Dagur - 18.07.1989, Blaðsíða 16
TEKJUBRÉF- KJARABRÉF
FJARMAL ÞÍN - SERGREIN OKKAR
rp)ARFESriMGARFÉLAGÐ
Ráðhustorgi 3, Akureyri
Möðrudalur:
Rúta valt með 28 mairns
- meiðsli farþega
Betur fór en á horfðist er rúta
valt út af veginum yfir eystri
fjaligarðinn við Möðrudal um
kl. 8 í gærmorgun. Rútan valt
tvær heilar veltur og stöðvaðist
síðan á hliðinni. Otrúlega vel
slapp til með að alvarleg slys
yrðu á fólki, að sögn lögregl-
unnar á Egilsstöðum. 27 far-
þegar voru í bílnum og hlutu
þeir minniháttar meiðsli, utan
eins sem fluttur var með
sjúkrabíl að Grímsstöðum á
Fjöllum og síðan með flugvél
til Akureyrar. Meiðsli hans
ekki talin alvarleg
munu þó vera minni en taiið
var í fyrstu.
Annar farþegi var fluttur í
sjúkrabíl til Egilsstaða en meiðsli
hans ekki talin alvarleg. Aðrir
farþegar og bílstjóri voru fluttir
með rútu til Egilsstaða og gert að
meiðslum þeirra í heilsugæslu-
stöðinni.
Orsök slyssins er talin sú að
hemlar rútunnar hafi bilað.
Farþegarnir í rútunni voru
íslendingar og Norðurlandabúar.
Rútan er frá Guðmundi Jónas-
syni. IM
Verð á loðnuafurðum:
Útlitið er dapurlegt
- loðnuverð mun lækka, segir fram-
kvæmdastjóri Sfldarverksmiðja ríkisins
Að sögn Jóns Reynis Magnús-
sonar framkvæmdastjóra Síld-
arverksmiðja ríkisins eru
menn þar á bæ ekki búnir að
koma sér niður á fyrsta loðnu-
verð á komandi vertíð. Ekki
hafa verið gerðir neinir samn-
ingar um fyrirframsölu á
loðnuafurðum enda er verð á
heimsmarkaði lágt núna.
Eins og víða annars staðar
gildir það á markaði loðnuafurða
að „eins dauði er annars brauð“.
Á síðustu vertíð nutu íslenskar
loðnuverksmiðjur góðs af þurrk-
um í Bandaríkjunum sem ollu
minna framboði á sojamjöli og
þar með verðhækkunum á mjöli
og lýsi. Það er því ekki bara stað-
an á mörkuðum fiskafurða sem
þarna hefur áhrif. Núna er staðan
hins vegar algjörlega á hinn veg-
inn því fiskveiðar Perúmanna
hafa aukið mjög á framboðið og
þar með lækkað verð.
Verð á lýsi hefur að undan-
förnu verið um 160 dollarar fyrir
tonnið sem er aðeins um helm-
ingur meðaltalsverðs á síðustu
vertíð og svo lágt að frekar borg-
ar sig fyrir verksmiðjurnar að
brenna lýsið til eigin nota en selja
það. Verð fyrir próteineiningu
var á síðustu vertíð 9-10 dollarar
en er nú um það bil 30% lægra.
„Þetta gerir það að verkum að
það er erfitt að bjóða í loðnu í
dag og við erum eiginlega ekkert
farnir að velta þessu fyrir okkur,“
sagði Jón Reynir. Hann sagði að
þrátt fyrir að gengi dollars hafi
hækkað þá vegi hækkun á olíu-
verði og lækkun afurðaverðs
hærra.
í upphafi síðustu loðnuvertíð-
ar var verð fyrir tonn 3400-3500
krónur. í lok hennar var það svo
komið í 4000 krónur og rúmlega
það. „Við getum ekki greitt svo
hátt verð núna. Við vonum að
verð lagist en það er ekki margt
sem bendir til þess. Þetta lítur
dapurlega út eins og er,“ sagði
hann. ET
Sr. Pétur Þórarinsson var settur í embætti sóknarprests í Glerárpresta-
kalli af prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis, sr. Birgi Snæbjörnssyni.
Birgir og Pétur lögðu báðir út af guðspjalli dagsins í ræðum sínum, lík-
ingunni um húsin tvö í niðurlagi Fjallræðu Jesú. Á myndinni eru, f.v.:
Sr. Birgir og kona hans, frú Sumarrós Garðarsdóttir, og frú Ingibjörg
Siglaugsdóttir ásamt manni sínum, sr. Pétri Þórarinssyni. Mynd: ehb
Akureyringar eru ófeimnir við hringtorgið.
Mynd: KL
Hringtorg á Akureyri:
Einfaldar reglur sem gilda
Á Akureyri var fyrsta hring-
torgið tekið í notkun á laugar-
dag. Að sögn lögreglunnar
hefur allt gengið áfallalaust
hingað til en þó er ástæða til að
minna bæjarbúa á þær reglur
sem gilda við akstur á slíkum
stöðum.
Matthías Einarsson varðstjóri
sagðist ekki óttast að Akureyr-
ingar væru feimnir við að nota
torgið því flestir hefðu kynnst
slíku annars staðar.
„Það eru ósköp einfaldar regl-
ur sem gilda og engin ástæða til
að gera þetta að of miklu vanda-
máli,“ sagði Matthías. Það er því
ekki úr vegi að renna yfir helstu
atriði. Inn á hringtorgið er alls
staðar biðskylda. Itorginu sjálfu
hefur innri hringurinn alltaf for-
gang fyrir umferð á ytri hring við
akstur út af torginu. Þeir sem
ætla að aka út af torginu á næstu
gatnamótum eftir innakstur skulu
velja hægri akrein inn á torgið.
„Því miður er hætta á að akstur
á vinstri akrein aukist á aðliggj-
andi götum eins og reynslan hef-
ur sýnt í Reykjavík. Það þarf því
að brýna fyrir fólki að nota hægri
akrein eins og á að gera og skipta
rétt áður en farið er í innri
hring,“ sagði Matthías.
Stefnuljós vildi hann einnig
benda fólki á að væri nauðsynlegt
að nota við hringtorg svo og ann-
ars staðar. Á Akureyri væri áber-
andi að þau væru yfirleitt notuð
of seint eða alls ekki. KR
Eru nýjar fiskigöngur að hleypa lífi í árnar:
Laxagöngur með næsta stórstreymi?
Árni ísaksson, veiðimálastjóri,
segir í viðtali við blaðið í dag
að þrátt fyrir dræma veiði í ám
það sem af er sumri geti tíma-
bilið orðið í meðallagi ef göng-
ur af smáfiski verði góðar síð-
ari hluta sumarsins. Hann telur
að á næstunni megi búast við
mjög góöum göngum stórlaxa í
norðlenskar ár, jafnvel gætu
orðið kaflaskil um næstu helgi
en þá er stórstreymt.
Umferðarslys átti sér stað við
Rangá í Köldukinn um kl. 17
á sunnudag, er hópur vélhjóla-
fólks var þar á ferð. Farþegi á
mótorhjóli slasaðist töluvert er
hann féll af hjólinu ásamt öku-
manni þess. Ökumaðurinn
missti stjórn á hjólinu þegar
hvellsprakk á framhjóli.
Læknir kom á slysstað mjög
fljótt eftir að slysið átti sér stað,
þar sem hann var á ferðinni með
sjúkrabíl sem var á leið til Akur-
Árni segir að göngur í árnar
hafi verið mjög seint í sumar og
nú fari í hönd sá tími sem mest
gangi af smáfiski í árnar. Þessar
göngur geti miklu ráðið um heild-
arveiðina þegar upp verði staðið
en ekki síður ráði þær miklu um
framtíðina í ánum. Sterkar göng-
ur af smálaxi í fyrra gefi tilefni til
að ætla að talsvert veiðist af stór-
um laxi í sumar. Búast megi því
enn við góðum göngum af stór-
laxi.
eyrar með sjúkling frá Húsavík.
Farþeginn er töluvert mikið slas-
aður, en ekki talinn í lífshættu að
sögn lögreglu, hann var fluttur
með sjúkrabíl til Akureyrar.
Lögreglunni á Húsavík hefur
borist tilkynning um líkamsárás
í Vaglaskógi rétt fyrir helgina.
Ráðist var á ungan mann og hon-
um veittir töluverðir áverkar.
Um helgina tók Húsavíkuriög-
reglan einn ökumann sem grun-
aður er um ölvun við akstur. IM
Árni segir að kalt vor hafi
seinkað göngum mjög en upplýs-
ingar úr Elliðaánum og Korpu frá
undanförnum árum bendi einnig
til að veðurfarið ráði ekki alfarið
tímasetningu fiskigangna heldur
geti einnig verið um að ræða
reglulegar sveiflur.
Sjá nánar í viðtali í Veiði-
klónni á bls. 13 í dag. JÓH
Stofnanamá!:
Með lækkun á launum verður
lækkun á lífskjörum.
Mannlegt mál:
Lífskjörin versna ef launin
lækka.
Islenskan er mannlegt mál.
Umferðarslys í Kinn
- og líkamsárás í Vaglaskógi