Dagur - 27.05.1989, Blaðsíða 1

Dagur - 27.05.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 27. maí 1989 98. tölublað TEKJUBREF KJARABRÉF FJARMAL PtN SÉRGREI N OKKAR TjARFESTlNGARFELAGIÐ, Ráðhústorgi 3, Akureyri Ilundur réð- ist á mann Síðastliðið fímmtudagskvöld réðist hundur á mann á Akur- eyri og beit hann. Maðurinn kærði atburðinn til lögreglunn- ar. Hann mun hafa hlotið ein- hverja áverka, en málið var ekki fullkannað þegar við höfðum samband við lögregl- una í gær. Á fimmtudag og aðfaranótt föstudags urðu nokkur umferðar- óhöpp á Akureyri og nágrenni, árekstrar og ein bílvelta, en eng- in slys urðu á fólki í þessum óhöppum. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri voru nokkrir ökumenn tekn- ir fyrir of hraðan akstur og einn var stöðvaður grunaður um ölvun við akstur. Þá hafa kærur borist vegna óleyfilegrar hámarks- þyngdar bíla, en þungatamarkan- ir gilda nú víða á vegum. SS Hundalíf! Sjá nánar bls. 5. Mynd: KL Fiskmiðlun Norðurlands hf. á Dalvík: Dreifir kyraiingarbæklingi á Bella Center 6.-10. júní Fiskmiðlun Norðurlands hf. á Dalvík vinnur nú að gerð kynningarbæklings um fyrir- tækið og segir Hilmar Daníels- son að tilgangur með honum sé að kynna Fiskmiðlunina hf. og reka áróður fyrir norðlenskri framleiðslu. I bæklingnum verða nöfn og heimilisföng þeirra 24 fyrirtækja sem Fisk- miðlunin vinnur fyrir. Bækl- ingnum verður m.a. dreift á sjávarútvegssýningu í Bella Center í Kaupmannahöfn dag- ana 6.-10. júní nk. „Síðan höf- um við hugsað okkur að senda bæklinginn t.d. í sendiráðin úti og á staði þar sem menn eru á ferðinni,“ segir Hilmar. Hilmar segir að í bæklingnum verði ekki aðeins rekinn áróður fyrir norðlenskri skreið, vörur eins og ferskur og reyktur lax, rækja og lagmeti verði einnig kynntar. „Þetta er fyrsta skrefið í því sem við ætlum okkur að gera í framtíðinni, þ.e. að stunda öflugan útflutning milliliðalaust frá Norðurlandi," segir Hilmar. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Fiskmiðlun Norðurlands hf. gert samning við 20 skreiðarframleiðendur frá Skagaströnd til Bakkafjarðar um sölu á skreiðarframleiðslu þeirra. Fiskmiðlunin er búin að ganga frá samningum um sölu Ítalíu- og Nígeríuskreiðar og segist Hilmar vænta þess að í júnímánuði fari fyrsta skreiðarsendingin til Níg- eríu. Síðar sendir Fiskmiðlunin skreið til Ítalíu í gegnum ítalska umboðsfyrirtækið Alimport SRL. óþh Frjósemi í Bárðardalnum: Ein flórlembd og níu ær þrflembdar „Sauöburður gengur hér vel og ég hef ekki heyrt annað en að hann hafí almennt gengið vel á þessu svæði,“ sagði Héðinn Höskuldsson, bóndi á Bólstað í Bárðardal í saintali við Dag. Hann sagði að sauðburöi lyki almennt um mánaðamótin. Á Bólstað eru nálægt 290 ær og gemlingar sem bera. Frjósemi hefur verið mikil, á bilinu 80- 90% ánna tvílembdar. Þá hafa 9 ær borið þrcmur lömbum og ein var fjórlembd. Héðinn sagði þetta heldur óalgengt og ekki hefði áður komið fyrir í hans búskap að ær bæri fjórum lömbum. Hann sagðist hafa tekið tvö lömb frá fjórlembunni og vanið undir einlembur. Að sögn Héðins gekk mjög vel að venja undir. „Þetta lærist eins og annað,“ bætti hann við.“ óþh Menntaskólinn á Akureyri: Kappkostað að ljúka áföngran á skólaárinu - með prófum og fullgildu námsmati I Menntaskólanum á Akureyri hefur verið ákveðið hvernig nemendur skuli Ijúka náms- áföngum og var próftafla birt sl. fímmtudag. Niðurstöðurnar eru í megindráttum hliðstæðar þeim áætlunum sem skóla- meistari setti fram skömmu áður en samningar tókust í kjaradeiidu háskólamanna og ríkisins, en í einhverjum tilvik- um mun námsmat koma í stað prófa. „Nemendum er gefinn kostur á að ljúka öllum áföngum í vor, og þó nokkrir ætla að gera það, en að öðrum kosti taka þeir próf í lok september. I flestum tilfellum verður þessu lokið með venju- legu annarprófi en í nokkrum áföngum verður hægt að gefa nemendum mat á grundvelli verkefna og þeirrar vinnu sem fer fram núna. í nokkrum fögum voru tekin stöðupróf í vikunni eftir páska og verða þau látin gilda fyrir þann hluta áfangans en seinni hlutanum verður lokið með prófi núna,“ sagði Jóhann Sigurjónsson skólameistari. Hann sagði að í þeim fögum sem lokið yrði með mati fengju nemendur fullgildar matseink- unnir, ekki einhverja uppáskrift um það að þeir hefðu staðist við- komandi áfanga. Hann sagði ennfremur að það væru ekki að- eins tilvonandi stúdentar sem kappkostuðu að ljúka áföngum fyrir 17. júní heldur nemendur í neðri bekkjum einnig, en þó vildu sumir geyma einstaka fög til haustsins. „Við höfum rýmri tíma en aðr- ir skólar og nemendur fá nú hálfsmánaðarkennslu á öidungar- deildarhraða, enda er verið að kenna fram á rauða nótt í sumum áföngum. Kennarar leggja sig alla fram til að láta þá klára sem það geta og það er einnig fullur vilji hjá nemendum að gera sem best úr málunum. Hér hefur ekki verið nein uppsteyt, eins og víða hefur verið,“ sagði Jóhann. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.