Dagur - 18.07.1989, Page 3
frétfir
Priðjudágur 1^^60(1986^ 3
Fátt bendir til dvínandi brott-
flutnings til höfuðborgarinnar
- segir m.a. í skýrslu Byggðastofnunar „íbúaspá og kaupleiguíbúðir“
„Eftir mikið þenslutímabil í
hagkerfinu er nú komið að
aðlögunartímabili og hætta á
einhverju atvinnuleysi næstu
mánuði. Ef stefnir í mik-
ið atvinnuleysi gæti verið
skynsamlegt að draga ekki úr
framkvæmdum við íbúða-
byggingar. Kaupleigukerfið er
ný leið til að fjármagna íbúða-
framkvæmdir og gæti sú leið
hentað til að örva byggingar-
iðnað á Iandsbyggðinni,“ segir
orðrétt í niðurstöðum nýút-
kominnar skýrslu Byggða-
stofnunar „Ibúðaspá og kaup-
leiguíbúðir.“ Ennfremur segir:
„Kaupleigukerfið getur leitt til
meiri framkvæmda en hús-
næðismarkaðurinn á viðkom-
andi stað þolir þannig að
oiframboð verður á húsnæði
miðað við byggingakostnað.
Þetta á einkum við á stöðum
þar sem líkur á brottflutningi
fólks eru meiri en á aðflutn-
ingi. Framkvæmdaaðilar sem
sækja um lán fyrir mörgum
kaupleiguíbúðum á slíkum
stöðum þurfa að geta sýnt fram
á íbúðirnar verði fullnýttar og
valdi ekki verðfalli á fasteign-
um sem fyrir eru á staðnum.“
Nefnd skýrsla Byggðastofnun-
ar var unnin að beiðni Félags-
málaráðuneytisins og Húsnæðis-
stofnunar. Óskað var eftir
greinargóðum upplýsingum um
byggingarstarfsemi á landinu öllu
síðustu ár auk þess sem Byggða-
stofnun var beðin að meta þörf-
ina fyrir íbúðabyggingar næstu
þrjú árin með hliðsjón af stöðu
atvinnumála. Sérstaklega var
óskað eftir mati Byggðastofnunar
á þörfinni fyrir byggingu kaup-
leiguíbúða.
1120 íbóöir á
höfuðborgarsvæðinu/322
á landsbyggðinni
Ný íbúðaspá Byggðastofnunar til
ársins 1994 gerir ráð fyrir að
byggja þurfi 1440 íbúðir að með-
altali á ári næstu fimm árin á öllu
landinu. Tekið er fram að grunn-
ur spárinnar sé framreikningur á
mannfjölda næstu 5 árin miðað
við mannfjöldatölur og aldurs-
skiptingu um áramótin 1988-
1989. Ef litið er til skiptingar
milli höfuðborgarsvæðis og
landsbyggðar er miðað við að
þörf verði fyrir 1120 íbúðir á ári á
höfuðborgarsvæðinu en 322
íbúðir á landsbyggðinni. Skipting
á einstök kjördæmi er sem hér
segir: Suðurnes 101 íbúð, Vestur-
land 32 íbúðir, Vestfirðir 0,
Norðurland vestra 15, Norður-
iand eystra 62, Austurland 44 og
Suðurland 70.
Þessar tölur taka mið af fólks-
flutningum innanlands á árunum
1983-1986, en þau ár voru brott-
fluttir umfram aðflutta af lands-
byggðinni til höfuðborgarsvæðis-
ins 1000 manns á ári. Byggða-
stofnun segir flest benda til að
þessi þróun haldi áfram og því
verði hlutfallslega meiri þörf fyrir
byggingu íbúðarhúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu en á lands-
byggðinni. Athyglisvert er að ef
ekki er reiknað með neinum
fólksflutningum verður niður-
staðan allt önnur. Þá telur
Byggðastofnun að þurfi að
byggja 1433 íbúðir að meðaltali á
ári og þar af beri að byggja 763
íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Suðurnes ætti þá að fá 109 íbúðir
í sinn hlut, Vesturland 88, Vest-
firðir 64, Norðurland vestra 53,
Norðurland eystra 152, Austur-
land 81 og Suðurland 123 íbúðir.
Sami „landsbyggðar-
flóttinn“ áfram?
Byggðastofnun telur ekkert
benda í þá átt að dragi úr brott-
flutningi fólks af landsbyggðinni
til höfuðborgarinnar. Því sé
íbúðaspáin, þar sem gert er ráð
fyrir fólksflutningum milli
landshluta, líklegri til að
standast, „nema gripið verði til
markvissra aðgerða til að bæta
lífskjörin á landsbyggðinni.“
Orðrétt segir í skýrslu Byggða-
stofnunar: „Ýmsar ástæður geta
verið fyrir miklum fólksflutning-
um til höfuðborgarsvæðisins.
Hvort þeir flutningar aukast eða
minnka er vafalítið háð atvinnu-
ástandi og þeirri þjónustu sem
hægt er að bjóða uppá á lands-
byggðinni. Staða helstu atvinnu-
vega er erfið um þessar mundir.
Frystihús eru víða rekin með tapi
og landbúnaðurinn er rekinn
með háum framleiðslustyrkjum.
Þessar greinar eru ekki líklegar
til að auka hagvöxt á landsbyggð-
inni nema skipulagi þeirra verði
breytt. Möguleikar á vexti þjón-
ustugreina hafa batnað, til dæmis
vegna samgöngubóta. Enn er þó
langt í land með að vegakerfið
uppfylli kröfur nútímans.“
Þórshöfn:
Færafiskinum
er mokað upp
Það hefur ekki verið nein
ástæða til að kvarta undan
hráefnisskorti hjá Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar að undan-
förnu. Á bilinu 20-30 trillur
hafa landað þar stórgóðum
færafiski og segir Jóhann A.
Jónsson, framkvæmdastjóri,
að tæplega 30 tonnum hafi að
jafnaði verið landað á hverjum
degi, sem vill segja að hver
trilla hafi fískað um eitt tonn á
dag.
„Það er hér rniklu betra fiskerí
á færi en mörg undanfarin ár,“
sagði Jóhann. Bátarnir þurfa að
sækja stutt á miðin, fiskurinn
heldur sig nánast uppi í landstein-
um. Jóhann segir að um 10 Þórs-
hafnartrillur séu á færum en hin-
ar komi víða að, allt frá Hellis-
sandi og austur að Þórshöfn.
Þannig lcggja t.d. nokkrar trillur
frá Hofsósi, Siglufirði og Sauðár-
króki upp hjá Hraðfrystistöðinni.
„Við vonumst til að á meðan veð-
ur er hagstætt og afli góður muni
bátarnir leggja upp hjá okkur,“
segir Jóhann. óþh
Norðurland vestra
Eins og áður segir leggur
Byggðastofnun í skýrslu sinni
áherslu á byggingu kaupleigu-
íbúða á stöðum þar sem búast
megi við góðri nýtingu þeirra og
þar sem fólksfjölgun hefur verið
á liðnum árum. Við úthlutun
Húsnæðisstofnunar á dögunum
virðist sem í meginatriðum hafi
verið fylgt þessari „línu“ Byggða-
stofnunar.
Á Norðurlandi vestra sóttu
fjögur sveitarfélög um lán vegna
kaupleiguíbúða, Sauðárkrókur
(10), Siglufjörður (18), Hofsós-
hreppur (5) og Fljótahreppur (6).
Sauðárkrókur var eina sveitarfé-
lagið í kjördæminu sem fékk út-
hlutað fjármagni. Þar hefur að
meðaltali fjölgað íbúum um
2,4% á árunum 1971-1988. Á
Siglufirði hefur á sama árabili
orðið 0,7% fækkun íbúa. Á síð-
ustu þrem árum hefur að meðal-
tali orðið rúmlega eins prósents
fækkun íbúa á Siglufirði. Á árun-
um 1984 og 1985 fjölgaði íbúum
hins vegar um 0,2% og 0,3%. Á
Hofsósi fækkaði íbúum að með-
altali um 0,4% á árunum 1971-
1988. Árið 1985 fjölgaði íbúum
þar um 2,1% en fækkaði um
7,6% árið eftir. íbúatalan stóð í
stað árið 1987 en í fyrra fækkaði
þar íbúurn um 0,4%.
Norðurland eystra
Þau sveitarfélög á Norðurlandi
eystra sem sóttu um lán til kaup-
leiguíbúða árið 1989 voru Akur-
eyri (32), Húsavík (6), Dalvík
(10), Ólafsfjörður (8) og Saur-
bæjarhreppur o.fl. (8).
Bæjarstjórn Akureyrar fékk
úthlutað fjármagni til byggingar
10 leiguíbúða og Búseti á Akur-
eyri fékk lán til fjögurra félags-
legra kaupleiguíbúða á Akureyri.
Þar hefur fjölgun á árunum 1971-
1988 numið 1,5%. í tvö ár á
þessu árabili fækkaði fólki á
Akureyri, 1983 (0,1%) og 1984
(0,2%).
Dalvíkingar fengu úthlutað 6
kaupleiguíbúðum. Á s.l. ári var
þeim úthlutað 10 íbúðum. Að
meðaltali hefur íbúum á Dalvík
fjölgað um 1,6% á árunum 1971-
1988. Árið 1984 fækkaði þar fólki
um 0,5%, 1985 nam fækkunin
1,4% og 0,7% árið 1986. Árið
1987 fjölgaði hins vegar um 4,1%
á Dalvík og 2,6% á liðnu ári.
Húsvíkingar sóttu eins og áður
segir um lán til 6 kaupleiguíbúða.
Niðurstaðan varð lán til Búseta á
Húsavík til kaupa á 4 félagsleg-
um íbúðum. fbúum á Húsavík
hefur fjölgað um 1,3% á árunum
1971-1988. Tvö ár hefur fólki
fækkað, 1984 (1,0%) og 1986
(1,5%). Árið 1987 fjölgaði fólki
þar um 1,8% og 0,2% í fyrra.
Ólafsfirðingar duttu ekki í
lukkupottinn að þessu sinni. Þeir
sóttu um lán til 8 íbúða en fengu
enga. Þar hefur íbúaþróun verið
á þá lund að á árunum 1971-1988
hefur að meðaltali fjölgað íbúum
um 0.5%. Árin 1985 og 1986 nam
fækkunin 0,5% en 1987 varð
3,1% fjölgun. í fyrra fjölgaði
Ólafsfirðingum um 0,3%. óþh
Alþýöubankinn hf
FUNDARBOÐ
Hluthafafundur í Alþýðubankanum hf. verður hald-
inn í Sóknarsalnum, Skipholti 50A, Reykjavík, mið-
vikudaginn 26. júlí n.k. og hefst kl. 20.
Dagskrá fundarins vsrður sem hér segir:
1. Tillaga bankaráðs um staðfestingu hluthafafund-
ar á samningi formanns bankaráðs við viðskipta-
ráðherra um kaup bankans á 1/3 hluta hlutabréfa
ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf. og að rekst-
ur Alþýðubankans hf„ Verslunarbanka (slands
hf. og Iðnaðarbanka íslands hf. verði sameinaður
í einn banka ásamt Útvegsbanka íslands fyrir 1.
júlí 1990. Jafnframt verði bankaráði veitt heimild
til að vinna að öllum þáttum er varða efndir samn-
ingsins.
2. Tillaga um heimild til bankaráðs um nýtt hlutafjár-
útboð.
3. Önnur mál löglega fram borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf-
um eða umboðsmönnum þeirra í Alþýðubankanum,
Laugavegi 31, Reykjavík, á venjulegum afgreiðslu-
tíma bankans frá og með 21. júlí n.k.
Viku fyrir fundinn mun samningurinn ásamt tillögum
þeim sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til
sýnis á sama stað.
F.h. bankaráðs Alþýðubankans hf.
Ásmundur Stefánsson.
P. ?"1 :
Garðyrkjusti Ösp, birki og lerki. Fjölmargar tegundir af skrautrunnum. Tilboðsverð á sun ^ Opið frá kl. S iðin á Grisará f"kn9. Rósir og limgerðisplöntur. AUt ræktaö í pottum. Einnig fjölær blóm. 23 larblómum til mánaðamóta. '-12 og 13-17 alla virka daga. A