Dagur - 09.05.1989, Síða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 9. maí 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRl'MANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Skoðanakarnianir og
stundarf}TÍrbrigði
Ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar um
fylgi stjórnmálaflokkanna, sem Félagsvísinda-
stofnun Háskóla íslands gerði fyrir Morgunblað-
ið og birt var um helgina, hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn bætt við sig verulegu fylgi frá síðustu al-
þingiskosningum og fengi tæplega 42% atkvæða
ef kosið yrði nú. Framsóknarflokkurinn, einn
stjórnarflokka, bætir við sig fylgi en bæði Al-
þýðubandalag og Alþýðuflokkur hafa talsvert
minna fylgi en í síðustu kosningum. Borgara-
flokkurinn virðist varla til lengur í hugum kjós-
enda en Kvennalistinn bætir örlitlu við sig frá því
í kosningum en heldur áfram að missa það fylgi
sem fyrri skoðanakannanir höfðu fært honum.
Þessar niðurstöður endurspegla vel það
ástand sem hér ríkir í efnahags- og atvinnumál-
um. Þeir óánægðu halla sér að stærsta stjórnar-
andstöðuflokknum, þótt sá vandi sem að steðjar
sé langt í frá heimatilbúinn í núverandi ríkis-
stjórn. Hún tók við mjög erfiðu búi eftir að ríkis-
stjórn Þorsteins Pálssonar hafði sprungið á
limminu. Sannast sagna var viðskilnaður þeirrar
stjórnar hrikalegur og meiri en svo að rétt yrði úr
kútnum á nokkrum mánuðum. Undirstöðuat-
vinnugreinarnar voru að þroti komnar og afleið-
ingar fáránlegrar efnahagsstjórnar undir forystu
Þorsteins eru enn að koma í ljós. Sjálfstæðis-
menn stóðu uppi ráðþrota gagnvart vandanum
og ríkisstjórnin dó drottni sínum. En kjósendur
eru fljótir að gleyma. Það sýna niðurstöður þess-
arar nýjustu skoðanakönnunar Félagsvísinda-
stofnunar. Ríkisstjórnin tapar fylgi en sá flokkur,
sem á mesta sök á vandanum, eykur fylgi sitt.
Það er gömul saga og ný að auðveldara er um
að tala en í að komast. Eftir að sjálfstæðismenn
lentu í stjórnarandstöðu virtust þeir skyndilega
hafa ráð undir rifi hverju og hafa verið iðnir við
að láta ljós sitt skína í fjölmiðlum. Þeir hafa
keppst við að lýsa vanþóknun sinni á ýmsum
þeim aðgerðum sem ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar hefur gripið til, til bjargar fram-
leiðslufyrirtækjum landsins. Nú vita þeir allt bet-
ur en aðrir og kunna ráð við hverjum vanda.
Spurningin er sú, hversu mikið mark kjósendur
taka á stjórnmálamönnum - þegar til lengri tíma
er litið — sem veigra sér við að bera ábyrgð þegar
þeir hafa til þess tækifæri en eru síðan ósparir á
að gagnrýna þá sem þora að takast á við hin
raunverulegu vandamál.
Ljóst er að sú mikla fylgisaukning Sjálfstæðis-
flokksins, sem fram kemur í skoðanakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar nú, er ekkert til að byggja
á. Hún er stundarfyrirbrigði eins og fylgisaukn-
ing Kvennalistans í öðrum skoðanakönnunum
nokkrum mánuðum fyrr. BB.
lesendahornið
Hvet alla til
að sjá Gretti
Ég var að lesa leikdóminn í Degi
um söngleikinn Gretti sem Leik-
félag Menntaskólans á Akureyri
er að sýna þessa dagana. Ég er
honum sammála um flest, þetta
er kraftmikil og skemmtileg
sýning.
En það er eitt sem ég er ekki
alveg sátt við og það er að leik-
dómarinn segir tvisvar að sýning-
in muni aðallega höfða til unga
fólksins. Ég held að fólk á öllum
aldri geti haft gaman af að horfa
á þennan fjöruga leik. Ég er
komin á ellilaun og brá mér í
leikhúsið með vinkonu minni,
sem er á svipuðum aldri, við
skemmtum okkur konunglega.
Það var ekki aðeins að okkur
þætti gaman heldur er líka ýmis-
legt í textanum sem vekur til
umhugsunar og bendir manni á
hvað margt er skoplegt í nútím-
anum, t.d. fjölmiðlafárið.
Bréfritari telur að fóik á öllum aldri geti haft gaman af söngleiknum Gretti.
Ég vil hvetja alla til að sjá
söngleikinn Gretti hjá hinum
hressu menntskælingum.
Leikhúsunnandi
Engin árskort seld
í HlíðarfjaJli
ívar Sigmundsson forstöðu-
maður Skíðastaða,
hafði samband vegna lesenda-
bréfs frá Bryndísi og sagði að
greinilega væri um misskilning
hjá henni að ræða. Hún talar um
fjölda manns sem keypt hafi
árskort í Fjallið, en árskort eru
ekki seld í Hlíðarfjalli. Þar eru
hins vegar seld vetrarkort sem
gilda frá nóvember til maí og eru
því runnin úr gildi núna. ívar
vildi jafnfram taka það fram, að
vissulega væri reiknað með tekj-
um af sölu vetrarkorta, en hann
nefndi aðeins fjölda seldra korta
í umræddri frétt til þess að undir-
strika hve aðsóknin er lítil. Á
venjulegum degi seljast að jafn-
aði mun fleiri dagkort.
- svar til Bryndísar
1 „Fjallinu“ eru seld vetrarkort sem gilda frá nóvember til maí, en ekki
árskort að sögn ívars.
Vegna lesendabréfs um „Willow“:
Furðuleg gagnrýni
Vegna lesendabréfs í Degi 3. maí
si. um kvikmyndina „Willow"
sem sýnd var í Borgarbíó, óska
forráðamenn bíósins eftir að
koma eftirfarandi á framfæri:
Stúlkan segir að í afgreiðslu
hafi hún fengið þær upplýsingar,
að myndin væri smellin gaman-
mynd, sem hún telur síðan að
ekki hafi verið.
Með vísan í auglýsingu kvik-
myndahúsa í Reykjavík sem sýna
myndina segir um hana: „Willow
ævintýramyndin rnikla, er nú
frumsýnd á íslandi. Þessi mynd
slær öllu við í tæknibrellum,
fjöri, spennu og gríni. Það eru
þeir kappar George Lucas og
Ron Howard sem gera þessa
stórkostlegu ævintýramynd. Hún
er nú frumsýnd víðs vegar um
Evrópu um jólin.“ Þessu til við-
bótar má bæta við, að myndin
fékk Óskarsverðlaun fyrir tækni-
brellur, var jólamynd í Bíóborg-
inni þar sem um 23 þúsund
manns sáu hana og um 1500 á
Akureyri. Þá hefur enginn kvart-
að undan myndinni til þessa og
þeir sem rætt hefur verið við eru
sammála um að hún hafi verið
virkilega góð.
Úrklippa úr lesendabréfi Astu Sveins sem birtist í blaðinu 3. maí sl.
Orðum Ástu Sveins. mótmælt:
„Willow“ hin besta skemmtun
Ásgeir Ingólfsson hringdi.
Ég vil mótmæla því sem Ásta
Sveins. í Innbænum sagði í les-
endahorni Dags 3. maí sl. varð-
andt kvíkmyndina „Willow“.
Þessi mynd er bæði fyndin og
spennandi og alveg peninganna
virði. Ég myndi segja að þessi
mynd sé í hópi þeirra betri sem
ég hef séð.