Dagur - 27.05.1989, Page 11

Dagur - 27.05.1989, Page 11
Laugardagur 27; maí 1989 - PAGUB - 11 í kýrhausnum — gamansögur, sannar og uppdiktaðar I Degi 14. janúar 1959 er birtur kafli úr grein Sigríðar Thorla- cius í Tímanum, þar sem hún lýsir tískusýningu í París. Kemst hún vægast sagt skemmtilega að orði og skul- um við grípa niður í nokkur atriði. „Nei, jafnvel í París er þetta of langt gengið. Tveir vinnuklæddir menn báru eitthvað laumulega fram með húsvegg. Vindur lyfti klæði af byrðinni og nakinn kven- mannsfótur kom í ljós. Var það furða, þó að eg hrykki við? En mér létti aftur þegar eg sá að þetta var sýningarbrúða. Og svo er hálftíminn liðinn. Eg geng spölkorn í áttina til Signu, kem að virðulegu Ijósgráu húsi og fylgist með straumi af pelsklædd- um konum inn úr dyrunum. Þar veifa eg öllum handbærum sönnunargögnum um það, að eg sé blaðamaður og brátt kemur til mín sléttfríður, ungur maður, sem reyndist vera Norðmaður, leiðir mig til sætis í fremstu stóla- röð í salarhorni, afhendir mér heilmikið skilríki um það hverju konur eigi að klæðast næsta misseri, en framan á blöðunum er teikning, líkust spenntum boga með ör, en að vísu vantar strenginn. Við lestur kemur í ljós, að þarna er upplýstur leynd- ardómur leyndardómanna, svona eiga konurnar að vera í laginu - með boglínu yfir höfuð og axlir og svo eitt beint strik þar fyrir neðan! Grindhoraðar sýningarstúlkur Og brátt er hver stóll setinn að heita má og sýningarstúlkur skeiða hver á eftir annarri um sal- ina, en sölukonur standa við dyrastafi og kalla upp nöfn og númer á flíkunum, sem sýndar eru. I fyrstu gleymdi eg alveg að taka eftir fötunum, fas og útlit sýningarstúlknanna var svo furðulegt. Allar áttu þær það sameiginlegt, að vera grindhor- Leiðrétting - vegna missagnar í bæjarmálapunktum frá Húsavík í bæjarmálapunktum frá Húsa- vík, sem birtust í Degi 25. maí s.l., var því haldið fram að skóla- nefnd hefði mælt með að Guð- mundur Birkir Þorkelsson yrði skipaður í starf skólaritara við Framhaldsskólann á Húsavík. Petta er auðvitað ekki rétt, því eins og flestum er kunnugt er Guðmundur Birkir skólameistari sama skóla. Pessi misskilningur er til kominn vegna mjög óljóss orðalags í bókun Skólanefndar Húsavíkur, en hún er svohljóð- andi: „Erindi frá Guðmundi Birki Þorkelssyni. Birkir óskar eftir skipun í starf skólaritara við Framhaldsskólann á Húsavík. Skólanefnd mælir ein- róma með því.“ Mjög auðvelt er að túlka þetta á þann veg sem ritari bæjarmála- punkta Dags gerði, eða hvað? Reyndar er hið rétta í málinu öllu langsóttara miðað við bókunina, en það er að skólameistari var þarna að sækja um að skólaritari fengi skipun í embætti sitt en hann er nú settur til eins árs í senn. Af þessum sökum komst þessi leiði misskilningur inn í bæjar- málapunktana og eru hlutaðeig- andi beðnir velvirðingar. aðar, enda erfitt að ná þessu blessaða beina striki niður úr boganum með öðru móti. Pær eru svo farðaðar um augun, að óskiljanlegt er að augnahárin skuli ekki límast saman og svo var göngulagið. Fyrst birtist skótáin, næstum álnarlöng, svo maginn og síðast kengbognar herðar. Þær snerust í hring fyrir framan okkur og hlykkjuðust svo aftur út úr dyrunum. Nei, það er áreiðanlega í senn eins og bogi og beint strik!“ Sigríður lýsir því næst ferleg- um höttum, drögtum og jakka- kjólum. Kjólarnir voru reyndar þannig í sniðinu að engu líkara var en sýningarstúlkurnar væru komnar marga mánuði á leið. Við skulum hlífa lesendum við nánari lýsingum á Parísartísk- unni og grípa niður í lokakafla greinarinnar. Fengu ekki varist hlátri „í tvo klukkutíma sat eg og horfði á aumingja sýningarstúlk- urnar þeytast fram og aftur í næstum tvö hundruð mismunandi búningum. Sjaldan varð eg hrifin, en í nokkur skipti var fáránleikinn svo mikill, að sýn- ingargestir fengu ekki varist hlátri. Að sýningu lokinni hitti eg aftur Norðmanninn unga að máli og spurði hvort hann mætti segja mér verð á svo sem einni flík til gamans. „Nei,“ sagði hann snöggt. „Hér fá blaðamenn aldrei að vita um verð.“ Og líklega gild- ir það einu, naumast kaupa aðrir þarna föt en þeir, sem ekki þurfa að spyrja um verð. Léttir Manni léttir við að koma aftur út í rigningarsuddann úr þessu óeðlilega uinhverfi. Það er ólíkt hressilegri blær yfir Parísarstúlk- unum, sem nú eru að hópast að neðanjarðarlestunum og strætis- vögnunum á heimleið, en þeim þarna inni, bæði sýningarstúlkun- um og skorpnu kerlingunum í persíanpelsunum með lífsleiðann í svipnum.“ Skrifstofu- tækjakynning Kynnum margar nýjungar á sviöi skrifstofutækja á Hótel KEA, þriÖju- daginn 30. maí og miövikudaginn 31. maí n.k. kl. 10.00 til 16.00. Komið og kynnist Simul-coiour tvílita Ijósritun, Olympia ritvinnsluvélum, Frama frímerkingar- vélum, EBA pappírstæturum ásamt ýmsum öðr- um tækjum sem verða til sýnis. KJARAN Síðumúla 14, Reykjavík Bókabúðin Eddal Hafnarstræti 100 ■ Akureyri ■ Sími 243341 Njóttu ferðarinnar! Aktu eins og þú viit að aðrir aki Góðaferð! ||^aoferðar RKURTOL Áhaldaleiga Akurvíkur Glerárgötu 20 * Sími 22233 Rafmagnshand- verkfaeri: Beltaslípivél Borhamar Borhamar og fleigur Borvél Handfræsari Háþrýstitæki Hitablásari (hand) Hjólsög Hjólsög + borð Höggborvél Járnaklippur Juðari Lokkur (Nagari) Rafhlöðuvél Rafmagnshefill Skrúfuvél Slípurokkur, lítill Slípurokkur, stór Stingsög Sverðsög Loftverkfæri: • Loftheftibyssa, lítil • Loftheftibyssa, meðalst. • Loftpressa, 190 Itr. • Loftpressa, 340 Itr. • Naglabyssa • Naglabyssa, gas Garðáhöld: • Garðsláttuvél • Garðsláttuvél, drif • Greinasög, rafm. • Greinasög, bensín • Hekkklippur • Hjólbörur • Keðjusög án keðju • Sláttuorf, bensín • Sláttuorf, rafm. • Valtari Ýmislegt: • Borðsög • Borðsög P 700 • Borðsög P 700 m/keflaborði • Flísaskerar • Flísaskerar, rafm. • Framlengingarsnúra • Gólfslípivél Woodboy • Hitablásari Master • Hæðarmælir (kíkir) • Jarðvegstætari • Jarðvegsþjappa • Járnbútsög, m.a. f/kambstál • Ljóskastari • Naglabyssa f/stein • Rafstöð 1900 w • Rafstöð 4500 w • Rafsuðuvél • Steypuhrærivél • Úðabrúsi f/mótaolíu • Vatns- og ryksuga • Vatnsdæla, bensín • Vatnsdæla • Víbrator, minni • Víbrator, stærri Kynning í íþróttahöllinni Laugardag 13.00-18.00 - Sunnudag 13.00-17.00 AKURVIK ÍS HF. - GLERÁRGÖTU 20 - AKUREYRI - SÍMI 22233

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.