Dagur - 09.05.1989, Side 5
Þriðjudagur 9. maí 1989 - DAGUR - 5
Stjórn Kaupfélags Þingeyinga:
Egill endurkjörmn formaður
- Helga Valborg og Brynjar náðu kjöri
Breytingar urðu á stjórn Kaup-
félags Þingeyinga á aðalfundi
félagsins sl. fimmtudag. Egill
Olgeirsson, stórnarformaður
hafði lokið kjörtíma sínum en
var endurkjörinn. Jónas Egils-
son og Aðalbjörg Gunnlaugs-
dóttir gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs og í stað þeirra
voru kjörin þau Helga Valborg
Pétursdóttir, sem í þrjú ár hef-
ur verið varamaður í stjórn-
inni, og Brynjar Sigtryggsson.
Við fyrstu atkvæðagreiðslu um
þrjá aðalfulltrúa voru Egill og
Helga Valborg kjörin í stjórnina.
Brynjar, sem var með þriðju
hæstu atkvæðatölu, náði ekki
meirihluta atkvæða, svo kjósa
þurfti nrilli hans og fjórða
atkvæðahæsta manns, Arnar
Jóhannssonar. Náði Brynjar
kjöri með miklum mun á
atkvæðatölu.
í kjöri um tvo varafulltrúa var
Halldóra Jónsdóttir endurkjörin
við fyrstu atkvæðagreiðslu en
kjósa þurfti í annað sinn milli
tveggja næstu ma tna, Skarphéð-
ins Sigurðssonar og Arnar
Jóhannssonar, náði Skarphéðinn
kjöri með miklum mun.
Aðrir í stjórn Kaupfélags Þing-
eyinga eru: Ari Teitsson, Baldvin
Baldursson, Böðvar Jónsson og
Egill Gústafsson. Á aðalfundi
Starfsmannafélags KÞ, sem hald-
inn var nýlega, var Þorkell
Björnsson kjörinn fulltrúi
starfsmanna í stjórn KÞ. IM
Sjálfsbjörg á Akureyri:
Vemdaði viimustaðurinn
á í erfiðleikum
Aðalfundur Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra á Akureyri og
nágrenni, verður haldinn síðar
í þessum mánuði. Fundinum
hefur tvívegis verið frestað en
Snjæbjörn Þórðarson, formað-
ur félagsins, segir að ástæðan
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarstjórn hefur sam-
þykkt samkomulag um breyt-
ingar á gildandi kjarasamningi
milli Launanefndar sveitarfé-
laga og starfsmannafélaga
bæjarstarfsmanna, þar á rneðal
STAK. Samkomulagið var
undirritað í Hveragerði 13.
apríl sl. og gildir til 31. des-
ember 1989.
■ Bæjarráð hefur lagt til að
yfirverkfræðingi verði heimil-
að að panta götusóp af gerð-
inni Faun Ak 435 Lw en áætl-
að kaupverð er kr. 6.000.000.-.
■ Bæjarráð hefur einnig lagt
til að umhverfisstjóra verði
heimilað að panta bifreið til
afnota fyrir jarðeignir og dýra-
eftirlit. Áætlaö kaupverð er
kr. 1.000.000.-.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að veita Kraftlyftingafélagi
Akureyrar styrk að upphæð
kr. 50.000.-, vegna keppnis-
ferðar til Noregs 25. maí næst-
komandi.
■ Atvinnumálanefnd Akur-
eyrar skorar eindregið á stjórn
Húsnæðistofnunar ríkisins að
koma á fót þjónustuskrifstofu
á Akureyri hið allra fyrsta og
eigi síðar en í lok þessa árs.
Æskilegt er að slík skrifstofa
annist móttöku lánsbeiðna,
veiti upplýsingar um starfsemi
stofnunarinnar og sinni
almennri ráðgjöf til húsbyggj-
enda og kaupenda íbúðar-
húsnæðis.
■ Á fundi öldrunarráðs
nýlega færði Kventelagið
Framtíöin að gjöf kr.
700.000,- til kaupa á 7 sjúkra-
rúmum á nýju hjúkrunardeild
Hlíðar. Þá gaf Rauði Krossinn
kr. 300.000.-, einnig til kaupa
á sjúkrarúmum.
sé meðal annars sú að skýrari
línur verði að fást varðandi
framtíðarhorfur verndaða
vinnustaðarins og Ako-plasts.
í máli Snæbjarnar kom fram að
rekstur endurhæfingarstöðvar-
innar kom tiltölulega betur út í
fyrra en árið þar áður. Varðandi
aðra starfsemi segist hann ekki
sjá fram á annað en að umtals-
verð opinber aðstoð verði að
koma til vegna erfileika í rekstri
verndaða vinnustaðarins. Þá séu
fyrirsjáanlegir erfiðleikar vegna
reksturs Ako-pokans, samkeppni
hefði aukist á því sviði. Bæjarráð
Akureyrar mun taka viðskipti
bæjarins við Ako-plast til
umfjöllunar 18. þ.m. en bærinn
hefur sem kunnugt er keypt
plastpoka undir sorp frá fyrirtæki
Sjálfsbjargar um árabil.
Að sögn Snæbjarnar getur vel
farið svo að Ako - plast verði gert
að vernduðum vinnustað, a.m.k.
getur vel farið svo að það mál
verði rætt, jafnvel á næstunni.
„Fyrirtækið var keypt á góðum
kjörum á sínum tíma og við höf-
um trú á framtíð þess. Það hefur
hingað til verið rekið samhliða
öðrum rekstri hérna en vandinn
er sá að fjárhagsáætlanir hafa
ekki staðist, fyrst og fremst vegna
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra hefur skipað Pétur
Reimarsson framkvæmda-
stjóra Sæplasts á Dalvík, for-
mann stjórnar Iðntæknistofn-
unar íslands til næstu tveggja
ára. Ný stjórn stofnunarinnar
var skipuð fyrir nokkru og eru
fulltrúar allra tilnefningaraðila
nýir.
Þetta kemur fram í Púlsinuin,
nýjasta fréttabréfi Iðntæknistofn-
unar. I viðtali við Púlsinn, segir
Pétur m.a. að stjórnin hefði á
fundum sínum að undanförnu
verið að fjalla um starfs- og fjár-
hagsáætlun stofnunarinnar árið
1990 og hefði sérstakan áhuga á
að koma á laggirnar nýju verk-
efni sem tengi saman sjávarútveg
og iðnað. Markmið þessa verk-
efnis sem ætlað er að standi í tvö
opinberra aðgerða. Við stöndum
á ákveðnum tímamótum nú,“
sagði hann. EHB
Skoðun á smjör- og
smjörvasýnum:
Öll sýnin
reyndust
fyrsta flokks
- hjá þremur norð-
lenskum samlögum
Rannsóknarstofa Osta- og
smjörsölunnar skoðaði 1367
smjör- og smjörvasýni á árinu
1988 og taldi um 95% þeirra
fyrsta flokks. Er það heldur
betri árangur en náðist árið
áður.
Þetta kemur fram í Mjólkur-
fréttum, fréttafréfi Osta- og
smjörsölunnar og Samtaka afurða-
stöðva í mjóluriðnaði.
Hjá þremur samlögum reynd-
ust öll aðsend sýni fyrsta flokks,
hjá Mjólkursamlagi KEA á
Akureyri, Mjólkursamlagi KÞ á
Húsavík og Mjólkursamlagi
Skagfirðinga á Sauðárkróki.
ár, er að efla nýsköpun í iðnaði
og auka framleiðni í sjávar-
útvegi. Ætlunin er að verkefnið
snúi einkum að aukinni sjálf-
virkni og vinnuhagræðingu á til-
teknum sviðum fiskvinnslu.
Þá segir Pétur það einnig vera
sérstakt áhugamál sitt að auka
þjónustu Iðntæknistofnunar á
landsbyggðinni og gera fyrirtækj-
um auðveldara að leita til stofn-
unarinnar bæði fjárhagslega og á
annan hátt.
Aðrir í stjórn stofnunarinnar
eru: Davíð Lúðvíksson tilnefnd-
ur af Félagi ísl. iðnrekenda, Elías
Gunnarsson tilnefndur af Lands-
sambandi iðnaðarmanna, Hall-
dór Grönvold tilnefndur af
Landssambandi iðnverkafólks og
Örn Friðriksson tilnefndur af
Alþýðusambandi íslands.
Ný stjórn Iðntækistofnunar íslands:
Pétur Reimarsson
skipaður formaður
Videoleiga í fullum
rekstri til sölu
Upplýsingar í síma 22150 eftir kl. 16.00.
>+ .i' T
-J
vl/
Til sölu er grunnur
að þessu húsi við Aðalstræti á Akureyri.
Upplýsingar í síma 22006 á kvöldin.
AHar vörur seldar á
50% afslætti
Aðeins þessa viku
Verslunin
★ Fatnaður. ■^
★ Skartgripir. SrfÞUtTOg
★ Snyrtivörur.
Sunnuhlíð 12, sími 22484.
-----------------------------------------------------------------------\
AKUREYRARB/ER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 11. maí 1989 kl. 20-22 veröa
bæjarfulltrúarnir Áslaug Einarsdóttir og Sigríður
Stefánsdóttir til viötals á skrifstofu bæjarstjóra,
Geislagötu 9, 2. hæö.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Skrifstofa Alþingis
Staða forstöðumanns
tölvumála Alþingis er laus
til umsóknar
Starfssvið: Umsjón með tölvukerfi Alþingis, þróun
tölvuvæðingar og þjónustu viö notendur.
Tæki: Wang VS-7010 tölva (4 MB minni, 900 MB
diskrými) ásamt um 50 einmenningstölvum (Wang
og Macintosh), sem veriö er aö raðtengja.
Verkefni: Helstu verkefnin eru ritvinnsla, útgáfa
(WP+ ritvinnsla, prentsmiöjusamskipti og einka-
útgáfa) og vinnsla gagna starfsemi Alþingis (PACE
gagnagrunnur).
Umsóknarfresturinn ertil 15. maí n.k. og er æskilegt
aö umsækjandi gæti hafiö störf sem allra fyrst.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Alþingis, sími 11560.