Dagur - 18.07.1989, Side 1
Þéttsetinn Pollurinn:
Sex skip á
fjórum dögum
Frá því á föstudag og þangað
til í. gær komu sex skemmti-
ferðaskip til Akureyrar með
liátt í þrjú þúsund farþega
innanborðs. Alls hafa nú sex-
tán skip komið til bæjarins í
sumar og aðeins ein skipa-
koma eftir.
Á föstudaginn komu tvö skip
til bæjarins, og eins og flest önn-
ur skemmtiferðaskip sem sigla
um heimsins höf voru þau
rússnesk. Hér voru á ferðinni
Vasco da Gama og Ascona,
hvort með hátt í fimm hundruð
þýskumælandi farþega innan-
borðs. Síðar um kvöldið sigldi
svo Berlin inn fjörðinn og um
tíma voru því þrjú skemmtiferða-
skip á Pollinum.
Á sunnudaginn kom Kazakhst-
an sem lagðist að bryggju og síð-
an World Discoverer sem kom
frá Húsavík. Hér voru þýsku-
mælandi farþegar sömuleiðis í
meirihluta.
Húnaþing:
Nú voru 70
ökumenn teknir
- fyrir hraðakstur
Lögreglumenn í Húnaþingi
tóku um síðustu helgi hátt í
70 ökumenn fyrir of hraðan
akstur og er það mesti fjöldi í
sumar, yfir eina helgi. Sá sem
hraðast ók var tekinn á 130
km hraða. Að sögn Kristjáns
Þorbjörnssonar, yfírlögreglu-
þjóns á Blönduósi, ætlar
þetta sumar að slá öll met,
hvað varðar sektir vegna
hraðaksturs.
Kristján sagði að umferðin
um Húnavatnssýslur væri miklu
meíri í sumar, en undanfarin ár
og mikið um að menn væru að
flýta sér. Þetta er annað sumar-
ið sem lögreglan á Blönduósi er
með dugandi radarmælingatæki
í notkun og sagði Kristján að
þau hafi komið að góðum
notum. -bjb
í gær kom svo Funchall til
hafnar en skipið hefur komið
einu sinni á sumri mörg undan-
farin ár. Funchall sker sig nokk-
uð úr hópi þeirra skipa sem
Akureyri heimsækja, bæði fyrir
þær sakir að skipið siglir ekki
undir rússneskum fána og vegna
þess að þar er mikið tungumála-
val um borð. Sænskir farþegar
eru í meirihluta en auk þeirra,
Frakkar, Spánverjar, Englend-
ingar og fleiri.
Skip þessi eru öll hingað komin
á vegum Sérleyfisbíla Akureyrar
og eins og að venju var farþegum
boðið upp á skoðunarferðir um
sveitir Þingeyjarsýslu þar sem
Mývatn og nágrenni eru efst á
blaði. Að sögn Gunnars Guð-1
mundssonar framkvæmdastjóra
fara flestir farþeganna í þessar
ferðir en þó eru alltaf nokkrir
sem kjósa að verða eftir og versla
á Akureyri.
Ein skipakoma er eftir í sumar.
Þrjár ferðir Maxim Gorki detta
út en sem kunnugt er lenti skipið
í háska í Norðurhöfum og er í
viðgerð. ET
Flugstöðin á Alexaude
Nýja flugstöðin á Alexanders-
flugvelli var vígð sl. laugardag
með viðhöfn, að viðstöddu fjöl-
menni. Meðal gesta voru Stein-
grímur J. Sigfússon, samgöngu-
málaráðherra, Pétur Einarsson,
flugmálastjóri, þingmenn kjör-
dæmisins og margir fleiri. Með
vígslu flugstöðvarinnar urðu
þáttaskil í samgöngumálum
Sauðárkróksbúa og nærsveita-
manna og ekki lengur talað um
„Skúrinn" á flugvellinum, sem
nú fær annað hlutverk í fram-
tíðinni. Nánar verður sagt frá
vígslunni síðar í vikunni.
Mynd: -bjb
Tvö net tekin í „landhelgi“ um helgina og aöient sýslumanni Þingeyjarsýslu:
,Áhugi manna á netaveiðum slær mig“
- segir Sigurður Árnason veiðieftirlitsmaður
Sigurður Árnason, veiðieftir-
litsmaður frá Eyjafírði að
Langanesi, hefur í þrígang á
þessu sumri gert upptæk veiði-
net í sjó, þar af tók hann tvö
net um helgina og afhenti
sýslumanni. I öðru tilfellinu
var um að ræða net skammt
innan við Húsavík og í hinu til-
fellinu í barminum rétt austan
við Héðinshöfða. Þarna er
leyfílegt að leggja net í sjó frá
klukkan 10 á þriðjudags-
morgni til kl. 22 á föstudags-
kvöldi. Þessi tímamörk voru
ekki virt að þessu sinni.
Sigurður segir að í þessum
tveimur tilfellum hafi net verið
lögleg en hins vegar hafi netin
ekki verið í sjónum á réttum
tíma.
Þeir sem vel þekkja til laxveiði
í Laxá í Aðaldal telja að dvín-
andi laxveiði þar megi að nokkru
leyti rekja til stóraukinnar neta-
veiði í sjó í nágrenni árinnar.
Sigurður segir að erfitt sé að
leggja mat á þetta. Greinilegt sé
að menn virði þær skýru reglur
að leggja ekki net við ósa árinnar
en hjá því verði ekki litið að
nokkur brögð séu af netaveiði á
svæðinu. „Ég held að það orki ekki
tvímælis að það er nokkuð um
laxveiði í sjó. í hversu miklum
mæli er erfiðara að segja til um
„Flugveisla“ á Akureyrarflugvelli:
Stór flugsýning á laugardaginn
- verðmæti sýningarflugvéla og búnaðar
Laugardaginn 22. júlí verða
Iiðin 50 ár frá fyrsta Flugdegin-
um á Akureyri. Af því tilefni
verður haldin flugsýning á
Akureyrarflugvelli sem stend-
ur yfír frá klukkan 13.00 til
17.30.
Að sýningunni stendur Flug-
klúbbur íslands, en það er félag
flugáhugamanna á Akureyri.
Helstu atriði sýningarinnar
verða:
1) „Top Gun“ orrustuþotur frá
Varnarliðinu á Keflavíkur-
rúmir 4 milljarðar króna!
flugvelli, ásamt fleiri herflug-
vélum og þyrlunni „Jolly
Green Giant.“
2) Listflug á listflugvélum.
3) Hópfallhlífastökk.
4) Svifflug og fjarstýrð flugmó-
del.
5) Ómar Ragnarsson sýnir listir
sínar á „Frúnni,“ TF-FRU.
Flughappdrættismiðum verður
dreift yfir bæinn á föstudag frá
klukkan 16.30 til 17.30. Svæðin
sem dreift verður yfir eru þessi:
Miðbærinn, við Glerárskóla og
Lundarskóla og við verslun Hag-
kaups. Vinningar eru 20, m.a.
ein utanlandsferð og flugferðir.
Útsýnisflug verður fyrir sýn-
ingargesti á vélflugum og þyrlum.
Síðasti Flugdagur var haldinn á
Akureyri árið 1982. Ágóði af sýn-
ingunni verður notaður til upp-
byggingar sportflugvallar á Mel-
gerðismelum.
Verðmæti flugvéla og búnaðar
sem sýndur verður þennan dag á
Akureyri losar fjóra milljarða
króna, hvorki meira né minna.
EHB
því að ekki eru fyrirliggjandi
neinar tölur yfir lax veiddan í sjó
og menn forðast að tala um
þetta,“ sagði Sigurður. „Það sem
slær mig verst er hversu áhuga-
samir menn eru um þessar neta-
veiðar. Mér þykir áhugi manna á
þeim gefa vísbendingu um að eft-
ir einhverju sé að slægjast,“ bætti
hann við.
Sigurður sagðist ekki geta gert
sér grein fyrir hvort netaveiði í
sjó hafi aukist í gegnum árin. Þó
mætti búast við því sökum þess
að slíku veiðieftirliti hafi til þessa
lítið verið sinnt. Þetta er fyrsta
sumarið sem Sigurður fylgist með
netaveiðum á þessu svæði. Hann
hóf störf þann 1. júní sl. en lýkur
eftiriiti um miðjan ágúst. óþh
Fisksölur erlendis:
Upp og niður hjá
Hjalteyrinni
Tvö akureyrsk skip hafa selt
afla erlendis á síðustu dögum.
Súlan seldi í síðustu viku fyrir
ágætt verð og Hjalteyrin seldi í
gær. Þar var verðið nokkru
lægra en verið hefur á markað-
inum að undanförnu og er talið
að mistök við kælingu hafí or-
sakað minni gæði aflans.
Hjalteyrin seldi nú í fyrsta
skipti afla erlendis. Skipið lagði
upp frá Akureyri fyrir um fjórum
vikum og fór svipaðan rúnt og
Dalborgin frá Dalvík, sem sagt
hefur verið frá. Eftir nokkurra
daga veiðiferð var 82 tonnum
landað í gáma á Reyðarfirði og
fékkst fyrir þau mjög gott verð,
alls um 9 milljónir, eða tæplega
110 krónur fyrir kíló.
Skipið hélt aftur á veiðar og
síðan með rúm 129 tonn áleiðis
til Hull. Þangað kom skipið á
sunnudag og í gær var aflinn
seldur. Alls fengust um 11,5
milljónir króna fyrir hann eða um
89 krónur að meðaltali fyrir
kílóið. Þetta er nokkru lægra
verð en fengist hefur á markaðin-
um að undanförnu og er skemmst
að minnast metsölu Dalborgar-
innar. Að sögn Péturs Bjarna-
sonar framkvæmdastjóra sölufyr-
irtækisins ísbergs var fiskurinn
ekki nógu góður og telja menn að
hann hafi verið kældur of mikið á
leið til Bretlands. Þess ber hins
vegar að geta að skipið var í
fyrstu söluferð erlendis.
Súlan landaði í síðustu viku
um 94 tonnum í Hull. Heildar-
verðmæti aflans var um 9,9 millj-
ónir eða um 105 krónur fyrir
kílóið. ET