Dagur - 03.06.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 03.06.1989, Blaðsíða 10
ÍÓ - ÖHSÖfí - Sj ómaraiadagurinn á liðnum árum Sjómannadagurinn er á morgun, sunnudaginn 4. júní. A Akureyri markar þessi dag- ur viss tímamót því nú eru 50 ár liðin frá því sjómannadagur- inn var fyrst haldinn hátíðlegur á Akureyri, eða árið 1939. Síð- an þá hefur dagsins verið minnst með svipuðum hætti í hálfa öld. Hátíðarhöld á sjómannadag- inn hafa verið í nokkuð föstum skorðum á Akureyri þessa hálfu öld og má þar nefna kappróðra á Pollinum, sundkeppni og sjó- mannaguðsþjónustu. Til gamans og fróðleiks ætlum við að fletta í gömlum Degi og sjá hvernig hann greinir frá sjómannadegin- um hér áður fyrr. Fyrst er hér Dagur frá miðvikudeginum 11. júní 1952. Yfirskrift baksíðufréttar blaðs- ins er: Fjölbreytt hátíðahöld sjómanna hér á Akureyri sl. sunnudag. Síðan segir: „Sjómenn hér í bæ héldu hátíð- legan sjómannadaginn á sunnu- daginn og fóru þau hátíðahöld vel og skipulega fram í hvívetna og voru fjölsótt enda þótt veður væri nú sem oft áður harla óhag- stætt og kalt. Kappróðrar Á laugardagskvöld fóru fram kappróðrar. Reru fyrst 4 sveitir frá Æskulýðsfélagi Akureyrar- kirkju, yngri og eldri sveitir. Sig- urvegarar urðu eldri sveit nr. 4 og yngri sveit nr. 1. Stýrimenn Jó- hann Sigurðsson og Helgi Hannes- son. Þá fór fram kappróður kvenna, 400 m vegalengd. Sigr- aði sveit netaverkstæðis Kald- baks á 2.21.0 mín., í 500 metra kappróðri karla kepptu 8 sveitir og varð fyrst sveit bv. Jörundar á 2.29.7 mín. Margir horfðu á róðurinn. Veðbanki var starf- ræktur. Sunnudagurinn Á sunnudaginn hófust hátíða- höldin með sjómannamessu í kirkjunni og prédikaði stud. theol. Birgir Snæbjörnsson, en séra Pétur Sigurgeirsson þjónaði fyrir altari. Kl. 2 hófust hátíða- höld við sundlaugina með ávarpi Sigurdórs J. Steindórssonar. Síð- an fór fram sundkeppni. Fyrst boðsund karla gegn konum og sigruðu karlmennirnir. Þá björg- unarsund og urðu jafnir Áki Stefánsson bv. Jörundi og Bald- vin Þorsteinsson á bv. Svalbak, en Áki þó sjónarmun á undan. Áki vann nafnlausa bikarinn fyrir þetta afrek. Síðan var keppt í reiptogi karla og kvenna, boð- hlaupi kvenna, handknattleik o.fl. greinum. Atlastöngina sem er verðlaun fyrir beztu afrek í íþróttum sjómannadagsins sam- an lagt, hlaut að þessu sinni Baldvin Þorsteinsson bv. Svalbak. Fékk hann 25 stig fyrir stakkasund, 35 stig fyrir björgun- arsund og 2 stig fyrir kappróður. Flest merki dagsins seldu syst- urnar Ingibjörg og Guðbjörg Lórenzdætur. Gullmerki dagsins fyrir ötult starf í þágu sjómanna- dagsins hlaut Eggert Ólafsson. Frú Guðbjörg Sigurgeirsdóttir tók þátt í fleiri íþróttagreinum en nokkur annar þátttakandi í: kappróðri, boðsundi, reiptogi og handknattleik. Merki dagsins voru seld og sjómannadagsblaðið. Ágóði allur rennur í björgunarskútusjóð.“ Sjómannadagurínn 25 ára í þessari lýsingu á hátíðarhöldun- um 1952 vekur m.a. athygli mikil þátttaka kvenna í sjómannadeg- inum og raunar Iíka hve keppt var í mörgum íþróttagreinum, t.d. handknattleik. Þá kemur það sjálfsagt einhverjum spánskt fyrir sjónir að starfræktur hafi verið veðbanki meðan á kappróðrum stóð. Árið 1964 var sjómannadagur- inn á Akureyri 25 ára og mið- vikudaginn 10. júní það ár greinir Dagur^frá hátíðarhöldunum und- ir fyrirsögninni: ÞYRLA FRÁ VARNARLIÐINU ' SÝNDI BJÖRGUN Á SJÓMANNA- DAGINN. „Það var mannmargt við Sund- laugina á Sjómannadaginn. Þar ■ ■ Tilþrifamikil stakkasund sjómanna í Akureyrarsundlaug árið 1980. Mikill mannfjöldi fylgdist með sundkeppni á sjómannadeginum á Akureyri Mynd: KGA árið 1982 flutti séra Pétur Sigurgeirsson ræðu. Lúðrasveitin lék, tveir rosknir sjómenn voru heiðraðir, fram fór keppni í sundi. Kynnir var Hermann Sigtryggsson, en formaður Sjómannadagsráðs er Stefán Snæbjörnsson. Um kl. 5 síðdegis sýndi þyrla frá varnarliðinu björgun á Ákur- eyrarpolli. Gífurlegur mannfjöldi safnaðist saman til að horfa á þyrluna bjarga mönnum úr sjó og flytja þá um borð í Óðinn. Sjó- menn þeir, sem heiðraðir voru, eru Þorsteinn Stefánsson og Kristján Sigurjónsson. Trausta Gestssyni skipstjóra á Snæfellinu var afhentur fagur gripur vegna björgunar. Kappróður fór fram kvöldið áður. Úrslit í íþróttagreinum þeim, er keppt var í á Sjómanna- deginum, er að finna á blaðsíðu 2.“ Nú, 25 árum síðar, er sjó- mannadagsins sem fyrr minnst með hátíðarhöldum og íþróttum eins og greint er frá á öðrum stað í blaðinu. SS :/ '"'■4'"ýíV '/?A ~ :. : Koddaslagur barna í Akureyrarsundlaug á sjómannadeginum 4. júní 1978,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.