna málin áður en til hefðbundins útkalls kemur? „Við höfum ekki mannskap til þess meðan við erum svona lið- fáir, við þurfunt hvort sem er aö kalla á mannskap til að standa klárir gagnvart sjúkraútköllum. Okkur er þröngur stakkur sniöinn," sagði hann. I útkallinu á sunnudagskvöld fóru tveir slökkvibílar að skinna- verksmiðjunni og var slökkvi- stöðin þá mannlaus í skamma stund, meðan varamenn voru á leiðinni þangað. Kerfið virkar þannig að við brunaúlkall fara allir vakthafandi slökkviliðsmenn á brunastað en varamenn eru kallaöir út áður. EHB Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla sl. laugardag: Hagnaður fyrir skatta varð 9,7 miDjónir króna - Leikfélagi Dalvíkur úthlutuð 1 milljón króna úr Menningarsjóði Sparisjóðsins Sparisjóður Svarfdæla koni út með 9,7 milljóna hagnaði á sl. ári. Inn í þessa tölu eru ekki Sauðárkrókur: Aukning í byggingu íbúðar- húsnæðis á síðasta ári - en mikill samdráttur í byggingu annars húsnæðis Þá varð flugstöðin fokheld í skýrslu byggingafulltrúa Sauðárkróks um störf bygg- ingancfndar og bygginga- framkvæmdir á Sauðárkróki 1988 kemur m.a. fram að lóða- úthlutanir á síðasta ári voru 9, sjö fyrir einbýlishús og tvær lóðir undir iðnaðarstarfsemi. Þá voru veitt 13 bygginga- leyfi á árinu, aðallega til Stjórnar verkamannabústaða á Sauðárkróki. í skýrslunni segir byggingafulltrúi að aukning hafí orðið á byggingu íbúðar- húsnæðis, ef mið er tekið af tveim næstliðnum árum, en verulegur samdráttur í bygg- ingu annars húsnæðis, s.s. iðn- aðarhúsnæðis. Af byggingaframkvæmdum ársins má nefna að hafin var bygging á þremur einbýlishúsum og átta íbúðum í raðhúsum, hafin var bygging tlugstöðvar á Alex- anderstlugvelli og byrjað á bygg- ingu heitra potta við Sundlaug Sauðárkróks, auk nokkurra smærri verka eins og gróðurskála við einbýlishús. Eitt einbýlishús varð fokhelt á síðasta ári og níu raðhúsaíbúöir urðu fokheldar. arinu. Það kernur fram í skýrslunni að undanfarin misseri hefurverið nóg framboð af byggingalóðum undir íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði, en í dag sé lítið fram- boð af lóðum undir einbýlishús og raðhús. Verið er að ganga frá deiliskipulagi fyrir suðurhluta Túnahverfis, sem gerir ráð fvrir 109 lóðum undir einbýlishús og lóðir fyrir 151 íbúð í fjölbýli. Reiknað er með að þetta svæði fullnægi lóðaeftirspurn næstu ára eftir íbúðarhúsnæði. -bjb teknir skattar en eftir skatta nam hagnaðurinn 5,3 milljón- iim króna. Heildarinnistæður á síöasta ári voru 314,1 milljón sem er 19% aukning frá fyrra ári. Varasjóður stóð í 60,2 milljónum og hækkaði um 30%. Þetta kom fram á aöal- fundi Sparisjóðsins sem hald- inn var sl. laugardag. Friörik Friöriksson. spari- sjóðsstjóri, segir að afkonia sjóðsins á síðasta ári hali verið vel viðunandi sem sjáist best á því eigið fé liafi hækkað um tæp 3()‘/o. Þá segir hann að 10 millj- óna hagnaður fyrir skatt verði að teljast góð útkoma. Sparisjóður Svarfdæla er nú ellefti stærsti sparisjóður landsins, miðað viö innistæöu. I landinu eru nú starfræktir 34 sparisjóðir. en flestir þeirra eru með litla veltu. sem sést best á því að 13 stærstu sjóðirnir eru með um cSS'/o af heildarinnistæöu sparisjóöanna. Að sögn Friðriks hefur Sparisjóður Svarfdæla þá sérstöðu að lána mest allra spari- sjóða í landinu til útgerðarfyrir- tækja í fotnú afurðalána. Þetta helgast fyrst og fremst af gtfur- lega mikilli og vaxandi \crkun skreiöar á Ítalíumarkað ;i Dab ík á undanförnum tveimur árum. Allt bendir til að þessi \erkun \erði meö alniesta móti í ár. end;i hefur Italíuskreiöin gefið mjög hátt \erð að undanförnu. Á aðalfundinum á laugardag \ar úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóösins. sem stofnaður var á 100 ára afmæli lians árið 19cS4. Til úthlutunar var 1.1 milljón króna. Samþykkt var að úthluta 1 milljón króna til Leikfélags Dal- víkur á 45 ára afmæli þess og 100 þúsund krónum til kaupa á vms- um kennslu- og leiðbeiningatækj- um við Heilsugæslustöðina á Dalvík. í stjórn Sparisjóðs Svarfdæla. eru Jóhann Antonsson. fyrir liönd Dalvíkurbæjar, Gunnar Jónsson, fyrir hönd Svarfaðar- dalshrepps og Baldvin Magnús- son, Guðríður Olafsdóttir og Óskar Jónsson kosin af ábyrgð- armönnum. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.