Dagur - 09.05.1989, Blaðsíða 14

Dagur - 09.05.1989, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 9. maí 1989 Sundnámskeið fyrir 6 ára börn og eldri hefjast í Sundlaug Akureyrar 29. maí og 19. júní n.k. Innritun í síma 23260 Sumarbúðir kirkjunnar við Vestmannsvatn, Aðaldai bjóða unga sem gamla velkomna til dvalar f sumar. Fallegt umhverfi. Fjölbreytt dagskrá. Vant starfsfólk. Innritun og upplýsingar veittar í síma 96-24873 alla virka daga frá kl. 17.00-19.00. AliÍngi íslendinga Frá Alþingi íbúð fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar íbúö fræöimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaup- mannahöfn er laus til afnota tímabiliö 1. september 1989 til 31. ágúst 1990. Fræðimenn sem hyggjast stunda rannsóknir eöa vinna aö verkefnum í Kaup- mannahöfn geta sótt um afnotarétt af íbúðinni. í íbúöinni eru fimm herbergi og fylgir þeim allur nauö- synlegasti heimilisbúnaður. Flún er látin í té endur- gjaldslaust. Dvalartími í íbúðinni skal eigi vera skemmri en 3 mánuðir en lengstur 12 mánuöir, en venjulega hefur henni veriö ráðstafað til þriggja mánaöa í senn. Umsóknir um íbúöina skulu hafa borist til skrifstofu Alþingis eigi síöar en 30. júní n.k. Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöi sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi óskaö er eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð umsækjanda. Tekið skal fram aö hússtjórn ætlast til aö dvalargestir nýti úthlutaöan tíma sinn aö fullu viö störf í Kaupmannahöfn. Sérstök eyöublöð er hægt aö fá á skrifstofu Alþingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráöinu í Kaupmannahöfn. Völd kvenna Við konur þurfum meir en nokkru sinni stuðning hver frá annarri. Um leið geta einmitt tengslin við vinkonuna hindrað okkur. Vinskapur miili kvenna er öðru vísi en milli karla. Stundum eru tengslin við bestu vinkonuna mikilvægari en sambandið við makann. Kona 9. áratugarins hefur meira valfrelsi en nokkru sinni áður. En þetta valfrelsi getur líka verið harðstjóri. Við erum að leita að jafnrétti og sjálfstæði en það liggur ekkert í augum uppi hvernig við eigum að ná þeim markmiðum. Meir en nokkru sinni áður þurfum við stuðning annarra kvenna - en samtímis geta einmitt tengslin við vinkon- ur okkar verið hindrun í vegi okkar. Konur mynda sterk tengsl sín í milli. Stundum eru tengslin við bestu vinkonuna mikilvægari en sambandið við makann. Konur hafa oft náin samskipti sín í milli og sterka þörf fyrir nærveru og væntumþykju í sambandinu við vinkonurnar. Að skilja við góða vinkonu getur verið jafn sárs- aukafullt og aðskilnaður frá karl- manni. Þörfin fyrir náin tengsl og trún- að hefur ekki bara áhrif á okkur í einkalífinu heldur líka í atvinnu- lífinu. Kona í stjórnunarstarfi gerir aðrar kröfur en karlmaður í sama starfi, bæði til sjálfrar sín og starfsmanna sinna. Hæfileikar kvenna til skilnings og samkenndar eru ekki alltaf af hinu góða. Þessir hæfileikar gefa líka færi á að notfæra sér veikar hliðar annarra. Freud sagði eitt sinn að vanda- málið í samskiptum kvenna væri afleiðing af örðugleikunum í samskiptum móður og dóttur. í bók sinni um vináttu kvenna og vald þeirra hver yfir annarri (Kvinnors makt över kvinnor) leggur höfundurinn Eva Margo- lies út frá þessari staðhæfingu Freuds. Hún vinnur áfram með þessa kenningu með því að beina hugsuninni að aðskilnaði drengja frá mæðrum sínum, sem er öðru- vísi en aðskilnaður dætra frá mæðrum sínum - að það sé ástæð- an fyrir því að vináttutengsl eru ólík hjá konum og körlum. Þörf okkar fyrir vináttu birtist einfald- lega í mismunandi myndum. Vegna þess að við konur erum bundnar mæðrum okkar snúum við okkur oft til kvenna til að fá viðurkenningu - og það getur þýtt endalok tilverunnar að vera hafnað af bestu vinkonunni! Pað að konur eiga svo erfitt með að ná árangri stafar fyrst og fremst af óleystri innri baráttu sem hefur með samskiptin við móðurina að gera - en ekki vegna þess að karlar leggi hindr- anir í leið kvenna, skrifar Eva Margolies. Pað er að einfalda málið um of að skella skuldinni á karlmennina. Togstreitan verður til á þann hátt að um leið og við þurfum að yfirgefa mæður okkar, þ.e. að rjúfa móðurbindinguna sem myndast milli nýfædds barns og móður, verðum við að líkjast móðurinni til að geta talist „kvenlegar“. Öll börn tengjast móður sinni sterkum böndum í upphafi en fyrr eða síðar rofna þau bönd. Fyrir strákum er það ljóst frá upphafi að þeir eru ólíkir mæðr- um sínum. Strákurinn fær annað viðmót en systur hans og hann sér, ekki síst á eigin líkama, að hann er af öðrum toga. Og jafn- vel þótt það geti verið sárt að rjúfa tengslin við móðurina, þá er það bara um stundarsakir - þegar hann verður stór og giftir sig fær hann staðgengil fyrir móðurina. Fyrir stelpur er þessu öfugt farið. Um leið og ætlast er til að þær losi sig frá mæðrum sínum eiga þær að líkjast þeim. Það sem oft gerir þessar aðstæður flóknar er sú staðreynd að margar mæður eiga erfitt með að sleppa takinu af dætrum sínum. Hversu ná- ■tengd sem móðirin er syninum, gerir líffræðilegi mismunurinn það að verkum að hann er frá upphafi fjarlægari henni en dótt- irin. Dóttirin er hennar eigin eftirmynd. Af þessu leiðir að þegar dóttir- in vill slíta sig frá móðurinni lítur það oft út sem höfnun. Öll merki um að dóttirin vilji vera öðruvísi en móðirin má túlka þannig: „Ef þú ferð frá mér hlýtur það að þýða að þú vilt ekki líkjast mér og hvernig gæti þér þá þótt vænt um mig?“ Pað er hræðslan við að verða hafnað, að missa ást barns- ins síns sem gerir það að verkum að margar mæður, meðvitað eða ómeðvitað, reyna að hindra dæt- ur sínar í því að verða sjálfstæðir einstaklingar. Dóttirin hefur að sínu leyti þörf fyrir náið samband við móð- ur sína, en vill um leið sleppa henni. Hún vill vera óháð henni en þarf samtímis að eiga ást hennar vísa. Pað er þessi togstreita sem iðu- lega er á kreiki í samskiptum okkar við aðrar konur. Strákar eru venjulega farnir að losa sig frá mæðrum sínum við 9- 10 ára aldur en stelpa á þeim aldri er félagslega jafn bundin móður sinni og hún var á öðru aldursári. Fyrstu árin í skólanum er mikilvægast af öllu fyrir flestar litlar stelpur að eiga vinkonu. Sá litli heimur sem byggist upp í kringum vináttu tveggja stelpna á þessum aldri er sterkur og gerir tilveruna fyrir utan óþarfa, ekki síst heim hinna fullorðnu. Skipst er á leyndarmálum og ALLT á að vera sameiginlegt. Petta samband er eftirlíking af móðurbindingunni, að vera algerlega háð, að renna saman við aðra manneskju - en hættu- TÖLURNAR ÞÍNAR? ÞAR KOM AÐ ÞVÍ! Þetta eru tölurnar sem upp komu 6. maí 1989. Heildarvinningsupphæö var kr. 9.215.180,- 1. vinningur var kr. 5.470.648.- Tveir þátttakendur voru með fimm tölur réttar og fær hvor þeirra kr. 2.735.324,- Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 555.690,- Skiptist á 5 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 111.138,- Fjórar tölur réttar, kr. 958.392,- skiptast á 204 vinningshafa, kr. 4.698,- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 2.230.450,- skiptast á 7.195 vinningshafa, kr. 310,- á mann. Sölustaðir eru opnir frá mánud. til laugard. og er lokað 15 min. fyrir útdrátt. Sími6851 11. Upplýsingasímsvari 681511. lausari. Það er á þessum árum sem stelpur fara að byggja upp hæfi- Ieika til að mynda félagsleg tengsl og lifa sig inn í tilfinningar ann- arra. Það eru góðir eiginleikar - en ekki bara góðir. Hæfileikinn til innlifunar og skilnings gefur líka færi á að finna og skaða við- kvæmustu tilfinningar annarrar manneskju. Stelpur sækjast eftir að eiga „bestu vinkonu“ en eru samtímis hræddar við einmitt bindinguna og of náin tengsl, þess vegna geta tilraunir þeirra til að afla sér vin- áttu, trúnaðar og öryggis oft end- að með harðri baráttu þar sem sú sterkasta sigrar. Að yfirgefa bestu vinkonuna vegna annarrar, að hafna vináttu annarrar stelpu getur verið vörn gegn bindingu sem virðist ógnandi. Kannski er hægt að sjá sama munstur hjá fullorðnum konum. Það er oft sagt að strákar eigi auðveldara með að keppa hver við annan en stelpur, og að það sé vegna félagslegrar þjálfunar og hugsanlega líffræðilegs mismun- ar. En, segir Eva Morgolies, rök sem mæla gegn því eru þau að kannanir hafa sýnt að stelpur eiga mun auðveldara með að keppa á móti strákum en hver gegn annarri. Ástæðan fyrir því að stelpur eiga erfitt með að fá útrás fyrir keppnisandann í íþróttum er m.a. sú að ef stelpa reiðist við aðra stelpu upplifir hún á táknrænan hátt að hún beini reiði sinni að móður sinni og sjálfri sér um leið. í þessari flækju felst að hluta til skýringin á þvf hve konur eiga erfitt með að vera í samkeppni við aðrar konur. Það er sameiginlegt með mörg- um konum sem hafa átt vel- gengni að fagna í atvinnulífinu að þær hafa átt föður sem hefur stutt þær og orðið fyrirmynd þeirra og móður sem hefur leyft það. Á táningaaldrinum gerist tvennt. Stelpur fara að hópa sig saman og og þær fara að vera með strákum. Enn eru vinkonu- tengslin sterk. Á þessum árum getur kærasti ekki keppt við vin- konu um trúnað og ást. Kvensál- fræðingur nokkur hefur orðað þetta þannig að stelpur séu í leyni- makki - eins konar þykjustuleik sem heitir „strákar skipta mestu máli“. Það að eiga kærasta á þessum aldri er nefnilega líka aðferð til að afla sér aðdáunar og vinsælda hjá öðrum stelpum . . . Þörfin fyrir náin tengsl ásamt hræðslunni við að verða hafnað er ástæðan fyrir því að álit ann- arra kvenna á okkur skiptir okk- ur miklu máli alla ævi. Eva Margolies fullyrðir að konur geri sig fallegar að lang mestu leyti hver fyrir aðra, miklu fremur en fyrir karlmenn! Allar kannanir varðandi fegrun sýna að karl- menn eru lítt hrifnir af máluðum konum. Við málum okkur þess vegna til þess að hljóta aðdáun annarra kvenna. Eva Morgolies segir að það sé mikilvægt að við Iærum að viður- kenna okkar sterku tilfinninga- legu bindingu við aðrar stelpur og megum ekki afneita því að þau geti verið jafnsterk eða sterkari en tilfinningaleg sam- bönd okkar við karlmenn. Togstreitan milli þarfarinnar fyrir móðurlega umhyggju, vin- áttu annarra kvenna og löngunar- innar til að vera óháður einstakl- ingur kemur kannski greinilegast fram í atvinnulífinu. Karlmenn einbeita sér fyrst og fremst að vandamálum sem tengjast sjálfu starfinu. Konur hafa þar fyrir utan áhyggjur af vandamálum eins og: Hollustu gegn faglegum stjónarmiðum, öfund, hlutverka-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.