Dagur - 09.05.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 9. maí 1989
Akureyri:
Kaupfélagsstjórahjónin kvödd
Sl. föstudagskvöld komu fulltrúar á aðalfundi Kaupfélags Eyfirðinga og stjórn félagsins saman á Hótel
KEA. Tilefnið var að kveðja formlega Val Arnþórsson fyrrverandi kaupfélagsstjóra og Sigríði Ólafs-
dóttur konu hans, en eins og kunnugt er hefur Valur látið af starfi kaupfélagsstjóra KEA og tekið við
starfi bankastjóra Landsbanka íslands. Fjölskyldan er því að flytja búferlum suður yfir heiðar eftir um
aldarfjórðungsstarf að samvinnumálum í eyfirskri byggð. Tæplega 300 manns voru saman komnir á
Hótel KEA á föstudagskvöldið til að kveðja Val og Sigríði. Mörg ávörp voru flutt, m.a. flutti Hjörtur
Þórarinsson á Tjörn í Svarfaðardal, fyrrverandi stjórnarformaður KEA, ræðu þar sem hann rakti kynni
sín af þeim hjónum í löngu samstarfi í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga. Hjörturfór mörgum fögrum orð-
um um kynni sín af þeim hjónum og þakkaði þeim afar farsæl störf í þágu Kaupfélags Eyfirðinga og
eyfirskra byggða. Jóhannes Sigvaldason, núverandi stjórnarformaður KEA, var veislustjóri í kveðju-
hófinu. Hann færði Vali og Sigríði málverk að gjöf frá Kaupfélaginu, en málverk þetta prýddi veggi
skrifstofu Vals til margra ára. Félagar úr Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri fluttu ljóð um Akureyri
og Eyjafjörð eftir ýmis valinkunn skáld og þeir Hörður Kristinsson, nemandi við Tónlistarskólann á
Akureyri og Waclaw Lazarz, kennari hans, léku nokkur lög á harmoníku. Fengu bæði þessi atriði afar
góðar viðtökur gesta. Undir lok samkomunnar flutti Valur Arnþórsson ræðu þar sem hann þakkaði
fyrir sig og konu sína og leit um öxl yfir farinn veg í starfi sínu hjá Kaupfélagi Eyfirðinga og
Samvinnuhreyfingunni.
Tæplega 300 manns voru saman komnir á Hótel KEA á föstudagskvöld til aö kveðja Val Arnþórsson og Sigríði
Ólafsdóttur.
/“/or ©r ekkert
hrafnajping...
...en hins vegar
erum við fús
að veita ÞÉR
góða þjónustu
Við bjóðum:
Tölvuprentun
Blaðaprentun
Tímaritaprentun
Bókaprentun
Bókband
Dagsprent
Strandgötu 3I • Akureyri ■ @ 96-24222
Jóhannes Sigvaldason, stjórnarformaður KEA afhenti þeim hjónum málverk
að gjöf frá Kaupfélaginu.
HOTLL
Félagar í Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri fluttu stórskemmtilega Ijóða-
dagskrá, sem sérstaklega var æfð af þessu tilefni.
Fyrrverandi og núverandi kaupfélagsstjórahjón. Sigríður Ólafsdóttir, Valur
Arnþórsson, Hrefna G. Torfadóttir og Magnús Gauti Gautason.
Svo sem sjá má var salurinn þétt setinn. Fremst á myndinn má m.a. sjá Þór-
arin Halldórsson, Gylfa Guðmarsson, Arnheiði Eyþórsdóttur og Jón Helga-
son. Myndir: BB.