Dagur - 09.05.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 9. maí 1989
Rafeindafyrirtækið DNG:
Tæpar 2 milljónir í
hagnað á árinu 1988
Rafeindafyrirtækið DNG skil-
aði tæplega 2ja milljóna króna
hagnaði eftir arð og skatta á
árinu 1988. „Þetta er þolanleg
niðurstaða þegar haft er í huga
að staða í efnahagslífinu var
erfið á síðasta ári. Samdráttur
frá fyrra ári varð umtalsverð-
ur,“ sagði Kristján Eldjárn
Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri DNG. „Það varð
almennur samdráttur í þjóðfé-
laginu í fyrra og við urðum fyr-
ir því eins og allir aðrir.“
Samdráttur í veltu milli ára
nam 20%. Starfsmenn voru að
meðaltali 22 á síðasta ári en eru
nú 17. Launakostnaður árið 1988
var 33 milljónir króna.
Framleiðsla á færavindunni
nafntoguðu nam um 85% af
heildarframleiðslu fyrirtækisins.
Hin 15 prósentin deildust á ýmis
verkefni. Fram kom hjá Kristjáni
að eigið fé DNG væri um 62%.
Þetta er hátt hlutfall og kom
fyrirtækinu vel á síðasta ári. Ef
eigið fé hefði verið um 25%, sem
ekki er óalgengt hjá íslenskum
fyrirtækjum, hefði DNG, að sögn
Kristjáns, verið rekið með tapi á
síðasta ári.
Kristján segist sjá fyrir að 1989
verði erfitt ár fyrir rekstur DNG.
Samdráttur á innanlandsmarkaði
haldi áfram og því þurfi að leggja
frekari áherslu á útflutning. Á
undanförnum árum hefur verið
unnið mjög markvisst markaðs-
starf erlendis og segir Kristján að
það sé nú að skila sér. „Það er
rétt að okkar vara þykir dýr
erlendis en þrátt fyrir það stend-
ur hún mjög vel að vígi í sam-
keppni,“ segir Kristján. Útflutn-
ingur á færavindum DNG er um
15% af veltu fyrirtækisins. Þær
hafa farið til nágrannalandanna,
þar sem sjávarútvegurinn stendur
traustum fótum.
Að meðaltali eru framleiddar 3
færavindur hjá fyrirtækinu á dag.
Hver vinda kostar 139 þúsund
krónur. óþh
Glerárprestakall auglýst
laust til umsóknar
- nokkrir prestar hafa þegar spurst fyrir um embættið
Sóknarnefnd Glerárprestakalls
hefur ákveðid að auglýsa sókn-
arprestsembættið laust til
umsóknar. Halldór Jónsson,
sóknarnefndarmaður, segir að
auglýsingin muni birtast opin-
berlega á næstu dögum og
verði umsóknarfrestur einn
mánuður.
Þar sem sóknarnefndin hefur
ákveðið að auglýsa embættið
verður gangur mála sá að
umsækjendur senda biskups-
embættinu umsóknir sínar.
Biskup mun gefa hverjum og ein-
um umsækjenda ákveðna
umsögn um hæfni til starfans
o.s.frv. Þegar umsóknarfrestur
rennur út sendir biskup umsókn-
irnar með umsögnunum til sókn-
arnefndarinnar, sem hefur það
hlutverk að velja og hafna. Sókn-
arnefnd er ekki bundin af
umsögnum biskups og getur jafn-
vel hafnað öllum umsækjendum,
ef enginn þykir koma til greina.
Halldór taldi líklegt að sóknar-
nefndin fengi væntanlegar
umsóknir aftur frá biskupi um
eða fyrir miðjan júní og ætti ekki
að dragast Iengi að velja nýjan
sóknarprest úr því. „Ég hef ekki
ástæðu til að ætla annað en þetta
Fiskverkun Jóhannesar og Helga Dalvík:
Kaupir skreiðarhús
í landi Ytra-Holts
Fiskverkun Jóhannesar og
Helga á Dalvík hefur fest kaup
á 360 fermetra húsi í landi
Ytra-Holts í Svarfaðardal af
loðdýrabúinu Pólarpels. Að
sögn Helga Jakobssonar hefur
ekki verið formlega gengið frá
öllum samningum varðandi
kaup á húsinu en það hefur
samt sem áður verið afhent
nýjum eiganda.
Að sögn Helga er ætlunin að
nýta húsið fyrst og fremst til
pökkunar og geymslu á skreið.
Hann segir að tilfinnanlega hafi
vantað slíkt húsnæði og nefnt hús
í landi Ytra-Holts sé mjög hent-
ugt fyrir skreiðina.
Fiskverkun Jóhannesar og
Helga hengdi upp um 250 tonn í
Ítalíuskreið á þessu vori og er nú
þeirri verkun lokið að sinni.
Skreiðarhjallarnir eru einnig í
landi Ytra-Holts, norðan
Holtsár. Staðsetning geymslu-
hússins, sem Fiskverkun Jóhann-
esar og Helga hefur nú fest kaup
á, getur því ekki verið hentugri.
óþh
prestakall sé áhugavert, það er
tiltölulega stórt og mikið að gera
en þarna hefur líka farið fram
mikil uppbygging. Þar er mikið af
ungu fólki sem fer fjölgandi,“
sagði Halldór, og benti á að hann
teldi af þessum ástæðum og fleir-
um, t.d. varðandi áframhaldandi
uppbyggingu Glerárkirkju, að
sóknarprestsembættið myndi
ekki síst höfða til yngri presta
sem væru tilbúnir að takast á við
þessi verkefni og móta framhald-
ið.
Nokkrir prestar hafa haft sam-
band við sóknarnefndina og
spurst fyrir um brauðið. Halldór
vildi þó eðlilega ekki gefa upplýs-
ingar um hverjir það væru. Á
förnum vegi hafa þó nokkur nöfn
verið nefnd um hugsanlega
umsækjendur; t.d. sr. Jón Aðal-
stein Baldvinsson, sendiráðsprest-
ur í London, og Sr. Jón Bjarman,
sjúkrahúsprestur í Reykjavík. Sr.
Jón Bjarmann sagðist ekki hafa
hugleitt hvort hann sækti um á
Akureyri, „en það er aldrei að
vita hvort ég geri það“ eins og
hann komst að orði. EHB
Frá afhendingu sjálfvirka blóðþrýstingsmælisins á Sjúkrahúsi Húsavíkur.
F.v. Ingimar Hjáimarsson læknir, Ólafur Erlendsson framkvæmdastjóri
sjúkrahússins og Lionsmennirnir Jóhann Hauksson og Aðalgeir Jónasson.
Mynd: IM
Sjúkrahús Húsavíkur:
Vegleg gjöf frá Iions-
klúbbnum Náttfara
Lionsklúbburinn Náttfari
færöi Sjúkrahúsi Húsavíkur
myndarlega gjöf nýlega. Gjöf-
in er sjálfvirkur blóðþrýsti-
ingsmælir, ásamt fylgihlutum
og kostaði hann 330 þúsund
krónur m/söluskatti.
Jóhann Hauksson og Aðalgeir
Jónasson afhentu gjöfina fyrir
hönd klúbbsins. Klúbbfélagar
eru 17, til heimilis í Aðaldal og
Reykjadal. Sagði Jóhann í ávarpi
að líklega yrði þetta síðasta veg-
lega gjöfin sem sjúkrahúsinu
bærist frá klúbbnum, því tíu
félaganna mundu hætta störfum í
vor fyrir aldurs sakir og erfitt
hefði reynst að afla nýrra félaga.
Ólafur Erlendsson fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins
þakkaði gjöfina og sagði að hún
kæmi sér vel, hér væri um nýtt og
fullkomið tæki að ræða. Ólafur
sagði að sjúkrahúsið hefði hlotið
margar góðar gjafir frá líknar-
félögum og hvað tækjakaup af
þessu tagi varðaði lifði það að
mestu leyti á gjafafé. Sagði hann
leitt að heyra að Náttfari gæti
ekki haldið uppi eðlilegri starf-
semi vegna fólksfæðar.
Aðspurður um notagildi blóð-
þrýstingsmælisins sagði Ingimar
Hjálmarsson læknir hann vera
mjög til hagræðis til að fylgjast
með sjúklingum í bráðavakt. IM
18 milljónir til starfslauna listamanna:
67 lístamenn hlutu starfslaun
í fjárlögum 1988 eru til umráða
18 millj. kr. til starfslauna lista-
manna. 153 umsóknir bárust að
þessu sinni. 67 listamenn hlutu
starfslaun, 3 til 12 mánaða, 3 til 9
mánaða, 15 til 6 mánaða, 18 til 4
mánaða og 28 til 3 mánaða.
12 mánaða starfslaun:
Ása Ólafsdóttir, myndlistarmað-
ur; Karólína Eiríksdóttir,
tónskáld; Steingrímur Eyfjörð
Kristmundsson, myndlistarmað-
ur.
9 mánaða starfslaun:
Ásgeir Smári Einarsson, mynd-
listarmaður; Jón Axel Björnsson,
myndlistarmaður; Kjartan Óla-
son, myndlistarmaður.
6 mánaða starfslaun:
Andrés Sigurvinsson, leikari;
Auður Bjarnadóttir, listdansari;
Árni Ingólfsson, myndlistarmað-
ur; Bryndís Jónsdóttir, myndlist-
armaður; Daði Guðbjörnsson,
myndlistarmaður; Guðrún Auð-
unsdóttir, myndlistarmaður;
Halldór Ásgeirsson, myndlistar-
maður; Húbert Nói Jóhannsson,
myndlistarmaður; Ingibjörg Styr-
gerður Haraldsdóttir, myndlist-
armaður; Ingileif Thorlacius,
myndlistarmaður; Jónína
Guðnadóttir, myndlistarmaður;
Níels Hafstein Steinþórsson,
myndlistarmaður; Stefán Axel
Valdimarsson, myndlistarmaður;
Valgerður Bergsdóttir, myndlist-
armaður; Örn Þorsteinsson,
myndlistarmaður.
4 mánaða starfslaun:
Áskell Másson, tónskáld; Edda
Erlendsdóttir, tónlistarmaður;
Helga Egilsdóttir, myndlistar-
maður; Ingólfur Arnarsson,
myndlistarmaður; Jón Reykdal,
myndlistarmaður, Kristinn G.
Harðarson, myndlistarmaður;
Kristbergur Ó. Pétursson, mynd-
listarmaður; Lárus H. Grímsson,
tónskáld; Matthea Jónsdóttir,
myndlistarmaður; Pétur Jónas-
son, tónlistarmaður; Rut Ingólfs-
dóttir, tónlistarmaður; Sigurður
Eyþórsson, myndlistarmaður;
Sigurður Örlygsson, myndlistar-
maður; Steinunn Marteinsdóttir,
myndlistarmaður; Steinunn Þór-
arinsdóttir, myndlistarmaður;
Tryggvi M. Baldvinsson,
tónskáld; Tumi Magnússon,
myndlistarmaður; Þórður Hall,
myndlistarmaður.
3 mánaða starfslaun:
Arngunnur Ýr Gylfadóttir,
myndlistarmaður; Áshildur Har-
aldsdóttir, tónlistarmaður; Erla
B. Skúladóttir, leikari; Erla Þór-
arinsdóttir, myndlistarmaður;
Finnur Torfi Stefánsson,
tónskáld; Guðbergur Auðuns-
son, myndlistarmaður; Guðlaug
María Bjarnadóttir, leikari;
Guðmundur L. Friðfinnsson, rit-
höfundur; Guðmundur Halldórs-
son frá Bergsstöðum, rithöfund-
ur; Guðríður S. Sigurðardóttir,
tónlistarmaður; Guðrún
Marinósdóttir, myndlistarmaður;
Gunnar Björnsson, tónlistarmað-
ur; Hafdís Ólafsdóttir, myndlist-
armaður; Jón frá Pálmholti, rit-
höfundur; Margrét Þ. Jóelsdótt-
ir, myndlistarmaður; Margrét
Jónsdóttir, myndlistarmaður
Ólafur Ormsson, rithöfundur
Páll Eyjólfsson, tónlistarmaður
Pétur Magnússon, myndlistar
maður; Ríkharður Örn Pálsson,
tónskáld; Rúna Gísladóttir,
myndlistarmaður; Sigrún
Eldjárn, myndlistarmaður;
Sigurður Bragason, söngvari;
Sólveig Aðalsteinsdóttir, mynd-
listarmaður; Stefán S. Stefáns-
son, tónlistarmaður; Tryggvi
Ólafsson, myndlistarmaður; Val-
gerður Hauksdóttir, myndlistar-
maður; Örn Ingi, myndlistar-
maður.
í úthlutunarnefnd áttu sæti:
Arnór Benónýsson, Magnús
Þórðarson og Árni Gunnarsson.