Dagur - 18.07.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 18. júlí 1989
fréttir
F-
Dísum og Arnarflugsþotu
snúið til Akureyrar um helgina:
Frakkar „hertóku
leigubflaflotann
„Þetta var afskaplega þægilegt
fólk og tók þessu með jafnað-
argeði,“ voru orð Olafs Rafns
Jónssonar, vakstjóra Flugleiða
á Akureyrarflugvelli, um far-
þega með þotum Arnarflugs
og Flugleiða sem lentu þar að
kveldi föstudags og aðfaranótt
laugardags vegna slæms
skyggnis í Keflavík.
Arnarflugsþotunni var snúið
frá Keflavík og lenti hún á Akur-
eyri kl. 20.45. Með henni voru 97
farþegar. Næst lenti Aldís, þota
Flugleiða, um kl. 21.15 og með
henni voru 100 farþegar. Aldís
var að koma frá Stokkhólmi.
Þriðja í röðinni var Flugleiðaþot-
an Eydís með 149 farþega innan-
borðs og kom hún frá París með
millilendingu í Skotlandi. Eydís
lenti um kl. hálf fjögur aðfara-
nótt Iaugardags.
Strax og þessi óvænta staða
kom upp var athugað með gisti-
rými á Akureyri en kom þá í Ijós
að ekkert slíkt væri að hafa.
Rcyndar var tiltækt gistirými fyr-
ir áhöfn Arnarflugsþotunnar en
áhöfn Aldísar var flutt í leigubíl-
unt til Hótels Húsavíkur. Ákveð-
ið var að flytja farþega tveggja
fyrri vélanna landleiðina suður til
Reykjavíkur og voru til kvaddir
allir tiltækir langferðabílar á
Akureyri. Þeir fluttu farþegana í
Staðarskála þar sem rútur úr
Reykjavík tóku við þeim. Nauð-
synlegt var að hafa þennan hátt-
inn á sökum þess að allir lang-
ferðabílar, bæði í Reykjavík og á
Akureyri voru bókaðir í keyrslu
farþega á skemmtiferðaskipum
klukkan 8 að morgni laugardags.
Um borð í Eydísi voru nær ein-
göngu Frakkar. Ólafur Rafn seg-
ir aðdáunarvert hversu vel þeir
hafi tekið öllum þessum erfið-
leikum. Flestir létu sér lynda að
fá sér kaffi og meðlæti í flugstöð-
inni, nokkrir brugðu sér í bæinn
og enn aðrir voru fluttir í 11
leigubílum til Dalvíkur þar sem
Sæluhúsið hafði upp á 20 her-
bergi að bjóða.
Halldór Ingi Ásgeirsson, hjá
BSO, segir að vissulega hafi verið
erfitt að missa svo marga leigu-
bíla úr akstri á Akureyri á þess-
um tíma aðfaranótt laugardags,
enda hafi þetta verið skömmu
eftir að danshús bæjarins lokuðu.
Með velvilja og hjálp góðra
manna gekk allt vel og þoturnar
komust í loftið, með eða án far-
þega, laust fyrir hádegi á þriðju-
dag. óþh
Rúmlega 60 hross voru skráð til keppninnar fyrir 114 fyrirtæki og bæi.
Hestamannafélagið Pjálfi:
Firma- og bæjarkeppni
við Einarsstaði í Reykjadal
Firma- og bæjarkeppni hesta-
mannafélagsins Þjálfa var
haldin við Einarsstaði fyr-
ir skömmu. Rúmlega 60 hross
voru skráð til keppninnar
fyrir 114 fyrirtæki og bæi,
töluvert fleiri en tekið hafa
þátt í firmakeppni Þjálfa á
undanförnum árum. Að und-
anförnu hefur verið haldið
reiðnámskeið á vegum Þjálfa,
þar sem Ingimar Ingimarsson
frá Flugumýri hefur leiðbeint
og mun námskeiðshaldið ekki
hafa dregið úr áhuga á hesta-
mennsku. Mótið gekk vel í
góðu veðri, töluvert margir
áhorfendur fylgdust með mót-
inu og einnig ferðamenn sem
leið áttu hjá.
Vátryggingafélag íslands hf. tók til starfa í gær:
Nútíma tryggmgaþjónusta
ems og hún gerist best
Vátryggingafélag Islands hf.
hóf formlega starfsemi sína í
gær en þá voru opnaðar dyr á
svæðisskrifstofum og umboð-
um félagsins á 69 stöðum víðs
vegar um landið. Þar með
hófst kraftmikið samstarf
Brunabótafélags íslands og
Samvinnutrygginga, eins og
segir í fréttatilkynningu félags-
ins.
Pað var þann 19. janúar síðast-
liðinn, að undirritað var sam-
komulag um sameiningu Bruna-
bótafélags íslands og Samvinnu-
trygginga GT. í nýju, faglegu og
traustu félagi, Vátryggingafélagi
íslands hf., VÍS. Markmið
aðstandenda hins nýja félags eru
að reka traust, faglegt vátrygg-
ingafélag og að ná aukinni hag-
kvæmni, arðsemi og árangri í
Menntamálaráðuneytið
Lausar stöður við
Háskólann á Akureyri
Við Háskólann á Akureyri eru eftirtaldar stöður lausar
til umsóknar:
Staða lektors í iðnrekstrarfræði við rekstrardeild.
Helstu kennslugreinar eru framleiðslustjórnun, fram-
leiðslu- og birgðastýring, verksmiðjuskipulagning og
vinnurannsóknir.
Staða lektors í rekstrarhagfræði við rekstrardeild.
Staða lektors í hjúkrunarfræði við heilbrigðisdeild.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjanda, ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil
og störf, skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverf-
isgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. ágúst 1989.
Menntamálaráðuneytið,
13. júlí 1989.
öflugum rekstri. Byggt er á þekk-
ingu og reynslu starfsfólks, hag-
nýtingu nýjustu tækni og hag-
kvæmni stærðarinnar.
í Vátryggingafélagi íslands hf.
sameinast áratuga reynsla Sam-
vinnutrygginga GT. og Bruna-
bótafélags íslands. Þegar bestu
þættir beggja félaga eru lagðir
saman að viðbættum nýjum hug-
myndum og liðstyrk, þá hlýtur
árangurinn að verða VIS - trygg-
ingarfélag í fararbroddi, segir
einnig í fréttatiikynningunni.
Með faglegu og markvissu
starfi verður meginþunginn lagð-
ur á þrennt. Að veita viðskipta-
vinum félagsins öfluga og hrað-
virka vátryggingaþjónustu sem
byggir á þekkingu á þörfum
markaðarins og aðlögun að
síbreytilegum aðstæðum. Að
bera umhyggju fyrir öryggi hins
tryggða. Að koma í veg fyrir tjón
og draga úr þunga þeirra með
markvissum aðgerðum, bæði
sjálfstætt og í samvinnu við fólkið
í landinu. Með öðrum orðum:
Nútíma tryggingaþjónusta eins
og hún gerist best.
Sem fyrr sagði eru svæðis-
skrifstofur og umboð VÍS á 69
stöðum vítt um landið. Á
Norðurlandi eru svæðis-
skrifstofur á Blönduósi, Sauðár-
króki, Akureyri og Húsavík.
Auk þess eru umboð á Hvamms-
tanga, Skagaströnd, Hofsósi,
Siglufirði, Olafsfirði, Grímsey,
Dalvt'k, Hrísey. Grenivík. Skútu-
staðahreppi, Kópaskeri, Raufar-
höfn og Pórshöfn.
Ungir knapar voru mjög áberandi í
keppninni. Myndir: KK
Keppt var í fjórum flokkum og
urðu því fjögur fyrirtæki bikarhaf-
ar. Sjóvá Almennar hlaut bikar fyr-
ir keppni í karlaflokki en þar var
Arngrímur Geirsson á Neista
fyrstur í mark. Samvinnubankinn
hlaut bikar fyrir keppni í kvenna-
flokki en María Jespersen á
Hálegg sigraði. Hnjúkur í Kinn
fékk unglingaflokksbikarinn sem
Marinó Aðalsteinsson á Gammi
vann og Tröð prenthús vann í
barnaflokki, þar var Arnþrúður
Dagsdóttir á Hnotu fremst í
flokki.
Að lokinni firmakeppni var
keppt í 150 m skeiði. Úrslit urðu
sem hér segir:
1. Fífill - Þórarinn Illugason 17:41
2. Hrafn - Agnar Kristjánsson 18:15
3. Óðirauður - Þórarinn Sverriss. 18:21
Samvinnutryggingar gáfu verð-
launapeninga til keppninnar.
Þulur mótsins var Þráinn Þóris-
son en dómnefnd skipuðu:
Baldvin Baldursson, Benoný
Arnþórsson og Dagur Jóhannes-
son. Formaður firmakeppnis-
nefndar er Jóhannes Haraldsson.
Mótsdeginum lauk með því að
180 manns sóttu dansleik sem
haldinn var á vegum Þjálfa. IM
Eyjafjörður:
Rólegt hjá lögreglu
- Akureyrarlögreglan í árekstri,
hraðakstur og fleira
Fremur tíðindalítið var hjá iög-
reglu í Eyjafirði um helgina.
Um „venjulega“ helgi virðist
hafa verið að ræða að sögn
lögreglu. Hraðakstur, ölvun og
annað í þeim dúr var aðalvið-
fangsefnið á Akureyri auk þess
sem lögreglubíll lenti í árekstri
en eitthvað rólegra var í Olafs-
fírði, Siglufírði og á Dalvík.
í Ólafsfirði og Siglufirði fór allt
friðsamlega fram og að sögn lög-
reglu var helgin ekkert frábrugð-
in öðrum.
Svipaða sögu var að segja hjá
Dalvíkurlögreglunni en af málurn
helgarinnar stóð þar uppúr
ákeyrsla á ljósastaur. Ökumaður
mun hafa ekiö á brott en málið er
að fullu upplýst.
Hjá lögreglunni á Akureyri
fengust þær upplýsingar að sitt
lítið af hverju hefði gerst um
helgina sem annars var stóráfalla-
lítil. Um væri að ræða atburði
sem verið væri að fást við allar
helgar allan ársins hring.
Nokkrir voru teknir fyrir of
hraðan akstur og var einn þeirra
sviptur ökuleyfinu til bráða-
birgða en hann var mældur á 143
km hraða í Vaðlareit.
Einhverjir voru gripnir grun-
aðir um ölvun við akstur, nokkrir
fengu að gista fangageymslur og
annað því um líkt.
Á sunnudagskvöld lenti Volvo
bifreið lögreglunnar síðan aftan á
bíl sem ætlunin var að stoppa.
Eitthvað mun ökumaðurinn hafa
stöðvað snögglega og vildi því
ekki betur til. Engin slys urðu á
fólki og bílarnir ekki mikið
skemmdir. KR