Dagur - 16.08.1989, Side 5
Miðvikudagur 16. ágúst 1989 - DAGUR - 5
Örn Pálsson:
Úr fflabeinsturai
með útsýnispalli
„Stjórn Landssambands smábáta-
eigenda andvíg lækkun á grá-
sleppuhrognum niður fyrir lág-
marksverð." „Stjórn L.S. telur
að ekki komi til greina að fella
burtu lágmarksverð á grásleppu-
hrognum." Ekki er hægt að skilja
annað á framanrituðum tilvitnun-
um, sem birtust í grein í dagblað-
inu Degi þann 11. ágúst sl. undir
fyrirsögninni „Engu líkara en að
þeir séu í eins konar fílabeins-
turni“, en að stjórn Landssam-
bands smábátaeiganda hafi í
engu hvikað frá þeirri verð-
ákvörðun sem samþykkt var 8.
febrúar sl. En í tillögum stjórnar-
innar kemur annað á daginn.
Hvers vegna greinarhöfundur
dagblaðsins Dags skýrir ekki les-
endum sínum frá allri samþykkt-
inni er mér hulin ráðgáta. Hann
virðist leggja sig í líma við að
slíta alla samþykktina úr sam-
hengi og minnast á hluti sem lítið
koma lágmarksverði grásleppu-
hrogna á þessu ári við.
Ég ætla því að fara í hlutverk
blaðamannsins og greina frá
þeim hluta ályktunarinnar sem
fjallar um lágmarksverð á grá-
sleppuhrognum.
Þar segir: „Stjórn L.S. telur að
verðlækkun eða frjáls verðlagn-
ing sé ekki tímabær. Komi fram
möguleiki á sölu á umtalsverðu
magni verður að skoða slíkt með
jákvæðum hætti.“
Og í öðru lagi: „Stjórn L.S.
leggur til að á næstunni verði
kallaðir saman þeir aðilar sem
selt hafa hrogn úr landi á þessari
vertíð til frekari viðræðna um
sölumál. Fari svo að um verð-
lækkun verði að ræða fá þeir aðil-
ar, sem keypt hafa, forkaupsrétt
á óseldum hrognum."
Að ofanrituðu er það því rangt
að halda því fram að í engu hafi
verið hvikað frá áður samþykktu
lágmarksverði.
Undirritaður telur að hér á
landi séu nú a.rn.k. 4.000 tunnur
af söltuðum grásleppuhrognum
óseldar. Fullreynt er að þær verði
tæpast seldar á 1.100 DM eins og
ráðgert hafði verið. í framhaldi
af því ákvað stjórnin að kveða
skýrt á urn - þótt stjórnin teldi að
verðlækkun eða frjáls verðlagn-
ing væri ekki tímabær - hvernig
bregðast ætti við verðlækkun ef
hún kæmi upp. Viðbrögðin væru
fólgin í því að binda sig við sölu á
umtalsverðu magni, því þegar
nýtt verð er ákveðið verður það
leiðandi og þá ekki einungis fyrir
þær birgðir sem eftir eru í land-
inu, heldur einnig fyrir næstu
vertíð. Þá telur stjórn L.S. rétt
að gefa þeim aðilum, sem keypt
hafa grásleppuhrogn á áður
útgefnu lágmarksviðmiðunar-
verði, fyrstum tækifæri á að
kaupa hrogn á lægra verði. Ann-
ars yrði komið aftan að þeim;
þeir gætu ekki lengur treyst á
verðlagningu á grásleppuhrogn-
um frá íslandi.
Málið er því ekki svo einfalt í
sniðunt að við losum okkur við
umframveiði þessa árs til Péturs
eða Páls á stórlækkuðu verði og
hefjum svo vertíð á næsta ári full-
ir bjartsýni um að ekkert hafi
gerst á markaðinum vegna slíkra
axarskafta.
Pað er ábyrgðarhluti að selja
verðlækkunarfyrirtækjum hrogn,
aðilum sem reynt hafa í áraraðir
að komast inn á hinn þrönga
markað með því að selja fram-
leiðslu sína á stórlækkuðu verði.
Sem betur fer hefur þessum fyrir-
tækjum ekki tekist að ná í þær
birgðir sem til þarf svo aðstaða
skapist fyrir þau til að komast inn
á markaðinn.
Það verður að teijast lán grá-
sleppuveiðimanna hér á íslandi
að tekist hefur að afstýra verð-
sveiflum á neytendamarkaðin-
um. Kavíar kaupir efnamikið
fólk þ.e.a.s. dýr vara erlendis er
ávísun á gæðavöru í takmörkuðu
framboði. Vara sem hinn
almenni borgari neitar sér um.
Oft hef ég þó spurt mig. „Því
ekki að lækka verðið og fara inn
á þann markað?" Ekki hefur
staðið á svörum frá sérfræðing-
um, og eru þau flest á eftirfarandi
hátt:
1. Engin trygging er fyrir meiri
sölu.
2. Þar er harðari samkeppni
þ.e.a.s. mun fleiri vörutegundir
berjast um hillupláss á þeim
markaði.
3. Lægra verð frá framleið-
anda leiðir til verri afkomu sem
um leið veltir upp þeirri spurn-
ingu: „Er hagur í að framleiða
kavíar úr grásleppuhrognum
lengur?“
4. Hefur í för með sér nýja
auglýsingaherferð og kynningar-
átak sem höfðar til þessa neyt-
endahops.
Tæmandi skrif verða ekki sett
fram hér, en eitt vil ég segja við
þá grásleppusjómenn sem enn
hafa ekki getaö selt framleiðslu
þessarar vertíðar: Allt verður
gert til þess að losna við allan
pakkann í einu og á sem hæstu
verði. Reynt verður eftir bestu
getu að vinna hratt og taka ekki
ákvarðanir sem geta skaðað
hagsmuni okkar, í náinni
framtíð.
Orn Pálsson.
Höfundur cr framkvæmdastjóri Landssam-
barids smábátacigcnda.
MARKAÐNUM
16. ÁGÚST 1989
FRETTIR:
VERÐBÓLGA OG
ÓVERÐTRYGGÐ KJÖR
Hækkun lánskjaravísitölu milli júlí og ágúst
mældist 8,3% miðað við heilt ár. Hækkun
vísitölunnar frá 1. ágúst 1988 til 1. ágúst 1989
er 15,3%. Verðbólguhraði miðað við lánskjara-
vísitölu er þannig að minnka nú sem stendur.
í framhaldi af því má búast við hækkun raunvaxta
á óverðtryggðum bréfum, s.s. Einingabréfum 3.
Sölugengi verðbréfa þann 1 6. ágúst.
Einingabréf 1 4.1 04,-
Einingabréf 2 2.270,-
Einingabréf 3 2.688,-
Lífeyrisbréf 2.063,-
Skammtímabréf 1 ,409
MmmMÍ+A(jJPÞii\JG
NORÐURLANDS HF
Ráðhustorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
Höfðingleg
gjöf ffl FSA
„Hjúkrunardeildinni Sel við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
hefur borist myndarleg gjöf frá
velunnara, sem ekki vill láta
nafns síns getið.
Þessi gjöf er að fjárhæð 250
þúsund krónur og er gefanda
færðarbestu þakkir fyrir hana.“
OKUM EINS OG MENN'
Aktu
eins og þú vilt
að aorir aki!
|| UMFERÐAR
MURRAY reiðhjól
fyrir alla fjölskylduna
Glæsilegt úrval reiðhjóla fyrir alla fjölskylduna.
Metsöluhjólið í ár er Murray
Fjallahjólið“
á frábæru verði:
Kr. 18.400
Leiruvegi • Veganesti
Tryggvabraut
Utsalan
hefst í dag
SÍMI
(96)21400
Mikill
afsláttur